Morgunblaðið - 13.06.1967, Síða 11

Morgunblaðið - 13.06.1967, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1967. 11 Ferðahandbókin „Landið þitt“ og vegakort í samræmda útgáfu §ex nýjar leiðarlýsingar og sérstök Þingvallalýsing FERÐAHANDBÓKIN er komin á markað í 6. skipti. Henni fylg- ir á flestum útsölustöðum nýtt vegakort frá Shell, sem sérstak- lega hefur verið breytt og endur- bætt vegna Ferðahandbókarinn- ar og bókarinnar „Landið þitt“ eftir Þorstein Jósepsson, sem kom samtímis á markað í sérstakri ferðaútgáfu. .I.andið þitt“ er nú prentað á þunnan pappír og bundið inn ísérstakt plastefni sem þolir misjafna meðferð og hefir jafnframt þann eiginleika að hægt er að þvo bletti af káp- unni. Þessi ferðaútgáfa af ,Land- inu þínu“ er tveim hundruðum króna ódýrari en venjuleg út- gáfa og er sérstaklega gerð til þess að hafa í bílum eða vasa, enda Jétt og lipur í meöförum. ★ Samræmdar bækur og kort Útgáfa beggja bókanna og kortsins er samstillt átak gert í Ijósi þeirrar reynslu sem útgef- endurnir hafa öðlast á undan- förnuim árum og vegna fjöl- margra óska þar að lútandi. Meg inhugsunin að baki útgáfunum er sú að bækurnar og kortið byggi hvert annað upp. Leiðar- lýsingar Gísla Guðmundssonar í Ferðahandbókinni vísa nú fólki veginn um allt landið og segja í stórum og skýrum dráttum frá öllu því helzta er fyrir augun ber, jafnframt eru £ Ferðahand- bókinni hverskonar aðrar upplýs ingar er snerta þjónustu við ferðafólk í lofti, láði og legi. Vildi ferðafólk fá enn ítarlegri upplýsingar um sögu og sérkenni einhvers staðar þá ætti „Landið þitt“ að leysa þann vanda í flest- um tilfellum, því bókin er upp- sláttarrit um land og þjóð. Alls eru í bókinni um 2000 upp- sláttarorð. Á hinu nýja vegakorti Shell munu svo finnast allt að Allir eru þeir vandlátir Allir velja þeir KORÓNAFÖT KÖfÍÖNAl KNAHKÓ'fÍÖNaIkW4ÖNA 90% af uppsláttarorðunum í „Landið þitt“ og á því eru einnig flest þau nöfn er snerta efni Ferðahandbókarinnar. Margir þeirra staða sem áður voru á kort inu voru numdir burt en aðrir settir inn er áttu þar meira er- indi. Endurskoðun kortsins var framkvæmd af Gísla Guðmunds- syni,. leiðsögumanni, sem á undan förnum árum hefur ritað leiðar- lýsingar I Ferðahandbókina og nú bætir þar stórlega við. ■ár Nýjar leiðarlýsingar Nýmæli og breytingar eru fjöl- margar í hinni nýju Ferðahand- bók, þ. á. m. sex nýjar leiðarlýs- ingar í byggð, þ.e.a.s. hringferð um Reykjanesskaga, ökuferð um nágrenni Reykjavíkur, leiðin frá Keykjavík að Lómagnúp, leiðir unt Eyjafjörð og leiðir um Þing- eyjarsýslur. Þar með ná leiðar- lýsingarnar um alla höfuðvegi landsins. Samhliða þessu voru endurskoðaðir eldri kaflar vegna breytinga á vegakerfi landsins og fleira. Fremst í Ferðahandbókinni er kafli eftir Björn Þorsteinsson, sagnfræðing, sem hann nefnir Þingvöllur, alþingiastaður ís- lendinga að fornu og þjóðgarður. Björn leiðir ferðafólk um hinn söguhelga stað og er grein hans prýdd teikningum af fjalla- hringnum með nafni hvers fjalls. Hinum mikla fjölda manna sem árlega leggja leið sína til Þing- valla mun án efa verða mikill fengur að grein Björns og skýr- ingateikningum. Sigurjón Rist, vatnamælinga- maður bætir að þessu sinni við hálendisleiðir sínar Arnarvatns- heiði og Stórasandi. Þá hefur hann og endurskoðað og leiðrétt þær leiðir sem áður voru komn- ar. Hinum nýju leiðum fylgja uppdrættir og alls eru nú 5 upp- réttir í tveimur litum í bókinni og margar vegalendatöflur varð- andi miðhálendið. k Kauptún og kaupstaðir Hinn viðamikli kafli bókar- innar Kauptún og kaupstaðir hefir enn stækkað. Þar hafa ýmsir staðir bætzt við, sem ekki voru þar áður. Efni kaflans hefir eins og annað efni bókar- innar verið endurskoðað og breytt í samræmi við breytingar á hverjum einstökum stað. Ár- lega senda útgefendurnir spurn- ingaiista til forráðamanna allra bæjarfélaganna og fá til baka svör við þeim. Hafi einhver breyt ing átt sér stað er samsvarandi breyting gerð í bókinni. Mun láta nærri að um 70% af öllu slíku efni sé nýtt. Þá koma að sjálfsögðu nýjar áætlanir í stað þeirra sem giltu í fyrra, nýjar reglugerðar í stað eldri, má í því sambandi t. d. nefna nýju fugla- friðunarlögin og margt fleira. Alls nemur stækkun Ferða- handbókarinnar að þessu sinni 48 blaðsiðum og er hún orðin 352 blaðsíður að stærð, eða 22 arkir. Þess má að lokum geta að vega kortið fylgir Ferðahandbókinni á framleiðsluverði. (Fréttatilkynning). Til sölii Ford, árg. ’53 og Ford árg. ’54. Upplýsingar í síma 40957 og 8107 Grindavík. ZZZDW=^ mmmp I. munstykkið fyrir og eftir fjórar filter sígarettur. Mikilvægastl árangur sem náSst hefur f reykingaöryggisvörnum. Fjarlægir meiri hita-tjöru úr reyknum en nokkur filter-sía sem fundin hefur verið upp og þaS er hreinsað auðveldlega með bréfþurku. Það er yðar að ákvéða hvort þér hættið að reykja, en það er álit okkar, að ef þér haldið áfram ættuð þér að nota TAR GARD. Ánægja reyksins er hin sama. Engar síur eða annað sem þarf að skipta um. Fæst h)á tóbaksverzlunum og víðari London, Hjá Tomma, H|artarbúO. TAR-GARD UMBOÐIÐ-DALLAND SF., PÓSTHÓLF 1265, REYKJAVÍK. ANGLI — SKYRTUR COTTON - X Respi Super Nylon Fáanlegar í 14 stærðum frá nr. 34 til 47. Margar gerðir og ermalengdir. Hvítar og mislitar. ANCLI - ALLTAF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.