Morgunblaðið - 03.03.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.03.1967, Blaðsíða 32
Lang stærsta og fjölbreyttasta blað landsins Helmingi útbreiddaia en nokkurt annað íslenzkt blað FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1967 Mjög víðtæk leit að bátn- um frá Súðavík í gær Tvær flugvélar og nærri 20 bátar leituðu við góð skilyrði — VÉLBÁTURINN Freyja BA 272 frá Súðavík, sem lýst var eftir í fyrrakvöld var ekki kominn fram, er blaðið fór í prentun í gærkvöldi, en báts- ins hafði þá verið leitað frá því í fyrrakvöld. Fjórir bát- ar leituðu í fyrrinótt og í gær leituðu tvær flugvélar og nærri 20 bátar. Á Freyju eru fjórir menn. Síðast heyrðist til Freyju kl. 16,30 í fyrradag, en þá mjög ógreinilega og gæti það bent til ísingar. í fyrrinótt leituðu Freyju fjórir bátar, ísafjarðar- báturinn Hrönn, Heiðrún og Ein- ar Hálfdáns frá Bolungarvík og strandferðaskipið Blikur og í birtingu í gærmorgun leitaði landhelgisgæzluflugvélin Sif og flugvé.1 Vesturflugs á ísafirði á- samt 17 bátum hvaðanæva af Vestfjörðum. Leitarskilyrði voru góð. Freyja mun hafa verið stödd út af svokölluðum Eldingum, þegar síðast spurðist til hennar en kl. 5 var þar NA 8 stiga vind- ur og blindhríð. Þremur klukku- stundum síðar hafði hvassviðrið hert og var þá vindhæðin kom- in í 9 stig og úrkoma hafði auk- izt. Frost var á og skyggni ekki meira en um 100 metrar. Landhelgisgæzluflugvélin Sif leitaði úti fyrir öllum Vestfjörð- um og Vesturflogsflu'gvélin leit- aði Norðurdjúpið, Jökulfirðina, í Aðalvík. Leitað var úr landi þar sem því var við komið. Fjórir menn eru á bátnum Björgunarsveitin í Bolungarvík þræddi ströndina til Skálavíkur, leitað var á Ingjaldssandi út und ir Barða og vitavörðurinn á Galt árvita leitaði 1 umihverfi vitans. Minni bátar, sem þátt tóku í leitinni þræddu og strendurnar. í gær fundust línubelgir í beina vindstefnu NA frá þeim stað, sem báturinn gaf síðast upp. Voru belgirnir í fjörunni við Galtarvita og báru merki Freyju. Þá fannst bólfæri, sem ekki hafði verið vitjað um, sem einn- ig tilheyrði Freyju og er ein- sýnt að báturinn hefur ekki fund ið það í sortanum í fyrradag. Bólfærið var 7 mílur frá Deild og 6.4 mílur frá Rit. 1 gær fór veður versnandi á leitarsvæðinu og var að bvessa, en veðrið í gær var mjög hent- ugt til leitar. Bátar voru farn- ir að tínast inn, þegar blaðið hafði síðast fréttir af leitinni. Var þá að koma myrkur og far- ið að snjóa. Skipstjóri, sem jafnframt er eigandi bátsins, er Birgir Benja- mínsson, kvæntui maður, 3® ára gamall og á uppkomin stjúp- börn. Aðrir á bátnum eru Lúð- vík Guðmund ison, ókvæntur og innan við bvítugt. Lúðvík er stjúpsonur Birgis, Páll Halldórs- son er einhleypur maður 50 ára að aldri og Jón Þórðarson á unn- ustu og tvö börn og er 22ija ára. Freyja hét áður Jón Ben og var þá gerður út frá Neskaup- stað, en til Súðavíkur kom hún fyrir um það bil þremur árum. Freyja BA 272 frá Súðavík, s em saknað hefur verið frá því síðdegis í fyrradag og leitað hefur verið að siðan. 