Morgunblaðið - 21.02.1967, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1967.
Fram skoraði 9-3 í síðari
hálfleik og vann Val 17-15
Valur hafði 4 marka forskot í hléi
FRAM og Valur mættust í 1.
deildarkeppninni á sunnudaginn.
Framan af virtust Valsmenn
ætla að „afgreiða" Reykjavikur-
meistarana á næsta rólegan hátt
og var staðan 12—8 í hléi, án
þess Framliðið sýndi nokkra til-
burði af alvöru í þá átt að jafna
metin. En í síðari hlutanum
bættu Framarar það upp á
glæsilegan hátt. Það var eins og
nýtt Framlið kæmi inn á völlinn
eftir leikhlé — lið sem Vals-
mönnum tókst ekki að skora hjá
fyrr en eftir 17 mín og úrslit
hálfleiksins voru 9—3 Fram í vil.
Unnu þvi Reykvikurmeistarar
Fram leikinn með 17—15 og end-
urheimtu annað sætið í mótinu,
þó Valsmenn séu með jafnmörg
stig.
Valsmenn náðu undarlegu
töfravaldi á leiknum i byrjun.
Þeir náðu algerum undirtökum,
réðu hraðanum og gangi leiks-
ins. Á þeim tíma átti þó enginn
Valsmanna neinn glæsilegan leik
— nema helzt Jón Breiðfjörð í
markinu. En samtakamáttur liðs-
ins brást ekki. Samleik liðsins
stjórnaði Jón Ágústsson, dreifði
spilinu vel og hinir eldsnöggu
Valsmenn skutust svo inn í eyð-
urnar sem mynduðust í Fram-
vörninni og skoruðu öll sín mörk
af línu. Var sterkur þáttur í leik
Vals, að flestir gátu skorað, ef
tækifæri gafst og skoruðu 6 leik-
menn þessi 12 mörk í fyrri hálf-
leik. Aðra sögu var að segja um
Fram. Þar var mikið puðað og
reynt og oft sköpuðust færi til
markskota — en þau voru ekki
nýtt af því að svo virtist sem
ákveðnum mönnum væri ætlað
að skora.
Er frá leikhléi kom höfðu leik-
menn Fram sýnilega fengið til-
tal og góð ráð. Liðið var óþekkj-
anlegt. Sigurður Einarsson var
settur til höfuðs Jóns Ágústsson-
ar, sem eins og fyrr segir, stjórn-
aði Valsspilinu. Jón vissi ekki
hvaðan á sig stóð veðrið (var
líka mjög stíft valdaður, og spil
Valsmanna hrundi saman eins
og spilaborg. Á 12 fyrstu mín-
útunum jafna Framarar forskot-
ið sem Valsmenn höfðu náð —
og það þrátt fyrir áframhaldandi
mjög góða markvörzlu Jóns
Breiðfjörðs. Fram náði síðan tví-
vegis marks forystu en Vals-
mönnum tókst að jafna. Skoraði
Valur fyrsta mark sitt í hálf-
leiknum er 17 mín voru af hon-
um liðnar og munu slíks fá dæmi
í 1. deild hér. Fór saman að spil
Vals hafði brotnað og eins góð-
ur varnarleikur Fram og frábær
markvarzla Þorsteins Björnsson-
ar síðari hálfleikinn.
Þegar 10 mín voru til leiks-
loka voru liðiri jötfn 14—14 og
15—15 var staðan er 2 mín voru
eftir. en á lokasprettinum sem
leikinn var í nokkrum skaphita
og án undangefni reyndist Fram
sterkara — og fylgdi þar einnig
nokkur heppni með, einkum með
síðasta markið.
Síðari hálfleikurinn hjá Fram
var mjög glæsilega leikinn. Leik-
mdnn sýndu þar hvað í þeim býr
og ósjálfrátt vaknar sú spurning:
Af hverju að leika á þennan hátt
bara í síðari hálfleik? Af hverju
bara í þessum leik? Þarna var
hvorttveggja gert, að reyna að
brjóta niður spil mótherjans og
að koma fram með nýjungar
í sóknarleik. Framliðið sýndi
þarna sóknarleik með miklum
hraða og „látbragðsleik“ í skot-
um sem ruglaði vörnina og opn-
aði varnarvegginn fyrir hinum
léttu, liðugu og snöggu línumenn
liðsins. Þrátt fyTÍr slakan fyrri
hálfleik verðskuldaði Fram vel
sigurinn fyrir sinn glæsilega síð-
ari hálfleik. Það er athyglisvert
að af 8 mörkum Fram í fyrri
hálfleik eru 6 skoruð úr lang-
skotum (Gylfi 4 og Ingólfur 2,
eitt úr hraðhlaupi (Gunnlaugur)
og aðeins eitt af línu. í síðari
hálfleik eru 6 af 9 mörkum liðs-
ins skoruð úr línuskotum „léttu“
mannanna en Ingólfur skorar hin
3 (1 úr víti). 1 þessu felst mikill
lærdómur.
