Morgunblaðið - 29.03.1967, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MARZ 1967.
17
Aga Kahn í Reykjavík
KARIM AGA KAHN leiðtogi
Ismaili-greinar Sjitadeildar Mú-
hameðstrúarmanna, sem ber
heitið Aga Kahn VI gisti Reykja
vík síðastliðna nótt. Lenti einka-
þota trúarleiðtogans á Keflavík-
nrflugvelli kl. 15:33 í gærdag,
þar sem Sigurður Magnússon tók
á móti honum og fylgdi til Hót-
els Loftleiða, þar sem Aga Kahn
dvaldist í nótt. Búizt var við að
Aga Khan héldi héðan árla í
morgun, en hann er á leið frá
Genf í Sviss til New York í
einkaerindum.
Aga Kahn fæd-dist árið 1936
sonur Aly Kahn og fyrstu konu
hans, sem var dóttir þriðja bar-
ónsins af Churston. Hann varð
Aga Kahn árið 1957, er afi hans
Háskólafyrir-
lestur um stærð
fræði
PRÓFESSOR Bjarni Jónsson frá
Minnesotaháskóla flytur fyrir-
lestur í boði Háskólans fimmtu-
daginn 30. marz kl. 5.30 e.h. í
fyrstu kennslustofu fyrir stærð-
fræðinga og verkfræðinga. Fyrir
lesturinn fjallar um megi með
núll-máli.
Dénsk verzlun
kaupir bóka-
*
sa!n dr. Arna
Friðrikssonar
f FRÉTTATILKYNNINGU frá
fornbókasölunni Herm. H. J.
Lynge & Sön í Kaupmannahöfn,
sem verzlar með vísinda- og
fræðirit, segir, að fyrirtækið
hafi keypt bókasafn dr. Árna
heitins Friðrikssonar og muni
nú láta skrá safnið.
Dr. Árni Friðriksson átti mik-
ið og verðmætt bókasafn, eink-
um um náttúrufræði og þá fiski
fræði og haffræði sérstaklega.
Bækurnar skipta þúsundum en
að auki eru í safninu sérprent-
anir og timarit.
Safnið allt er talið taka um
1150 lengdarmetra í bókahjllum.
lézt og vakti val hans athygli,
þar eð gengið var fram hjá
föður hans, sem um eitt skeið
var kvæntur Rithu Hayworth.
Karim Aga Kahn lauk prófi frá
Le Rosey í Sviss og Harvard
háskólanum í Bandaríkjunum.
Karim Aga Kahn sagðist ekki
vilja tala við íslenzka blaða-
menn við komuna í gær, þar eð
hann væri í einkaerindum. Hins
vegar tjáði Sigurður Magnússon
blaðamönnum að Aga Kahn hafi
á leiðinni frá Keflavík sýnt
undraverða þekkingu á íslandi
og þjóðinni, auk þess, sem hann
hafi spurt margs um það, sem
fyrir augu bar.
Sigurður sagði, að maðurinn
væri mjög elskulegur, en sér
hefði virzt hann vilja fá að
vera í friði, enda hefði hann
tekið fram að hann hyggðist
ekki tala við blaðamenn.
Mystére-flugvél Aga Kahn á Keflavíkurflugvelli í gær. (Ljósm. Heimir Stígsson).
Sigurður sagði, að forráða-
mönnum Loftleiða hefði verið
það alllengi kunnugt, að Aga
Kahn hefði ætlað að gista ís-
land. Hins vegar hefðu fregnir
af því verið fremur óljósar og
nú liti helzt út fyrir að hann
kæmi hér við í bakaleiðinni, en
hvenær, er ekki vitað.
Aga Kahn er trúarleiðtogi eða
eins konar páfi 28 milljóna Mú-
hameðstrúaramanna. Ismaili eru
dreifðir um víða veröld og hef-
ur Aga Kahn ferðast mikið og
heimsótt söfnuð sinn. Að undan-
förnu hefur Aka Kahn unnið að
því að koma á fót mikilli ferða
mannamiðstöð á Sardiníu og hef
ur keypt þar landssvæði til þess.
Einkaþota hans er af franskri
gerð Mystrée 20 og hingað kom
hann frá Genf eins og áður er
sagt með viðkomu í Prestwick.
í fylgdarliði Aga Kahn eru
m.a. þrír kveneinkaritarar. Eru
þær af ensku, frönsku og sviss-
nesku þjóðerni.
Gífurlegt veiðar-
færatj. netabáta
af völdum suðvestan stormsins
Aga Kahn og Sigurður Magnússon í anddyri Loftleiðahótels-
ins i gær. (Ljósm. Ól. K. M.)
