Morgunblaðið - 15.01.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.01.1967, Blaðsíða 32
MYJUNC! hoiessö RUMFAT AEFNI StíNWJDAGUR )5. JANÚAR 1*67 li©ae£SSl ÞARFNAST EKKI STRAUINGAR Undirbúningi að hægri handarakstri miðar vel DÓMSMÁLARÁÐHERRA mun á næstunni skipa tvær nefndir í að annast undirbúning og skipu lagningu hægri handar umferðar á fslandi. Mun önnur þessara nefnda leiðbeina um slysavarnir í þessu sambandi við breyting- nna, en hinni er ætlað að skipu- leggja tæknileg og verkfræðileg málefni breytingarinnar. Valgarð Briem, formaður framkvæmdanefndar Hægri- handaraksturs tjáði Mbl. að nefndin væri nú að kanna, hversu mörgum bifreiðum þarf að breyta á landinu þannig að dyr og ljós samræmist hægri handarakisturinum. Þé er einnig verið að athuga, hversu margir fólksflutningabílar fá undanþágu frá breytingunum, sem gera þarf á hurðum. Er sennilegt, sagði Valgarð, að fjallabílar sleppi óbreyttir, svo og þeir bílar, sem eru orðnir það gamlir og úr sér gengnir, að notkunartími þeirra eftir breytinguna verður ekki langur. Valgarð sagði ennfrem- ur, að íslendingar ættu mun hæg ara um vik með breytingu en ella, vegna þess, að Svíar taka upp bægri handar akstur 3. sept. á þessu ári, og getum við því haft til hliðsjónar þeirra reynslu og viðhorf í sambandi við þetta umfangsmikla fyrirtæki. Einnig vinnur nefndin nú að því að rannsaka hvaða dagur muni heppilegastur til breytingarinn- ar, en samkvæmt ákvörðun al- þingis skal breytingin eiga sér stað einhvern tímann á tíma- bilinu apríl til júní árið 1968. 620 hafa verið bólusettir BÓLUSETNING gegn mislingum er nú í fullum gangi á nýjan leik. Margrét Jóhannesdóttir, for stöðukona á Slysavarðstofunni sagði Morgunblaðinu í gær að þá þegar hefðu um 620 manns fengið ónæmisaðgerð og fleiri hefðu pantað. Hún gat þess að áríðandi væri fyrir fólk að láta bólusetja sig sem fyrst, því að aðgerðin væri gagnslaus ef við- komandi væri þegar sýktur. Eldur í niður- suðuverksmiðju fKVIKNUN varð í Niðursuðu- verksmiðju K. Jónsson og Co. h.f. á Oddeyrartanga um kl. 4,45 í gærmorgun. Næturvörður frysti- húss KEA, Hallur Benediktsson, kom auga á eldinn og hringdi samstundis í slökkviliðið. Þegar það kom á vettvang log- aði í þakskeggi verksmiðjuihúss- ins. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og skemmdir urðu hverf- andi litlar. Eldsupptök eru ókunn en rannsókn málsins stendur yfir. Sunnan við lóð verksmiðjunn- ar er birgðastöð olíusöludeildar KEA (Esso) með nokkrum stór- um olíu- og benzíngeymum. Ekki telur slökkviliðsstjóri að geym- unum hefði staðið nein hætta af eldsvoða í verksmiðjunni, jafn vel þótt þar hefði orðið mikið bál, enda stóð hægur vindur af »uðri. Bjarni Benediktsson, forsætisráð herra og Weymouth, aðmiráli ganga ásamt konurn sínum í sal- inn til þess að vera viðstödd athöfnina. Yfirmannaskipti á Kefla víkurflugvelli í gærdag YFIRMANNASKIPTI varnar- liðsins á Keflavikurflugvelli fóru fram í gærmorgun með virðulegri athöfn í einu stóru flugskýlanna á vellinum. Við- staddir voru allmargir gestir, m.a. Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra, sendiherra flestra Norðurlandanna og sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. Athöfn in hófst með þvi að þjóðsöngv- ar íslands og Bandaríkjanna Stone aðmíráll, hinn nýi yfirmaður varnarliðsins, og Weakley, aðmíráli, yfirmaður kafbátavarn aflota NATO á N-Atiantshafi, er þeir gengu í salinn. Rauða skikkjan frumsýnd á morgun Margrét krónprinsessa við frumsÝninguna Kaupmannahöfn, 18. janúar. Einkaskeyti til Mbl. DANSKA kvikmyndin um sög- una af Hagbarði og Signý, sem feer nafnið „Den rþðe kappe'* verður sýnd í fyrsta sinn með hátíðafrumsýningu í Kinopalæt kvikmyndahúsi ASA kvikmynda félagsins, mánudaginn 16. janú- ar. Mikill hluti af töku kvik- myndarinnar fór fram á íslandi. Margrét krónprinsessa verður