Morgunblaðið - 08.06.1967, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1&67,
ísLmet í kúluvarpi 17.44
-19 ára ungLmet bætt 15.18
- IR vann stigakeppni
Sveinameistaramótsins
FIMMTAÞRAUT Reykjavíkur-
mótsins fór fram á Laugardals-
vellinum í gær og auk þess var
keppt í nokkrum greinum auka-
lega. Þá náðist enn sem fyrr
glæsilegur árangur í kúluvarpi.
Guðmundur Hermannsson bætti
íslandsmetið enn — nú um tvo
sentimetra varpaði 17.44 m. Er-
lendur Valdimarsson ÍR, bætti
19 ára gamalt unglingamet Vil-
hjálms Vilmundarsonar. Varp-
aði Erlendur 15.18 m, en gamla
metið vem Vilhjálmur átti, var
14.85 m. Er þetta glæsilegur
árangur.
í íimmtarþrautinni sigraði
ólafur Guðmundsson KR, mað
miklum yfirburðum, hlaut 3209
en þarna er met Björgvins Hólm
ÍR 3467 stig. Árangur Ólafs var:
6.80 í langstökki, 52,63 í spjót-
kasti, 23.5 í 200 m, 32.49 í
kringlukasti og 4:36.2 í 1500 m
hlaupi.
Annar í þrautinni varð Helgi
Hólm ÍR, með 2574 stig og 3.
Finnbjörn Finnbjörnsson ÍR
með 1685. Trausti Júlíusson FH
keppti sem gestur og hlaut 2567
stig.
í gær var lokið við tvær grein
ar sem ólokið var frá Sveina-
meistaramóti Reykjavíkur. Úr-
slit urðu þau að ÍR-ingar hlutu
flest stig á mótinu í heild eða
84, KR hlaut 77 og Ármann 44.
Kepptu sveinarnir í gær-
kvöldi í hástökki og stangar-
stökki. Úrslit urðu:
Byssuskot kveöur við
að loknum hálfleik
ALÞJÓÐA knattspyrnusambanT!
ið er nú að reyna að koma á
sáttum milli tveggja starfandi
knattspyrnusambanda í Banda-
ih^junum.
öir Stanley Rous hefur til-
kynnt að hann hafi bréflega
fengið samþykki formanns „At-
vinnumannadeildarinnar banda-
rísku“ til að mæta á sáttafundi
með stjórnarmöhnum alþjóða
sambandsins og formanni
„Bandaríska knattspyrnusam-
bandsins" eins og það heitir.
Fundurinn verður 10. júní í
New York.
Eitt af mörgum atriðum sem
ná þarf samkomulagi um er að
hætt verða að gefa tímamerki
í hálfleik með byssuskoti, eins
og nú er gert í Bandaríkjunum.
Sagði Sir Stanley að knatt-
spyrnumenn í Bandaríkjunum
yrðu að virða reglur alþjóða
knattspyrnu og auk þess gamla
siði hennar og venjur.
Form. bandaríska sambands-
ins, sem staddur var á þingi al-
þjóðasambandsins á dögunum
var að því spurður af blaða-
mönnum af hverju Bandaríkja-
Framhald á bls. 20
Hástökk: 1. Elías Sveinsson ÍR
1.60, Friðrik Þór Óskarsson ÍR,
1.55, 3. Stefán Jóhannsson Á,
1.50.
Stangarstökk: Elías Sveinsson
ÍR, 2.80, 2. Einar Þórhallsson
KR, 2,80.
í öðrum aukagreinum á mót-
inu urðu úrslit þessi:
800 m hlaup: 1. Halldór Guð-
björnsson KR, 1:57.4, 2. Þórarinn
Arnórsson ÍR, 1:59.2.
Kringlukast: Erlendur Valdi-
marsson ÍR, 44.26, 2. Jón Þ. Ól-
afsson ÍR, 43.56, 3. Þórarinn Arn
órsson ÍR, 32.25.
Stangarstökk: Hreiðar Júlíus-
son KR, 3.70, 2. Páll Eiríksson
KR, 3.60.
Hástökkvurum mistókst við
byrjunarhæðir vegna þess hve
aðhlaupsbrautin og uppstökks-
svæðið var laust í sér.
Erlondur bætti
ára gamalt met.
Úrslit nalgast í knatt-
spýrnukeppni drengja
KNATTSPYRNUMÓT drengja í
Reykjanesumdæmi er nú langt
MOLAR
BORUSSIA Dortmund vann
fjórða leikinn sem háður er
í sambandi við heimssýning-
una í Kanada. Sigurðu Þjóð-
verjarnir belgíska liðið
Standard Liege með 1—0.
SKOTAR unnu Ástralíumenn
í knattspyrnulandsleik í Ade-
laide með 2—1 í fyrri viku.
í hálfleik stóð 1—1.
Boðlsiundsisveit LangholtsBkóIa. Gísli Þorstainason með bikaaínn.
