Morgunblaðið - 22.06.1967, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1967.
3
Svo sem getiff var í Mbl. í gær var væntanlegrt til Hafnarfjarff ar stærsta skip, sem komið
hefur þangað. Skipið kom í fyrrinótt meff tilbúin hús til Kef lavíkurflugvallar.
(Ljósim. Mbl.: Sv. Þ.)
Samningar yfirmanna
á kaupskipaflotanum
— Greinargerð frá F.F.S.Í.
Á síðastliðnu hausti, eða 1.
október sl. runnu samningar
kaupskipayfirmanna út. Höfðu
yfirmenn þá gert kröfur á hend-
ur stéttarfélögum sínum um
betri launakjör. Var þungi mikill
í þessum óskum þeirra, er leiddi
til þess að stjórnir stéttarfé-
laga yfirmanna álitu rétt að láta
fara fram fræðilega rannsókn á
launakjörum. Fór sú rannsókn
fram á vegum Efnahagsmála-
stofnunarinnar og lá fyrir skýrsla
2.12. 1966.
í skýrslunni kom fram, að ef
samanburður er gerður á al-
mennum kauphækkunum, sem
gengið hafa yfir frá 1.6. 1961,
kemur í ljós, að yfirmenn vant-
ar 7—12% á hina ýmsu launa-
flokka sína. Þá má geta þess að
þrengt hefur verið mjög að, með
nýrri tollalöggjöf og til sjó-
manna dregið stórlega úr hlunn-
indum, sem jafnan hefur verið
vitnað til, af hendi útgerða í
samningaviðræðum á umliðnum
árum, að væri kaupuppbót, sem
ekki mætti líta framhjá. Rétt er
einnig að vekja athygli á því, að
með svonefndu næturvakta-
álagi landmanna, kom veruleg
skekkja fram í kaupsamanburði
farmanna við hliðstæðar stéttir
á landi. Vaktaálagið kom inn í
MARGT manna hefur þegar
skoðað listsýningu kvenna að
Hallveigarstöðum. En sýningdn
var opnuð sl. mánudag í tilefni
af þvi að lokið er nú smíðd og
innréttingu HaUveigarstaða. Á
þessari sýningu eru rúmlega 50
verk eftir 27 konur, höggmynd-
ir, málverk, vefnaður og leir-
munir.
Þessar konur eiga verk á sýn-
ingunni:
Erla ísleifsdóttiir, Gerður
Helgadóttir, Gunnfríður Jóns-
dóttir Melitta Urbancic, Nína
21 verk selzt
SÝNINGU Kristjáns Inga Ein-
arssonar á málverkum og högg-
mynduim, sem opnuð var í Iðn-
skólanum 10. þ.m., lýkur n.k.
sunnudag kl. 10 e.h. 500 gestir
hafa séð sýninguna, 12 málverk
hafa selzt og 9 höggmyndir.
samninga opinberra starfsmanna
fyrst fyrir 12 árum og hefur sí-
fellt farið hækkandi. Á sama
tíma hafa farmenn gert kröfu
til þessara kaupuppbóta, sem nú
nema um 25% af kaupi. Telja
farmenn kröfu þessa réttmæta, í
fyrsta lagi vegna þess að megin-
þorri skyldra stétta á landi hafa
vaktaálag.
I öðru lagi vinna farmenn á
öllum tímum sólarhringsins.
I þriffja lagi eru farmenn lang-
dvölum aff heiman og hafa því
ekki möguleika til aukatekna.
Þá hafa farmenn gert mjög
ákveðnar kiröfur til að fá alla
ótekna fridaga greidda með næt-
urvinnukaupi, en þeir eru nú að-
eins greiddir með einföldu dag-
kaupi, sem þekkist ekki hjá
neinni stétt hérlendis í dag.
Uppistaðan í upphaflegum
kröfum farmanna var því þessi:
1. 7—12% kaupmismunurinn
yrði jafnaður,
2. 26% vaktaálag komd á fost
mánaðarlaun.
3. óteknir frítagar verði greidd-
ir með 90% álagi.
Eftir viðræður við ríkisstjórn-
ina og ósk hennar að stilla kröf-
um í hóf, með tilliti til alvar-
legs ástands í þjóðfélaginu, féll-
umst við á að fresta aðgerðum,
iSæmundsson, Ólöf Pálsdöttir,
Þorbjörg Pálsdóttir, Barbara
Árnason, Eyborg Guðmundsdótt
ir, Gréta Björnsson, Guðmunda
Andrésdóttir. Helga Weiss-
happel, Ingilbjörg Eggerz, Júlí-
ana Sveinsdóttir, Jutta Guð-
brandsson, Karen Agneta Þórð-
arson, Kristín Jónsdóttir, Louise
Matthíasson, Matthea Jónsdótir,
Nína Tryggvadóttir, Ragnheiður
Jónsdótir Ream, Ragnheiður
Jónsdóttir, Sólveig E. Péturs-
dóttir, Ásgerður Ester Búadótt-
ir, Vigdís Krisjánsdóttir, Hedi
Guðmundsson ög Steinunn Mart
einsdóttir.
Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari
og Guðmuurida Andrésdóttir
listmálari sáu um uppsetningu
sýningarinnar fyrir kvennasam-
tökin, er að Hallveigarstöðuim
standa.
Sýningin er opin dag hvern til
30. júní kl. 2i—10 síðdegis.
ef 5 liðir yrðu uppfylltir, en
þeir voru:
1. Tryggð yrði 1 klst. yfirvinnu-
greiðsla á dag.
2. Nýliðar í starfi fengju að
byrja á hæstu launúm í sín-
um flokki.
3. 7% orlof yrði greitt á alla
yfirvinnu.
4. Ágreiningsatriði samninga
yrði jöfnuð.
5. Nefnd skipuð er tæki til at-
hugunar laun farmanna, og á
hvern hátt mætti tryggja
þeim kaup, við hliðstæðar
stéttir á landi.
Útgerðirnar gengu að 4. lið,
sögðu algjört nei við 1. og 2.
lið, veittu loðin svör við 3. og 5.
lið og á því stóð yfir verkfall í
þrjár vikur. Viðkomandi stéttar-
félög yfirmanna lýsa yfir undr-
un og vonbrigðum yfir því úr-
ræðaleysi, sem ríkisstjórnin
sýndi í þessu máli.
Sömu stétta-rfélög yfirmanna
lýsa einnig yfir andúð sinni á
bráðabirgðalögum ríkisstjórnar-
innar og telja þau freklegt of-
beldi gagnvart vinnulöggjöfinni,
auk þess, sem eftirleikurinn
hlýtur að harðna all verulega, er
losnar um samninga á komanda
hausti.
Á mjög fjölmennum fundi við-
komandi kaupskipayfirmanna
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt, en hún sýnir betur en
mörgu orð, ástandið á skipunum
og vonbrigðin með hin óvæntu
lög rikisstjórnarinnar.
Sameiginlegur íundur Vél-
stjórafélags fslands, Stýrimanna-
félags íslands og Félags ís-
lenzkra loftskeytamanna, sam-
þykkir að verkfall það, sem
bannað er í dag 16/6, 1967, með
bráðabirgðalögum hefjist að
nýju frá þeim degi, er lögin
falla úr gildi, ef eigi hafa tekizt
samningar fyrir þann tíma.
Jafnframt fordæmir fundur-
inn framkomu ríkisvaldsins í
þessari kjaradeilu.
f fréttatilkynningu, sem blað-
inu barst í gær frá Dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, segir á
þessa leið:
Um embætti bæjarfógeta á
Akureyri og sýslumanns Eyja-
fjarðarsýslu sóttu Ófeigur Ei-
ríksison, bæjarfógeti, Neskaup-
stað og Sigurður M. Helgason,
aðalfulltrúi, Akureyri.
Forseti fslands hefur í dag
veitt Ófeigi Eiríkssyni embætti
bæjarfógeta á Akureyri og sýslu-
manns Eyjafjarðarsýslu frá 1.
október nk. að telja.
Ófeigur Eiríksson er fæddur
14. ágúst 1927 að Breiðagerði í
AUGLYSINGAR
SÍIVII SS*4*8Q
Kosið í stjórn
Bókinenntaíé-
lagsins
Stjómarkosning hefur að undan-
förnu staðið yfir í Hiniu íslenzka
bókmenntafélagi og stendur enn.
Frestur til að skila atkvæðaseðl-
um er til loka júníimiánaðar og
er ástæða tii að benda mönnum
á að neyta atkrvæðaréttar síns
fyrir þann tima.
Bókmenntafélagið átti 160 ára
afmæli fyrir skemmstu og minnt
ist þess með afmælissýningu.
Nýlega er Skírnir kominn út,
þar sem minnzt er afmælisins,
svo og mikil efnisskrá, sérprent-
uð yfir allt efni Skírnis frá upp-
haíi. Forseti félagsins er nú
Einar Ólatfur Sveinsson, pró-
fessor.
13 síldarskip með
2.229 lestir
f GÆR bárust MbL eftirfarandi
upplýsinigar frá Landlssambandi
íslenzikna úfvagismanna um silid-
veiði í fyr.rinótt.
Gott veðuir var á sildarmið-
unum. VeiðiS'væðið var 90 míl-
ur SSA af Jan Mayen eða 270
—280 míllur NA að A frá Rauf-
arhiöfn.
Samitalis 13 skip með 2,229
lestir.
Raufarhöfn:
Gjatfar VE 130 lestir, Jörund-
ur II RE 300, Örn RE 290, Arn-
ar RE 180, Guðrún GK 100,
Auðunn GK 80, Höfrungur III
AK 180, Víkingur III ÍS 130,
Arnfirðingur RE 130, Hrafn
Sveinbj. GK 220, Sig. Jónsson
SU 180, Ásþór RE 130.
Dalatangi:
Börikur NK 240 lestir.
-----•--•--•--------- 4
Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði
og voru foreldrar hans Eiríkur
Einarsson bóndi þar og síðar
verkamaður og afgreiðslumaður
á Akureyri (f. 1899, d. 1952) og
kona hans Rut Ófeigsdóttir.
