Morgunblaðið - 08.06.1967, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1967.
21
Sjötugur:
Árni Ólafsson
kaupmaður
3ÞAÐ ERU nú rétt 70 áx síðan
sveinn einn mikill sá fyrst dags-
ins ljós austur í hinum forna
Eyrarbakkahreppi. En eins og
öllum lýð er kunnugt, hafa á
þessum árum orðið mestu ger-
byltingar í hvers konar tækni,
«em sagan getur um. Og það er
eins og það hafi verið skráð í
•tjörnunum, að einmitt þetta
skeið ætti sveinninn að lifa, svo
mjög sem tæknin hefur átt hug
hans, og ef hin vinsæla og stór-
brotna iðja sjörnuspámanna
hefði verið til taks í þann tíð,
er ekki ósennilegt, að sjáin
fyrir þennan herrans dag, 8.
Júní 1897 hafi hljóðað eitthvað
á þá leið, að sveinninn, sem þá
fæddist, „nyti jákvæðra áhrifa
f þá átt að fá snjallar hugmynd-
ir og ætti auðvelt að kveikja
éfhuga annarra á framkvæmd
þeirra" líkt og gat að líta í blaði
einu nýlega eftir einn speking-
inn. En þennan dag herma
heimildir, að Árni Ólafsson,
Sólvallagötu 27 hér í borg, nú
kaúpmaður, en einnig stýri-
maður, loftskeytamaður, hug-
▼itsmaður og þúsund þjala smið
ur m.a., hafi verið í heiminn
borinn. Verður þess vegna að
trúa því, að hann sé sjötugur í
dag, þótt fjarri fari, að hann
beri utan á sér, að svo sé. Og
það er þá svo sem ekki í fyrsta
sinn, að Árni kann að koma
mönnum á óvart.
Hann er fæddur að Borg i
Hraunshverfi í Eyrarbakka-
hverfinu hinu gamia, sonur hjón
anna Guðrúnar Gísladóttur og
Ólafs Árnasonar, er þar bjuggu
þá. Ólst hann þar upp í frum-
bernsku, en á unga aldri tóku
hann til sín föðursystir hans,
Sigríður, og maður hennar, Jón
Gíslason, bóndi að Eystri-JLofts-
stöðum í Gaulverjabæjarhreppi.
Var sú vist ráðin í því skyni að
létta undir með þungu heimili
foreldra hans. Atvikin höguðu
því svo, að úr því fóstri fór
hann ekki, og ólst hann þar upp
fram að fullorðinsárum. Hefur
hann oftlega minnzt bernsku-
og æskúheimilis sins með virð-
ingu og þökk.
Á unglingsárum stundaði
hann algenga vinnu, eins og þá
var títt, fór ungur til sjós á tog-
urum og var við þau störf um
skeið. Hann fór í Sjómannaskól-
ann og lauk þaðan stýrimanns-
prófi, en hafði jafnan mikinn
álhuga á öllu því, er varðaði loft-
skeyti og loftskeytatækni, og
gerðist loftskeytamaður að auki.
Beygðis't snemma krókurinn til
þess, sem verða vildi. Eignaðist
hann fljótlega eigið loftskeyta-
tæki og mun hafa verið með
fyrstu mönnuim, sem svo var
um, og hafði náttúrlega jafnan
með sér, hvar sem hann fór, á
sjó eða landi. Er óhætt að full-
yrða, að hann er með fyrstu
brautryðjendum þeirrar tækni
hérlendis. Allt það, sem þau
víSindi varðar, hefur alla tíð
heillað hann og tekið hug hans.
Hann varð þannig, á árunum
áður en Útvarp Reykjavík varð
til, frægur maður fyrir að fá
eér útvarpstæki og smíða, eftir
atvikum, og ferðast með það um
allar sveitir, fyrir allan lýð að
sjá og heyra. En þótt hugur hans
væri mjög svo við þessi furðu-
tæki bundinn, var hann fjarri
því einskorðaður við hann. Á
sjómennskuárunum var það
víst ekki einsdæmi, að hann
eigldi bæði sem stýrimaður og
loftskeýtamaður, heldur braut
hann heilann mjög um, hversu
bæta mætti og vanda veiðiað-
ferðir og veiðibúnað. Á árunum
upp úr 1920 gerði hann þannig
uppdrátt að flotvörpu, sem eitt-
hvað lítillega var síðan reynd,
en þær tilraunir stöðvuðust illu
heilli, væntanlega bæði af skiln-
ingsskorti og fjárskorti. Hafa
fróðir menn sagt mér, að tillaga
Árna hafi verið mjög hugvits-
samleg og sýni glöggt bæði
áhuga hans og þekkingu á þess-
um efnum, svo og það, hversu
langt hann var á undan samtíð
sinni um þess konar tilraunir.
