Morgunblaðið - 29.03.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 29.03.1967, Blaðsíða 32
WÍJUHQl hoieGSö HÚMfATAEFHI Togari siglir á bát ÁREKSTUR varð milli íslenzks fiskibáts og brezks togara undir Krísuvíkurbjargi í fyrradag. Ekki liggur ljóst fyrir hvað olli árekstrinum, en sjóréttur í mál- inu hófst í gærkveldi. V.b. Már frá Grindavik var á siglingu vestur með Krísuvíkur- bjargi um kl. 4.30 er togarinn Red Rose sigldi skyndilega á hann bakborðsmegin. Við árekst urinn urðu talsverðar skemmdir á báðum skipunum, t. d. beygl- aðist öldustokkur og lunning á Má mikið allt niður fyrir þil- farið, og gat mun hafa komið á stefni brezka togarans. Már komst af eigin rammleik til Grindavíkur, enda er báturinn vel sjófær, en togarinn sigldi til Reykjavíkur til viðgerðar. Ekki tókst að bjorgo Bjorma ÞRIÐJA tilraunin nú um pásk- ana til að bjarga Bjarma II. úr Baugstaðafjöru var gerð síðari hluta dags I gær. Mistókst hún alveg, því að í fyrstu tilraun slitnaði taugin upp úr klussun- um. Var litlu síðar gerð önnur til raun, en ekki tókst þá betur til því að festingar á kletti út í brimgarðinn losnuðu. Var fyrir- hugað að gera enn eina tilraun á háflæði í nótt. Mikill fjöldi fylgdist með björgunartilraun- um í gær, og voru um 70—80 bílar á ströndinni þegar mest var. MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1967 hoie02 ÞAEFHAST EKJU STItAUIHQAX Myndin er tekin á Stykkishólmshöfn í fyrradag, en þar er nú geysilegur lagís og verður varðskip að aðstoða skip og báta út úr henni. Lagís í Stykkishdlmshöfn Varðskip aðstoðar skip út úr höfninni Stykkishólmi, 28. marz. HVÖSS norðanátt hefur verið á Breiðafirði undanfarna daga og henni fylgt mikið frost. Hefur þetta valdið því að mikill lagís hefur komið á höfnina í Stykkis- hólmi, en hann rekur frá Hvammsfirði og víðar. Er svo komið í dag að ísinn nær marga kílómetra út frá Stykkishólms- höfn. Áttu bátar í miklum erfið- leikum að komast út úr höfninni í gær, og voru sumir 5 tima að komast út á auðan sjó. í dag er hér gott veður, sól og logn, og í morgun var hér olíuskip að losa. í>að komst þó ekki út úr höfninni, svo að kaUa varð á varðskip því til aðstoðar. Bátarnir komust ekki í höfn, og héldu því til Grundarfjarðar. en Ffamh. á bls. 21 Björgunarbáturinn fannst ekki í gær Viðtöl við skipherrann á Sif og skipstjórann á Bakkafossi Gúmmíbjörgunarbáturinn með1 og voru því settir út þrír björg- mönnunum fjórum af færeyska skipinu Nolsoyer Páli fannst ekki í gær, þrátt fyrir víðtæka og ýtarlega Ieit. Eru taldar litl- ar líkur til þess að þeir séu enn á lífi. Nolsoyer Páll var staddur milli Færeyja og íslands á páskadag, þegar hann fékk á sig mikinn brotsjó. Við það kastaðist saltfarmur í lestinni til svo að skipið fékk mikla slagsíðu. Óttaðist áhöfnin fyrst að það myndi fljótlega sökkva unarbátar. Tveir voru gúmmí bátar en hinn þriðji trébátur. Fjórir skipverjanna stukku út í annan bátinn sem slitnaði frá ásamt hinum skömmu síðar. Hef ur ekkert til þeirra spurzt síðan. Þegar í Ijós kom að leki var ekki kominn að skipinu tók áhöfnin til óspilltra málanna við að moka til saltinu, til að