Morgunblaðið - 13.06.1967, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ 1907.
Fromsýni en
ekki sknmmsýni
í LEIÐARA Þjóðviljans 23. maí,
sem ber fyrirsögnina Skam-
sýni, er greint frá því að ný-
lega hafi verið sjósett frá Stál-
vík nýtt skip og þá hafi forstjóri
fyrirtækisins látið svo ummælt
að nú væri tvö skip á stokkum
en ekki lægju fyrir pantanir um
frekari skipasmíði og það mátti
lesa það á milli lína að það væri
ríkisstjórninni að kenna, þar sem
40 skip væru nú í smíðum er-
len-dis fyrir íslendinga.
Heldur leiðarahöfundur að
einhverjum þætti ekki biðin
löng eftir sínu skipi. Maður líttu
þér nær. Á tímum vinstri stjórn
arinnar var samið við Austur-
Þjóðverja um smíði á 9 eða 10
lítilla togskipa. Ég spyr: Var
ekki sköpuð aðstaða til að smíða
þessi skip hér heima? Varla hef-
ur viljann vantað, varla getur
það kallasta skammsýni? Leyfist
mér að kalla þetta fyrirhyggja-
leysi. Og margt mætti á minn-
ast svo sem einn Dagsbrúnar-
fund, sem haldinn var svona
rétt þegar vinstri stjórnin var
búin að koma sér fyrir í sætum
sínum.
Að sjálfsögðu fer ég ekki að
rekja í einstökum atriðum það
sem þar gerðist enda ekki vett-
vangur til þess hér, enda bezt
og eðlilegast að geymt sé í fund-
argerðarbók og til hennar vitna
ég, að ég fer með satt mál og
skal nú greint frá því er ég
ætla. Þegar liðið var á fundinn
kvaddi Guðmundur J. Guð-
mundsson sér hljóðs og ræddi
hann um atvinnumál og at-
vinnuhorfur. Taldi hann helzt
aukna togaraútgerð koma tii
greina til atvinnuöryggis og
nefndi í því sambandi, að keypt-
ir yrðu inn 15 nýir togarar, já,
sem iágmark. Mátti helzt á hon-
um heyra, að fljótlega yrði haf-
izt handa um þessar fram-
kvæmdir og gerðu fundarmenn
góðan róm að ræðu hans, því
flestir töldu að þarna væri af
raunsæi mælt og ekki væri ann-
að en að bíða skipanna.
En hvað skeður? 1958 var
skollin á óðaverðbólga og þeytti
ríkisstjóminni fram af hengi-
fluginu og var hún engum harm-
dauði — og enginn togari. Svo
var nú um þær draumsýnir.
vinstrimanna.
Dylgjur ykkar í garð hins
landskunna aflamanns Þorsteins
Gíslasonar ættuð þið að spara
ykkur, því það er vút, að hann
mundi aldrei brjóta lög á sín-
um hásetum og ég tíúi illa, að
þeir liði það, að þeirra ástsæli
skipstjóri sé ausinn aur, þó
hann hafi ekki haft nema 15
menn, þegar hann fór til að
reyna þesisi nýtízku tæki, sem
skip hans er búið, hafandi það
í huga að nót mundi hann meira
nota en troll. Nei. Þorsteinn hef-
ur meira gagn gjört þjóðarbú-
inu en svo að hann eigi þessar
dylgjur skilið.
Ólafur Vigfússon.
Simi •>2822 • 19775.
Sumarblóm
- HVALFJORÐUR
Framh. af bls. 15.
samstillt átak, hér þarf samtaka
menn, sem leita 'hins sanna og
rétta og láta ekki önnur sjónar-
mið ráða afstöðu sinni.
Þetta eru bara almennar hug-
leiðingar um gildi tilrauna og
nauðsynina á að niðurstöður
þeirra komi sem fyrst að prakt-
ískum notum.
Annars er svo erfitt fyrir leik-
menn í þessum fræðum að henda
reiður á því, hvað í þessum mál-
um gerist innan veggja rann*
sóknarstofnanna.
