Morgunblaðið - 29.03.1967, Side 2
2
imJKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1967.
Ibúöarhús brann
fil kaldra kola
að Krossi á Skar^ssirönd
BúSardal, 28. marz.
Á ANNAN páskadag brann íbúð
arhúsið á Krossi á Skarðsströnd
til kaldra kola á tæpum klukku-
tíma. Þar búa hjónin Ólöí og
Forsetinn til
lækninga í
Kaupmannah.
FORSETI íslands, hr. Ásgeir Ás-
geirsson, fór í gær til Kaup-
mannahafnar með flugvél Flug-
félags fslands.
Forsetinn hefur undanfarið
kennt lasleika og mun hann
leggjast í sjúkiahús í Kaup-
mannahöfn til læknisaðgerðar.
Gerir forsetinn ráð fyrir að
dveljast ytra um mánaðartíma.
í frétt frá norsku fréttastof-
unni NTB segir, að forsetinn
muni fara í Bispebjerg-sjúkra-
búsið, þar sem dr. med. Jens
Ohr. Ohristoffersen, skurðyfir-
læknir, muni rannsaka hann.
Að sögn NTB vill íslenzka
sendiráðið í Kaupmannahöfn
ekki veita upplýsingar um sjúk-
dóm forsetans.
Barnalist í ný-
byggiiigu M.R.
EINS og skýrt hefur verið frá
í blaðinu opnaði Listafélag
Menntaskólans í Reykjavík sýn-
ingu á úrvalsteikningum barna
123. marz sl. í nýbyggingu M.R.
Á sýningu þessari eru um 100
teikningar barna á aldrinum 6-14
ára úr fjórum skólum borgarinn-
ar, og auk þess nokkrar leir-
styttur gerðar af börnum.
Sýningunni lýkur 31. marz, en
sýningartími er frá kl. 3—10 e.h.
Aðgangur er 10 kr. fyrir börn og
25 kr. fyrir fullorðna.
Listafélag M.R. hefur valið
sýningunni heitið Barnalist, en
Arthúr ólafsson listamaður hef-
ur valið myndirnar, sem þarna
eru sýndar. Þetta er önnur
myndlistarsýning Listafélagsins
á þessu skólaári.
Spilakvöld Sjálf
stæðismanna í
Hafnarfirði
SPILAKVÖLD Sjálfstæðisfélag-
anna í ílafnarfirði verður í
kvöld, miðvikudag, kl. 8.30 í
Sjálfstæðishúsinu. Spiluð verður
félagsvist Kaffiverðlaun vevða
og góð kvöldverðlaun veitt.
Sjálfstæðisfólk ei hvatt til að
fjölmenna og taka með sér gesrL
Ágúst Breiðdal með fjögur börn.
Fjölskyldan missti þarna hús
sitt og alla innanstokksmunL
Eldsupptök eru ókunn .
Fólk frá næstu bæjum kom
að Krossi til hjálpar, þegar elds
ins, varð vart, en eldurinn magn
aðist svo skjótt að ekki varð við
neitt ráðið.
Heimilisfólkið sat í stofu eftir
hádegismatinn, þegar eldurinn
kom upp en því vannst ekki
tími til að bjarga neinu.
íbúðarhúsið var miúrhúðað
timburhús.
Stórhríð hefur verið hér í
fjóra sólarhringa og varla verið
hægt að fara út úr húsL Frost
hefur verið 9—10 stig.
— FréttaritarL
'■■■'..........' ' ' •■■■ •:■'................................................................................................... ....................................................................................................................■ . ................................................... . . .
-<&
Gíf uriegur snjór í bæj-
um norðan og austan
GÍFURLEGUR snjór er nú víða
í bæjum norðanlands og austan,
og eru risaháir skaflar þar á
götum. Myndirnar hér á síðunni
eru frá Siglufirði og Ólafsfirði.
Steingrímur Kristinsson, frétta-
ritari Mbl. á Siglufirði segir m.a.
í fréttaskeyti til blaðsins, að
Siglfirðingum bregði alla jafna
ekki þótt mikið snjói, en nú séu
margir Siglfirðingar, sem segjast
ekki muna annan eins snjó og
kyngt hefur niður síðustu daga.
Hann segir ennfremur að ekki
öé svo tiltökulega mikill snjór
niðri í bænum, en strax og komi
■upp í Brekkurnar sé þar mun
meiri snjór en í fyrravetur, og
sumstaðar þurfi fólk að klifra
yfir 5 m til að komast heim til
•sín eða frá. Tvær minni mynd-
irnar á síðunni eru frá Siglu-
firði, en þær hefur Steingrímur
ttekið, en stærst myndin er frá
Ólafsfirði. Að sögn fréttaritar-
ans þar eru nú mun meiri snjór
þar, en þegar hann var mestur
á fyrravetur, enda var yfir pásk-
.anna eitthvert harðasta veður,
sem gert hefur þennan vetur.
Sömu sögu hafa margir í öðr-
um þorpum norðanlands og
austan að segja. T. d. skortir lítið
upp á að skaflar nái. upp í raf-
magnsstrengi háspennulínunnar
ivið Húsavík, og á Raufarhöfn
hefur verið þreifandi bylur frá
Iþví á skírdag, og telja kunnugir
þar, að ekki hafi komið svo
mikill snjór í kauptúnið síðan
1918. Á Vopnafirði komst
enginn út fyrir dyr í gær vegna
hríðarveðurs, og að sögn frétta-
iritarans, má heita að lægstu
ábúðarhúsin séu á kafi í sköflum.
