Morgunblaðið - 21.02.1967, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1967.
31
„Þaö var guös mildi að ekki
skyldi fara verr fyrir okkur“
Gullfossfarar hlakka
til að koma heim
Samfal við bóndann á Ytra-Hóli
Karl Jóbannesson, sem ásamt
dóttur sinni varð undir traktor
Akureyrl, 20. febrúar.
DRÁTTARVÉL valt síðdegls
í gær, neðarlega á heimreið-
inni að Ytra-Hóli í Fnjóska-
dal. Þar vorn á ferð Karl Jó-
hannesson, bóndi á Ytra-Hóli,
67 ára og Þórgrunnur dóttir
hans 35 ára. Urðu þau bæði
undir vélinni og lágu þar
slösuð og skorðuð á annan
klukkutíma, þar til hjálp
barst og þau voru flutt í
sjúkrahúsið á Akureyri, þar
sem þau liggja nú við sæmi-
lega líðan.
Tíðindamaður Mbl. náði
snöggvast tali af Karli bónda
í dag og spurðist fyrir um
slys þetta. Karl var 'hinn
hressasti í máli og bar sig vel.
— Það er nú alls ekki segj-
andi frá þessum endemis
klaufaskap, en þú mátt gjarn-
an segja frá hinu, að það var
hrein guðs mildi, að við
sluppuim lifandi frá þessu og
bara því að þakka, að það var
svolítil lægð í hjarnskaflinn,
nákvæmlega þar sem við
lágum undir vélinni. Annars
hefði hún marið okkur gjör-
samlega í sundur.
— Við vorum á heimleið
- KINA
Framhald af bls. 1
lífi eftir að hafa' orðið fyrir auð
mýkingum Rauðu varðliðanna.
„Tlver sá, sem ekki beygir sig
fyrir duttlungum þessara aga-
lausu ungu öfgamanna er barinn,
handtekinn og fluttur á brott til
„endurfræðslu" um hugsjónir
Maos“, segir útvarpið.
„Dagblað alþýðunnar" gerir ný
afstaðna heimsókn Kosygins for
sætisráðherra Sovétrikjanna til
London að umræðuefni, og segir
hana lið í leynimakki Bandaríkj
manna, Bretlands og Sovétríkj-
anna til að styðja falsyfirlýsingar
Bandaríkjamanna um friðarvilja.
„Aðalatriði VietnammáJsins er
ekiki hvort Bandaríkin geri loft-
árásir á Norður Vietnam eða ekki
heldur hitt, að Bandaríkin verða
að kalla árásarher sinn heim frá
Vietnam og hætta öllum árásar-
aðgerðum þar“, segir blaðið.
Veggspjöld í Peking segja frá
því, að því er japanskir frétta-
menn herma, að Liu 9hao-chi
forseti og Teng Hsiao-ping, að-
alritarl flokksinns, hafi niú verið
sviptir öllum embættum og
völdum í flokknium. Ekiki hafa
frá Böðvarsnesi um fimm-
leytið og vorum komin upp í
neðstu brekkuna á afleggjar-
anum heim að Ytra-Hóli, en
það er nærri tveggja kiló-
metra spotti. Þá vildi óhappið
til allt í einu.
— Við köstuðumst bæði af,
þegar vélin fór útaf og hefð-
um alveg sloppið, ef hún hefði
látið sér nægja að fara á hlið-
ina, en hún kom á eftir okk-
ur og valt alveg, svo að við
urðum of sein að forða okk-
ur. Þetta gerðist nefnilega
ekki á tiltakanlega löngum
tíma, skal ég segja þér.
— Dóttir mín meiddist á
olnboga, þegar hún kom niður
á eitilharðan hjarnskaflinn,
það mun hafa kvarnast eitt-
hvað úr beini við höggið. Að
öðru leyti erum við ekki bein
brotin, en náttúrulega mikið
marin, sérstaklega á fótum,
því að við lentum bæði með
annan fótinn undir dráttar-
vélinni og sátum þar föst.
Enginn var heima nema
kvenfólk og börn, en þegar
þau fór að lengjá eftir okkur
hringdu þau að Böðvarsnesi
til að grennslast um ferðir
okkar. Maður þaðan fór strax
af stað í bíl til að huga að
okkur og fann okkur fljót-
lega.
— Ekki var viðlit að hann
gæti lyft vélinni einn, svo að
hann þurfti að fara út að
Þverá til að sækja meiri
mann'hjálp og planka til að
vega vélina upp og ná okkur
undan.
— Það dreif nú brátt að
menn úr öllum áttum, því að
hringt hafði verið á bæina og
það mun hafa liðið rúmur
klukkutími, — já, líklega
klukkutími og 10 mínútur, —-
frá því vélin valt og þar til
við vorum laus undan henni.
Við vorum löngu hætt að vita,
hvort við hefðum yfirleitt fæt
ur. Við vorum orðin svo kol-
dofin og svo sótti á okkur
kuldi.
