Morgunblaðið - 29.03.1967, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1967.
Akraborgin siglir fánum prýdd í höfn í BorgarnesL
I hunurað ára afmæli
verziunar í Borgarnesi
BORGARNES skartaði sínu feg-
ursta þegar haldið var upþ á
hundrað ára afrnæli verzlunar
þar hinn 22. marz síðastliðinn.
Akraborgin sigldi hátíðafánum
prýdd inn á höfnina með fjölda
gesta sem ætluðu að taka þátt
í tveggja daga hátíðahöldum og
einnig um borð var hár hlaði
af blómakörfum, frá ýmsum vel-
unnurum. Nýfallinn snjór lá yfir
þorpinu, fánar blök'tu hvarvetna
og verzlanagluggar voru fagur-
lega skreyttir. Prúðbúnir borg-
nesingar, ungit og gamlir, þyrpt-
ust að hinum glæsilega barna-
skóla þar sem haldinn var há-
tíðafundur hreppsnefndar. Fyrst-
ur tók til máls Þórður Pálmason
oddviti, sem setti 872. hrepps-
nefndarfundinn og bauð öllum
borgnesingum gleðilega afmælis-
hátíð. Hann sagði svo m.a. :
- „Fyrsti fundur hreppsnefndar
Borgarneshrepps var haldinn 28.
maí 1913 og það eru því fimmtíu
og fjögur ár nú á komandi vori
síðan Borgarnes varð sjálfstætt
sveitarfélag. Það er þó ekki í til-
efni þess afmælis sem við erum
hér saman komin heldur vegna
þess að 22. marz árið 1867 gaf
þáverandi konungur Danmerkur
út tilskipun þar sem hann mælti
svo fyrir að Borgarnes við Brák-
arsund skyldi vera löggiltur
verzlunarstaður. Svo varð og
hefur síðan verið. En til þess að
gera þennan atburð og þennan
fund minnisstæðan í hugum
Borgnesinga nú og í framtíðinni
höfum við, þrír hreppsnefndar-
menn, lagt fyrir tillögu sem er
eina málið sem verður til af-
greiðslu á þessum fundi. Tillögu
sem við vonum að verði sam-
þykkt og til verulegrar blessun-
ar fyrir Borgnesinga, unga og
gamla í nútíð og framtíð. Tillag-
an er svohljóðandi: í tilefni af
hundrað ára verzlunarafmæli
Borgarness samþykkir hrepps-
nefndin að stofna sjóð sem heita
skal Menningarsjóður Borgar-
ness. Hreppsnefndin leggur ár-
lega krónur eitt hundrað þúsund
í sjóðinn næstu tíu ár, þannig að
árið 1977 verður sjóðurinn ein
milljón króna, auk vaxta og
annarra tekna sem honum
kunna að áskotnast. hlutverk
sjóðsins er í fyrsta lagi að
styrkja efnilegt náimsfólk frá
Borgarnesi til framhaldsnáms,
innan lands eða utan, í hugvís-
indum eða raunvísindum. í öðru
lagi að búa dvalarheimili fyrir
aldrað fólk hér í Borgarnesi, svo
úr garði að það uni dvöl sinni
þar sem bezt. I þriðja lagi að
stuðla að kaupum á listaverkum
þegar safnhús verður reist hér í
bæ. Fé verður ekki veitt úr
þessum sjóði fyrr en hann er
orðinn krónur fimm hundruð
þúsund. Hreppsnefndin setur
sjóðnum reglugjörð og fær hana
staðfesta. Þessi tillaga var sam-
þykkt samhljóða og síðan tók til
máls Halldór E. Sigurðsson,
sveitastjóri og sagði m.a.:
— Fyrir nokkrum árum sýndi
einn Borgfirðingur mér þá miklu
vinsemd að afhenda mér til eign-
ar tilskipun þá sem út var gefin
hinn 22. marz 1867 um löggild-
ingu verzlunarstaðar fyrir Borg-
arnes. Tilskipun þessi er svo-
hljóðandi: „Vér Kristján hinn ní-
undi, af guðs náð, Danmerkur
konungur, Vinda og Gauta, her-
togi af Slésvík og Holsetalandi,
Stórmæri Þéttmerki að Lauen-
Aldenborg gjörum kunnugt. Sam
kvæmt þegnsamlegum tillögum
alþingis hefur oss allra mildileg-
ast þóknast að löggilda verzlun-
arstað á Borgarnesi við Brákar-
koll í Mýrarsýslu í vesturv t -
dæminu á íslandi. Fyrir því skal
leyft að byggja sölubúðir og
hafa fasta verzlun á þessum stað
með þeim skilmálum er segir í
opnu bréfi 28. desember 1®36.