viðstödd hátáðarfrumsýninguna. — Rytgárd. Gullíoss íékk ó sig hnúl GULLFOSS varð fyrir nokkrum skemmdum í Reykjaneeröst síð- astliðinn fimmtudag þegar hann fékk á sig hnút. Versta veður var í röstinni, um tíu vindstig og mikill sjór. Hnúturinn skali yfir bakborðshlið, svipti burtu stiga, braut nokkrar rúður og beygði þykka járnplötu. Engan sakaði við þetta og farþegamir sem flestir voru úldarsjómenn i hvildarferð, urðu ekki uppneem- voru leiknir af stórri blásara- hijómsveit, hermenn stóðu heið- ursvörð meðan athöfnin fór fram. Weymouth aðmiráll, sem nú kvaddi eftir tveggja ára dvöl hérlendis, en hann tók við hinn 16. janúar 1966, flutti stutt ávarp. Sagði hann m.a., að hann væri mjög ánægður með dvöl sína á íslandi, hann og kona hans hefðu eignast hér fjölda góðra vina. f>að hlyti því að vera erfitt fyrir þau hjón að skilja við þessa vini, og hinn samstillta hóp, sem hann hefði verið yfirmaður á Keflavíkur- flugvelli. í>á kvaðst hann og sakna hins íslenzka fjallalands- langs, sem hann hefði hriiizt mjög af. Þakkaði han íslenzkum stjórnarvöldum ágæta samvinnu þennan tíma sem hann hefði dvalið hér, og óskaði eftirmanni Sínum allra heilla í hinu nýja starfi. Frank B. Stone aðmiráll, og hinn nýi yfirmaður varnarliðs- ins, flutti þessu næst stutt ávarp. Hann lýsti ánægju sinni yfir að vera kominn til íslands, og kvaðst hlakka mjög til starfsins, sem hann vonaðist til að gengi eins vel undir stjórn sinni, og hjá forvera sínum. Weakley aðmíráll, yfirmaður kafbátavarna NATO á N-Atlants hafi, var viðstaddur athöfnina og flutti stutt ávarp. Hann sagði m.a., að þar sem erlendur her væri í herlausu landi hlytu ætíð að skapast einhver vanda- mál. ísland væri þjóð, sem héidi fast við sjálfstæði sitt, og þetta skildu yfirmenn Atlantshafs- bandalagsins, og virbu. Hann þakkaði Weymoutih aðmiráli, fyrir störf hans hér á landi. Hann hefði stuðlað að auknum o.g betri skilningi milli íslencU Framh. á bls. 31. Ljósovélur og skiðalyfta brunnu SKÚRINN sem hýstl ljósavélar Skíðaskálans í Hveradölum, og rafmagnsmótoranna sem notaðir eru við skíðalyftuna, brann til kaldra kola í gærmorgun. Beiðnl um aðstoð barst til slökkviliðsina í Reykjavík klukkan 10.40 f.lu og voru þegar sendir tveir bílar á vettvang. En þegar þeir komu á leiðarenda var lítið annað a3 gera en slökkva í glæðunum. Skíðaskálinn varð algerlega raf- magnslaus við brunann og var frestað firmakeppni sem átti a3 fara þar fram í gær. Efni til nofkunar í hálku og snjó í ÞESSARI viku er væntanlegt á markaðinn nýtt efni, sem nefn ist Barðatak. Nok-kur ár eru síð- an það kom fyrst á markaðinn í Ameríku, og hefur það náð töluverðri útlbreiðski þar. Efni þetta er notað til að sprauta á hjóíbarða bifreiða í hálku og snjó, og á þá í flestum tiifellum að vera hægt að komast leiðar sinnar. Hugmyndin að baki efnisins er sú, að bifreið spólar vegna klaka í mynztrum barðanna og spyrna þeir þá ekki í sem skyldi. Efnið þíðir íe og snjó úr mynztr unum og einnig þíðir það barð- ann. Tekur það nokkrar mínút- ur. Eykst þá að miklum mun möguleikinn á þvi að komaet leið ar sinnar án þess að spóla. Er- lendie er auglýst, að efnið eigi að duga aHt að 70 km, en ekki er hægf að segja neitt tfi tm það, hvort virknin er eine bér á landL Þá er einnig augljöst, a8 Barðatakið mun alls ekki koma í staðinn fyrir snjóbarða eð» keðjur, heldur á það aðeins aS vera tii aðetoðar, eí llla gengur. Aðnlfnndnr Týs í Kópnvogi TÝiR, félag ungra Sjálfstæðls- manna í Kópavogi heidur aðal- fund n.k. mánudag, 16. jan. Fundarefnk 1, Venjuleg aðal- fundarstörf. 2. lagabreyting ar, Að loknum aðalf undarstörfum verður sýnd kvikmyndin: „Ofar skýjum og neðar", látmynd með íslenzkwm texta. áitjórn Tý« hvetur allt Sjálf- stæðiefóik 1 Kópavogi til að fjöl- menna á tmduut. 'jW'IKfllil'ili1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.