^ Eftir að í land kom, stundaði
Árni margs konar vinnu og lagði
á margt gjörva hönd. Hann
sinnti jafnan hugðarefni sínu
varðandi útvarpsptæki, en stund
aði jafnhliða um langt skeið
veggfóðrun, og eru þeir margir,
sem notið hafa þjónustu hans í
þeim efnum. Á árunum kringum
1930 byggði hann fbúðarhús við
Sólvallagötu, og eftir stríðsárin
síðustu byggði hann bæði við
það og ofan á og gerði úr stór-
hýsi. Að langmestu leyti vann
hann hvort tveggja byggingar-
starfið einn og áreiðanlega ekki
mörg verkefni við það, sem
hann ekki kom nálægt eigin
höndum. Mundu ekki margir
leika það eftir. í nýbyggingunni
stofnaði hann svo til verzlunar
með margvíslegan varning, allt
frá fiskileitartækjum til saum-
nála, og hefur það verið aðal-
starfi hans síðan að sinna þeirri
kaupsýslu. En aldrei hygg ég
hann ánægðari en þegar hann
er í náinni snertingu við þau
viðundur tækninnar, sem varða
fjarskipti og því skiylt, og stenzt
aldrei glaðari en þegar gnægð
er í kringum hann þeirra smá-
hluta af vír, flækjum, gormum
og þess háttar, sem í byggingu
slíkra tækja fara.
Eiginkona Árna var Ásta
Kristinsdóttir, mikil mætis- og
traustleikakona, sem lézt 1965.
Var mikil eftirsjá að henni. Þau
eignuðust þrjú mannvænleg
börn, sem öll eru á lífi, upp-
komin.
Árni hefur ekki farið alfara-
vegu á æviskeiði sínu, og væri
sjálfsagt sízt að skapj hans að
þurfa að taka upp slíka háttu.
Hann á þá e.t.v. ekki heldur sam
leið með hverjum, sem er. En
hann er mikill vinur vina sinna,
traustur í háttum og skiptum,
hófsamur og nægjusamur, með
næmt auga fyrir því skoplega
og skrýtilega og hefur mikið
yndi af hvers kyns gamanmál-
um. Kringum þessi tímamót brá
hann sér stutta ferð út fyrir
pollinn og er því ekki heima í
dag. En hvar sem hann er nú
staddur, senda vinir hans, sam-
ferðamenn og grannar honum
og fjölskyldunni einlægar heilla-
óskir, í voninni iim, að allt megi
ganga honum að óskum um alla
hans framtíð.
EP.
Þvottaduft
Vorum að taka upp mjög gott amerískt lágfreyð-
andi þvottaduft fyrir sjálfvirkar þvottavélar og
uppþvottavélar. Allar konur kvarta undan miklum
reksturskostnaði þessara véla, en nú bjóðum við
úrvalsgott þvottaefni mjög ódýrt.
KOMIÐ O G REYNIÐ.
Miklatorgi.
pumH
----OG BOLTINN
LIGGUfí í NETINU
Feður! Gefið syninum vandaða knattspyrnuskó!
Sportvöruverzlun Kristins Benediktssonar, Óðins-
götu 1, sími 38344.
Framtíðarstarf
á Austurlandi
Óskum að ráða forstöðumann til starfa á skrifstofu
félagsins fyrir Austurlandsumdæmi.
Umsóknir sendist til skrifstofu félagsins, Lauga-
vegi 103, Reykjavík, fyrir 15. júní n.k.
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS.
Barnaregnkápur
nýkomnar. — Telpna- og drengjanáttföt, 1—12 ára.
Athugið. Ýmsar eldri vörur á niðursettu verði, svo
sem telpnakjólar, sólföt, telpna og drengja
jakkar og fleira.
Barnafataverziunin LÓAN, Laugavegi 20 B.
Gengið inn frá Klapparstíg á móti Hamborg.
Fyrir 17. júní
Telpnahattar, með töskum og stakar töskur í glæsi-
legu úrvali. Hvítir hanzkar, sportsokkar, drengja-
húfur, smábarnakjusur.
Barnafataverzlunin LÓAN, Laugavegi 20 B.
Gengið inn frá Klapparstíg á móti Hamborg.
NYGENstriginn er
STERKARI EN STÁL
ADEINS
GENERAL HJÖLBARDINN ER
MEÐ NYGEN STRIGA
INTERNATIONAL
hiólbarðinn hf.
LAUGAVEG178 SÍMI 35860
Ódýrir karlmannasandalar
frá Frakklandi
fjölbreytt og fallegt úrval.
Verð kr. 178.—344.
Skóbúð Ausfurbœjar
LAUGAVEGI 100.