Mega einnig innlendir og útlend-
ir lausakaupmenn koma þangað
til verzlunar þegar þess er gætt
sem um það efni er ákveðið í
nefndu lagaboði og lögum,
fimmtánda apríl 1854, þriðja
grein. Eftir þes-su eiga allir hlut-
eigendur sér þegnlega að hegða.
Gefið út í vorum konungleg-
um aðsetursstað Kaupmanna-
höfn tuttugasta og annan dag
marzmánaðar 1867. Undir þetta
ritar með sinni konunglegu
hendi, í fjarveru hans hátignar
konungsins, Friðrik konungsefni.
Þar sem tilskipun þessi og bréf
þetta er sögulega merkilegt,
sagði Halldór, hefi ég látið færa
það í sérstakan búning með til-
liti til þess að það megi geymast
um langan aldur. Ég vil nú nota
þetta tækifæri til þess að af-
henda Borgarneshrepp það til
eignar og umráða og jafnframt
færa byggðarlaginu þá ósk að
það megi hér eftir sem hingað
til búa svo að þegnum sínum að
það hafi verið vel ráðið að gera
Borgarnes að verzlunarstað.
Þórður þakkaði Halldóri gjöf-
ina fyrir hönd Borgarneshrepps
og las svo upp fjölmörg heilla-
óskaskeyti sem borizt höfðu,
m. a. frá forseta íslands herra
Ásgeiri Ásgeirssyni og Geiri Hall-
grímssyni, borgarstjóra Reykja-
víkur, sem sendi fagra blóma-
körfu og eintak af skipulagi
Reykj avíkurbor gar.
Guðmundur Ingimundarson,
formaður hátíðarnefndar, tók
til máls og afhenti blóm-
vendi tveimur öldnum konum frá
Borgarnesi. Þær voru Guðrún
Hjálmsdóttir og Ingveldur Teits-
dóttir. Þá tók til máls Jórunn
Bachmann, hreppsnefndarfull-
trúi, kynnti lítillega sögusýningu
sem sett hafði verið upp í barna-
skólanum og bauð gestum að
skoða hana. Á sögusýningunni
voru fjölmargar Ijósmyndir, sum-
ar mjög gamlar. Þær sýndu þró-
unarsögu byggðarlagsins og sam-
göngumála. Þá voru þar einn-
ig tvö samanburðarmódel sem
Hreggviður Guðgeirsson, bygg-
ingafulltrúi hafði gert.
Þegar fólk hafði skoðað sögu-
sýninguna hélt það til Hótel
Borgarnes þar sem hreppsnefnd-
in hafði opinbera móttöku. Þar
svignuðu borð undan kaffi og
kræsingum og þjónamálið bar
fram ný föt í sífellu. Var glatt
á hjalla yfir borðum, lesin uþp
fleiri heillaóskaskeyti og var
mikill hátíðabragur í fagurlega
skreyttum salnum. Þegar kaffi-
samsætinu lauk var því miður
kominn tími til fyrir fréttamann
Morgunblaðsins að hypja sig
heim á leið því hann þurfti að
komast yfir á Akranes og ná
þar Akraborginni aftur til
Reykjavíkur. Það er enginn vafi
'á því að það hefur verið glatt
á hjalla hjá Borgnesingum á
kvöldvökunni og svo dansleikn-
um þá um kvöldið, og líka við
barnaskemmtunina og sýninguna
á Delerium Bubonis daginn eftir.
Þetta voru eftirminnilegir dagar
fyrir Borgnesinga — og ekki síð-
ur fyrir gesti þeirra.
Frá hátíðarfundi hreppsnefndar, Þórður Pálmason, oddviti, taiar.
TOYOTA CROWN
Toyota Crown — Glæsilegur og vandaður 6
manna bíll — Byggður á sjálfstæðri X-laga
stálgrind — Kraftmikil 6 cyl. 115 hestafla
vél með yfirliggjandi knastás — og 7 höfuð-
legum. — Fáanlegur með nýtízku sófastól-
um.
Kynnið your verð og kjör.
Japans'ia bifreiðasalan hf.
Ármúla 7. — Sími 34470.
YÐUR TOYOTA