rétta það af og á meðan var hafin leit að mönnunum fjórum. Að morgni páskadags fann þýzkur togari mannlausan gúmíbát á reki um 20 miílur £rá þeim stað sem skipinu hlekktist á. Þar sem bátarnir voru nákvæm- lega eins var ekki hægt að segja um hvort þetta var sá sem menn irnir fóru i Um miðjan dag taldi áhöfn bandarískrar vélar frá Keflavík sig hafa séð ein- hvern gulan hlut á floti í sjón- um, en þegar þeir lækkuðu flugið til að kanna það nánar misstu þeir sjónir af honum. Henry Hálfdánarson, hjá Slysa- varnafélaginu, sagði að það gæti Ffamh. á bls. 21 Fannst látin Á PÁSKADAGSKVÖKD og á annan í páskum var auglýst eft- ir tvítugri stúlku, sem ekkert hafði spuizt til i nokkurn tíma. Var gerð skipulögð leit að stúlk- unni strax á páskadagskvöld, og henni haldið áfram niorguni.aa eftir. Fannst stúlkan látin í fiö-- unni við Skúlagötu, undan Bar- ónsstíg, síðar um daginn. Mjölskemma Hafsíldar á Seyð- isfirði eyðilagðist í snjóflóði Seyðisfirði, 28. marz. I snjóflóð úr utanverðum Bjólf- í GÆRMORGUN féll allmikið I inum á síldarverksmiðju hf. Haf „Fannst ég ekki vera í lífsháska" segir Pétur Jónsson, skipverji á vb. Jóni Stefánssyni ÓHAPP varð um borð í bátn- um Jóni Stefánssyni VE 49 á laugardag fyrir páska, er einn skipverja féll útbyrðis, og svamlaði í sjónum í um fjór- ar mínútur unz félögum hans tókst að ná honum um borð aftur. Heitir maðurinn Pétur Jóhannsson og er frá Sand- gerði. Mbl. náði í gær tali af skip- stjóranum á bátnum Guðjóni Aanes og spurði hann um at- burð þennan. Guðjón sagði, að þeir hefðu verið staddir suðvestur af Vestmannaeyj- um í nokkrum kalda, en ekki hafi verið mikil undiralda. í»á hafi Pétur dottið í sjónn, en tekizt hefði að ná honum fljótlega og varð honum ekki meint af volkinu. Pétur sagði Mbl.: — Já, ég datt útbyrðis, en strákarnir náðu fljótt í mig aftur. Ég festi vettlinginn minn í vírnum, er við vorum að láta trollið fara og var töluvert myrkur. Missti ég fótanna á hálu dekkinu og stakkst í sjóinn. Ég hélt mér í kúlurnar og sleppti, þegar alda kom og mjakaði ég mér þannig nær bátnum þar til ég var kom- inn það nærri, að strákarnir gátu kippt mér upp fyrir borðstokkinn. Mér varð ekk- ert meint af og er við beztu heilsu. — Nei, mér fannst ekki, að ég væri í bráðum lífsháska — sagði Pétur um leið og við kvöddum hann. síldar. Snjóflóðið féll á yzta enda verksmiðjuhússins, sem er mjölhús. Um 1500 fermetra norskt stálgrindarhús lagðist al- gjörlega saman og sogaðist að nokkru leyti út í sjó. Mjölhús þetta er tiltölulega nýbyggt, en búið var að tæma allt mjöl úr húsinu. Á hinn bóg- inn voru geymd í því 2—3 þús. mjölbretti, 17 tonn af þilplötum og 20 standarar af timbri, sem ný lega hafði verið skipað upp. Er eitthvað af timbri og brettum nú á reki á firðinum. Mjölhúsið og verksmiðjan eru sambyggð stálgrindarhús og má telja það lán að snjóflóðið féll ekki innar, þar sem verksmiðj- an er, því að þar eru verksmiðju vélar sem kosta tugi milljóna. Mikill snjór er nú hér á Seyð- isfirði, og er mikil hætta talin á snjóflóðum úr hlíðunum um- hverfis bæinn. — Sveinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.