Valsliðið náði ágætum tökum
á leiknum í fyrri hálfleik og
meðan ekkert óvenjulegt var
reynt til varnar tókst allt vel. En
það virtist einkennilega auðvelt
að stöðva þennan gang málsins
þegar Fram loksins sneri sér að
því. Það er skemmtilegt að sjá
Valsmennina notfæra sér eyð-
urnar sem myndast í vörn mót-
herja og eru fáir sterkari þeim
Aððlfundur
Fram
AÐALFUNDUR Fram verður
haldinn í félagsheimilinu laugar-
daginn 25. febrúar og hefst kl. 2.
Fara þar fram venjuleg aðal-
fundarstörf.
52 mörk, 12 vítaköst
og óteljandi mistök
— var svipur leiks FH og Armanns
í þeim efnum. En lágur vöxtur
yfirleitt á liðsmönnum háir þeim
mjög í langskotum — nema helzt
hinum kæna skotmanni, Bergi
Guðnasyni, sem aft finnur smug-
urnar. Bergur var markahæstur
Valsmanna í þessum leik með 4
mörk — og sá eini sem skoraði
í síðari hálfleik. Tvö vítaköst
Hermanns voru varin af Þor-
steini og Bergur átti eitt í stöng.
En það þýðir lítið að hafa snögga
línumenn, ef ekki er séð fyrir
sendingum til þeirra. Þetta virð-
ist vandinn sem Valsliðið þarf
að leysa.
Karl Jóhannsson dæmdi mjög
vel.
— A.St.
------------------------------
UMF. SELFOSS, sigurvegarar í 3. deild 1966. Fremsta röð frá
vinstri: Guðjón Skúlason, Ólafur Bachmann, Erlingur Þor-
steinsson, Sverrir Ólafsson, Tryggvi Sigurðsson. Miðröð: Hauk-
ur Gíslason, Sigurður Eiríksson, Sverrir Einarsson, Árni Guð-
finnsson, Gylfi Þ. Gíslason, Guðmundur Arnoldsson. Aftasta
röð: Guðmundur Guðmundsson, þjálfari, Pétur Sigurðsson,
Sigurjón Bergsson, Gunnar Skúlason, Marteinn Sigurgeirsson
og Björn Gíslason, formaður knattspyrnudeildar félagsins. —
Einar Sigfússon vantar á myndina.
Selfvssingar fá verðlaun sín
SL. sunnudag fór fram á Sel-
fossi verðlaunaafhending fyrir
íslandsmót í knattspyrnu, 3.
deild 1966. Jón Magnússon,
framkvæmdastjóri KSÍ, afhenti
hinum ungu sigurvegurum deild
arinnar, Umf. Selfoss, sigurlaun-
in, sem var fagurlega gjörður
bikar, gefinn af Málningarverk-
smiðjunni Hörpu. Auk þess var
hverjum leikmanni afhentur
verðlaunapeningur.
Svo sem kunnugt er, var 3.
deild í knattspyrnu stofnuð á
síðasta ári, og er Umf. Selfosa
fyrsti sigurvegari í deildinni og
færftt því í 2. deild. Liðið hlatrt
8 stig, skoraði 15 mörk gegn 8.
Þessir ungu piltar unnu líka á
síðasta ári í Bikarkeppni KSÍ 1
2. flokki, fengu 6 stig, skoruðu
10 mörk gegn 3.
Þá unnu þeir Knattspyrnumðt
HSK, hlutu þaf 8 stig, skoruðu
24 mörk gegn 2.
Eins og framanrituð afreka-
skrá ber með sér, hefur liðið
sýnt mjög góðan árangur á síð-
asta ári, og engin tilviljun, að
þeir fá nú að spreyta sig í 2.
deild í ár. Þeir munu hafa full-
an hug á að halda að minnsta
kosti sæti sínu þar, enda eru æf-
ingar hafnar af fullum krafti.
Þjálfari liðsins er Guðmundur
Guðmundsson úr Reykjavík, og
hefur hann unnið mjög ötullega
að því að byggja upp liðið.
Jón Magnússon afhendir fyrirliða bikarinn.
