Morgunblaðið - 04.06.1967, Side 32
DREGIÐ EFTIR
SUNNUDAGUR 4. JÚNÍ 1967
2 DAGA
Stærsta lánaveiting byggingar-
sjóðs verkamanna til þessa
S T J Ó R N Byggingarsjóðs
verkamanna ákvað á fundi
sínum í gær lánveitingar til
byggingar 165 nýrra íbúða í
30 kaupstöðum og kauptún-
um landsins, samtals að upp-
hæð 76 millj. kr.
Ákvörðun þessi er byggð
á því, að ríkisstjórnin hefur
ákveðið að beita sér fyrir
Lán veitt til 165 nýrra íbúða
i 30 kaupstöðum og kauptún-
um — samtals 76 millj. kr.
fjárútvegun til viðbótar eig-
in tekjum sjóðsins, svo sem
nauðsynlegt kann að reynast
til þess að hægt verði að
Húsbruni í Kópavogi
FjÖgurra manna fjölskylda
missti allt sitt
SLÖKKVILIÐIÐ var kvatt að
húsínu nr. 141 við Hlíðarveg í
Kópavogi kl. 15:38 í gærdag.
Húsið, sem upprunalega var reist
sem sumarbústaður, var alelda,
er slökkviliðið kom á staðinn, en
fljótlega tókst að ráða niðurlög-
um eldsins.
í húsinu bjuggu hjón, Sigfús
Steingrímsson og kona hans,
ásamt tveimur börnum þeirra.
Komust þau öll út í tæka tíð,
en eldurinn fór um allar vistar-
verur hússins, sem er lítið og
skemmdist það mikið svo og allt
i<nnbú.
Þegar blaðið fór í prentun í
gær voru eldsupptök enn ekki^
kunn.
Oibeldismoð-
urinn nóðist
RANNSÓKNARLÖGBEGAN
handtók í gær mann þann, sem
réðst á leigubifreiðarstjórann út
á Laugarnestanga s.l. miðviku-
dagskvöld, og skýrt var frá í
blaðinu í gær. Er maðurinn nú
í varðhaldi.
fullnægja lánsloforðum þess-
um.
Hér er um að ræða stærstu
lánveitingu byggingarsjóðs
verkamanna fram til þessa.
Tryggjum sigur með
glæsilegri lokasókn
NÚ ERU aðeins tveir dag-
ar þar til dregið verður í
landshappdrætti Sjálfstæð
isflokksins. Happdrættið
þakkar öllum þeim fjöl-
mörgu Sjálfstæðismönn-
um, sem sýnt bafa eindreg
inn einhug með stuðningi
sínum við það og Sjálf-
stæðisflokkinn. Jafnframt
því hvetur það þá, sem
enn hafa ekki gert skil að
láta af því verða áður en
um seinan er. Það auð-
veldar allt starf happ-
drættisins og flýtir fyrir
birtingu vinningsnúmera.
Sjálfstæðismenn hafa áð-
ur unnið sigra með glæsi-
legum lokaspretti og við
skulum tryggja að svo
verði nú.
Skrifstofan í Sjálfstæð-
ishúsinu er opin í allan
dag, sími 17104. Þeir sem
ekki eiga heimangengt
geta hringt í skrifstofuna,
sem þegar mun senda
menn til þeirra.
Ölafur Eioarssou, verkstjóri, hjá Vita- og hafnarmála-
stjóm og Pálmi Óiason oddviti skoða furðuskepnuna. Xak
ið eftir hryggjarliðunum fremst á myndinni.
Er furðuskepnan beinhákarl?
FYRIR um það bil fjórum
mánuðum rak á fjörur á
Langanesi ókennilega skepnu,
er Lúðvík Jóhannesson, bóndi
í Heiðarhöfn taldi að væri
beinhákarl. Gerði hann ekkert
í málinu en nú fyrir skömmu
komu fram þær raddir að um
furðuskepnu áður óþekkta,
væri að ræða.
Send hafa verið sýnishom
af skepnunni til Hríseyjar,
þar sem dr. Finnur Guð-
mundsson, fuglafræðingur
dvelsit nú við ransóknir og
mun hann hafa kannað, hvaða
skiepna þetta sié. Hins vegar
hefur Mbl. ekki tekizt að ná
taii af dr. Finni og því hefur
Framh. á bfLs. 20
Furðuskepnan í fjörunni. Hinn svokallaði hiali sósit greini- lega. (Ljósm: Sv. Sveinisison).
Fyrstu sumarsíldinni land-
aí úr Hörpu á Seyiisfirði
3 aðrir bátar á leið inn með samtals 670 tonn
SKÖMMU eftir hádegl í gær
kom v.b. Harpa frá Sandgerði
inn til Seyðisfjarðar með nm
260 tonn af síld, en báturinn
fyllti sig í fyrradag. Þrír aðrir
bátar munu einnig hafa fyllt
sig í fyrrinótt, og voru á leið
inn í gær.
Mbl. átti í gær stutt samtal
við Árna Gíslason, skipstjóra á
Hörpu, og upplýsti hann, að bát-
urinn hefði fengið aflann á all-
stóru svæði um 350 mílur út af
Austurlandi. Hann kvað Hörpu
hafa fengið aflann mestmegnis
á þremur dögum, og tvo síðustu
dagana hefðu þeir oftsinnis lóð-
að á ágætar torfur, en sildin
væri óhemju stygg. Árni sagði
að síðustu, að síldin væri ágæt,
en blönduð.
Kosningaskemmtun unga fdfksins
f KVÖLD kl. 21, efnir Heim-
dallur til kosningaskemmt-
unar í Lídó. Kristín Sigurðs-
son, nemandi í M. R., Jón
Sigurðsson, verzlunarmaður,
Haraldur Sumarliðason, tré-
smiður og Ármann Sveins-
son, stud. jur., flytja stutt
ávörp. Þeir félagar Bessi
Bjarnason og Gunnar Eyjólfs
son skemmta af sinni al-
kunnu snilld og síðast en
ekki sízt lætur Ómar Ragn-
arsson til sín heyra milli
þess sern hljómsveit Ólafs
Gauks leikur fyrir dansi.
Allt ungt stuðningsfólk
Sjálfstæiðsflokksins er vel-
komið meðan húsrúm leyfir.
Aðgangur er ókcypis
Jón Einarsson, skipstjóri og
leiðangursstjóri á síldarleitar-
skipinu Hafþóri, tjáði Mbl., að
þrír aðrir bátar væru á leið til
lands með afla. Eru það Reykja-
borgin með 260 tonn, Bjartuir
með 210 tonn og Ólafur Magn-
ússon með 200 tonn. Hann sagði
ennfremur, að Hafþór hefði að
undanförnu leitað norðvestur af
miðunum, þar sem bátarnir halda
sig nú, og hefði lóðað þar á
nokkrar góðar torfur, en síldin
væri mjög stygg. Hún stefndi
í norðvestur, og nálgaðist þvl
landið lítið eitt. Jón kvað Haf-
þór nú þurfa að leita til lands,
þar sem skipið hefði rekist á
rekadrumb um nóttina, og eyði-
lagt „astic“-stautinn, sem geng-
ur niður úr skipinu. Þyrfti þvf
að skipta um staut. Hann sagði,
að hijög mikið væri um rekavið
á þessum slóðum, og þyrfta
síldveiðiskipm að varast hann.