— Læknirinn á Grenivík
kom á staðinn um þetta leyti
og gaf okkur deyfisprautur,
en ekki var talið ráðlagt að
hreyfa okkur neitt, fyrr en
sjúkrabíllinn kom héðan frá
Akureyri, en það var svona
hálftkna seinna. Það var ekki
að vita nema við værum
beinbrotin. En það var hlúð
að okkur á allan hátt, þarna
á skaflinum, þangað til sjúkra
bíllinn kom og flutti okkur
hingað. — Já, þetta var nátt-
úrulega guðs mildi að ekki
skyldi fára verr fyrir okkur.
— Sv. P.
þessar fréttir verið staðfestar
opinberlega. Báðir eru menn þess
ir taldir mestu andstæðingar
Maos, og er þetta í annað skipti
, sem- fréttir berast um að þeir
hafi misst embætti sín. Sams-
konar frétt barst frá Pelking til
Japans hinn 6. þ.m., og var þá
höfð eftir „áreiðanlegum heim-
ildum“.
Té'kikneska fréttastofan CTK
segir að Mao-istar í Szechwan
séu nú umkringdir og hafi beðið
lægri hlut þrátt fyrir sex mán-
aða ötula baráttu í Honan héraði
hafa andstæðingar Maos einnig
unnið á að sögn fréttastofunnar,
og hafa deildir úr hernum geng-
ið í lið með þeim í stærstu borg-
um héraðsins, Kai Feng og Cheng
Chou.
Skömmu fyrir nón var NA-
kaldi og bjartviðri suðvestan
lands, en norðan til á Vest-
fjörðum og á annesjum norð-
anlands var NA-hvassviðri
með snjókomu. Kaldast var
4ra stiga frost á Horni og í
Æðey, en sunnanlands var
hiti 3-6 stig, hlýjast á Loft-
sölum.
Gert er ráð fyrir kólnandi
veðri, því að hæðin yfir
Grænlandi fer vaxandi' og
lægðarsvæðið suður undan
þokaðist austur á bóginn.
NÚ er langt liSið á síðari sólar-
landsferð Gullfoss og þegar Mbl.
hafði símasamband við skipið í
gærdag og ræddi við skipstjór-
ann, Kristján Aðalsteinsson, var
skipið skammt undan London og
var búizt við að það kæmi til
hafnar þar ' morgun.
Kristján sagði, að fremur lítið
væri að frétta af þeim ferða-
löngunum, að öðru leyti en það,
að þeir hefðu haft ágæta daga á
milli eyjanna, í Casablanca og á
fleiri stöðum, sem skipið hefur
komið við á. Hins vegar hafi
veðrið ekki verið eins gott tvo
undanfarna daga.
við beztu heilsu, sagði Kristján,
Það hafa allir það gott og eru
en sumir eru farnir að hlakka
til að koma heim. Báðar ferð-
irnar hafa gengið prýðilega og
fólkið er mjög ánægt. Það hefur
haft mjög gott af þessari sumar-
dvöl, því að það var að mestu
leyti stöðugt sólskin, 17—22
stiga hiti og ferðirnar inn í land
á viðkomustöðunum gengu vel.
Fólkið er mjög ánægt með líf-
ið, sagði Kristján. Annað kvöld
fer Gullfoss frá London til Leith
og Reykjavíkur og allir hlakka
til að koma heim, sagði Kristján
að lokum og bað okkur fyrir
kveðjur heim.
Súkarnó biður um
umhugsunarfrest
- STORKAUPMENN
Framhald af bls. 3.
til lækkunar eins fljótt og
kostur verður.
d. Að flýta fyrir, að Verzlunar-
banki Islands h.f. fái réttindi
til verzlunar með erlendan
gjaldeyri, og að „Verzlunar-
lánasjóði" verði tryggt starfs-
fé af fjármagni því, sem veitt
er tíl framkvæmda í landinu
ár hvert og íáðstafað er inn-
an ramma framkvæmdáætlun-
arinnar.
Endurskoðendur félagsins voru
kjörnir Tómas Pétursson og
Geir Jónsson og til vara Ólafur
Ág. Ólafsson og Ottó A. Michael-
sen.
Aðalmenn I stjórn Verzlunar-
ráðsins voru kjörnir þeir Björg-
vin Schram og Kristján G. Gísla
son, en til vara Ólafur Guðna-
son og Einar Farestveit.
í stjórn íslenzka vöruskipta-
félagsins voru kjörnir Bergur
G. Gíslason og Karl Þorsteins.
í skuldaskilanefnd voru kjörn-
ir Gunnar Eggertsson, Þórhallur
Þorláksson og Kristján Þorvalds-
son og til vara Björn Hallgríms-
son og Pétur O. Nikulásson.
í útflutningsnefnd voru kjörn-
ir Ólafur Ág. Ólafsson, Margeir
Sigurjónsson og Einar Farest-
veit.
Djakarta, Tókíó, 20. febr.
— AP-NTB —
í BARDAGA sló með stuðn-
ingsmönnum Súkarnós Indó-
nesíuforseta úr sjóhernum og
andstæðingum hans úr fall-
hlífahernum í grennd við
Djakarta á sunnudagskvöld,
að því er japanska blaðið
Sankie Shimbun segir í dag.