Norwich sló Manch. Utd út
Vann 2-1 og liðið sem spáð var sigri úr keppninni
ENSKA 2 deildarliðið Norwich
jók mjög á frægð sína á laug-
ardag er liðið mætti Manchester
United í 4. umferð ensku bikar-
keppninnar á laugardaginn og
vann 2-1. Með því er Manch.
Utd. slegið úr keppninni, en
margir höfðu spáð liðinu sigri
i bikarkeppninni. Úrslitin urðu
2-1 og heldur Norwich í 5. um-
ferð þessarar keppni — sem lýk
ur með úrslitaleik á Wembley í
maí
64 þús manns sáu leikinn sem
fram fór á heimavelli Manch.
Utd. Lið Norwich, sem mörgum
íslendingum er í fersku minni
eftir heimsókn í boði Akurnes-
inga til íslands sl. vor, komu
hinum líklegu sigurvegurum
fljótt á óvart. Á 26. mín skoraði
h. innh. Don Heath, en Denis
Law jafnaði á 35. mín.
Úrslitin réðust svo ér Nobby
Stiles — einn úr heimsmeistara-
liðinu — hugðist senda knöttinn
til eigin markvarðar. En send-
ingin var laus og Bolland mið-
herji náði knettinum og skoraði.
Þannig uppfylltust óskir
þeirra, sem í upphafi bikarkeppn
innar 1871 stóðu að stofnun
hennar, og mæltu fyrir því að
öll félög Englands, smá og stór,
sameinuðust í bikarkeppni og þá
myndu fást misjöfn úrslit til
vegsauka fyrir knattspyrnuna.
DREGIÐ hefur verið um það
hvaða lið lenda saman í næstu
umferð (hinni 5.) í ensku bikar-
keppninni. Úrslitin urðu.
Rot)herlham/Binningiham —
Bolton/Arsenal
Norwidh — Sheffield Wed
Sunderland — Leeds
Nottinglham Forest — Swindon
Tottenham — Bristol City
Brighton/Chelsea —
Fulham/S'heff. Utd.
Cardiff/Manc. City — Ipswich.
Wolves/Everton — LiverpooL
í Skotlandi var einnig dregið:
Hibernian — Aberdeen
Dundee Utd — Partick Thistle/
Dunferline.
Celtic — Queens Park/Airdroni-
as.
Clyde — Hamilton
„TOPPLIÐIÐ" og „botnliðið" í
l. deild, þ. e. FH og Ármann,
mættust í síðari leik sinum á
sunnudaginn. FH vann 31-21. Sá
sigur vekur ekki athygli, heldur
hitt að Ármann skyldi skora 21
mark hjá meisturunum. Og þá er
reyndar komið að kjarnanum.
Leikurinn var allur dálítið laus
í reipunum, kæruleysislega leik-
inn, kæruleysislega dæmdur, lítt
hugsað um vörn en mikið lagt
upp úr hraða og hlaupum. Tólf
vítaköst voru dæmd í leiknum
— það talar sínu máli. Sá sem
mest kom á óvart af liðsmönn-
um var markvörður Ármanns,
Kristinn Petersen, sem sýndi
mjög góð tilþrif, varði oft vel,
m. a. vítaköst.
FH lék án Kristófers í mark-
inu og hvorki Auðunn Óskars-
son eða Einar Sigurðsson voru
með. FH hafði allan tímann und-
irtökin í leiknum og aldrei lék
vafi á um hvorum megin sigurinn
lenti. Lengst af voru Ármenn-
ingar aðeins rúmlega hálfdrætt-
ingar á við FH í mörkum. í hálf-
leik stóð 17-8, en síðari hálfleik
unnu FH-ingar aðeins með 1
markL
FH-liðið var sýnilega eitthvað
miður sín og tók þetta hlutverk
sitt létt. E.t.v. kemur þreyta eða
leiði í ljós eftir slík átök sem
FH-liðið hefur staðið í að und-
anförnu. Skothæfnin brást ilhi
hjá þeim sumum og fleiri stór-
gallar voru á leik af meisturum
að vera. Geir og Ragnar báru
nokkuð af í liðinu.
Ármannsliðið er að ná tökum
á leik sínum og hefur ekkert lið
sýnt jafn miklar framfarir og
Ármann í mótinu sjálfu. Elni
langt er enn upp á toppinn —•
og fallinu verður sennilega ekki
forðað.
Markhæstir FH-inga vortK
Ragnar 8, Geir 7, Páll 5, örn og
Jón Gestur 3, Árni 2. Markhæst-
ir hjá Ármanni: Ástþór 10 (•
úr vítum), Árni Sam og Guðm.
Sigurbjörnsson 3 hvor.
Dómari var Magnús Pétursson,