Morgunblaðið - 29.03.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 29.03.1967, Blaðsíða 10
10 iwumiUHBLiAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1967. í Nýr sendiherra Bandaríkjanna Karl Rolvaag, fyrrum ríkisstjóri M/nne- sota, skipaður sendiherra á íslandi SKÝRT var frá því í Hvita hiisinu í Washington sl. mið- vikudag að Johnson Banda- ríkjaforseti hefði ákveðið að skipa Karl Fritjof Rolvaag, fyrrum ríkisstjóra í Minne- sota, sendiherra Bandaríkj- anna á Islandi. Rolvaag er norsk-ættaður, og með mikla reynslu að baki á bandarísk- um stjórnmálum. — „Þetta er mér mikill heiður", sagði Rolvaag, þegar fréttaritari Associated Fress ræddi við hann á heimili nans í Arden Hills, úthverfi Paul 1 Minnesota á skírdag. Rolvaag, sem er 53 ára, kvaðst ekki tala íslenzku, en það væri ekkert áhyggjuefnL „Ég tala norsku, og er viss um að geta lært íslenzku.'* Taldi hann það mjög mikil- vægt að vera sendiherra á ís- landi, sem væri aðili að Atl- antshafsbandalaginu. Roolvag var ríkisstjóri i Minnesota eitt kjörtímabil. hann var kjörinn í það em bætti 1962, en féll við kosn- ingarnar í fyrrahaust eftir harðar innbyrðis deilur í Demókrata- bænda- verka- mannaflokknum, eins og flokkur demókrata í Minne- sota nefnist. Á ársþingi flokks ins nokkru fyrir kosningar var A. M. Keith, þáverandi vara-ríkisstjóri, kjörinn ríkis stjóraefni flokksins við í hönd farandi kosninga. En við prófkosningar innan flokksins tapaði Keith fyrir Rolvaag, sem hlaut tvo þriðju greiddra atkvæða. Þessi á- greiningur olli klofningi í flokknum, og í kosningunum í fyrrahaust var republikan- inn Harold Levandir kjöruin ríkisstjórL Rolvaag var fæddur í Northfield, Minnesota. Faðir hans, sem nú er látinn, var Ole E. Rolvaag, prófessor í norskum bókmenntum við SL Olaf háskólann í Minnesota og höfundur bókarinnar „Gi- ants on Earth“, sem var skáld saga um innflytjendur til Bandaríkjanna. Var Rolvaag eldri fæddur í NoregL Að loknu undirbúnings- námi árið 1931 hóf Karl Fritjof Rolvaag nám við St. Olaf háskólann. Ari seinna lézt faðir hans. Hætti þá Rol vaag námi, og vann á kreppu árunum við skógarh. náma gröft og landbúnaðarstörf í Idaho og Washington ríkjun- um. Árið 1937 hóf hann að nýju nám í sögu Bandaríkj- anna við St. Olaf háskólann, og lauk þaðan prófi árið 1941 með ágætiseinkunn. í síðari heimsstyrjöldinni var Rolvaag höfuðsmaður (captain) í 4. skriðdrekasveit inni, og tók þátt 1 bardögum í Evrópu. Hlaut hann heið- ursmerkið Silfurstjörnuna fyr ir frækilega framgöngu. Að herþjónustu lokinni hóf hann framhaldsnám í stjórnmálavís Brezkur togari veldur tjóni á netum Vestfjarðabáta BREZKUR togarl frá Fleetwood, Sisapon FD 92 gerði netabátum, sem voru að veið,um á Breiða- firði skráveifu nú um páskaleyt ið, er hann togaði yfir netalagn ir þeirra, 24.15 mílur frá Skor. Eyðilagði togarinn og skemmdi netatrossur fyrir bátunum, m.a. fimm trossur fyrir Andra BA 100. Mbl. hafði í gær tal af Snæ birni Árnasyni skipstjóra á Andra og sagðist honum svo frá: — Ég missti algjörlega eina trossu — sagði Snæbjörn — en þess má geta að í hverri trossu eru 15 neL Togarinn kom tog- andi yfir netatrossurnar og skemmdi fimm frá mér, eina algjörlega og skemmdi fjórar meira eða minna. — >á tók hann góða trossu frá Sæfara BA, sem við slitum úr