2 dage r eftir af myndasýningu MR SÝNINGU Listafélags Mennta- skólans í Reykjavík á högg- myndum eftir sex íslenzka mynd höggvara lýkur á laugardags- kvöldið. Þetta er fyrsta listsýning hér á landi þar sem eingöngu eru sýndar höggmyndir. Þessum myndhöggvurum var boðin þátttaka í sýningunni og eiga þeir verk á henni: Ásmundi Sveinssyni, Sigurjóni Ólafssyni, Ólöfu Pálsdóttur, Guðmundi Elíassyni, Jóni Gunnari Árna- syni. Ennfremur eru á sýning- unni verk eftir Nínu heitna Sæmundsson. Samtals eru 21 listaverk á þessari sýningu, sem er í ný- byggingu Menntaskólans við Bókhlöðustíg. Hún er opin í dag og á morgun frá kl. 3 til 10 e.h. Sýningin verður ekki fram- lengd. Fólk ætti ekki að láta þessa sérstæðu sýningu fara fram hjá sér. Á Listafélag Menntaskólans þakkir skilið fyrir framtak sitt til kynningar þessari listgrein. Sif tók 3 báta FLUGVÉL Landlhelgis'gæzlumn- ar, Sif, tók í fyrrakvöld þrjá báta að meintum ólöglegum veið um við Eldey. Bátarnir voru Hildingur VE-3, Gullfaxi GK- 111 og Sæbjörg KE-102, og var þeim öllum stefnt til heima- hafna, þar sem mál þeirra verða tekin fyrir. Rækjubátur sökk Áhöfninni, tveim, bjargað af öðrum bát ísafirði, 2. marz. — LÍTILL rækjubátur Ver ÍS 108 sökk í ísafjarðardjúpi í dag. Mannbjörg varð. Báturinn var staddur nokkuð fyrir innan Arn- arnes og var að toga út af Hamr- inum, þegar leki kom að hon- um. Á bátnum voru tveir menn Ólafur Rósinkarsson og Ægir Ólafsson og báðu þeir þegar í stað um aðstoð hjá rækjubátn- um Hafdísi og kom hann strax að og tók Ver í tog. Lekinn magnaðist óðum og var innan stundar kominn upp á miðja vél og yfirgáfu þá þeir félagar bátinn og komust um borð í HafdísL Var Ver hafður áfram í togi og tók skömmu seinna inn á sig sjó og sökk. Á Hafdísi eru þeir Árni Magnús- son og Hjalti Hjaltaeon. — HT. Aherzla lögö á Vín- landsf undinn í Montr eal Yale- og Skálholtskortið í skála Norðurl. ÞAÐ SEIM fyrst blasir við, þegar gestir koma inn í hina sameiginlegu deild Norðurlanda í skála þeirra á heimssýningunni í Montreal í Kanada, verður gler skápur með eftirlíkingum af tveimur fornum landakortum, hinu nýfundna og umtalaða Yale korti og Skálholtskortinu frá 1670 og þeim fylgir stutt frásögn af ferðum Leifs Eirikssonar og víkinganna til Grænlands og Norður-Ameríku. Gunnar J. Frið riksson skýrði blaðamönnum í gær frá því hvernig hagað yrði hinu svokallaða aðaland- dyri í Norðurlandaskálanum, en það hefur nú verið útbúið og allt sem til þarf er á leið vestur um haf. Norðurlandaskálinn er sem kunnugt er á súlum og koma gestir með færibandi beint upp í þennan aðalsal á 1. hæð, sem er sameiginlegur fyrir löndin fimm. Þegar inn er komið er fyrir upp- lýsingadeild við langt borð og að baki kort af Norðurlöndunum á upplýstum glervegg. Þarna verð- ur til upplýsinga fólk frá Norður löndum og þar verður útbýtt sameiginlegum bæklingum um Norðurlönd, um skálann og það sem þar er að sjá og ferðabækl- ingum fyrir þá, sem áhuga hafa. Auk skápsins með hinum gömlu kortum er annar með lík- ani af Osebergs-víkingaskipinu frá Noregi. Og á veggnum sem fjærst er, blasir við upphleypt kort af Norðurhveli með Norður- löndum og Norður-Ameríku, gert úr kopar. Sýnir það glöggt hina landfræðilegu stöðu Norð- urlanda miðað við Kanada. Er sem sagt lögð mikil áherzla á fund Vínlands og afstöðuna milli landanna. Og til frekari áréttingar gefur íslenzka póst- stjórnin út frímerki á Norður- landadaginn með