Meðan Verkfæranefnd starf-
aði, var bækistöð hennar á
Hvanneyri. Var Ólafur Guð-
mundsson kennari starfsmaður
hennar. Þegar lög voru sett um
rannsóknir í þágu atvinnuveg-
anna árið 1965, varð það eitt af
verkefnum rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins að annast
„vinnu- og verkfærarannsóknir
og tilraunir með búvélar". Hef-
ur Ólafur annazt þær eins og áð-
ur fyrir Verkfæranefnd. Er nú
rannsóknarstofnunin að byggja
íbúðarhús fyrir þennan starfs-
mann sinn á hinu nýskipulagða
svæði austan við heimreiðina að
nýja skólahúsinu.
Yfirleitt eru öll ný landbún-
aðartæki prófuð áður en þau
fara á sölumarkaðinn. Það hefur
vitanlega mikla þýðingu fyrir
innflytjandann að geta vitnað í
umsögn rannsóknarstofnunar-
innar og jákvæð niðurstaða til-
raunanna ætti að vera trygging
kaupandans fyrir góðri vöru. S.l.
sumar voru prófuð u. þ. b. 20
tæki, bæði á Hvanneyrarbúinu
sjálfu og næstu bæjum.
Eitt nýtt tæki var í verkfæra-
húsinu hjá Ólafi, sem vakti at-
hygli okkar. Það er vél til að
sá grasfræi í óbrotið land, sér-
staklega ætluð til að nota á
kalsvæðunum ef hún reynist vel.
Vélin gerir með hnífum 15 risp-
ur í. jarðveginn með 12 cm
millibili og sáir jafnframt í rák-
imar. Síðan þarf aðeins að valta
landið. Ef vél þessi reynist vel,
getur hún sparað endurvinnslu
á kalsvæðunum.
Á Hvanneyri er hin ákjósan-
legasta aðstaða til.að prófa.land-
búnaðartæki enda væri óhugs-
andi að gera það annarsstaðar
en þar sem etr stór, alhliða bú-
skapur og nóg laridrými til jarð-
Vinnslu og heyöflunar, en á
Hvanneyri er um 70 ha tún og
100 ha áveituengi, heyskapur
um 5000 hestar. Bústofninn er
60 mjólkandi kýr og 20—30 geld-
neyti, sauðfé um 400. Hross eru
fá, en nemendur eru jafnan með
einhverja hesta, sem þeir hafa
hjá sér í tamningu.
— • —
Árið 1947, sama árið og Guð-
mundur varð skólastjóri á
Hvanneyri, gaf landbúnaðarráð-
herra, sem þá var Bjarni As-
geirsson, út reglugerð um stofn-
un framhaldsdeildar við skól-
ann. Hefur hún starfað alla tíð
síðan og hefur nú útskrifað 63
kandidata. Fyrst var framhalds-
námið í tvö ár en var lengt upp
í þrjú með bændaskólalögunum
frá 1963. Inntökuskilyrði í fram-
haldsdeildina eru þau, að um-
sækjandi hafi lokið búfræðiprófi
með 1. einkunn og, sé hann ekki
stúdent, verður hann að hafa
miðskólapróf og afla sér frek-
ari menntunar í tungumálum og
stærðfræði. Þá kennslu fá fram-
haldsdeildarmenn nú í Kennara-
skóla íslands.
f framhaldsdeild eru að mestu
sömu námsgreinar og í bænda-
skólanum en farið ítarlegar í
allt námsefnið og það tekið fast-
ari tökum.
A sumrin föra nemendur í
ferðalög utanlands og innan,
stunda nám í grasaskoðun, land-
mælingum, tilraunum o. fl., sem
við kemur daglegum störfum
ráðunauta. Auk þess vinna nem-
endur að sjálfstæðum rannsókn-
um og skrifa um þær ritgerðir.
Margir af þeim, sem lokið hafa
prófi í framhaldsdeildinni hafa
siglt til frekara nárns til und-
irbúnings undir starf sitt. Nú
munu 4 kandidatar frá fram-
haldsdeild vera við siíkt náim.
