Morgunblaðið - 13.06.1967, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1967.
jMw^unM'áfaiib
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Auglýsingar:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
í lausasölu kr.
Áskriftargjald kr. 105.00
Hf. Árvakur, Reykjavík.
.Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
7.00 eintakið.
á. mánuði innanlands.
ÞJÖÐIN VOTTAR
GÖÐUM MÁLSTAÐ
TRAUST SITT
P*'ftár harðar og tvísýnar
kosningar urðu úrslit
þeirra kunn nokferu eftir mið
nætti í nótt. Þjóðin vcrttaði nú
verandi rikisstjórn og stjórn-
arflokkum traust í þriðju
kosninguim í röð og er það al-
gert einsdæmi í stjórnmála-
sögu hérlendis. Ríflega helm-
ingur kjósenda eða 53,2%
veittu stjórnarflokkunum
situðning og stjórnarflokkarn-
ir hafa áfram starfhæfan
meiriihluta á Alþingi, hvern-
ig sem reiknað er. Sjálfstæð-
isflokfeurinn beið töluverðan
ósigur í Reykjavik og einnig
að nOfekru leyti í Reykjanes-
kjördæmi. Úrslitin í Reykja-
vik urðu Sj álfstæðismönnum
að sjálfsögðu mikil vonbrigði
enda fylgistap flokksins í
höfuðborginni verulogt.
Þetta er sú staðreynd kosn-
inganna, sem SjáLfstæðis-
menn munu veita sérstafea at
hygli. Hins vegar stendur
Sjálfstæðisflokkurinn styrk-
um fótum í öðrum kjördæm-
um landsins, í sumum heifur
hann haldið sínu, í öðrum
gert heldur betur.
í aiþingiskosningunum 1963
var Alþýðuflókkurinn sá
stjórnarflokkanna, sem varð
fyrir nokkru fylgistapi, en nú
hefur Sj ál'fstæðisf lokkur inn
orðið fyrir því. AlþýðuflokK-
urinn styrkti mjög stöðu sína
í nær öllum kjördæmum,
vann einn fejördæmakjörinn
þingmann og stóð nærri því
að vinna fleiri. Sú staðreynd,
að annar stjórnarflokkurinn
vinnur fylgi en hinn tapar
nokkru eins og varð bæði
1963 og nú gefur til kynna að
kjósendur hafi viljað styðja
stjórnina tii áframhaldandi
setu, en um leið veita henni
nokkra aðvörun og hefur það
bitnað á þeim, sem kjósendur
telja bera meiri ábyrgð.
Framsöknarmenn höfðu
fyrir kosningar talið sjálfa
sig í miki'l'li sókn. Kosning-
arnar leiddu annað í ljós.
Framsóknarmenn voru í
vörn í nær öllum kjördæm-
um landsins að undanskild-
um Reykjaneskjördæmi og
Vestfjarðarkjördæmi, þar
sem fylgisaukning þeirra
varð þó minni en þeir höfðu
vonazt til. Þeir töpuðu ein-
um þingmanni og munaði
mjóu, að annað þingsæti tap
aðist einnig og það þriðja
raunar í hættu. í Reykjavfk
lælbkaði atfevæðamagn Fram
sóknarflofefesins hluttfaLlslega
miðað vdð borgarstjórnar-
kosningamar 1966 og í heild
varð atkvæðamagn flokksins
ívið lægra hluitfallslega en
1963. Stærsti stjórnarand-
stöðuflofekurinn hlaut því
enga traustyfirlýsingu kjós-
enda í þessum kosningum.
Alþýðubandalagið gekk
sundrað til þessara kosninga
enda varð útkoma þess mjög
misjöfn í hinum ýmsu kjör-
dæmum og þingsætatala Al-
þbl. byggist á úrskurði Al-
þingis um aðstöðu I-listans.
Hannibal Valdimarsson náði
kjöri í Reykjavík og líkieg
samsetning þingmannaldðis
Alþbl. virðist vera á þann
veg að tii tíðinda kunni að
draga innan þess, þegar Al-
þingi kemur saman.
Núverandi stjórnarflokfear
lýstu þvi efcki yfir fyrir kosn
ingar, að þeir mundu starfa
saman að kosningum lokn-
um, etf þeir héldu meirihluta
sínum. Hins vegar var kosn-
ingabaráttan rekin á þann
veg af báðum flokkunum, að
kjósendur máittu fyllilega
skilja, að svo yrði og benda
úrslit kosninganna eindregið
tii þess, að vilji kjósenda sé,
að stjórnarflokkarnir haldi
áfram samstarfi sínu eins og
Bjarni Benedifetsson sagði í
viðtali við Mbl. í nótt.
Það hetfur því áunnizt, sem
fyrst og fremst var stefnt að,
að núverandi stjórnartflokkar
héldu meirihluta sínum á AI-
þingi. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur orðið fyrir nokkrum
áföllum í þessum kosningum.
Slíkt getur jafnan komið fyr
ir og hlýtur raunar að gerast
í kosningum við og við.
