Morgunblaðið - 19.04.1967, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. APRIL 1967.
3
ingar bátsins voru ekki eins
og þær áttu að vera og er
augu hans litu kompásinn
hvarf öll þreyta á augabragði
og hann beygði i rétta stefnu
án tafar og það þarf ekki að
taka fram, að hann leyfði sér
ekki að blunda næstu klukku-
stundir.
H.M.S. Protector, tundur-
spillirinn, sem flutti blaða-
SÆGARPURINN heimsfrægi,
Bretinn Sir Francis Chichester
á nú eftir rúmlega mánaðar-
siglingu heim til Bretlands, ef
allt gengur að óskum, og hef-
ur hann þá siglt umhverfis
jörðina á seglbáti sínum
Gipsy Moth IV. 20. marz sl.
fór Chichester fyrir Horn-
höfða, sem talinn var einn
hœttulegasti áfangi ferðarinn-
ar og höfðu margir spáð því
að Chichester næði aldrei
heilu og höldnu fyrir þennan
stormasama höfða. En hann lét
aðvaranir. sem vind um eyru
þjóta og í fárviðri, með storm-
fokkuna eina uppi lensaði
Gipsy Moth IV. með 8 sjó-
míina hraða fyrir höfðann og
bauð Ægi konungi ótrauður
byrginn. Hér á eftir fer út-
dráttur úr frásögn Sir. Franc-
is sjálfs af siglingunni fyrir
Hornhöfða, sem hirtist í The
Sunday Times í byrjun mán-
aðarins, en það blað hefur
einkarétt á frásögn sægarps-
ins.
Sir Francis hefur frásögnina
á því að skýra frá tilfinning-
um sínum, eftir að hann var
kominn heilu og höldnu fyrir
höfðann og segir að enginn
mannlegur máttur gæti fengið
sig til að sigla þetta aftur.
Vikan sem leið hafi verið sem
martröð og óttinn aldrei yfir-
gefið hann. En nú þegar þessi
vika æðandi vinda og brot-
sjóa er að baki segist hann
geta hvílt sig og búið til ein-
hverja frásögn af ferðinni.
Þetta er fyrsti dagurinn, sem
Chichester er alveg viss um
að hann sigli rétta stefnu.
Veðrið hefur lægt og sólin
skín loksins. Chichester er ör-
vinda af þreyiu eftir að hafa
vakað nær óslitið í heila viku.
En það er merkilegt hve
kraftarnir aukast fljótt við
tilhugsunina um heimsigling-
una.
Þreyta orsakaði alvarleg
mistök, sem hefðu getað orðið
manni og báti að fjörtjóni.
Sæfarinn kýs að viðurkenna
þessi mistök strax fyrir um-
heiminum. Hann var kominn
um 50 sjómílur frá Hornhöfða
er hann leyfði sér það óhóf
að blunda augnablik. Þessi
blundur varð að djúpum
svefni örmagna manns. í
þreytunni gleymdi hann að
setja á hljóðtækið, sem gefur
honum merki ef bátinn ber út
af réttri stefnu. Og það gerði
Gypsy Moth IV. þegar í stað.
Hún beygði 130 gráður út af
réttri stefnu og slagaði 20
mílur í suður og vestur í átt
Chichester ásamt konu sinni. Myndin er tekin i Sidney í
Ástralíu skömmu áður en hann lagði af stað.
til eyjanna suður af Horn-
höfða og borgaríssins út af
heimskautslandinu. Þrátt fyrir
djúpan svefninn gerði sjómað-
urinn sér grein fyrir að hreyf-
menn hvaðanæva að til að
fylgjast með fífldjarfri sigl-
ingunni fyrir höfðann, flutti
sæfaranum þær góðu fréttir,
að enginn ís væri á siglingar-
leiðinni, sem hann ætlaði að
fara. Eftir að hafa fengið þess-
ar fréttir vissi Chichester að
hann gæti farið slóðir gömlu
seglskipanna og brátt yrði
hann á breiðu Atlantshafinu.
Chichester segir að þegar
hann líti til baka sjái hann að
helztu vandamálin utan þol-
prófsins hafi verið siglingar-
fræðin. Þegar hann nálgaðist
Hornhöfða versnaði veðrið
með hverjum deginum, sem
leið og í þrjá daga náði nann
engri miðun sökum dimm-
viðris og varð þvi eingöngu
að sigla eftir eigin hyggjuviti.
Seguláttavitinn var svo til
gagnslaus svona stutt frá Suð-
urpólnum og vegna mikilla
truflana frá segulmögnuðum
stormum, sem þarna geisa.
Þegar hann sigldi í áttina
að Drake-sundi hafði hann
ekki séð land í 50 daga síðan
Sidney Heads hurfu bak við
sjóndeildarhringinn, og hann
Framhald á bls. 19.
Gypsy Moth IV. lensar fyrir Hornhöfða. Myndin er tekin úr flugvél af fréttamanni Sunday
Times.
dyna atti uurnaveiziuna eltir Halldor Laxness 1 sioasta smn siðastliðið sunnudagskvöld, en
aðsókn hefur verið mjög mikil að sýnngunum undanfarið. alltaf uppselt nokkrum dögum
fyrir sýnngu. Því hefur verið ákveðið að bæta við 2 sýningum enn og verða það allra
siðustu sýnngar á leiknum. Sú fyrri verður nú á sunnudaginn og hin síðar í næstu viku.
