Morgunblaðið - 13.06.1967, Síða 5

Morgunblaðið - 13.06.1967, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JUNI 1967, 5 Listamannalaunum að nokkru breytt MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá menntamálaráðuneytinu: „Ráðuneytið hefur í dag skip- að nefnd til'þess að athuga möguleika á að breyta núver- andi listamannalaunum að nokkru leyt'i í starfsstyrki og verja auk þess til þeirra því fé, sem Alþingi kynni að veita til viðbótar í því skyni. í nefnd— inni eiga sæti þeir Hannes Dav- íðsson, arkitekt, sem tilnefndur er af Bandalagi íslenzkra lista- manna, Jón Sigurðsson, hag- sýslustjóri, tilnefndur af fjár- málaráðuneytinu og Árni Gunne arsson fulltrúi i menntamála- ráðuneytinu, og er hann jafu- framt formaður nefndarinnar. Auk þess verkefnis, sem áður getur, skal nefndin athuga með hverjum hætti væri unnt að sam ræma starfsemi sjóða, sem nú starfa á þessu sviði, starfs- styrkjakerfinu, og loks skal nefndin semja frumdrög að regl- um um úthlutun slíkra starfs- styrkja". MEÐ JOHN DEERE ER DAGSVERKIÐ LEIKUR EINN HJÓLASKÓFLUR Helgi Sigvaldason (situr) og Guðmundur Guðmundsson við tölvuna í gær. (Ljósm. Ól. K.) Tölvan getspaka TÖLVA er nýtt heiti á verkfæri, sem til skamms tíma hefiir verið kallað rafeindaheili. Háskóli ís- lands á eina slíka, sem at- hygli landsmanna heind- ist að í fyrrinótt, er at- kvæðatalning hófst. Spar- aði hún áhugasömum hlust endum mikið erfiði og skemmti auk þess fjölda manna. Vera kann þó að ýmsum hafi fundizt hún vera með hrakspár — og IMýr yfirmaðtir V. O. A. JOHN Oharles Daly Jr. hefur verið skipaður yfirmaður Voice of America, útvarpsdéildar Upp- lýsingaþjónustu Bandaríkjanna. Tekur hann við atf J ohn Ohancellor, sem tekur aftur til istarfa hjá NBC National Broad- casting Coimpany. John Daly er kiunnur frétta- maður úr útvarpi og sjónvarpi Btjórnandi spurningaþáttarins What is My Line frá stofnun þáttarins. Þessi þáttur er með- «•1 þeirra þátta, sem lengst hafa Verið við líði í amerísku sjón- ivarpi og nýtur stöð'Ugra vin- isælda. Þátturinn hefur verið sýndur í Keflavíkursjónvarpinu érum saman. Daly var fr#ttamaður í Eng- landi, ftalíu, fyrir botni Mið- jarðarhafs og í Afriku í heim- istyrjöldinni síðari. Síðar varð Ihann fréttamaður i Evrópu og (Suður-Ameríku fyrir Columbia Broadcasting System. Frá 1953 til 1960 var hann yfirmaður frétta- . og Ujpplýs- ingadeildar American Broad- ca=*ing Company. -4» hugsað henni þegjandi þörf ina, en það er önnur saga. Við heimsóttum þessa „dótt ur Sólons íslanduis" eins og einn starfsmaður Raunvísinda stofnunar Háskólans komst að orði í gær. Þrir verkfræðing- ar hafa unnið við að mata hana á góðæti, sem bosninga- tölum og hún hefur samstund is géfið skýr svör. Þeir þre- menningar, sem unnu við tölvuna eru Kjartan Jóhanns son, sem setið hefur hjá Ríkis útvarpinu og túlkað svör tölvunnar, Guðmundur Guð- mundsson og Helgi Sigvalda- son. Tveir hinir síðastnefndu hafa dvalizt hjá tölvunni frá því seint á sunnudaigskvöld, er tölur fóru að berast. Kjart an, sem staðsettur er hjá Rík- isútvarpinu hringir síðan í þá félaga og tilkynnir þeim síð- ustu tölur. Þeir gata upplýs- ingarnar á gataspjald og láta í tölvuna. Eftir 57 sekúndur gefur hún síðan upp spá um úrslit í kjördæminu og innan þriggja minútna spá fyrir allt landið. Þeir félagar Guðmundur og Helgi tjáðu okkur að allt frá því á laugardag, 3. júní, hafi þeir unnið við það að mata tölvuna með upplýsingum um fyrra kjörfylgi flokkanna og með ýmsum öðrum útreikn- ingum. Við þetta hafa þeir þremenningar unnið öll kvöld og helgina 4. júní. Mestur tíminn fer í það að fyl'tja upplýisingarnar á milli. Þá heíur það háð spádómusn- um, að talning hófst í aðeins tveimur kjördæmum, auk þess sem kjörstjórnir hafa gert sig sekar um að telja í takmörkuðum héruðum, en ekki stokka upp atkvæðin áð ur en talning hefst svo sem ráð er fyrir gert í kosninga- lögunum. Þeir félagar sögðu að lok- um að þeir litu einungis á þetta starf sitt sef skemmti- atriði, hlustendum til gam- ans. Alla útreikninga hefði tölvan framkvæmt að undan- tekinni áætlun þeirra félaga á fylgi Óháða lýðræðisflokks- ins. Þar var um hreina ágizk- un þeirra félaga að rœða. Þeir gizkuðu á 4,1% í Reýkja- neskjördæmi, en flokkurinn fékk 4,2%. Þeir félagar voru ánægðir með árangurinn og sögðu að einungis ein vitleysa hefði komið fram — er þeir reikn- uðu 1-listanum uppbótarþing sæti í spá fyrir allt landið. Þetta hefði komið til vegna þess að þeir hefðu ekki vitað um lagabókstaf í kosninga- lögunum, er segði að listi ut an flokika gæti ekki hlotið uppbótanþingsæti. Þetta var leiðrétt nokkrum mínútum síðar um nóttina. John Deere 300 (43 ha.) Verd kr. 253.500 JOHN DEERE 300 HJÖLASKÖFLAN ER NÝ FRAMLEIÐSLA HJÁ JOHN DEERE. HÚN ER MJÖG HENTUG FYRIR FRYSTIHÚS, SÍLDARVERKSMIÐJUR OG ÖNNUR ÞAU FYRIRTÆKI, SEM ÞURFA LIPRAR OG AFKASTAMIKLAR HJÓLASKÓFLUR. — KYNNIÐ YÐUR HINAR NÝJU JOHN DEERE hjólaskóflur: — LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA Sími 21240 HEILDVFRZLUNIN HEKLA hf Laugavegi /70-172 ALIIAF FJ0LCAR V0LKSWAGEN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.