Morgunblaðið - 26.02.1967, Page 17

Morgunblaðið - 26.02.1967, Page 17
MORCUNBLAÐIB, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1967. 17 Séra Sigurður Ein- arsson látinn SÉRA Sigurður Einarsson var maður stórgáfaður, flugmælskur og ekki við eina fjöl felldur. Á yngri árum var hann róttækur vinstrimaður en hneigðist með vaxandi aldri til raunhæfari skoðana. Hann var frá upphafi harður andstæðingur nazista og með nánari kynnum af komm- únistum snerist hann og til ein- dreginnar andstöðu gegn þeim. fíéra Sigurður var ætíð hiklaus í skoðunum sínum og ódeigur að berjast fyrir þeim. Þess vegna háði hann marga hildi um dag- ana og naut misjafnra vinsælda, REYKJAVIKURBREF ►Laugardagur 25. íebr. en fór sínu fram og hlaut al- menna virðingu að lokum. Þegar vinstri stjórnin var mynduð á árinu 1956 meðal ann- ars í því skyni að gera ísland varnarlaust, taldi séra Sigurður slíkt hið mesta glapræði og lagði sig mjög fram í baráttu gegn þeirri fásinnu. Minnist sá, er þetta ritar, þess, að þeir fóru saman á fund austur á Síðu til að ræða þetta mál þá um haust- ið. Á leiðinni skall á hið versta veður og varð Mýrdalssandur um skeið ófær yfirferðar. Seint um kvöldið komust menn þó á leiðarenda en voru kaldir og illa haldnir. Allmargt héraðsmanna var komið á fundarstað, sem ó- neitanlega var býsna óvistlegur í kulda og óveðri. Stemning var þess vegna heldur drungaleg í upphafi og fyrsta ræðan flutt af litlum tilþrifum. Á þessu varð skjótt breyting eftir að séra Sig- urður hóf mál sitt. Hann talaði af þeim eldmóði og sannfæring- arkrafti, sem fágætur er. Hreif hann og alla fundarmenn með mælsku sinni og guldu þeir hon- um innilegar þakkir með lang- varandi lófaklappi að lokum. Mun fáum þeim, er á þessum fundi voru, líða úr minni and- ríki og þrek séra Sigurðar, sem þarna talaði af innri þörf gegn yfirlýstri stefnu síns eigin flokks, sem hann þó sízt vildi bregðast heldur leiða á rétta braut. Þá mætti herinn fara Engum, sem hlustaði á Ful- bright öldungadeildarþingmann, tala hér nú í vikunni, getur blandazt hugur um, að hann er ekki einungis mjög vel máli far- inn heldur og bæði fróður og víðsýnn. Um skoðanir hans hlýt- ur sitt að sýnast hverjum, svo sem verða vill. Sjálfur lagði hann á það ríka áherzlu i ræðu sinni í hátíðasal Háskólans, að hér i heimi skortir mjög á að fullkomleika verði náð og tjái þó hvorki að gefa upp von né bar- áttu fyrir betri tímum. Sannfær- ing hans er sú, að aukin þekking og vaxandi samskipti þióða muni verða haldbezta ráðið til að efla frið og farsæld. f Bandaríkjunum eru aðrir stjórnarhættir en hér. Lýðræði ríkir i báðum löndum, en sam- band stjórnar og þings er þar með allt öðrum hætti en við höfum vanizt. Þess vegna er mögulegur sá mikli skoðanamun ur í utanríkismálum, sem er á milli forsetans og utanríkisráð- herrans annars vegar og Ful- brights, sem er formaður utan- ríkismálanefndar öldungadeild- arinnar, hins vegar. Hinir tveir fyrrnefndu hafa úrslitaráðin i utanríkismálum, en að þeim frá- töldum er frekar hlustað á það, sem formaður utanríkismála- nefndar öldungadeildar segir um þessi efni en nokkur annar. Klofningur á milli hans og þeirra virðist því í fljótu bragði veikleika-merki. Svo kann einnig stundum að reynast í einstökum málum, en frjálsræðið, sem þetta ber vitni um er ekki síður merki mikils styrkleika. Öll sjónarmið eru tekin til athugunar og ákvarð- anir teknar að vel íhuguðu máli. Berum þetta saman við stjórnar- hætti í einræðisríkjum. Þar er hula ýmist blekkinga