Dúfaveizlan hefur þá verið leikin samfleytt í eitt ár, sextíu sinnum eða oftar en nokkurt
annað af leikverkura Lazness. Á myndinni sjást Anna Guð mundsdóttir og Þorsteinn Ö.
Stephensen í hlutverkum sínum.
NYLEGA er lokið sveitakeppni
hjá Tafl- og bridgeklúblbnum og
sigraði sveit Jóns Magnússonar.
Auk Jóns eru í sveitinni Gísli
Hafliðason, Gylfi Baldursson,
Júlíus Guðmundsson og Tryggvi
Þorfinnsson. 18 sveitir tólku þátt
í keppninni og var spilað í tveim
riðlum og síðan spiluðu tvær-
efstu sveitirnar í hvorum riðli
til úrslita. Röð sveitanna varð
þessi:
1) Sveit Jóns Magnússonar
2) sveit Jóns Ásbjörnssonar
3) sveit Zophoníasar Benediktss.
4) sveit Ingólfs Ólafssonar.
Áðrir þátttakendur í sveita-
keppninni háðu síðan einmenn-
ingskeppni og uxðu efst í þeirri
keppni:
1) Inga Hoffmann 209 stig
2) Ólafía Jónsdóttir 190 stig
3) Björgvin Benediktss. 186 stig
4) Ásta Þórðardóttir 185 stig.
Hinn 20. þ.m. hefst hjá Tafl-
og bridgeklúlbbnum parakeppni
og er það síðasta keppnin á
vegum félagsins á þessu starfs-
ári.
Laugardaginn 29. þ.m. verður
ársihátíð Tafl- og bridgeklúbbs-
ins haldin og verða þá afhent
verðlaun fyrir keppnir, sem fram
hafa farið í vetur.
Endahnúturinn
rekinn
Kommúnistar eru um þessar
mundir að reka endahrtútinn á
yfirtöku sina á Alþýðubanda-
lagsféiagi Reykjavikur Frá stofn
un þess hefur Magnús Torfi
Ólafsson verið formaður þess og
þótt hann að nafninu til sé í
miðstjóm Sósíalistaflokksins hef
ur það verið á allra vitorði að
eindregnari stuðningsmann Sósí-
alistaflokksins er hægt að finna
í hans röðum. Á framhaldsaðal-
fundi Alþýðubandalagsfél agsins,
sem haldinn var sl. mánudags-
kvöld var að vísu ékki endan-
lega gengið frá stjórnarkjöri, en
þó er ljóst, að kommúnistar hafa
ákveðið að gera einn stækasta
Moskvukommúnistann í hópi
yngri manna í flokknum að for-
manni þessa féiags, fyrst og
fremst til þess að undirstrika
svo öllum megi ljóst verða völd
sín og áhrif í félaginu. Maður
þessi heitir Guðmundur Ágústs-
son og var alþekktur af endem-
um fyrir greinar, sem hann skrif
aði frá Austur-Berlín undir nafn
inu gág, á þeim tíma, þegar
Berlínarmúrinn var reistur. Þá
skrifaði hann hverja greinina á
fætur annarri tii þess að lýsa
einstakri hrifningu og ánægju
Austur-Berlínarbúa með gerð
þessa múrs, og þótt menn af skilj
anlegnm ástæðum efuðnst um
sannleiksgildi þess, að Austur-
Berlínarbúar væru svo ýkja
hrifnir af Múrnum fór það ekki
fram hjá neinum að þessá áhuga-
sami kommúnisti var fullur
barnslegrar hrifningar yfir
þessu tiltæki Ulbrichts. Þennan
mann hafa kommúnistar nú val-
ið til þess að vera formaður Al-
þýðubandalagsfélagsins í Reykja
vík og gátu þeir tæplega á
áhrifaríkari hátt rekið endahnút
inn á valdatöku sina í þeim
félagsskap.
Vettvangur inn
byrðis deilna
En það kom einnig glögglega
fram á þessum framhaldsaðal-
fundi, að Alþýðubandalagsfélag-
ið í Reykjavik er nú einungis orð
ið vettvangur innbyrðis deilna
í Sósíalistaflokknum. Á fundin-
um sl. mánudagskvöld urðu mlk
il átök milli Brynjólfsklíkunn-
ar annarsvegar og hinna svoköll-
nðu „sentrista" hins vegar um
það, hvort félagsaðild skyldi »ög
bundin eða ekki. t sjálfu sér
skiptir þetta engu máli nú eftir
að Sósialistaflokkurinn hefur
endanlega tekið völdin í þessu
félagi. Það skiptir einungis
máli um það, hvort Brynjólfur
kemur til með að ráða ríkjjm
eins og í Sósíalistafélaginu eða
ekki. Að þessu sinni varð Brynj-
óifur undir og verður nú fróð-
Iegt að sjá hvort Sósíalistafélag
Reykjavíkur stendur við þá ótví
ræðu félagssamþykkt sína að
beita sér fvrir sjálfstæðu fram-
boði í Reykjavík, ef félagsaðild-
in að Alþýðubandalagsfélaginu
yrði ekki samþykkt. Alþýðu-
bandalagið sem samfylkingar-
samtök er því ekki einungis
kiofnað í tvennt, það er að
minnsta kosti klofnað í þrennt
og ef marka má samþykktir og
hótanir þessara þriggja aðila þá
getur eins verið, að fram koml
þrir framboðslistar úr röðum
þessara manna við Alþingiskosa
»j ingarnar í vor.