Morgunblaðið - 04.06.1967, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1967.
Úr stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins
ÁFRAtí verði unnið að bættri heilbrigðisþjónustu um land allt og áætl-
anir gerðar til langs tíma um heilsu verndarstöðvar, sjúkrahúsabygging-
ar og aðrar framkvæmdir á sviði heilbrigðismála. Studd verði starfsemi
þeirra sjálfstæðu félagssamtaka, sem vinna að heilsuvernd og í þágu
örykja. Lögð verði og áherzla á mikilvægi heilsuverndar og hjúkrunar-
mála aldraðra.
Sveinn Cuðmundsson, alþm.
Síðhorin frétt Fram
sóknarblaðsins
FYRIR 15 árum gekk ég í lið
með nokkrum starfsmanna minna
sem beittir voru hótunium af
nokkrum framármönnum stéttar-
félags síns vegna vinn.u við und-
irbúning Iðnsýningarinnar 1952,
og sá ég mér ekki annað fært
en að segja upp starfi þremur
þeirra manna, sem hótanirniar
höfðu baft í frammi.
I gær uppgötvar daglblaðið
Tíminn allt í einu, að með þessu
li'ðsinni við starfsmenn mína
hafi ég gerzt sekur um „atvinnu-
kúgun“, en þetta „ranglæti" hef-
ur blaðið nú látið óátalið og þag-
að nm í hálfan annan áratug.
Með þessari síðbornu frétt eru
framsóknarmenn að reyna að
leiða athyglina frá atvinnukúg-
un Framsó'knar á Fáskrúðsfirði,
sem harðlega hefur verið for-
dæmd af almenningi um allt
land. En til þess þarf áreiðan-
lega meira en rangfærða frá-
sögn af 15 ára gömlu ágreinings-
máli, sem Tíminn tók enga af-
stöðu til á sínuim tíma.
Aðdraganda þessa ágreinings-
máls var lýst í grein, sem birt-
ist eftir mig í dagblöðunum í
september 1952. í greininni, sem
Tíminn birti atbugasemdalaust
hinn 13. september 1952, sagði
m.a.:
bráðnauðsyn á að fá um 20
manna hóp úr smiðjunni til að
vinna aliskonar verk í Iðnskól-
anum.
Ég hafði ekki yfir neinum öðr-
um mönnum að ráða og varð
mér auðvitað fyrst fyrir að leita
til minna eigin manna. Undir-
tektir mannanna voru ágætar.
Þeim var ljóst hvað í húfi var
og vildu allir hjálpa til við það,
sem ógert var við sýninguna.
Unnu mennirnir svo við sýning-
una föstudaginn allan frá hádegi,
alla laugardagsnóttina og fram
á laugardag. Gengu verk vel úr
hendi. Auðvitað var þarna ekki
um neina járnsmíðavinnu að
ra*'a, heldur allskonar störf við
að hreinsa og laga o.s.frv. Var
ég mönnunum úr Héðni mjög
þakklátur fyrir að hlarupa undir
bagga með Iðnsýningunni af slík-
um augnaði og átti sízt von á
þeim eftirleik, sem varð.
Hótanir um að gera kaupið upp-
tækt
Á laugardagsmorgun, þegar
unnið var af sem mestu kappi
við sýninguna, var aðaliverk-
sljóra Héðlins tilkynnt, að menn
Sveinn Guðmundsson
irnir úr Héðni hefði ekki rétt
til þess, samkvæmt samningum,
að vinna á laugardaginn þar sem
þeir hefðu unnið alla nóittina og
sé þess krafizt, að mennimir
hætti vinnu þegar í stað. Því var
baett við, að kaup þeirra fyrir
laugardagsvimnuna yrði tekið af
þeim. Einestakir menn, sem voru
Framih. á bls. 20
Afnema ber tolla af papp-
ír og söluskatt af bökum
Frá Bóksalafélagi íslands
„Föstudaginn i fyrri viku að
morgni, var ég staddur upp í
Iðnskóla og var ég þar að yfir-
líta undirbúning Iðnsýningarinn.
ar, en ég er formaður fram-
kvæmdanefndar hennar. Var mér
og framkvæmdastjóra sýningar-
innar (en hann var Helgi Bergs
núverandi ritari Framsóknar-
flokks. — Innskot mitt) Ijóst, að
svo margt væri enn ógert við
sýninguna, að ekki yrði unnt að
opna hana daginn eftir, eins og
boðað hafði verið, nema sér-
stakar ráðstafanir yrðu gerðar
til að flýta því, sem eftir var.
