Morgunblaðið - 19.04.1967, Qupperneq 1
32 SSÐL’EI
54. árg. — 88. tbl.
MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
70 farast
í stormi
Karachi, PaJdstan,
18. apríl. — AP.
OFSASTORMUR geisaði í
Dacca og nágrenni á mánu-
dag með þeim afleiðingum,
að sjötíu manns biðu bana,
meira en hundrað meiddust
og þúsundir misstu heimili
sín. Stormurinn geisaði m.a.
um þrjú þorp á svæðinu —
og lá við, að hann jafnaði þau
við jörðu á 15 mínútum.
Alþingi
lýkur í dag
FUNDUM í báðum deildum Al-
þingis Iauk í nótt. Er gert ráð
fyrir, að fundum ljúki í samein-
nðu þingi í dag og gefið verði
út forsetabréf um þingrof frá og
með kjördegi. Fundur er boðað-
ur í Sameinuðu þingi kl. 2.30
miðdegis. Eru þar á dagskrá
kosningar í ýmsar nefndir og
trúnaðarstörf.
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins hefst á morgun
IViikill fjöldi fulltrúa
kjörinn á fundinn
SAUTJÁNDI landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst á
morgun, sumardaginn fyrsta. Mun Bjarni Benediktsson, for-
sætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, setja fundinn,
sem hefst í Háskólabíói kl. 20,30. Lúðrasveit mun leika frá
kl. 8. Á þessum fundi mun formaður flokksins að vanda
flytja yfirlitsræðu um stjórnmálaviðhorfið og gera grein
fyrir gangi þjóðmálanna síðan síðasti landsfundur var hald-
inn fyrir tveimur árum.
Mikill fjöldi fulltrúa hefur verið kjörinn til þess að
sitja fundinn af hálfu samtaka Sjálfstæðismanna um land
allt. Eru horfur á að þátttaka verði meiri í þessum lands-
fundi en nokkru sinni fyrr.
Föstudaginn 21. apríl munu I 10 fyrir hádegi í Sjálfstæðishús-
fundir landsfundarins hefjast kl. | inu. Mun þá verða gerð grein
Brezhnev í A. Berlín:
Segir V.-Þýzkaland vinna
að sundrung A.-Evrópu
Kommúnistaflokkar Evrópu þinga í Tékkósíóvakíu í nœstu viku
Berlín, 18. apríl, — AP—NTB —
LEONID Brezhnev, aðalritari
sovézka kommúnistaflokksins,
flutti í dag ræðu á sjöunda
flokksþingi austur-þýzkra
kommúnista, sem hófst í A-
Berlín í gær að viðstöddum 2100
fulltrúum frá nær 70 ríkjum (en
engum þó frá Kína, Albaníu eða
Kúbu) og gerði harða hríð að
stefnu V-Þýzkalands í utanrik-
ismálum og tinkum þó gagn-
vart A-Evrópulöndunum. Sagði
Brezhnev m.a. að víst hefði v-
þýzka stjórnin rétt fram hönð
sína til E-Evrópulandanna í vin
áttuskyni að því er ætla hefði
mátt, en er betur hefði verið að^
gáð hefði leynzt í lófanum
steinn. Brezhncv sagði að Ev-
rópuiöndin gæta ekki setið hjá
aðgerðalaus og beðið eftir því
að V-Þjóðverjar létu af hættu-
legri utanríkismálastefnu sinni.
Brezhnev var langorður nokk
Framhald á blaðsíðu 19.
fyrir starfsemi flokksins og
framkvæmdastjóri hans, Þor-
valdur Garðar Kristjánsson,
flytja greinargerð. Síðan verða
almennar umræður um flokks-
starfið.
Klukkan 2 eftir hádegi mun
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, Jóhann Hafstein, dómsmála-
ráðherra, flytja framsöguræðu.
Að henni lokinni verður stutt
hlé, en klukkan 16,30 mun Ing-
ólfur Jónsson, landbúnaðarráð-
herra, flytja yfirlitsræðu. Að
henni lokinni hefjast almennar
umræður, sem gert er ráð fyrir
að standi fram til kluikkan 7. Á
föstudagskvöld verður síðan
haldið áfram almennum umræð-
um um landsmál.
Á laugardag, 22. apríl, munu
nefndir atvinnustétta starfa um
morguninn kl. 10—12, en eftir
hádegi, kl. 2, mun Magnús Jóns-
son, fjármálaráðherra flytja
yfirlitsræðu. Á eftir henni er
gert ráð fyrir aknennum um-
ræðum.