Um 40 af þeim 63, sem útskrif-
ast hafa úr framhaldsdeildinni á
Hvanneyri eru nú að störfum í
þágu félags- og viðskiptamála
landbúnaðarins, flestir sem ráðu-
nautar búnaðarsambandanna.
Má af því sjá, hve brýn nauð-
sjm það var að stofna þessa
deild, og að hve góðu gagni hún
hefur komið í leiðbeiningarstarfi
fyrir bændastéttina víðsvegar
um landið.
Fyrir forgöngu Sjálfstæðis-
flokksins hafa tveir höfuðat-
vinnuvegir landsmanna — iðn-
aður og sjávaTÚtvegur — fengið
rúmgóðar og glæsilegar bygging-
ar í höfuðstaðnum fyrir fræðslu-
starfsemi sína. Það eru Iðnskól-
inn á Skólavörðuhæð og Sjó-
mannaskólinn, sem setja svip
sinn á austurhluta Reykjavíkur
Og það er líka áreiðanlega
engin tilviljun, að það er land-
búnaðarráðherra Sjálfstæðis-
flokksins, sem hefur beitt sér
fyrir því, að nú er hafin bygg-
ing nýs búnaðarskóla á Hvann-
eyri, sem á að veita alla ytri að-
stöðu til þess að gena búnaðar-
fræðsluna í landinu svo full-
komna sem kostur er. Senn eru
liðnir 8 áratugir frá stofnun
HvanneyraTskólans. Á þessum
tíma hefur hann gegnt miklu og
vaxandi hlutverki fyrir bænda-
stétt landsins. Og til þess standa
líka allar vonir, að þeir sem
þangað sækja menntun sína í
framtíðinni — þeir sanni það
með starfi sínu í þágu landbún-
aðarins að mennt er máttur.
G. Br.
Bjorgoð úr
höfninni
DRUKKINN maður féll í höfn-
ina rétt fyrir neðan Hafnarbúðir,
laust fyrir hádegi sl. laugard. Sat
hann á smá steingerði þar og
sneri baki að sjónum. Menn sem
voru þar að vinnn sáu hann falla
og kölluðu á lögregluna, sem
kom fljótt á vettvang. Tókst lög-
regluþjónunum að ná bonum
upp og fluttu hann strax á Slysa
varðstofuna eftir að hafa dælt
upp úr honum mesta sjóinn.
Maðurinn var meðvitundarlaus
þegar þangað k —’ r- M
reglulega.
- KEA
Framlh. af bls. 19.
„Aðalfundur Kaupfélags Ey-
firðinga, Akureyri, 1967 lýsir
yfir megnri óánægju með fram-
'leiðslu Áburðörverksmiðjunnar
hf í Gufunesi og með áburðar-
varzlunina í landinu yfirleitt.
Virðíst svo, sem ástand kjarna-
(áburðarins sé jafnvel verra nú
í vor en nokkru sinni fyrr, og
úrbætur í átt tiil meira val-
frelsis um áburðarkaup ekki
■sýnilegar. Fyrir þvi skorar fund.
urinn á stjórn Áburðarverk-
smiðjunnar að hefja sem fyrst
endurbyggingu verksmiðjunnar
með endurbætur og au'kna
fjölbreytni framleiðslunnar fyr-
ir augium. Jafnframt telur fund-
urinn, að nú þegar beri verk-
smiðjunni að gera endurbætur
á pökikuin Kjarnans, til dæmis
með notkun plastumbúða“.