Fór ég þá þegar vestur í „Héð-
inn“ og átti tal við einn af
verkstjórunum þar. Sagði ég hon
um að vegna sýningarinnar væri
NÝLEGA var haldinn aðalfund-
ur Bóksalafélags íslands. Fund-
urinn gerði eftirfarandi sam-
þykkt varðandi tollamál íslenzkr
ar bókagerðar, svo og vegna sölu
skatts á íslenzkum bókum:
„Aðalfundur Bóksalafélags ís-
lands, haldinn föstudaginn 26.
maí 1967, leyfir sér enn á ný að
vekja athygli á hinni ranglátu
skipan toliamála, sem íslenzkir
útgefendur þurfa að búa við. Á
sama tíma og erlendar bækur og
blöð eru algerlega tollfrjáls
flutt til landsins, er íslenzkum
útgefendum gert að greiða háa
tolla af pappír og bókbandsvör-
um. Augljóst er, að þessi skipan
tollamála stendur íslenzkri út-
gáfustarfsemi verulega fyrir
þrifum og neyðir íslenzka útgef-
endur til ójafnrar og óréttlátrar
samkeppni við erlenda aðila,
njóta sérstakra fríðinda umfram
Framhald á bls. 20.
Frambjoðaiidi
Framsóknar
við ,ritsmíðar‘
á Fáskrúðs-
firði
Eftir að Framsóknarmenn
gáfust upp við að sýna einn
frambjóðanda sinn á Austur-
landi, Kristján Ingólfsson, á
framboðsfundum hefur maður
þessi lagt fyrir sig „ritsmíð-
ar“ á Fáskrúðsfirði. Hefur
hann dvalið svo dögum skipt-
ir á staðnum og tekið „sam-
töl“ við menn þar. Þessi
„samtöl" munu birtast í Tím-
anum og mun þá koma
í ljós, að þær „yfirlýsingar“
eru ekki frá neinum þeirra,
sem voru beittir atvinnukúg-
un af Framsóknarmönnum á
Fáskúrðsfirði.
Vestfjarðakjördæmi
D-listinn er listi uppbyggingar og framfara
Enda þótt allir Vestfirðingar hafi fagnað framkvæmdum og um-
bótum í skjóli Vestfjarðaáætlunarinnar og byggi miklar vonir á
framhaldi þeirra, hafa leiðtogar Framsóknarmanna og kommún-
ista sýnt þessu merka nýmæli andúð og tortryggni. Frambjóð-
endur þeirra hafa á framboðsfundunum undanfarna daga reynt að
sanna það, að „Vestfjarðaáætlun fyrirfinnist engin“.
Það gerðist t. d. á Bíldudal s.l. þriðjudag, að einum af fram-
bjóðendum Framsóknar var bent á hina nýju höfn á staðnum og
honum jafnframt sagt, að þarna sæi hann Vestfjarðaáætlunina
í framkvæmd.
„Hvar?" sagði Framsóknarframbjóðandinn, og leit til fjalls.
Hann lét sem hann sæi ekki hina nýju og skjólgóðu höfn þeirra
Bílddælinga.
Svona glórulaust er pólitískt ofstæki Framsóknarmanna.
En Vestfirðingar vilja halda áfram uppbyggingu landshluta síns,
þess vegna meta þeir það, sem vel hefur verið gert.
Sjálfstæðisflokkurinn, sem er sterkasta stjórnmálaaflið á fs-
landi, bíður Vestfirðingnm forustu sína næsta kjörtímabii. A miklu
veitur að aðstaða hans sé sem tryggust á Alþingi. A því veltur,
hvort haldið verði áfram uppbyggingu Vestfjarða í skjóli stjóm-
arstefnunnar.
