Morgunblaðið - 26.02.1967, Blaðsíða 22
MÓndUN’ÉLA'ÐlÐ.
y' ; j f ■ m •m
SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1967.
t
Hjartkær eiginkona mín,
Kristín Magnúsdóttir,
Langeyrarveg 15, Hafnarfirði,
lézt áð morgni 24. febrúar í
St. Jósefsspítala, Hafnarfirði.
Fyrir mína hönd, barna,
tengdabarná og barnabarna.
Magnús Magnússon.
t
Kristín Guðmundsdóttir
frá Keflavík,
andaðist að Hrafnistu hinn
21. febrúar. Útför hennar fer
fram frá Njarðvíkurkirkju
miðvikudaginn 1. marz kl. 2
e.h. Jarðsett verður í kirkju-
garði Keflavíkur.
Aðstanðendur.
t
Faðir okkar og fósturfaðir,
Bergur Pálsson,
skipstjóri,
Bergstaðastræti 57,
andaðist í Landakotsspítala
24. þ. m.
Guðrún J. Bergsdóttir,
Jón Þ. Bergsson,
Lára Bergsdóttir,
Helgi Beigsson,
Ólafur H. Guðmundsson.
t
Útför föður okkar, tengda-
föður og afa,
Páls Inga Gunnarssonar,
verður gerð frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 28. febrú-
ar kl. 10,30 f. h. Athöfninni í
kirkjunni verður útvarpað.
Gunnhildur Pálsdóttir,
Kristinn Einarsson,
Esther Pálsdóttir,
Friðrik Friðriksson,
Gyða Pálsdóttir,
Haraldur Kristmarsson
og barnabörn.
t
Útför
Stefáns Tómassonar
frá Arnarstöðum, Núpasveit,
fer fram frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 1. marz kl.
10,30.
Sigríður Björnsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
í>ökkum innilega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og jarðarför
Kristínar Tómásdóttur.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og systir.
Minning:
Geirþrúður Þórðar-
dóttir, Hafnarfirði
LAUGARDAGINN 18. febrúar
síðastliðinn var til moldar bor-
in frá þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði ein af eldri húsmæðrum
bæjarins, frú Geirþrúður Þórð-
ardóttir, Hringbraut 51.
Mér sem þessar línur rita hlotn
aðist að búa í nábýli við þessa
hljóðlátu sæmdarkonu í áratugi
og kom oft á heimili hennar,
því langar mig til þess að kveðja
hana með nokkrum orðum.
Geirþrúður var fædd að Sveins
eyri í Dýrafirði 31. janúar 1893,
dóttir hjónanna Abígaelar Bjarna
dóttur og Þóðar Jónssonar, sem
þar bjuggu. Hún var með- þeim
elztu í stórum systkinahópi. Þ-að
fór því með hana, sem flesta
þá er ólust upp hér á landi um
t
Við þökkum innilega öllum,
er sýndu okkur samúð og vin-
áttu í veikindum, við andlát
>g útför okkar ástkæra eigin-
manns, föður, stjúpföður,
tengdaföður og afa,
Ingimars Magnúsar
Björnssonar.
María Hannesdóttir,
Jóhanna Þ. Ingimarsdóttir,
Herdis Jónsdóttir,
Hannes Jónsson,
Karin W. Jónsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir viljum við
færa þeim einstaklingum, fé-
lögum og starfsmannahópum,
sem auðsýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og
jarðarför mannsins míns og
föður okkar,
Ingólfs Jónssonar,
loftskeytamanns.
Sérstakar þakkir viljum við
færa póst- og. símamálastjórn-
inni, fyrir virðingu þá, sem
hún sýndi hinum látna.
Petra Þórlindsd. og börnin.
t
síðustu aldamót, að hún varð að
fara að vinna fyrir sér þegar
kraftar leyfðu. Leið hennar lá
því snemma að heiman og til
Reykjavíkur, en til Hafnarfjarð-
ar fluttist hún árið 1917 og átti
þar heimili upp frá því.
Hinn 13. nóvember 1920 giftist
Geirþrúður Þorvarði Þorvarðar-
syni verkstjóra frá Jófríðarstöð-
um í Hafnarfirði. Þau Þorvaldur
og Geirþrúður settu ekki bú sitt
saman af miklum efnum, frem-
ur en flestir aðrir á þeim árum.
Heimsstyrjöldin 1914 til 1918 var
nýafstaðin og verðlag mjög ört
hækkandi, en allt fór þetta samt
vel hjá þeim með samstilltum
átökum húsbændanna.