eða þagn- ar dregin yfir raunverulegar á- stæður helztu ákvarðana. Menn geta aldrei vitað á hverju er von. Eilíf óveðursský grúfa yfir og þjaka allt þjóðlífið, bæði inn á við og út á við. Vonandi komast þeir stjórnarhættir á, bæði í Rússlandi og í Kína, áður en yfir lýkur, að helztu ráðamenn geti greint á opinberlega án þess, að þeir þurfi að óttast um sitt eigið líf og frelsi. Ef ámóta forystumenn í Rússlandi og í Kína, eins og Fulbright í Banda- ríkjunum, mættu ferðast um og láta uppi skoðanir sínar, and- stæðar stjórnvöldunum, með sama frjálsræði og hann, þá væri það öruggasta vitni um nýja og betri tíma. Slíkt benti sannarlega til, að friðvænlega horfði í heiminum. Þá þyrftu menn ekki lengur að óttast skyndiárás einræðisherra, svo að óhætt væri að láta ísland vera óvarið. Forseta Islands sóini sýndur í upphafi ræðu sinnar I Há- skólanum þakkaði Fulbright há- skólarektor lofsamleg ummæli, er hann hafði viðhaft. Fulbright sagði I gamansömum tón, að hann vissi sjálfur, að hann ætti ekki lofið skil'ð. en þó mundi hann hafa orðið fvrir vonbrigð- um, ef það hefði ekki verið flutt. Þarna vék hinn veraldar- vani maður að því, að vissnr um- genf»nisveniur eru tiðkaðar á meðal siðaðra manna. E.t.v. meina menn ekki vkia mikið með þeim, en hó hvkir það skort Tir á háttvísi. ef frá beir er hrugð ið. Fæstir kunna því t.d., ef einhver kemur inn í stofu án hess að varoa kveðiu á þá, sem fvrir eru, og ætlast hó en«inn til, að diún hugsun eða innileg samúð búi á bak við þær árnað- aróskir, sem veninie«a eru mæit- ar. Gamanvrði Fulbrights fela einnig I sér nokkra áminningit til þeirra. sem hann ávarnaðj, að t«ka ekki öil hans hrósyröt um há alveg hókstaflega. Þvih’k dómgreind á gildi kurteisíoorða dregur engan veginn úr V>->’ðin«u hæversku í umgengi við aðra. Fn því meira her að meta, ef einhver tekur sig fram um að svna manni sérstaka virðin«u eða sæmd. Rvo er t.d. um bá ákvörð- un FdinViorearhísVóia að eera fnroeta fslands að hoíðursdoktor i lö»um. Bú athöfn fór fr«m m»ð virðuleeum hætti hinn 19. h rn. Ákvörðunin um þá nafnbót er meira en venjuleg kurteisi, sem sýnd er gesti og gangandi, og háskólar raunar sýna stundum með veitingu doktors-nafnbótar og þjóðhöfðingjar oft með orðu- veitingum. Nafnbótina frá há- skólanum í Edinborg ber að með þeim hætti, að ótvírætt er, að forráðamenn háskólans vilja í senn votta manninum Ásgeiri Ásgeirssyni virðingu sína og styrkja tengslin á milli skozku þjóðarinnar og hinnar íslenzku. Þess vegna gladdi þessi vináttu- vottur flesta góða menn hér á landi. Enn eru þau súr Ekki fer á milli mála, að Skúli Guðmundsson er á meðal mikil- hæfustu þingmanna. Þess vegna söknuðu menn hans af þingi und anfarnar vikur, þegar hann var forfallaður sökum lasleika og fagna því, að hann skuli nú aft- ur hafa tekið þingsæti sitt. Hæfi- leikar Skúla lýsa sér með marg- víslegu móti. Sjálfur vill hann vera gamansamur, er oft hæð- inn í orðum en kann því illa, að aðrir glettist við hann. Á haust- þinginu vann hann sér það helzt til frægðar að flytja tillögu um afnám fálkaorðunnar, og upp- götvaði Tíminn, að grein- argerðin hefði raunar verið í Ijóðum. Þarna var því auð- sjáanlega um mikið hugðarefni Skúla að ræða, er hann hafði lagt ærna vinnu í. Það var því skiljanlegt að Skúla skyldi gremjast, að í Reykjavíkurbréfi var af þessu tilefni vitnað í vín- berin, sem refurinn sagði vera súr. Af þessu reiddist hinn aldni þingskörungur, svo að hann tók sig til og samdi rösklega skamm- arræðu um Biarna