Morgunblaðið - 04.06.1967, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.06.1967, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1967. i 99 íbúðaskortur“ hjá möfuglum! Víðar eru húsnæðisvandræði en hjá mannfólkinu. Meira segja hjá fuglunum bryddir á þeim, og það með áþreifan- legum hætti, og við það urð- um við varir hérna á dögun- um. Tveir ungir piltar voru á dögunum að skimast um eftir fuglum í næsta nágrenni borg arinnar. Flaug þá Hrossagauk ur upp undan fótum þeirra. Þar lágu eggin hans, móleit, græn mr/ð brúnum deplum, en við hlið þeirra 2 stærri, ljósleit og ókennileg. Þetta vakti að sjálfsögðu mikla furðu hjá piltunum, og svo fór, að þeir kölluðu til mann, fuglafræðing, sem gekk með þeim nokkrum kvöldum seinna á vettvang. Ekki gat hann strax sagt þeim, hvers fugls aukaeggin væru, en með þolinmæði vökt uðu þeir hreiðrið, og þá kom hið sanna í Ijós. Með góðum sjónaukum sáu þeir Stelk setjast á hreiðrið Hrossagauks ins, og þótt eggin skrýtnu væru í ljósara lagi, virtist enginn vafi leika á því, að ®MÍ Hér hafa Hrossagaukur og Stelkur lagt saman í eina „íbúð“ vegna húsnæðisskorts. þarna hefðu Hrossagaukur og Stelkur hafið samihýli f einu „herbergi", ef svo má segja. Taldi fuglafræðingurinn senni legustu skýringuna á þessu sjaldgæfa fyrirbrigði, að svo þröngt væri orðið um mófugl- ana á þes-sum stað, að þeir hefðu gripið til þess ráðs að rugla saman reitum sínum, sækja saman um „húsnæðis- málastjórnarlán" og búa sam an í sátt og samlyndi, meðan það entist. Við birtum hér mynd af hreiðrinu, að vísu hefur eggj- um fækkað, en það á sér eðli legar orsakir. Allt um það, tók Sveinn Þormóðsson mynd ina við góð skilyrði, og frá- sögnin er sönn. Og svo bíð- um við bara eftir öðru til- felli, sem sýnir þessi geysi- legu húsnæðisvandræði hjá fuglum. — Fr .S. Hrossagaukur á hreilJri. sá NÆST bezti Stúdentinn (með reigingi) „Hvort er þyngra, eitt pund af járni eða eitt pund af fiðri?“ Smalinn: „Láttu það det.ta ofan á fótinn á þér. Þá finnurðu muninn“. Áheif og gjafir TVÆR ungar og framtakssam- er stúlkur í Skerjafirði, Soffía Ingibjörg Guðmundsdóttir, Reyni stað, og Ragnheiður Erla Bjarna dótir, Skildinganesveg 30 (13 og 14 ára) óku sig til fyrir nokkru, bökuðu kökur, fengu gefins ýmsa aðra smáhluti, og stofnuðu til hlutaveltu í hverfinu. Agóðann af hlutaveltunni kr. 2000,00 gáfu þær Barnaheimilinu Tjaldanesi, Mosfellssveit, en það er heimili fyrir vangefin börn. Stjórn Barnaheimilisins hefur beðið blaðið að færa þessum dug legu stúlkum alúðarþakkir fyrix hugulsemi þeirra og myndarskap. Hinn 23. maí s.l. barst Kálfa tjarnarkirkju mikil gjöf, kr. 30.000.00 og er hún gefin til minningar um hjónin Sigríði Brynjólfsdóttur og Benedikt Pétursson frá Suðurkoti í Vog um í Kálfatjarnarsókn en 23. maí voru 100 ár liðin frá fæð ingu Benedikts. Hann var fæddur í Bræðraparti í Vog- um, en Sigríður, kona hans, var fædd 1. nóv. 1864 að Ár- bæ í Landssveit. Þau hjón bjuggu í Suðurkoti í Vogum allan sinn búskap. Gjöfina gefa börn þeirra hjóna Jón Benediktsson og Guðrún BenediktsdóttÍT og fósturson- ur þeirra Guðmundur Jónsson. Fyrir þessa miklu og höfð- inglegu gjöf, sem gefendur óska að gangi til sæta eða lag- færingar á sætum kirkjunnar, færir sóknarnefnd fyrir hönd kirkju og safnaðar innilegar þakkir. Sóknarnefnd Kálfatjarnarsókn ar. VÍ8UKORN Andans styrkur eykst við trú, efasemdir þverra. Hvergi er myrkur þar sem þú þjónar lífsins Herra. Kjartan Ólafsson. 80FN Ásgrímssafn, Bergstaða- stræti 74 er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30 — 4. Listasafn Einars Jónssonar er opið daglega frá kl. 1:30 til 4. Náttúrugripasafnið verður opið frá 1. júní alla daga frá 1:30 til 4. Akranesferðir Akranesferðir Þ.Þ.Þ. mámidaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugar- daga frá Akranesi kl. 8. Miðvikudaga og föstudaga frá Akranesi kl. 12 og sunnudaga kl. 4. Frá Reykjavík alla daga kl. 6, nema á laugardögum kl. Z og sunnudögum kl. 9. Spakmœli dagsins Sælir eru þeir, sem hiemþrá hafa, því að þeir munu komast heim. — Jung-Stilling. clulcli máttur Ég dáist að þcim krafti, er ríkjum ræður einn. Þó ráði lífsins gátur og skilji ekki neinn. Sólarljóssins herra á heima í hverri sál, sem hjartað lætur tala og skrifar guðamál. Ég er aðeins dropl. og drýp í lífsins haf með draumsjónir og vonir, er alfaðir mér gaf. Tilverunnar rúnir ég ræ'ð ei eða skil þá rökkur slær á hmiin, ég hverf í þennan hyl. Hjálmai frá Hofi. Húsmóðir óskar eftir heimavinnu eða kvöldvinnu, t. d. ræstingu. Tilboð merkt „Vandvirk — 537“ sendist Mbl. fyrir miðvikudag. Peningaveski tapaðist Svart peningaveski tapað- ist 1. júní sl. Finnandi vin- samlegast hringi í síma 24644 gegn fundarlaunum. íbúð til leigu Til leigu nú þegar er 3ja herb. íbúð á Teigunum. — Uppl. í síma 822/8. Reglu- semi áskilin. Kvenkápur Ódýrar sumarkápur, heils- árskápur og dragtir til sölu. Sími 41103. Hestur Til sölu 7 vetra hestur. Hefur allan gang og góðan vilja. Verð 17 þús. kr. Sími 34629 á kvöldin. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu Apaskinnsjííkkar unglinga- og kvenstærðir. tf'Á. Laugavegi 31. ™^D Rafmagnstalíur Höfum fyrirliggjandi 200 — 400 og 500 kg. talíur Útvegum stærri talíur með stuttum fyrirvara. Laugavegi 15, sími 11620, og 1-3333 - 1 LUD\ STOI riG i RR , L J Allt á barnið — veljið það bezta Hollenzkir drengiajakkar á 2ja — 12 ára. Aldrei meira úrval en nú. /\>® r Austurstmti 12 DR. SCHOLL'S SÁPUHÚSIÐ Vesturgötu 2 auglýsir. Nýkomnir sjúkrasokkar nylon með Lycra-Spandex þræði, allar stærðir. Fjölbreytt úrval af Dr. Scholl's vörum fyrir þreytta fætur. PÓSTSENDUM, Vesturgötu 2 — Sími 13155.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.