Síðan er gert ráð fyrir að
kjördæmisnefndir starfi. Kl.
5.30 er gert ráð fyrir því að
stjórnmálanefnd skili áliti um
stjórnmálayfirlýsingu og að um-
ræður hefjist um hana.
Londsíundur
Sjúlistæðis-
flokksins
Landsfundarfulltrúar eru
vinsamlega beðnir að af-
henda kjörbréf og vitja full-
trúaskírteina sinna í skrif-
stofu flokksins í Sjálfstæðis-
húsinu í dag kl. 9—12 fyrir
hádegi og kl. 1—7 eftir há-
degi.
Um kvöldið verður leiksýning
fyrir landsfundarfulltrúa í Þjóð-
leikhúsinu.
Sunnud.aginn 23. apríl, sem
verður síðasti dagur landsfund-
arins, er gert róð fyrir að fundir
hefjist kl. 10 árdegis. Halda þá
áfram umræður um stjórnmála-
yfirlýsingu. Er gert ráð fyrir að
þær standi til hádegis. Klukkan
2 síðdegis mun fara fram kosn-
ing miðstjórnar og ennfremur er
gert ráð fyrir að stjórnmálayfir-
lýsing verði þá afgreidd. Síðan
mun formaður flokksins slíta
landsfundinum.
Á sunnudagskvöld er gert ráð
fyrir kvöldfagnaði fyrir lands-
fundarfulitrúa í Sjálfstæðis'hús-
inu, að Hótel Borg og Hótel
Sögu.
í dag og á morgun er gert ráð
fyrix að landsfundarfulltrúar
sæki aðgöngumiða sína á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins við
Austurvöll og afhendi jafnframt
kjörbréf sín. Mun skrifstofa
flokksins við Austurvöll verða
opin frá kl. 9 fyrir hádegi báða
dagana.
Söguleg
flugferð
Tókíó, 18. apríl. — NTB-AP.
í DAG var opnuð í fyrsta sinn.
í sögunni flugleið milli Moskvu
og Tókió yfir Síberíu — en
þannig styttist flugtíminn milli
þessara tveggja stórborga um
helming. Það var sovézk skrúfu-
þota af gerðinni TU-114, sem fór
fyrstu ferðina og lenti hún á
flugvellinum í Tókíó kl. 12.29 að
staðartíma. Flugleiðina, rúmlega
8000 km, fór hún á 10% klst. —
Sovézka flugfélagið „Aeroflot"
og japans-ka flugfélagið „Japan
Airlines" munu annast flug
þetta í sameiningu framvegis.
Kannar yfirborð
tunglsins
„Surveyor 3" lendir á morgun
Pasadena og Kennedýhöfða,
18. apríl (AP).
AÐFARANÓTT fimmtu-
dags mun bandaríska tungl-
flaugin „Surveyor 3“ lenda á
tunglinu. Var flauginni skot-
Ið á loft frá Kennedyliöfða á
mánudagsmorgun.
Flaug þessi er svipuð að
gerð og „Surveyor 1“, sem
lenti á tunglinu 2. júní í fyrra
og sendi þaðan alls um
11.500 myndir. Nýja flaugin
er þó að því leyti frábrugðin
þeirri fyrri að hún er búin
lítilli vélskóflu til að grafa
niður í yfirborð tunglsins og
kanna þéttleika þess, og verða
myndirnar sendar til jarðar
um senditæki flaugarinnar.
Búast vísindamenn við því að
fá mikilvægar upplýsingar
um yfirborð tunglsins, þótt
ekki sé vélskóflan stór. Getur
skóflan grafið um 45 sentí-
metra djúpan skurð niður í
yfirborðið.
Tunglskotið á mánudag
tókst mjög vel, og lenti
„Surveyor 3“ strax á réttri
braut Örlitlar lagfæringar
voru svo gerðar á stefnu
flaugarinnar snemma í morg-
un, og tókust þær eins og
bezt varð á kosið. Enn er þó
of snemmt að dæma um það
hvort lendingin á tunglinu
gengur að óskum, því margt
getur gerzt á langri leið.
Hér sézt þegar verið var að reyna vélskófluna á „Surveyor 3“ skömmu áðui en tunglflaug-
inni var skotið á loft frá Kennedyhöfða á mánudag.