Benediktsson og las hana síðan unn með mikl- um móð í neðri deild Alþingis. Framsöguræða Skúla fyrir orðu- tillögunni, sem flutt var nú sl. föstudag, virtist og mjög mót- ast af því, að hann vildi af- sanna eigin vonbrigði. Hann la»ði ríka áherzlu á gremju sma yfir því, að húsmæður hefðu verið settar hjá um orðuveiting- ar. Fór hann um þetta mörgum og fögrum orðum og las að lok- um unn af miklumtilfinnin»ahita hina lióðuðu ereinargerð. Fór bá hvíRkur skálda-andi um salinn. að unp snratt menntamálaráð- herra og svaraðí iafnskiótt með öðru l’ófsí. víð bví var Skúli ekki þúinn og sat bögull eftir. Nokkru fyrr hafði hann hins vegar sýnt að ekki er hinn gamli 4dam með öllu horfinn úr huga hans. Paginn áður en Skói; tók sæti sitt á hincfi. hirti Tíminn þetta kvæði feitletrað: „Wpíðursdoktor. Títt var að nrúðir niltar lærðu til nrests‘=’,'«nar fvrr á dömmum, en um h-ð síðar sig ekkert k«>rðu, og allir snérust að lögunum. ^ágt er að andinn útlægur verði. Fg ætla það væri sniallræði, og hentu gt Drottni, ef háskólinn gerði mig heiðursdoktor í guðfræði. 18. febr. 1967 Sk. G.“ Ekki er um það að villast af hverju andinn kom að þessu sinni yfir hinn virðulega öldung. Enn er honum sárt um vínberin, sem öðrum hlotnast Nato og herinn Undir þessari fyrirsögn birtist eftirfarandi greinarstúfur í Tím- anum hinn 22. þ.m.: „í ræðu, sem Bjarni Benedikts- son, forsætisráðherra, flutti á Alþingi í fyrri viku, fór hann háðulegum orðum um tillögur ungra Framsóknarmanna í varn- armálum jafnframt því, sem hann tók undir með kommún- istum um það að dvöl hersins hér og aðild íslands að Nato yrðu að skoðast í samhengi, þótt hann viðurkenndi, að aðild íslands að Nato og varnar- samningurinn við Bandaríkin væru sitthvort málið. Forsætisráð herrann sagði: „Það er út af fyr- ir sig rétt, að Atlantshafsbanda- lagið og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru að nokkru leyti sitt hvort málið. En eins og hv. þm. tók fram (Einar Olgeirs- son) verða þau að skoðast í sam- hengi og verður ekki hjá því komist að svo sé gert.“ Þá lagði Bjarni Ben. áherzlu á það, að bandaríska herliðið væri hér til þess að verja ísland fyrst og fremst, og má af því álykta, að hann leggi þá minna nú upp úr því, að ísland er hlekkur í varnarkeðju Nato og þá fyrst og fremst þáttur í aðvörunarkerf- inu. Ráðherrann sagði: „Það, sem við verðum að gera okkur Ijóst er. Viljum við |hafa varnir? Teljurn við, að varnir séu nauðsynlegar, ekki vegna annarra, heldur vegna ekkar sjálfra?“ Annað hljóð í strokknum Á eftir þessari grein kom önn- ur svohljóðandi: f Reykjavíkurbréfi, sem Bjarni Benediktsson skrifaði í Morgun- blaðið í júní 1965, svarar hann þessari spurningu, sem hann leggur fyrir sjálfan sig, þ.e. er herinn hér okkar sjálfra vegna, nokkuð á aðra leið, enda hefur ráðherrann þá nokkuð önnur sjónarmið í huga, og ekki að deila við uppáhalds andstæðing sinn, Einar Olgeirsson, heldur svara íslenzkum fyrirlesara, sem haldið hafði fyrirlestur meðal fslendinga vestan hafs og látið að því liggja að íslendingar hefðu mikinn efnahagslegan á- vinning af því að hafa hér amerískan her og gætu þeir ekki haldið uppi blómlegu menn ingarbjóðfélagi án hjálnar Bandaríkjamanna. Úm þetta sagði forsætisráðherrann: „Verra er samt, að hinn ungi fyrirlesari segir frá því að íslend ingar nióti stvrks frá Bandan’kj- unum. Þessi fullvrðing hvilir á algiörum missk'lningi. Nii eru liðin allmörg ár frá því. að Bandaríkiamenn veittu okkur slíka aðstoð. Útgjöld þeirra vegna varna landsins verða ekki í þessu sambandi talinn stvrkur við okkur, þegar af því, að Bandaríkjamenn inna þau af hendi vegna síns eigin öryggis“.