Oræfafarar í grjótfoki
og vegleysum um páskana
STÓR hópur fólks, sem fór í
Öræfaferð um páskana lenti í
talsv rðum erfiðleikum, m. a.
ofsaroki og sandfoki á páskadag.
Vegna snjóþyngsla á Mýrdals-
sandi komust ferðalangarnir ekki
til Reykjavíkur fyrr en sl. nótt,
rúmum sólarhring á eftir áætlun.
Morgunblaðið hafði í gær-
kvöldi samband við Guðmund
Jónasson, en hann .var þá stadd-
ur í Vík í Mýrdal á leið suður.
Sagðist honum svo frá Öræfa-
ferðinni.
— Um 160—170 manns fór
með mér og Úlfari Jocobsen í
Öræfaferð um páskana. Vorum
við í 8 bílum. Ferðin gekk ágæt-
lega má segja fyrstu dagana, á
skírdag var farið að Kirkjubæj-
arklaustri, en á föstudaginn
langa að Hofi.
— Á páskadag var ofsarok og
þegar við vorum staddir rétt
Ungur Þjóðverji slasað-
ist mikið í Örœfaferð
Fluttur til Reykjavíkur í sjúkraflugvél
UNGUR Þjóðverji, sem þátt tók
í Öræfaleiðangri Guðmundar
Jónssonar og Úlfars Jacobsen,
slasaðist alvarleg í ofviðrinu,
sem geisaði í Öræfunum. Er ekki
vitað með hvaða hætti slysið
bar að höndum, en sjúkraflug-
vél varð að fá íil að flytja mann-
inn til Reykjavíkur. Var maður-
inn meðvitundarlaus, er blaðið
hafði síðast
hans í gær.
á Þjóðverjinn
fregnir af líðan
hafði farið einn.
síns liðs út að ganga á páska-
dagsmorgun, og nokkru eftir há-
degið fundu nokkrir menn hann,
þar sem hann lá í skjóli við
stein. Var hann þá meðvitund-
arlaus, og mjög kaldur, en hann
hafði bundið sig við steininn til
þess að fjúka ekki í veðurofs-
anum. Maðurinn var fluttur
heim að Skaptafelli, þar sem
reynt var að hlúa að honum
eins og kostur var.
Maðurinn var talsvert kalinn
og illa á sig kominn, og varð
það fljótt ljóst að koma yrði
honum í sjúkrahús. Símasam-
bandslaust var við Öræfin, en
leiðangursmönnum tókst að ná
sambandi við Björn Pálsson í
gegnum talstöð og fá sjúkraflug-
vél hans. Flaug hann þegar
austur ásamt dr. Friðriki Ein-
arssyni lækni, og lentu þeir á
Fagurhólsmýri við mjög erfið
skilyrði. Voru þeir komnir aftur
til Reykjavíkur með sjúklinginn
seint um kvöldið, og var hann
austan við Sandfell var það orðið
svo mikið, að stórir steinar fuku
til og frá. Lentu surnir á rúðum
bílanna og brutu þær. í einum
.bílnum brotnuðu t. d. 5 rúður.
Grjót fór í gegnum framrúðu
á Rússajeppa og út um aftur-
rúðuna. Enginn varð þó fyrir
meiðslum. En rúðutjónið er
mikið.
— Rokið var svo mikið að það
sá undir hjólbarða bílanna og
urðum við að bera grjót í tvo
iþeirra til að halda þeim niðri.
lUm 14—-15 vindstig hafa verið í
isnörpustu hviðunum. Ég hef
aldrei lent í öðru eins roki fyrr.
— Sumir bílarnir, sem á undan
okkur voru, sluppu í var við
Svínafell, en við urðum að snúa
við að Hofi aftur. Það var ekki
nokkur leið að halda áfram
ivegna veðurofsans.
— Á annan páskadag lentum
við í talsverðum erfiðleikum.
Það hafa um 25 bilar haft sam-
flot yfir Skeiðarársand. Það gekk
sæmilega yfir Skeiðará, en i
Gígjukvísl var hálfs annars
metra vatn á vaðinu. Þar var
ekki hægt að koma bílunum yfir.
En svo vel vildi til, að við kom-
umst yfir ís nokkru fyrir ofan
vaðið.
— Yfir Blautukvísl, Súlu og
lítið eitt af Núpsvötnum var
farið á ís. En yfir megin hlutann
af Núpsvötnum var mjög erfitt
að komast yfir. Draga þurfti bíl-
ana þar yfir og tók það langan
itíma og kostaði mikið erfiðL
Framh. á bls. 23
Langferðabíll
fauk á hliðina
NÝJASTA áætlunarbifreið Norð-
urleiðar hf. fauk út af veginum
í Kollafirði í fyrradag, og lenti
á hliðinni. Var bifreiðin að fara
á móts við áætlunarbifreið úr
Borgarnesi, og var þrennt í
henni. Geysilegt hvassviðri var á
þessum slóðum. Mbl. átti í gær
stutt samtal við bifreiðastjórann,
Birgir Ásgeirsson, og spurði
hann nánar um þetta atvik.
þegar fluttur í Landakotsspítala. | — Ég var að koma upp úr
Kleifunum í Kollafirði, sagði
hann, og á leið vestur. Veðrið
var þá orðið svo ofsalegt að ég
ákvað að snúa við á melunurn
ofan þeirra. Var ég rétt snúinn
við, þegar bíllinn hreinlega lyft-
ist frá jörðu og lagðist á hlið-
ina. Ekkert okkar þriggja I
bílnum sakaði, og mjög litlar
skemmdir urðu á bílnum. Var
farið í morgun og náð í hann.