GÍFURLEGT tjón virðist hafa
orðið á netum báta viða
suðvestan- og vestanlands í
suðvestan- og vestanveðrinu,
sem gerði skömmu fyrir páska.
Munu margir bátar hafa misst
net sín í þessu veðri, og tjónið
skipta milljónum króna.
Fréttaritari Mbl. á Akranesi
símaði í gær að óvenjulega mik-
ið veiðarfæratjón hefði orðið
hjá netabátum þar í suðvestan-
rokinu fyrir páskahelgina. Hefðu
sumir misst riðilinn úr flestum
neta sinna, og aðrir nokkrar
trossur með öllu, einkum þeir
bátar sem lagt höfðu net sín á
grunnsvæði. Sagði hann að gera
mætti róð fyrir að veiðarfæra-
tjónið næmi hundruðum þús-
unda hjá Akranesbátum, því að
hver 15 neta trossa kostaði með
öllu fylgjandi um 40 þús. krón-
ur.
Kristinn Jónsson útgerðar-
maður á Patreksfirði tjáði MbL
í gær, að hann vissi til þess að
gífurlegt tjón hefði orðið hjá
netabátum á sunnanverðum
Vestfjörðum í vestan storminum
þar fyrir páska. Tjónið væri að
vísu ákaflega misjafnt hjá hverj-
um einstökum bát, en verst
hefðu þeir bátar orðið úti, sem
voru með netin grynnst útL
Taldi Kristinn að, veiðarfæra-
tjónið hjá flotanurh af völdum
þessa veðurs skipti milljónum
króna.
Páskaveðrið með versta mdti
Frost um land allt, upp í 10 stig á láglendi
PÁSKARNIR í ár voru fyrr
en undanfarin ár og var veð-
ur um allt land mjög slæmt.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk í gær hjá Jón-
asi Jakobssyni, veðurfræðing,
var veður um hátíðina svipað
um land allt og einkum slæmt
hvað veðurhæð og frost snert
ir. Frost var alls staðar á
landinu frá skírdag og fram
á annan í páskum og allt upp
í 10 stig, sem var eitt það
mesta sem verið hefur á land
inu í vetur. Á annan í pásk-
um var mikil hríð á norður
og Austurlandi, en úrkomu-
laust á Suðurlandi. Mikill
skafrenningur var á Suður-
landi alla hátíðina, einkum
föstudag og laugardag með-
an mikið var um lausan snjó.
Jörð var alhvít um land allt.
Þessum mikla veðurofsa
ollu djúpar lægðir austan und
an Noregsströndum og mikil
hæð yfir Grænlandi. Yfir alla
hátíðina var djúp lægð á
sveimi yfir hafinu á milli Nor
egs og fslands, en hæð eins
og fyrr getur yfir Grænlandi.
Sökum þess lagði sterkan
breiðan loffstraum norðan úr
íshafi meðfram austurströnd
Grænlands. í»ar sem er mjótt
autt belti milli hafísssins norð
anundan og lands, þá var
frostharkan yfir hátíðina eins
mikil og raun var á. Hafís
barst að landinu norðan frá
ísröndinni á öll svæðin frá
Melrakkasléttu að Bjarg-
tungu. Veðurstofan spáir nú
góðu veðri framundan með
nýrri lægð, sem er að mynd-
ast yfir Grænlandshafi.
Til þess að gera yíirlit um
veðrið um hátíðina verður
hér greint frá veðrinu um
nónbil dag hvern. Á skírdag
var hæg norðanátt yfir land-
inu, en léttskýjað á suður-
landi. Frost var frá 2—8 stig
á láglendi. 1 Reykjavík var 2
stiga frost. Á föstudaginn
langa var veður orðið mun
verra um land allt. Veður-
hæðin var meiri, víðast 5—8
vindstig, snjókoma víða á
Suðurlandi og í útsveitum
norðanlands og vestur á Firði,
en þurrt var á Suðurlandi og
talsverður skafrenningur
víða. Frost var þá á Suðurl.
1—2 stig, en á Norðurl. 7—10
stig. í Reykjavík var á 4
stiga frost.
Laugardaginn 25. var kom-
ið 8 stiga frost í Reykjavík.
Á Norður- og Suðurlandi var
talsverð snjókoma og frost
víða 7—10 stig. Á páskadag
var veðrið mjög svipað og
daginn áður, mikil snjókoma
Norðanlands, en bjart fyrir
sunnan. Á annan í páskum
var 5 stiga frost í Reykjavík,
norðanátt um land allt og
mjög hvasst. í gær var veður
vetra, víða logn og sólskin.
Veffurkortið er frá háde-d á páskadag og gefur góða hugmynd um veðurkortið yfir páska
helgina. Mikil liæð var yfir Grænlandi allan tímann, en mikil lægð suðaustur af landinu