Morgunblaðið - 21.02.1967, Page 13

Morgunblaðið - 21.02.1967, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1967. 13 Aðalfnndur Iþróttafélags kvenna verður haldinn þriðjudag- inn 28. febrúar kl. 8.30 í Café Höll (uppi). Stjórnin. Skógarmenn K.F.U.M. Aðalfundur skógamanna verður á morgun, miðvikudag 22. febrúar kl. 8.30 e.h. í húsi K.F.U.M. við Amtmannsstíg. Dagskrá venjuleg aðalfundar- störf. Eldri deildar menn fjöl- mennið. Stjórnin. „ Hver stund með Camel léttir lund!“ Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði. BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN Ein mest selda sígarettan í heiminum. MADE IN U.S.A. Nánari upplýsingar veitir Guð rún Erlendsdóttir, ritari Félags Sameinuðu Þjóðanna á fslandi. Skrifstofa félagsins er á Baróns- stíg 21, sími 18499. Virðingarfyllst, Reykjavík, 2. febrúar 1967. Guðrún Erlendsdóttir Fél. Sam. Þjóð. á íslandi. Frá Félagi SÞ hér Sumarráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Genf 1967: Sameinuðu þjóðirnar halda i ár, eins og undanfarin ár sum- arráðstefnu í Genf í Sviss. Ráð- stefnan stendur yfir frá 17. júlí til 4. ágúst og fjallar um: Áætl- anir og framkvæmd aðstoðar við þróunarlöndin. Þeir umsækjend- ur einir koma til greina, sem hafa sérstaka menntun eða reynslu á þessu sviði. Þar sem aldrei hefur verið þátttakandi frá Islandi á sumarráðstefnu S. J>., er sérstök áherzla lögð á að fá hæfan umsækjanda nú, og mun, á vegum utanríkisráðu- neytisins, verða veittur nokk- ur styrkur til þátttöku í ráð- stefnu þessarL Sumarskóli Wfuna-Ismun: Hinn árlegi sumarskóli Al- þjóðasamtaka félaga Sameinuðu þjóðanna (WFUNA) og Alþjóða félagsskaps stúdenta í S.Þ. (ISMUN) verður haldinn í 21. sinn í Genf í Sviss frá 9. til 21. júlí 1967. Það, sem um velð- ur fjallað að þesu sinni, er Mann réttindamál. 80 þátttakendur verða í skólanum frá sem flest- um löndum S.Þ. Skólin er sér- staklega ætlaður stúdentum, kennurum, eða þeim, sem sér- stakan áhuga hafa á málefn- um S.Þ., og þá sérstaklega mann réttindam álum. - FRAMSÆKIN Framh. af bls. 12 ir forsjóninni fyrir, að þjóðinni hefir vegnað vel og að sjálfstaC- ið hefir verið treyst, efnalega og menningarlega og það að al- menningur býr nú við lífskjör sem þola fyllilega samanburð við það, sem bezt gerist hjá öðrum þjóðum. Vinnufús og frjálshuga þjóð, hefir með árvekni og mikilli vinnu komizt úr þeirri kreppu og fátækt, sem lamaði íbúa landsins um aldaraðir. Það sem nú ríður mest á, er að viðhalda þv£, sem áunnizt hefir og halda áfram að treysta þann grund- völl, sem atvinnulífið byggist á, m.a. með framkvæmdum, sem efla þjóðfélagsheildina og tryggja þjóðarhag. Það er von okkar allra að það megi takast. Það er ósk mín til Búnaðarþings að það megi vinna störf sín af bjartsýni og raunsæi, með glöggri yfirsýn yfir málefnin og með þeim þrótti, sem oft hefir einkennt störf íslenzkra bænda. Megi störf Búnaðarþings verða farsæl og landi og lýð til heilla. 400 lesta skip smíðað á Akranesi Akranesi, 16. febr. 1967. ÞORGEIR og Ellert h.f.: dráttar- braut og vélsmiðja, Akranesi hófu frumsmíði á um 120 lesta stálfiskiskipi seinnihluta ársins 1966 og er nú langt komið að byrða skipið. Áætlað er að smíði þess ljúki í vor, eigandi verður Jón Þórar- insson Seltjarnarnesi. Samið hef- ur verið um smiði á um 400 lesta fiskiskipi fyrir Vesturröst h.f., Patreksfirði. Þvi verki á að verða lokið i april 1968. Vinnusalur, tæki og öll hag- ræðing er þarna mjög fullkomin og til fyrirmyndar. Iðnaðarmenn með margra ára þjálfun við stál- tankasmíði og fleira, sem er hlið- stæð vinnu við stálskipasmíði. Forstjórar fyrirtækisins eru Þor- geir Jósefsson, frkvstj., og Jósef H. Þorgeirsson, lögfræðingur. — H.J.Þ. Frá Logfræð- ingafélagínu Lögfræðingafélag íslands hélt félagsfund þriðjudaginn 14. febr úar sl. í Tjarnarbúð. Fundarefni var hlutverk og þátttaka Lög- fræðingafélagsins f Bandalagi háskólamanna, og voru frum- mælendur prótfessor, Ármann Snævarr háskólarektor og Ölaf- ur W. Stefánsson deildarstjóri. Gerði frummælandi einkum grein fyrir tildrögum þess, að Bandalag háskólamanna var stofnað, stofnaðild Lögfræðinga- félagsins að bandalaginu og starfi þess fyrstu árin. Síðari frummælandi gerði einkum að umræðuefni störf bandalagsins síðustu árin. Sérstaklega gerði han grein fyrir því baráttumáli bandalagsins, að það verði við- urkennt sem samningsaðili fyr- ir hönd háskólamanna í þjón- ustu hins opinbera. Lögðu frum- mælendur áherzlu á, að Lög- fræðingafélagið veiti bandalag- inu fullan stuðning í baráttu þess fyrir áhugamálum sínum. Að framsöguræðum loknum tóku til máls Hrafn Bragason dómarafulltrúi og formaður fé- lagsins, Þorvaldur Garðar Kristj ánsson. Að lokum voru kosnir full- trúar Bandalags háskólamanna. —Ö— • 2.205.000.000 London, 16. febr. (NTB). Á fjárhagsárinu 1967—1968 munu Bretar verja 2.205 milljónum sterlingspunda til varnarmála, að því er tilkynnt var í London í dag. Er þetta 1%% aukning frá fyrra ári. Sundmeistaramót Hafnarfjarðar 1967 verður haldið í Sundhöll Hafnarfjarðar, sunnudaginn 5. marz kl. 2 e. h. Keppt verður í etftirtöldum greinum: 400 m skriðsundi karla 100 m skriðsundi karla 200 m bringusundi karla 50 m bringusundi karla 100 m baksundi karla 50 m flugsundi karla 100 m skriðsundi kvenna 100 m bringusundi kvenna 100 m baksundi kvenna Þátttaka tilkynnist til Trausta Guðlaugssonar í Sundhöll Hafnarfjarðar milli kl. 7—8 e. h. Sími 50088 eða í síma 514!71 fyrir 26. febrúar. FÉLAGSLÍF K.F.U.K. — A.D. Saumafundur í kvöld kl. 20.30. Myndasýning, kaffi og fl. Hugleiðing: sr. Lárus Halldórsson. Allar konur vel- komnar. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.