Skálholtskort- inu, sem þarna er sýnt, en það gerði Sigurður Stefánsson í Skálholti um 1570, sem kunnugt er, Einnig verður þarna f skálan- um hægt að fá bækur keyptar, fyrir þá sem álhuga hafa og verða þar m.a. Vínlands- saga og Eiríkssaga ra-uða, forn- sögur, skáldsögur og ferða-bækur frá íslandi, en hver þjóð má ekki fara fram úr 20 bókatitlum. Litaspil á stemningsmyndum Vinstra megin i salnum verða Framh. á bls. 31 Vélarnar enn á Grænlandsjökli BJÖRGUNARMÖNNUNUM bandarísku sem fóru til að bjarga flugmanninum af Aero Commander vélinni var bjargað af þyrlu í fyrradag. Þeir gátu ekki hafið vél sína til flugs aftur þar sem skíði brotnaði í lendingu. Einkaflugmaðurinn var ómeiddur með öllu, en hins vegar nokkuð kalinn enda mikill kuldi á jöklinum. Viðgerðar- sveit átti að fara á staðinn í gær til að skipta um skíði, en eftir síðustu fréttum sem blaðið fékk mun ekki hafa tekizt að ljúka viðgerðinni og vélin því enn á jöklinum. Sjö þingmenn SjálfstæÖisflokksins leggja til: STOFNSETT VERÐIFISKIMALARAD 500 lestir af loðnu Akranesi 2. marz: Loðnuveiðararnir Reykjaborg með 290 lestir og Hafrún með 200 lestir lönduðu hér í nótt í fiskmjölsverksmiðjuna og héldu aftur til veiða suður fyrir land. Sigurborg landaði 13 lestum af netafiski eftir tvær umvitj- anir. Línubátarnir Ásmundur, Ver og Reynir fiskuðu eina til fimm lestir. Þeir fengu slæmt sjó veður. Allir bátar eru úti á mið- unum í dag í betra veðri. Bakkafoss landar hér efni í uppbyggingu olíustöðvarinnar í Hvalfirði. sem móti heildarstefnu í sjávarútvegs- fisk- iðnaðar- og markaðsmálum S J Ö Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, þeir Matthías Bjarnason, Pétur Sigurðsson, Sverrir Júlíusson, Sigurður Ágústsson, Jónas G. Rafnar, Jónas Pétursson, Óskar E. Levy og Sigurður Bjarnason hafa lagt fram á Alþingi frv. til laga um síofnun Fiski- málaráðs. Fiskimálaráð skal skv. frv. beita sér fyrir samvinnu allra aðila sem hlut eiga að máli um mótun heildarstefnu í uppbyggingu sjávarútvegsins og í markaðsmálum. Við upp- byggingu fiskiskipastólsins skal við það miðað, að fjöl- breytni verði í útgerð lands- manna og eðlilegt jafnvægi milli hinna mismunandi út- gerðargreina, svo tryggð verði eftir föngum hráefnis- öflun til fiskiðnaðarins. Við uppbyggingu fiskvinnslu- og fiskiðnaðarfyrirtækja skal til lit tekið til æskilegrar dreif- ingar fyrirtækjanna og við það miðað að afkastageta þeirra sé hæfileg með hlið- sjón af mögulegri hráefnis- öflun. Ennfremur skal Fiski- málaráð hafa forgöngu um markaðsrannsóknir og skipu- legar aðgerðir til öflunar nýrra markaða fyrir sjávar- afurðir svo og um framleiðslu nýrra vörutegunda. Skv. frv. er lagt til, að eft- irtaldir aðilar eigi fulltrúa í Fiskimálaráði undir forsæti sjávarútvegsmálaráðherra: LÍU, FÍB, Sjómannasamband íslands, Farmanna- og fiski- mannasambandið, ASÍ, SH, Sjávarafurðadeild SÍS, SÍF, Síldarútvegsnefnd, Félag ísl. fiskimjölsframleiðenda, Fél. ísl. niðursuðuverksmiðja, Seðlabanki íslands, Fiskveiða sjóður, Fiskimálasjóður, Efna hagsstofnunin, Fiskifélag ís- lands. Hér fer á eftir í heild greinargerð frv. Með frumvarpi þessu er lagt til að stofnað verði Fiskimála- Fram-h. á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.