Þess vegna verður allt frjálslynt fólk á Vestfjörðum að styðja
framboðslista Sjálfstæðisflokksins, og tryggja ríkisstjórninni sigur
Varaformaður Framsóknarflokksins:
Ekkert fagnaðarefni
að Alþbl.
ÓLAFUR Jóhannesson,
varaformaður Framsókn-
arflokksins, lýsti því yfir
á framboðsfundi á Hofsósi
sl. fimmtudagskvöld, að
„það væri ekkert fagnað-
arefni að Alþbl. væri klof-
ið“.
Séra Gunnar Gíslason,
sem skipar fyrsta sæti á
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandi
vestra benti þegar í stað á
það að Framsóknarmenn
hörmuðu svo klofninginn í
Alþbl. vegna þess, að þeir
stefndu að því að komast
í stjórnaraðstöðu með Alþ
bl. að kosningum lokn-
um.
Það er sérstök ástæða
til að vekja athygli á þess-
er klofið
ari yfirlýsingu varafor-
manns Framsóknarflokks-
ins, sem sýnir að Fram-
sóknarmenn harma klofn-
inginn í Alþbl. Harmur
annarra landsmanna er
ekki jafnmikill og Fram-
sóknarmanna í þessu til-
felli.
Á sama fundi lýsti
Ólafur Jóhannesson yfir
því að hann hefði mikla
trú á Norðurlandsáætlun
og er það býsna athyglis-
verð yfirlýsing miðað við
fyrri yfirlýsingar Fram-
sóknarmanna um lands-
hlutaáætlanirnar en auð-
vitað ber að fagna því að
forustumaður Framsókn-
arflokksins hefur svo
mikla trú á verkum ríkis-
stjórnarinnar!
KJÓSENDAFUNAUR
Á SEYÐISFIRÐI í DAG
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til
aknenns kjósendafundar á Seyð-
isfirði í dag sunnudag kL 16.00.
Ræðumenn verða Jóhann Haf-
stein, dómsmálaráðherra, Jónas
'Pétursson alþm. og Sverrir Her-
mannsson, viðskiptafr. Austfirð-
fngar_ eru hvattir til þess að
tfjölmenna.
Almennir kjósendninndir í
Norðurlondi eystra
FR AMB J ÓÐENDUR Sjálfstæðis
iflokksdns í Norðurlandskjördæmi
eystra boða til almennra kjós-
endafunda um framfaramál kjör
idæmisins og þjóðmál í Lundi í
Öxnarfirði mánudaginn 5. júní
kl. 20.30. Ræðumenn: Magnús
Jónsson, ráðherra, Bjartmar Guð
mundsson, Lárus Jónsson og Sig-
urður Jónsson. Að Reynihlíð i
Mývatnssveit þriðjudaginn 6.
júní. Ræðumenn Magnús Jóns-
son og Bjartmar Guðmundsson.
I
Reykjaneskjördæmi
D-listinn er okkar listi
Þróttmikill boðskapur unga
fólksins á fundi þess í Hafnar-
firði í gær, sýnir okkur og sann-
ar hér í kjördæminu, að í þess-
um kosningum fylkir æskan sér
um D-listann og framfarastefnu
Sjálfstæðisflokksins. Það er
mjög mikilsrvert að finna þann
sóknarþunga, sem nú er víðis-
vegar hér í kjördæminu.
1 þessari viku, þegar lokasókn
in stendur yfir, efna frambjóð-
endur D-listans í kjördæminu til
sérsitakra funda, með trúnaðar-
mönum Sjálfstæðisflokkisins,
Hverfisstjórum og öðrum sjálf-
boðaliðum við kosningamar. Eru
þessir fundir, svo sem sjá má i
auglýsingu hér í blaðinu í dag á
fjölmörgum stöðum í kjördæm-
inu.
Sjálfstæðismenn, konur og
karlar, fylkjum okkur í hina
stóru sveit áhugafólksins, sem
vinnur að kosningaundirbúninigi
og undirbýr nú baráttuna á kjör
dag.