Morgunblaðið - 08.06.1967, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 08.06.1967, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1®67. 5 „Ég vil helzt ekki segja hver maðurinn var....“ Framsóknarmenn halda áfram að sanna sök sína í Fáskruðsfjarðarhneykslinu BÍLAKAUR TILRAUNIR Framsóknar blaðsins til þess að breiða yfir Fáskrúðsfjarðar- hneykslið tókn sannast sagna einkennilega stefnu í gær, eins og sjá má af viðtölum við unga konu, Guðnýju Þorvaldsdóttur og Sölva Kjerúlf, sem birt ust I Framsóknarblaðinu í gær en viðtal við Sölva Kjerúlf birtist einnig i Morgunblaðinu í fyrradag. Morgunblaðið telur ástæðu til að birta kafla úr viðtali útsendara Fram- sóknarflokksins á Fá- skrúðsfirði við Guðnýju Þorvaldsdóttur vegna þess að það er eitt af mörgu, sem birzt hefur í Fram- sóknarblaðinu undanfarna daga, sem sannar sök Framsóknarbroddanna í þessu máli. Þessi kafli er svohljóðandi: — Þú ert ein í hópnum, sem ætlaði að stofna Félag ungra Siálfstæðismanna er það ekki? — Jú. — Hvað olli því eigin- lega, að þið hættuð við það. Er það tilfellið, að þið hafið verið beitt at- vinnukúgun og þvingun- um til þess að hætta við það? — Ekki ég. — Og það hefur ekki verið talað við þig af yfir- boðara þinum í kaupfélag- inu um það, að þú yrðir ekki meðal þátttakenda í þessu? — Hann talaði aldrei við mig persónulega — en hann — ég veit ekki hvað ég á að segja. — Það var komið nokk- uð margt ungt fólk á þenn an lista er það ekki? — Jú. — Þið hafið boðað til stofnfundar? — Já, já. — Ekki hefur þetta allt verið starfsfólk í kaupfé- laginu sem var á listan- um? — Nei, nei. — Hvað var það þá, sem olli þvi, að þið létuð ekki verða af stofnun félagsins, nú skilst mér að meðal stofnenda hafi verið Ólaf- ur Bergþórsson, sem er bæði kennari og sparisjóðs stjóri. Ekki hefði Guðjón getað rekið hann úr vinnu. Mér skilst líka, að þarna hafi verið ýmsir aðrir sem ekkert hafa undir kaupfé- lagið að sækja. Hvað olli því að þið hættuð við stofnunina? — Ja, þann umrædda dag, sem fundurinn átti að vera heyrðum við á skot- spónum, að við, sem vinn- um hjá kaupfélaginu yrð- um öll rekin, ef við stofn- uðum félagið þetta kvöld. Einn samstarfsmaður minn, sem átti að verða einn af stofnendum þessa félags fór og talaði við Guðjón, þegar hann kom til baka sagði hann að þetta væri staðreynd — við yrðum rekin. — Hver var það? — Ég vil helzt ekki segja hver maðurinn var, það er bara nóg að ég segi: „Einn samstarfsmaður minn.“ Nú er rétt að menn velti því fyrir sér hvers vegna Guðný Þorvaldsdóttir vildi ekki skýra frá því í viðtali við Tímann um hvaða samstarfsmann hennar var að ræða. Vel með farnir bflar til tölu | og sýnit ( bílageymslu okkar að Lougavegi 105. Tsekifæri til að gera góð bllakaup., — Hagstæð greiðslukjör. — Bilaskipti koma til greino. Zephyr árg. 196ð Opel Record árg. 1963 Opel Caravan árg. 1962 Renault R-4 árg. 1963 Mercedes-Benz 180 árg. ’561 Opel Kapitán árg. 1959-'601 Ford Prefect árg. 1956 Moskwitch árg. ’59 Ford Fairlane árg. ’64’/65 Renault Dauphine árg. ’63 Taunus 12M árg. ’63 Taunus 17M Station ’#6. Taunus 17M árg. ’65 Corvair árg. ’63 Ford Custom árg. ’63 Toyota Corona árg. '86 Simca 1000 árg. '63 Ford Station árg. ’68 Opel Caravan árg. ’66 Willys árg. ’65 MercedesBenz 17 sseta árg. ’64 [Tökum góða bíla I umboðssðlul | Höfum rúmgott sýningarsvæði í innanhúst. ] UMBODIÐ SVEINN EGILSSON H.F. LAUGAVEG 105 SIMI 22466 Iðnaðar- skriffstofu- og verzlunarhúsnæði 1 : i i i iiii Til sölu við Drekavog—Langholtsveg atvinnuhúsnæði í húsi Fóstbræðra. Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. SKIP og FASTEIGNIR Austurstræti 18 — Sími 21735. f Olafsvakan í Færeyjum Lönd og Leiðir vilja vekja athygli á því, að ferðaskrif- stofan hefur frátekið farþegarými um borð f Ms. Kron- prins Frederik vegna 1Ö daga hópferðar á ólafsvökuna í Færeyjum á tímabllinu 24. júlí—2. ágúst. Þar sem allt pláss í þessari ferð er þegar pantað, nema það pláss, sem L&L hefur vilyrði fyrir, er mjög nauðsynlegt að væntanlegfr þátttakendur skráf sig í þessa ferð sem allra fyrst, og elgi síðar en 10. júní. FÆREYJAFERÐIN 24. júlí: Siglt með Kronprins Frederik frá Reykjavík. 26. júlí: Komið til Thorshavn. Dvalizt verður f Færeyj- um meðan á ólafsvökunni stendur. 31. júlf: Látið aftur úr höfn f Thorshavn. 2. ágúst: Komið til Reykjavfkur. Verð frá kr. 4.985.— LÖND & LEIÐIR, Aöalstræti 8,simi 2 4313 ©AUQLVSINGASTOFAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.