Þeim hjónunum varð sex
barna auðið, fjögurra dætra og
tveggja sona, sem öll eru á lífi
og búsett í Hafnarfirði og Reykja
vík, en þau eru Elín gift Jóni
Elíassyni rafvirkja. Þóra gift
Gunnari Jósteinssyni starfs-
manni Landsspítalans, Kristín
gift Jóni Jóhannessyni húsasmíða
meistara, Þorgerður gift Höskuldi
Ólaf.ssyni bankastjóra, Þorvarður
kvæntur Erlu Hjaltadóttur og
Þórður kvæntur Sjöfn Bessadótt
ur._
Á fyrstu búskaparárum sínum
keyptu þau húseignina Suður-
götu 17 og bjuggu þar til ársins
1926 að þau keyptu húsið nr.
2 við Jófríðarstaðaveg, sem nú
er nr. 51 við Hringbraut og
bjuggu þar síðan meðan þeim
entist líf. Hús þetta stækkuðu
þau og endurbættu síðan á marg-
an hátt, og þar komu þau til
manns sínum sex mannvænlegu
börnum, ásamt dóttursyni þeirra
Hafsteini, sem var á þeirra heim
ili, og af ömmu sinni, sem og
af öðrum fjölskyldumeðlimum,
talinn sem sjöunda barnið, enda
mat hann ömmu sína mikils. í
Ég þakka af hjarta ættingj-
um minum öllum, vinum mín-
um og öðrum, er glöddu mig
svo innilega á tíræðisafmæl-
inu þ. 20. febr. sl. með heim-
sóknum, skeytum, blómum og
gjöfum.
Gott er góðra að minnast.
Kristrún Finnsdóttir.
Þökkum af alhug öllum
þeim mörgu, er auðsýndu
okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
Þóru Jóhannsdóttur,
Stórn-Gröf (syðri)
Skagafirði.
Helgi Sigurðsson,
börn, tengdasonur
og barnabörn.
Innilegar þakkir færi ég öll
um þeim, sem minntust mín á
sjötugsafmæli mínu 17. febrú-
ar sl. með góðum gjöfum,
blómum og kveðjum.
Guð blessi ykkur öll.
Marín Jónsdóttir,
Hlíðargerði 8.
þessu húsi vann húa stærsta
hluta ævistarfs síns, án alls há-
vaða, en markvisst í þágu fjöl-
skyldunnar.
Mann sinn missti Geirþrúður
árið 1963 og bjó eftir það áfram
í húsi sínu meðan kraftar ent-
ust, en heilsu hennar hrakaði
mjög ört tvö síðustu árin. Það
var þá ósk hennar að þurfa
ekki að dvelja lengi í sjúkra-
húsi, og þá ósk sína fékk hún
uppfyllta, þar sem börn hennar
voru, hvert um sig fús til að
taka hana tii sin. Hún kaus þá
helzt að vera hjá Þóru dóttur
sinni og manni hennar, en með
henni hafði hún lengst verið,
þar sem hún fór síðustu að heim
an af börnum hennar. Og þar
dó hún 10. febrúar s.l eftir lang
varandi veikindi, sem börnin
hjálpuðust að við að létta henni
eftir aðstöðu.
Af systkinum Geirþrúðar eru
nú aðeins tveir bræður á lífi,
þeir Bjarhi búsettur í Hafnar-
firði og Gunnar búsettur í
Reykjavík.
Ég vil svo votta ástvinum
hennar mína innilegustu hlut-
tekningu og þakka henni fyrir
vináttu hennar og hlýtt viðmót
öll árin sem ég þekkti hana og
kom oft á heimili hennar, sem
bar umhyggju hennar fyrir börn
um og manni fagurt vitni. Ég
kveð svo Geirþrúði í' þeirri von,
að hún muni, að loknu ævistafi,
hljóta það hnoss, sem allir
kristnir menn þrá.
H. G.
YSjálvstæ&lísréZagið
IIMSÓLFUR
Hveragerði, heldur fund að Hótel Hvera-
gerði, þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20.30.
Til umræðu verða hreppsmál. Ingólfur
Jónsson ráðherra heldur ræðiL
Einnig mæta allir frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi á
fundinum.
Stjórnin.
ANDRÉS
AUGLÝSIR
DÖMUDEILD:
Fermingarkápur í úrvali.
Dragtir með skinnum.
Ýmsar smávörur, gott úrval.
HERRADEILD NIÐRI:
Nýkomnar molskinnsbuxur drengja.
Bonansa- gallabuxur.
Peysur nýkomnar í miklu úrvali.
Rúllukragapeysur og ljósar, grófar karl-
mannapeysur.
Mikið úrval af sokkum.
WOLSEY-karlmanna nærfötin margeft-
irspurðu. > _
ANGLI-skyrturnar vinsælu
gott úrval — stór númer.
Smávörur — Snyrtivörur.