í stjórn félagsins voru endur-
'kjörnir til þriggja ára, Jón Jóns-
■son kennari, Dalvík og Sigurður
O. Björnsson, forstjóri, Akur-
eyri. Endurskoðandi til tveggja
ára var endurkjörinn Sigurður
óli Brynjólfsson, kennari, Akur-
eyri, og varaendiurskoðandi ti'l
tveggja ára var endurkjörinn
Steingrímur Bernharðss., banka-
útibúsistjóri, Akureyri. í stjórn
Menningarsjóðs til þriggja ára
var kjörinn Jóhannes Óli
Sæmundsson, fyrrv. skólastóri,
Akureyri, og varmenn í stjórn
Menningarsjóðs til tveggja ára
Hjörtur E. Þórarinsson, bóndi,
Tjörn, og Ár'ni Kristjánsson,
menntaskólakennari, AkureyrL
Þá voru einnig kjörnir 15 full-
trúar á aðalfund Sambands ísL
samvinnufélaga.
Um kvöldið báða fundardag-
ana sýndi Leikfélag Akureyrar
fulltrúum og gestum þeirra
sjónleikinn „Draumur á Jóns-
messunótt" eftir Shakespeare.
(Frá Kaupfélagi Eyfirðinga).
Sýndartillögur borgar-
stjórnarminnihlutans
FYRIR borgarstjórnarfundi sl.
fimmtudag lá tillaga frá Jóni
Snorra Þorleifssyni (K) þess
efnis, að borgin, byggði 200 leigu-
íbúðir.
Birglr ísl. Gunnarsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, tók
til máls um tdllögu Jóns Snorra
og ræddi í því siambandi um
tillöguflutning borgarstjórnaT-
minnihliutans. Sagði hann tillög-
ur þeirra skiptast í tvo flokka,
annarsvegar tiRögur, sem þeir
ætluðust til að teknar yrðu al-
varlega og athugun liægi að
baiki, hinsvegar yfirborðstillög-
ur, sem eingöngu eru til þess
ætlaðar að þeim séu gerð skil í
viðkomandi málgögnum og flutn
ingsmenn ætlast ekki tiL að
samþykktar verði.
Að þessu sinni flytur Jón Sn.
tiilögu umt að borgin byggi 200
leiguíbúðir og er tfcninn, sem
tillaga þessi er fliítt á vel val-
inn, því aðeins eru 10 da'giar til
kosninga. Sagði Birgir vel
ski'lja þörf flutningsmanns á því
að vera í sviðsljósinu vegna á-
takanna í Alþýðubandalaginu
þar sem hann væri ofanlega á
öðrum lisba flokksins í Reykja-
vík og verið borinn þeirn sökum
af öðrum armi Alþýðubandalags
ins, að hann hefði verið á móti
hugmyndinni um byggingaáætl-
anir verkalýðsfélaganna. þegar
þær voru fyrst rædd" innan
verkalýðssamtakanna. En það
þyrfti þó a@ vera ljóst, að hús-
næðismálin væru viðkvæm mál,
og illa væri gert að vekja vonir
þeirra, sem þar ættu um sárt að
binda, með sýndartiillögum. Borg
arfulltrúar yrðu að koma til
dyranna eins og þeir væru
klæddir en ættu ekiki að ástunda
yfirboð.
Birgir sýndi mieð sterkum rök-
um fram á, að hér væri um
sýndartillögur að ræða, hún fæli
í sér mikii útgjöld fyrir borgina,
en benti ekki á neinar leiðir til
að leysa fjárlhagslega hiiið mális-
ins. Benti Birgir á samþykkt
bongarstjórnar hinn 17. marz
1966, þegar samþykkt var heild-
aráætlun um íbúðabyggingar
borgarinnar næstu 4—5 árin.
Samikvæmt henni skyldi borgin
byggja 250 íbúðir fyrir efnalitið
fólk.
Jón Snorri Þorlerfríson tók til
máls og taldi einkennilegt, ef
opinberar lánastofnanir gætu
ekki staðið straum af kostnaði
við byggingu leiguhúsniæðis.
Birgir tsJ. tók aftur til máls
og kvað ummæli Jóns Snorra
sýna glögglega, að hann hefði
ekki látið svo lítið sem að leiða
hugann hið minnsta að fjárhags-
hlið þessara framkvæmda, sem
hann nú gerði tiltlögu um. Þessi
tillöguflutningur væri honum
því til látils sóma.
Tillögiu Jóns Snorra nr að
lokum vísað frá.