Miestu máli skiptir, að Sjálf-
stæðisflöfekurinn kanni til
grunna orsakir fylgistapsins
í Reykjavik og nágrenni og
dragi réttar ályktanir af
niðurstöðum þess. En frá
sjónarmiði heildarinnar séð,
hefur góður málstaður sigr-
að í þessum koisningum.
n
UTAN ÚR HEIMI
STÚLKUR
Osló, Noregi, (AP)
VORH) er komið í þessum
norðlæga hluta Evrópu, og
það hefur í för með sér, að
ný alda ungra stúlkna hlaup-
ast að heiman.
Foreldrarnir eru örvinglað-
ir og lögreglan er oft hjálp-
arvana. Hvað á að gera við
stúlku á táningsaldrinum,
sem hefur ævin.týraþrá í blóð
inu og vill aðeins „komast i
burtu?“
Fram til þessa hefur lög-
reglunni norsku verið til-
kynnt um 250 stúlkur, sem
eru týndar, flestar eru á
aldrinum 14 til 16 ára. Þrátt
fyrir að flestar flóttastúlkn-
anna snúi heim eftir stuttan
tíma, geta nokkrar þeirra ver-
ið í burtu vikum og mánuðum
saman.
Sænska og danska lögregl-
an nær mörgum hinna ungu
stúlkna og sendir þær heim.
Aðrar finnast í „undirheim-
um“ Osló-borgar.
Ein ung stúlka, 14 ára göm-
ul, hljópst að heiman 20 sinn
um á einu ári. Foreldrar ann
arrar fundu hana á hinum
fjölförnu neðanjarðarbrautar
pöllum í Stokkhólmi.
Á einu ári kunna lögreglu-
yfirvöldin að fá á milli 800
og 900 tilkynningar um týnd
ar stúlkur.
„Við getum ekki hafið víð-
tæka glæparannsókn á öll-
um þessum málum, vegna
þess að yfirleitt er flóttinn af
fúsum vilja. Þegar stúlka
hleypst að heiman á þennan
hátt, virðist uppeldiniu oft
vera ábótavant,” segir iög-
reglan.
Hvað um foreldrana? „Við
höfum reynt allt til að fá 15
ára dóttur okkar til að vera
heima. En nú hefur nú flú-
ið aftur,“ sagði þreyttur fað-
ir.
Hvað um stúlburnar? Það
virðist vera gamla sagan. Þær
finna menn — unga eða
gamla — sem hjóða þeim mat,
vín og ást. Stúlkurnar eru
ungar og reynslulausar. Þær
gera sér ekki Ijóst, að fyrsti
flótti þeirra að heimian kann
að vera fyrsta skrefið á leið
þeirra til glötunnar.
- ISRAELSMENN
Framhald af bls. 3.
fBoumediemne komimn til Moskvu
Forsætisráðherra Alsírs, Buari
©oumedienne, kom til Moskvu í
idiag í því skyaii að ræða við
isovzézka stjórnmálaleiðtoga um
aukna aðstoð við Aratoaríkin.
Samitímis var haft eftir áreið-
anlegum heimildum í Moskvu, að
ibráðlega muni Sovétríikin senda
sendinefnd til Karíó og að á
mæstu vikum sé von. á mörgium
leiðtogum Arabaríkjanna til
Moskivu.
Áhugi himna sovézku leiðtoga
á Boumedienne hefur vaxið
■greinilega síðustu daga, sökum
•þess að atiburðirnir fyrir botni
Miðjarðarhafsins hafa valdið
óvissu varðandi stöðu Nassers
i— ekíki aðeins á meðal leiðtoga
Arabaríkjanna heldur einnig í
hans eigin lattidi.
Er Boumedienne kominn ti‘l
þess að sýna, að hann sé reiðu-
búinn til þess að taka að sér
hlutverk Nassers? er spurning,
sem nú er ofarlega á baugi í
Moskivu. Því er haldið fram, að
Boumedienne hafi fram að færa
Víðtækar óskir um, að Sovétrílk-
in taki á sig umfangsmiklar
skuldbindingar — stjórnmála-
lega, fjárhagslega og hernaðar-
lega — gagnvart Arabaríkjunum,
sem hafa orðið fyrir miklum álits
hnebki vegna sigurs ísraels-
manna.
Talið er, að Sovétríkin sóu
reiðuibúin til þess að veita Ar-
abarikjuinum mikla aðstoð og að
rétta við hernaiðarmiátt þeirra.
Þannig sagði Pravda, málgagn
rússneska kommúnistafl olkksins I
dag, að toommúnistaríkin muni
'áfram veita Arabaríkjunum all-
an þann etfnalhagslega stuðning,
sem þau þarfnist til þess að geta
hrundið árás og til þess að
tryggja landiamæri sín.
PfiÉMÍÍ
tftMBHl
fmmm
9mm§í
SYR-
LAND
ISRACL
JORDANIA
EGYPTALAND
SAUDI
ARABÍA
te$ÉÉ*SHARM flv
SHEIK $3»
Hin dökklituðu svæði á kortinu sýna þau landsvæði, sem fsraelsmenn hafa hertekið. Það er all-
ur Síaniskagi, sá hluti Jórdaníu sem liggur vestan Jórdanárinnar og litilsháttar landsvæði inn-
an sýrlenzku landamæranna.