Ófeigur varð stúdent frá Mennta
skólanum á Akureyri 1948 og
cand. juris frá Háskóla Islands
1953. Sama ár var hann skipaður
fulltrúi bæjarfógetans á Siglu-
firði og gegndi þvi embætti til
ársins 1960 er hann var skipaður
bæjarfógeti í Neskaupstað. Hef-
ur hann gegnt því starfi síðan.
Kvæntur er Ófeigur Ernu Sig-
mundsdóttur frá Siglufirði og
eiga þau þrjú börn.
STAKSTEIMAR
Framsókn og sam-
vinnuhreyíingin
í kosningabaráttunni spunnr
ust nokkrar umræffur um sam-
band Framsóknarflokksins viff
samvinnuhreyfinguna vegna Fá-
skrúffsf jarffarhneykslisins, - sem
upp kom í miðri kosningabarátt-
unni.
I framhaldi af því er frófflegt
aff fletta því tölublaffi Timans
sem út kom 17. júni sl. Þaff er
barmafullt af auglýsingum fri
kaupfélögum og samvinnufyrir-
tækjum hvaðanæva af landinu.
Nú er samvinnufélögium, isem
öffrum aff sjálfsögðu heimilt aff
auglýsa hvar sem þeim sýnist.
En það hefur tíðkast um margra
ára skeiff aff Tíminn hefur viff
og við birt heil blöð, sem eru
lítiff annað en auglýsingar frá
kaupfélögum og hiff sama má
segja um ýmis blöff, sem Fram-
sóknarflokkurinn gefur út viffa
um landið. Þessi staffreynd er
íhugunarefni fyrir þá, sem ef tll
vill hafa átt erfitt með að trúa
því aff Framsóknarflokkurinn
misnoti samvinnuhreyfinguna.
Frelsið og
sjálfstæðið
í forustugrein kommúnfsta-
blaffsins í gær segir svo: „Banda
ríkin hafa, eitt stórvelda heims,
átt í sífelldum hernaðarátökum
síffan annarri heimsstyrjöldinnl
lauk, þar á meffal stórstyrjöld-
um eins og í Kóreu og nú í Viet-
nam. Bandaríkin hafa leynt og
ljóst hlutast til um málefni fjöl-
margra þjóffa í öllum heimsálf-
um, steypt ríkisstjómum meff
hernaðarihlutunum....“ Þessl
orff nægja til þess aff lýsa efni
forustugreinar Þjóffviljans í gær.
Þar er ekki minnst einu orffi á
þá staðreynd að kommúnistar
hófu Kóreustyrjöldina og aff
Sameinuffu þjóðirnar komu vam
arlausri þjóff þar til hjálpar.
Styrjöldin í Kóreu gegn komm-
únistum var háff undir fánum
Sameinuffu þjóffanna. Ekki er á
það minnst að kommúnistar
hófu styrjöldina í Víetnam og
hlutur Bandaríkjamanna þar er
sá að koma smáþjóð til hjálpar
gegn ofbeldi alheimskommúnism
ans. Ekki er minnst einu orffi á
uppreisn verkamanna í Berlín
17. júní 1953, sem bæld var niff-
ur meff skriffdrekum Rússa.
Ekki er minnst á uppreisnina í
Ungverjalandi 1956, sem var bar
in niður með sovézku vopna-
valdi eftir aff griff höfðu verlff
rofin. Ekki er minnst einu orffi
á uppreisnina i Poznan 1956, sem
einnig var barin niður í skjóli
Rauffa hersins. Ekki er minnst
á valdarán kommúnista í Tékkó
slóvakíu, eyffingu þeirra á þjóff-
unum í Eystrasaltslöndunum.
Ekki er minnst einu orffi á þá
staffreynd aff Sovétríkii? og al-
heimskommúnisminn hafa allt
frá stríðslokum róiff undir alls
staffar í heiminum og höfðu
nærri steypt heiminum út í
nýja stórstyrjöld vegna Kúbu
1962. Um allt þetta er þagað.
Frelsi og sjálfstæffi eru innan-
tóm slagorð ef frjálsar þjóðir
lyppast niður gagnvart slíku
ofbeldi. Frelsi og sjálfstæffi is-
lenzku þjóffarinnar væri fánýtt
ef menn á borff viff Magnús
Kjartansson og Einar Olgeirsson
hefffu komizt til einhverra
áhrifa í íslenzku þjóðfélagi. En
íslenzka þjóðin hefur boriff
gæfu til að afþakka forsjá slíkra
manna. Og helzta fulltrúa of-
beldisaflanna í austri væri
sæmra aff þegja um það sem
hann kallar ofbeldisverk ann-
arra og líta fremur í barn sinna
herra. Þar sér hann í hnotskurn
undirrót nær allra þeirra átaka
sem orffið hafa í heiminum síff-
ustu tvo áratugi.
Fjölbreytt listsýning
í Hallveigarstöðum
Ófeipr Eiríkssen skipnður
bæjorfégeti ó Akureyri