100 kepptu á Sundlaugarmðtinu
SUNDKEPPNI fór nýlega fram
milli unglingadeilda Laugarnes-
skóla, Laugalækjarskóla, Lang-
holtsskóla og Vogaskóla í Sund-
laugum Reykjavíkur. Keppend-
ur voru um 100. Þetta er í 4.
sinn, sem sundkeppni fer fram
milli skólanna og hefur orðið til
þess að auka mjög áhuga nem-
enda fyrir sundi. Mótsmet voru
sett í nær öllum einstaklings-
sundgreinum. Gísli Þorsteinsson
(Einarssonar íþróttafulltrúa)
Langholtsskóla, var mesti af-
reksmaður mótsins. Keppt var
um bikara í boðsundum sem
Toyota-umboðið hefur gefið
Langholtsskólinn sigraði í
keppni pilta en Laugalækjar-
skólinn í keppni stúlkna.
Áhorfendur voru fjölmargir.
Vonandi fer þetta mót fram í
nýju Sundlaugunum næsta ár.
komið og úrslitaliðin í 4. og 5.
aldursflokki ráðin.
í 4. flokki léku FH og KFK í
öðrum undaniúrslitum og unnu
hinir fyrrnecBnidu báða leik-
ina. Fyrri leikinn í Keflavík
með 7—1, en seinni leikinn, sem
átti að leika í Hafnairfirði gaf
KFK.
Hinn undanúrslitaleikurinn
var milli UMFK og Stjörnunnar
úr Garðahreppi. Fyrri leikinn,
sem fór fram á Kópavogsvelli
vann UMFK með yfirburðum —
eða 10—0. í seinni leiknum var
sama sagan og í áðurnefndum
undanúrslitaleik, þ.e. Stjarnan
mætti ekki til leiks.
Til úrslita í 4. flokki leika því
Ungmennafélag Keflavíkur og
Fimleikafélag Hafnarfjarðar og
fer sá leikur fram þriðjudags-
kvöldið 13. júní.
í 5. flokki léku Grótta og
Haukar í undanúrsHtum á Hafn
arfjarðarvelli og sigruðu Hauk-
ar 4—1 (samanlagt 9—2).
í hinum undanúrslitaleiknum
mættust KFK og FH á Kefla-
víkurvelli. FH sigraði með 1—0
(samanlagt 2—1).
Hafnarfjarðarfélögin Haukar
og FH leika þvi til úrslita í þess
um flokki. Úrslitaleikurinn fer
fram nk. mánudagskvöld kl. 6.
í 3. flokki er keppnin hörð
milli FH, Breiðablik og UMFK.
Leiknum milii Keflavíkurfélag-
anna KFK og UMFK lyktaði
með jafntefli, 0—0.
f kvöld leika í Keflavík,
UMFK gegn FH og KFK gegn
Haukum.
Staðan í 3. flokki er nú þessis
FH 3
Breiðablik 4
UMFK 3
Stjarnan 4
KFK 3
Haukar 3
3 0 0 ð—2 6
3 0 1 16—4 6
210 7—1 5
1 0 3 8—14 2
0 1 2 -2—4 1
0 0 3 1—14 0
Unglingakeppni
FRÍ er hafin
— stendur til 15. ágúst og fjórir beztu
í hverri grein mœta í úrslitakeppni
ÚTBREIÐSLUNEFND Frjáls-
íþróttasambands íslands vill
minna á, að unglingakeppni
FRÍ er hafin. Keppt verður í
þremur flokkum og eiga 4 beztu
í hverri grein rétt á að mæta til
úrslitakeppni, sem verður háð í
Reykjavík 26.—27. ágúst. Mun
FRÍ greiða hluta af ferðakostn-
aði utanbæjarfólks. Keppnin
stendur til 15. ágúst og verða
árangrar sem berast eftir þann
þann tíma ekki teknir til greina.
Til þess að keppni þessi verði
sem skemmtilegust eru sam-
bandsaðilar beðnir um að senda
árangur jafnóðum og þeir nást.
Keppt verður í eftirtöldum
flokkum:
Sveinar (f. 1951 og síðar):
100 metra hlaup, 400 metra
hlaup, 800 metra hlaup, 80 rnetra
grindahlaup, hástökk, langstökk,
stangarstökk kúluvairp, kringlu-
kast og spjótkast.
Drengir (f. 1949 og síðar):
100 metra hlaup, 200 metra
hlaup, 400 metra hlaupp, 800
metra hlaup, 150 metra hlaup,
110 metra grindahlaup, hástökk,
langstökk, stangastökk, þrístökk,
kúluvarp, kringlukast, spjótkast
og sleggjukast.
Stúlkur (f. 1949 og síðar):
100 metra hlaup 200 metra
hlaup, 80 metra grindahlaup, há-
stökk, langstökk, kúluvarp,
kringlukast og spjótkast.
Upplýsingar um árangra
skulu sendir til FRÍ, Box 1099 I
Reykjavík.
(Frá útbreiðslunefnd FRÍ)