“ Cagnkvæmir hagsmunir v Greinarstúfarnir tveir hér að framan eru orðrétt teknir upp úr Tímanum og í framhaldi þeirra segir blaðið: „Þarna dró forsætisráðherrann fram merg málsins. Nú vill hann vísa þessari skoðun á bug.“ í þessu sambandi má láta það vera, þó að Tíminn haldi því ranglega fram, að Bjarni Bene- __ diktsson „leggi þá minna nú upp úr því að fsland er hlekkur í varnarkeðju Nato.“ Slíku hefur hann aldrei haldið fram, heldur ítrekað hið gagnstæða æ ofan í æ. í hinni tilvitnuðu ræðu sagði hann þvert á móti því, sem Tím- inn fullyrðir, þetta: „Við vitum, að Atlantshafsbandalagið og þátttaka íslands á einum úrslita- stað í vörnum bandalagsins hef- ur átt mjög verulegan þátt í að friða þennan heimshluta og það, að Sovétstjórnin sýnir Vestur- veldunum þá vinsemd, þá virð- ingu, sem hún nú gerir, kemur af því, að hún virðir samheldni þeirra og vald. Með því að varnir séu á fs- landi tryggjum við varnir banda bandalagsins í heild.“ Látum þó þessa fölsun Tímans eiga sig að sinni. Hug- leiðum hins vegar þann regin misskilning, sem lýsir sér í því að halda, að það þurfi að rek- ast á, að íslendingar vilji sjálfra sín vegna láta varnarlið Banda- ríkjanna vera hér, og að Banda- ríkjamenn hafi verið hér vegna sjálfra sín. Þessi skipun er ein- mitt á höfð með frjálsu sam- komulagi beggja aðila af því, að hagsmunir þeirra falla saman. Vitnisburður Cerhardsens Þessi sami grundvallarmisskiln ingur á eðli frjáls samstarfs lýsti sér einnig berlega í umræðunum um álbræðsluna á sl. vori. Þá töldu Framsóknarmenn og komm únistar raunar ekki síður það vera höfuðrök á móti samnings- gerðinni, að viðsemjendur okk- ar segðu samninginn sér hag- felldan. Auðvitað hefðu þeir aldrei gert samninginn, nema því aðeins, að þeir litu þannig á að þeir mundu hafa hag af honum. Alveg með sarna hætti og við íslendingar gerðum samn- inginn við gagnaðila okkar af því að við töldum hann okkur hagfelldan. Gerhardsen, fyrrv. forsætisráðherra í Noregi, vék í Stórþingsræðu í desember sl. að þessu sama um samningsgerð Norðmanna við kanadískt álfé- lag. Gerhardsen sagði m.a.: „SF. ætti einnig að verða Ijóst, að ekki er huesanlegt, að ná samningi þess eðlis, sem hér er um að ræða, án þess, að ákveðn- ir norskir hagsmunir verði að víkja til hags fyrir félagið, sem samningurinn er gerður við. Spurningin er hvort sá ávinn- ingur, sem Noregur fær að sínu leyti, vegur á móti því, sem af- sala verður. Góður samvinnu- samningur verður að gefa báð- um aðilium jafna hagsmuni. Ei.n- ungis ef svo er, þá er verianlegt að gera hann og líklegt að hann haldist." Einar Olgeirsson er raunar svo hneykslaður á bessari skoð- un Gerhardsens, að hann hefur flutt á Albingi bingsályktunar- tillögu um, að íslendingar eigi að benda Norðmönnum á. að þeir þurfi að standa sig betur í samningsgerð við erlend fram- kvæmdafélög en beir h»fi hingað til gert! Viðbúíð er að norskur verkalvður telii sig ekki burfa á leiðHeiningum Einars að halda, því að Gerhardsen sagði emnig: „Flest hinna stóru iðnfyrir- tækia eru að öllu eða einhveriu levti í höndum erlendra aðila.. Við getum ekki heldur haldið því fram, að við höfum haft slæma reynslu i þessu efni. Það er að minnsta kosti ekki álit þeirra, sem búa í þeim iðnaðar- byggðum, sem risið hafa upp Umhverfis slíkan iðnrekstur . . .“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.