trollinu þegar hann var að hala inn. Við eltum hann hátt á aðra klukkustund, tókum af honum kvikmynd og ljósmynd- ir. Togarinn reyndi líka að keyra niður einn bátanna — Náttfara, en hann gaf eftir á netunum og slapp rétt framan við stefnið á togaranum. — Við köluðum á varðskip — heldur Snæjörn áfram — og það kom þegar í stað, en þar sem þeirra löggæzlusvið nær ekki út fyrir 12 mílurnar og togarinn var rétt utan við mörkin, renndi meðfram línunni, gáta þeir ekk- ert aðhafst að því er þeir tjáðu okkur. Fannst okkur að vonum skrítið að löggæzla gæti ekki skipt sér af svo grófum lögbrot um, því að það stendur skýrt og greinilega í reglugerðinni að þau skip sem fyrri eru á miðin eigi þar rétt fram fyrir þau, sem síð ar koma. — Jú, ég tel að hann hafi far ið inn fyrir mörkin þó nokkrum sinnum, en hann lék sér yfirleitt við línuna. — Tjónið nú er ekki ýkja mik ið, en hins vegar hefur sama háttarlag togara bakað okkur oft og tíðum meira tjón en nú. Hver trossa kostar um það bil 100 þús. krónur, myndi ég álíta — til- búin til lagningar í sjó. — Togaraskipstjórarnir eru yf irleitt tillitssamir, en einstaka menn haga sér svo að kastar tólftunum. í>eir virðast ekkert víla fyrir sér og toga yfir tross urnar eins og ekkert væri — sagði Snæbjörn að lokum. Karl Fritjof Rolvaag, sendl herra Bandarikjanna á Is- landi indum við Minnesotaháskóla. Árið ‘47 hlaut hann svo náms styrk American Scandinavian Foundation. Fór hann þá til Noregs og var í eitt ár við nám í Oslóarháskóla. Kynnti hann sér þar starfsemi og stefnur norskra stjórnmála- flokka. Eftir heimkomuna sneri hann hér að stjórnmálum og bauð sig þrisvar fram í Suð- ur Minnesota við kosningar til Fulltrúadeildar Bandaríkja þings. Á þessum slóðum eru reblublikanar í miklum meiri hluta, og Rolvaag beið ósigra i öllum þremur tilraununum. Eftir fjögurra ára starf sem formaður flokksdeildar í Minnesota var hann kjörinn vara ríkisstjóri árið 1954, og endurkjörinn þrisvar sinnum. Hann var svo kjörinn rikis- stjóri árið 1962 með einhverj- um þeim minnsta meirihluta, sem um getur í sögu Banda- ríkjanna. Þurfti að endurtelja atkvæðin oftar en einu sinni áður en úrskurðað var, 4% mánuði eftir kosningar, að Rolvaag hefði borið sigur af hólmi með 91 atkvæðis meirihluta og féll frambjóð- andi republikana Elmer And ersen fyrrum ríkisstjóri. Rolvaag er kvæntur Flor- ence Boedeker, og eiga þau tvö börn, Paul og Kristinu. Fœreyjafluginu skipf nið ur á milli flugfélaganna Faroe Airways hlaut tvcer ferðir í viku, jafnmargar og SAS og FÍ DÖNSK loftferðaryfirvöld veittu hinn 21. marz Flugfélagi tslands og SAS heimild til þess að fljúga tvisvar í viku til Færeyja. Enn- fremur veittu þeir Faroe Air- ways sams konar leyfi, og gilda leyfin til 1. apríl 1968. F1 og SAS höfðu sótt um lendingarleyfi tvisvar í viku, en FA þrisvar. Mun Fí fljúga flugleiðina með Fokker Friendship, en FA með DC-3. Þessar upplýsingar komu Úlofsvíkurbótar með 14-23 tonn Ólafsvík, 28 marz. FIMM bátar fóru héðan á sjó annan páskadag til að vitja um net, sem lögð voru á skírdag. Bátarnir komu inn um kvöldið og var aflinn 14 til 23 tonn. Allir bátar eru á sjó í dag i blíðlskaparveðrL — FréttaritarL fram í fréttaskeyti til Mbl. frá NTB -f r éttastof unni. Sveinn Sæmundsson, blaðafull trúi Flugfélagsins