Morgunblaðið - 21.02.1967, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1967.
BÍLALEIGAN
FERÐ
51MI 34406
Daggjöld kr. 300,00
og kr. 2,50 á ekinn kra.
SENDUM
líií
m
MAGIMÚSAR
skiphoiti 21 SÍMAR2U90
eftir lokún simi 40381
lOsiM'1-44-44
\mium
föo&zÆ&Cg.tZ'
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
bílnleigan
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAM
VAKUR
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUOARARSTÍG 31 SÍMI 22022
BÍLALEIGAN
EKILL sf.
Kópavogi.
Sími 40145
BíLALEIGAN
GREIÐI
Lækjarkinn 6 — Hafnarfirði.
Sími 51056.
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
* Himnaríki
Séra Árelíus skrifar:
„Kæri Velvakandi.
í>að er fátt eins skemmtilegt
og lesa dálkana þína. Jafnvel
þótt hægri handar akstur sé
orðið tabu í þínum augum í
allri sinni foriheimskan, þá er
svo margt, sem kalla mætti
straumrót lífsanda og hugsun-
ar í bréfum, sem þú birtir.
Eitt verð ég að nefna, sem
þú talar sjálfur um af nokkr-
um misskilningi og telur mig
hafa stórlega misstigið mig í
notkun orða.
Hvað er að tala í nafni ein-
hvers?
í helgum fræðum er nafn
táknorð um þann kraft, sem
í einhverjum býr.
f nafninu átti kraftur þess að
vera, sem nafnið bar. í nafni
Krists þýðir í anda eða kr'ú’ti
Krists, krafti kærleika hans,
speki hans eða mildi hans. t.i.
Hugsunin sú, að fyrir hans orð
og atfylgi fengizt bænheyrsla.
JÞegar ég tala eða segl í
nafni ísl. þjóðarinnar (ég man
nú ekki orðalagið nákvæm-
lega), þá er sú meiningin að
íslenzka þjóðin sameini nú
krafta sína gegn heimsku og
forblindan — þú skilur, þess
sem ekki má nefna.
En nóg um það. Kona, sem
kallar sig „Önnur roksin kona-‘
skrifar gegn „roskinni. konu'*,
sem ræðst gegn ýmsum kenn-
ingum kirkjunnar, sem séu úr-
eltar, hættulegar og jafnvel
guðlast. (Og Guð veit, ég er
henni sammála). Og nú langar
mig til að spyrja: Veit eKíi
„Önnur roskin kona“ að mikiil
orðaforði I Ritningunni er not-
aður sem líkingamál og mynd-
ir 'handa fólki sem ekki var
læst, en þurfti samt að skiija
það, sem um var rætt?
Kristur talar hvergi um
helvíti í þeirri merkingu, sem
miðaldaguðfræðin útlistar það
(GIHENNA). Hann talar á síau
líkingamáli um Ghenna, en
það voru nánast sorplhaugar
Jerúsalem-þorgar. Hann er að
tala um að týna, glata hinu
bezta í sjálfum 9ér. Og það er
eina glötunin sem hann taiar
um.
Og þá segir hann: Betra væri
þér að ganga handarlausum
inn til lífsins (gleðinnar eða
hamingjunnar eða himnanna —
en allt þetta er líka líkinga-
miál), en að allri persónu þinni
verði varpað á sorphauginn.
Þetta er allt og sumt, og
þetta ætti hvert barn að geta
skilið.
Svipað er með svo margt &
máli biblíunnar. Himnaríki er
t.d. enginn staður, heldur
ástand, sérstaklega sálarásta.id
smbr. Guðsríki er hið innra i
yður. Sama er einnig um þ ið
sem nefnt er helvíti. Orðið
sjálft þýðir dauðans-lhætta eða
refsing, en það er að mestu
eða öllu leyti sálarástand og
þarf síður en svo að vera eilift.
Auðvitað eru margir staðir, og
þá auðvitað helzt hér á jörð,
(þeir einu sem við þekkjum)
sem kalla mætti þessu ófagra
og ægilega heiti, en þeir eru
allir skapaðir eða mótaðir af
þessu óhugnanlega ástandi
mannssálna.
Og að síðustu til Akurnes-
ingsins:
„Undir Pílatusi“ þýðir & dög
um eða landsstjórnarárum
Pílatusar og notað þannig í síð
ustu helgisiðabókinni. En til
eru margir, sem fremur vilja
hafa orðin eftir eldri bókinni,
ekki breyta bókstafnum, hvorki
í því né öðru. Sama er að segja
um orðalagið: „Upprisu holds-
ins“. En það er jafnframt trú-
aratriði, sem flestum íslending
um er nú orðið framandi.
Það ei misskilningur Akur-
nesingsins, að þetta sé nýrra.
Þetta er einmitt orðalag úr
gömlu helgisiðabókinni, sem
„játningatrúir prestar“ vilja
ekki leggja niður, og nota því
í tíma og ótíma.
Árelíus Níelsson."
★
Velvakanda hafa enn borizt
fjölmörg bréf um trúmál og
sýnir það ljóslega, hve margir
hafa áhuga á þeim málum. En
slíkar umræður verða nokkuð
einhliða í dálkum eins og þess-
um — og verða því fleiri bréf
um þetta efni ekki birt að
sinni.
Orðsending
frá Laufinu
Þótt útsölunni sé hætt, höfum við óselt
úrval kvöldkjóla, dagkjóla, samkvæmis-
kjóla, síð samkvæmispils, kápur alls konar
AHar þessar vörur seljast fyrir hálfvirði
og undir hálfvirðL
Laufið Laugaveg 2.
v/d Raunvlsindastofnun
Háskólans
Rauvísindastofnun Háskólans hyggst
veita á árinu 1967 vinnuaðstöðu um tak-
markaðan tíma fáeinum mönnum, sem
hafa styrki til rannsókna á þeim sviðum,
er undir stofnunina falla, en þau eru:
stærðfræði, eðlisfræði, efnafræði og jarð-
eðlisfræði. Þeir, sem hafa eða eiga í vænd-
um slíka styrki og óska eftir vinnuaðstöðu
við stofnunina skulu senda skriflegar um-
sóknir til stjórnar stofnunarinnar og
fylgi rækileg greinargerð um verkefnið svo
og um aðstöðu mannsins til að vinna að
því, sem aðra þá, er stofnunin veitir.
Umsóknir skulu hafa borizt stjórn Raun-
vísindastofnunar Háskólans, Dunhaga 3,
Reykjavík, eigi síðar en 15. marz 1967.
Raunvísindastofnun Háskólans.
BLAÐBURÐARFÓLK VANTAR
I EFTIRTALIN HVERFI:
Skerjafjörður — Lambastaðahverfi Sjafnargata
sunnan flugv. Skólavörðustígur Baldursgata
Túngata Meðalholt Kaplaskjólsvegur
Talið við afgreiðsluna, sími 22480
Munstruðu brjóstahöldin frá LADY H.F.
komin aftur í 7 litum.