Sjónarvottar segja, að her-
mennirnir hafi skipzt á skot-
um, er hermenn úr sjóhern-
um tóku stjórn bækistöðva
stúdentasambandsins KAMI
í sínar hendur. Staðfest er í
Djakarta að tveir menn hafi
fallið í átökunum. en vitað er
um fleiri sem féllu og særð-
ust f báðum liðum. Bardag-
anum lyktaði með því að fall
Allt var í lagi
Stykkishólmi, 20. febrúar.
AUGLÝST var eftir báti í út-
varpinu um helgina, sem ekkert
hafði heyrzt til í tvo sólarhringa.
Var þetta Björg sem, Ver h.f. í
Stykkisihólmi hefur nýlega keypt
frá Eskifirði.
Ekkert var að bátnum, en allt
var 1 lagi um borð, að öðru leyti
að ólag var á talstöð hans. Var
hann staddur skammt frá fsa-
firði, er aftur heyr^ist til hans.
Björg er 55 tonn og er ætlun
hinna nýju eigenda að gera hana
út á net. Skipstjóri er Viðar
Björnsson. — FréttaritarL
hlífahermennirnir ráku hina
á flótta.
Súkarnó hefur enn neitað aS
fara frá völdum. Suharto hers-
höfðingi og fleiri yfirmenn hers-
ins héldu með honum fund í
sumarhöll hans á sunnudag og
stóð sá fundur í þrjár klukku-
stundir. Eftir hann var gefin út
svohljóðandi yfirlýsing: „Forset-
inn og yfirmenn landvarnanna
ræddu í dag núverandi ástand
í landinu". Síðan yfirgáfu yfir-
menn landvarnanna sumarhöll
Súkarnós bakdyramegin.
Áreiðanlegar heimildir í Dja-
karta hermdu í dag, að Súkarnó
hefði neitað að fara frá völdum
strax, en beðið Suharto um
nokkurra daga umhugsunarfrest.
Fótbrotnaði
UM kl. 17.30 í gær varð fiögurra
ára drengur, Gunnar Þ. Frið-
leifsson, til heimilis að Laugar-
nesvegi 26, fyrir bifreið á
Reykjavegi á móts við Sund-
laugaveg.
Drengurinn fótbrotnaði og var
fluttur í Slysavarðstofuna.
- RETTARHOLD
Framhald af bls. 1
ar verða i sambandi við þessi
réttarhöld hinar umfangsmes'tu
í bandarískri réttarsögu.
Aðalvitnið gegn Speck verður
spænska hjúkrunarkonan Cora-
zon, sem var sú eina hinna níu
hjúkrunarkvenna i Chicaga, sem
slapp með því að fela sig undir
rúmábreiðu.
Rauða skikkjan fékk íslenzkt
tal og heppnaöist vel
KVIKMYNDAGAGNRÝN-
ANDI Kaupmannahafnar-
blaðsins „Söndags-Aktuelt“
ritar 19 febr. sl. dóm í blað
sitt um íslenzku útgáfu kvik-
myndarinnar „Rauða skikkj-
an“, þ. e. þá útgáfu þar sem
íslenzka er töluð inn á mynd-
ina. Tvö slík eintök eru til af
filmunni og verða þau sýnd í
Reykjavík nú um mánaða-
mótin.
Eins og kunnugt er fékk
myndin almennt slæma dóma
í Danmörku, og m.a. kallaði
Berlingske Tidende hana „18
millj. kr. vonbrigði". Gagn-
rýnandi Söndags-Aktuelt seg-
ir hinsvegar í fyrirsögn fyrir
dómi sinum: „Rauða skikkjan
fékk íslenzkt tal og heppnað-
ist vel“.
í kvikmyndadómnum segir
meðal annars:
— „Rauða skikkjan" var
sýnd með íslenzku tali í eina
skiptið í „Kinopalæet“ á
föstudagskvöld. í ljós kom að
hér var um sérlega ánægju-
lega upplifun að ræða. Sýn-
ingin sannaði þá kenningu,
sem ég hef haldið fram um
nokkurt skeið, að það sem
dönskum kvikmyndagagnrýn-
endum hefur fallið verst, var
danska talið í myndinni.
Raddirnar voru sitt í hverri
tóntegund. Án stíls og án sam
hengis.
En í íslenzku útgáfunni
kemur fram hinn rétti tal-
stíll. Raddirnar, sem valdar
eru með framúrskarandi tón-
skyni, tala í sömu tónteg-
und . . .
Ef menn hér heima hefðu
valið þann kost, að hafa talið
á íslenzku og sýna danska
texta, er ég þess fullviss að
myndin hefði fengið aðrar
móttökur ...
Myndin vann á við endur-
sýninguna. Og sérstaklega
vegna hins íslenzka tals.
Það ætti að gefa dönskum
kvikmyndahússgestum kost á
að upplifa það, sem ég sá og
heyrði á föstudagskvöld.
Kvikmyndin á það skilið.
Allir hlutaðeigendur eiga það
skilið“.