sagði Mbl. í gær, að Flugfélagið hyggðist fljúga til Færeyja á sunnudög- um og þriðjudögum. Verður fyrsta sunnudagsferðin í sunnu- daginn kemur, 2. apríl. í sunnudagaferðum verður far ið klukkan 7 að morgni og flog ið til Færeyja og þaðan beint til Kaupmannahafnar. Á heimleið verður flogið til Bergen, Fær- eyja og komið til Reykjavíkur samdægurs. Þriðjudagsferðirnar munu hefj ast frá Reykjavík kl. 10,40 og er þá flogið til Færeyja, Bergen og Kaupmannahafnar. Síðan er flog ið aftur heim á miðvikudögum um sömu staði, þar til 24. mai, þá verður flogið á heimleið frá Kaupmannahöfn til Bergen, Fær eyjar, Glasgow, Færeyjar og til Reykjavíkur. Mun sú áætlun gilda allt sumarið. Þá hafði Mbl. tal af fréttarit- ara sínum í Færeyjum, Arge og sagði hann að stofnfundur hins nýja flugfélags, hlýtur nafnið Flugsamband Færeyja verði lík- lega í þessari viku. Ekki kvaðst Arge ætla að allt hlutafé hefði safnazt, þar eð páskarnir hefðu tafið, en eftir tvo til þrjá daga kvaðst hann búast við, að það yrði að fullu innborgað. Aðspurður sagði Arge, að aðal hvatamaður að stofnun hins nýja 1 félags væri framkvæmdastjóri færeysku fissksölunnar, Niclas- en að nafni og bjóst hann við að nýja félagið hefði störf, strax og það yrði svo vel á veg komið, að það gæti leyst Faroe Airways j af hólmi. Ráðstefna um framkvæmda- áætlun sveitarfélacja RÁÐSTEFNA um framkvæmda- áætlun sveitarfélaga hófst í Tjarnarbúð í morgun, en henni lýkur á föstudag n.k. Mörg er- indi verða flutt á ráðstefnu þess- ari varðandi hinar ýmsu áætl- anir og í lok ráðstefnunnar verður almennur umræðufund- ur. Tveir bátar festust í ís Erfiðleikar að koma hafnsogumanni um >orð í Esju > !' ísafirði, 28. marz. HÉR var vonzkuveður mest alla páskana, bylur og mikil veður- hæð, og lokuðust vegir til ná- grannabyggðarlaganna. Frost var mikið og mikill ísruðningur varí Sundunum. Aðfaranótt 2. páskadags ko.n Esja hingað og festisf þá hafn- í aöguibáturinn í is á Sundunum. i Fór annar bátur hionum til í.5- stoðar og fór á sömu leið. Hann festist líka. Var þá þriðji báburinn senduT og komst hann með hafnsögu- manninn um borð í Esju. Bátarn ir sem festust voru diegnir síð- ar úr ísnum. Mikill fjöldi aðkomumanna var hér um páikahelgina. Veð- ur var ágætt á skírdag og nutu menn þá skíðaferða, en varla er hægt hafi verið að fara á skíði s o 0 0 0 s s a s V/O'^V/O NokK*/A /*K** (*■!*>) —V- (>/00) ,\0\AAo o\o\°£o0 aftur fyrr en á annan páskadag, þegar veðrið var gengið niður. Hin árlega skíðavika var nú haldin í 32. sinn og voru marg- víslegar skemmtanir í þvi sam- bandL Fjórir meistaraflokksmenn úr Tennis- og badmintonfélagi Reykjavíkur dvöldust hér um páskana og kepptu við heima- ^ menn. — H.T. Hætta á að ísinn nálgist ÍFLUGVÉL flaug í gær vestur log norður um land á vegum Landhelgisgæzlunnar til að Ikanna isinn við strendur þar. Var flogið allt austur að Grímsey, en lengra komst Vélin ekki vegna byls. Eins og kjá má á kortinu er talsvert íshrafl út af Vestfjörðum, þar Sem hann er næst landi, og við Norðurland. Sagði Þröstur Sigtryggsson, skipherra í þess- ari ferð, að norðan kaldi hefði verið á þessu svæði í gær, ef Isú átt héldist væri hætta á að ísinn færðist nær landi og Ifæri jafnvel inn í firði norð- anlands. 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.