Morgunblaðið - 22.06.1967, Side 12

Morgunblaðið - 22.06.1967, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1967. - Tannlækningastofan, að Laugavegi 11 verður lokuð vegna sumarleyfa frá 22. júní til 10. júlí. Viðtalsbeiðnum verður veitt móttaka í stofusíma frá kl. 10—5 daglega. ÓMAR KONRÁÐSSON, tannlæknir. íbúð Læknir óskar eftir 3 — 5 herbergja íbúð með hús- gögnum til leigu frá 1. ágúst til 30. október og e. t. v. lengur. — Upplýsingar í síma 22400. Reykjavík, 21. júní 1967. SJÚKRAIIÚSNEFND REYKJAVÍKUR. Til lcigu skrifstofiihúsnæði eða iðnaðarhúsnæði, 82 ferm., 3 herbergi á 3. hæð í húsinu nr. 6 við Suðurlandsbraut. Upplýsingar gefnar hjá Þ. Þorgrímssyni & Co. 17 faijiega Mereedes Cenz 1964 Höfum til sölu nýinnfluttan Benz diesel 1964. Mjög fallegan og vel með farinn bíl. SÝNINGARSALURINN SVEINN EGILSSON. Skiptaíiindur Skiptafundur verður haldinn í þrotabúi Stanz h.f., Hafnarfirði, föstudaginn 23. júní n.k. kl. 14.00 á skrifstofu minni að Suðurgötu 8, Hafnarfirði. Tekin verður ákvörðun um sölu eigna búsins. Skiptaráðandinn í Hafnarfirði, 19. júní, 1967. MÁR PÉTURSSON, ftr. Bifieiðastjórar Óskum eftir að ráða bifreiðastjóra vanan akstri þungra bifreiða. Upplýsingar á skrifstofunni milli kl. 10 og 12 fimmtudag og föstudag. Ekki svarað í síma. VERK ’ H.F., Skólavörðustíg 16. Húsgagnasmiður Viljum ráða húsgagnasmið eða mann sem vanur er vélavinnu, nú þegar eða að loknu sumarleyfi. Einnig viljum við ráða laghentan mann við fram- leiðslustörf. KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF„ Laugavegi 13. Moskwitch til sölu árgerð 1964. Lítið ekinn og mjög vel með farinn. — Upplýsingar gefnar hjá BIFREIÐUM OG LANDBÚNAÐARVÉLUM Suðurlandsbraut 14 — Sími 38600. USA harmar árás á sovézkt skip Ljósmyndari sovézku fréttastofunnar Tass tók þessa mynd þeg- ar vöruflutningaskipið „Turkestan" kom til Vladivostok, og má sjá tjón það, sem varð á skipinu í loftárás Bandaríkjamanna. Washington, 21. júní NTB-AP. BANDARÍSKA stjórnin hefur beðið sovétstjórnina afsökunar vegna tjóns þess, sem varð á sovézka vöruflutningaskipinu „Turkestan“, þegar bandarískar flugvélar réðust á það af mis- gáningi þar sem það lá við hryggju í Cam Pha í Norður- Vietnam í síðasta mánuði. í orð sendingu til sovézka sendiráðs- ins í Washington er því heitið, að slikt skuli ekki endurtaka sig. Fyrir ndkkrum diögum játaði bandaríska landvarnaráðuneytið, að bandarískar flugvélar kynmu ,að hafa skotið á skipið, er þær voru í árásarferð yfir Norður- Vietnam. Sovétstjórnin mót- mælti loftárásinni harðlega. Áð- ur hafði landvarnaráðuneytið vís að ásökunum Rússa á buig og gefið í sikyn, að skipið hefði orð- ið fyrir skotum úr loftvarnaibyss um Norður-Vietnammanna. Nú er sagt, að komið hafi í ljós, að bandarísikar flugvélar hafi verið yfir Cam Pha-svæðinu 2. júní, en ekki hafi verið vitað um það áði»r. Sagt er, að þessar flugvélar kunni að hafa valdið tjóninu, og harmar bandaríska stjómin tjón það, sem varð á skipinu, en sérstaklega þó dauða eins áhafnarmeðlims og meiðsli annarra. Vörufilutningaskipið „Turkestan“ er 3.358 lestir. Þrjár vélar skotnar niður. Hanoiútvarpið hélt því fram í dag, að þrjár bandarískar flug- vélar hefðu verið skotnar niður yfir Norður-Vietnam í dag. Tvær þeirra voru könnunarflugvélar, og voru þær skotnar niður yfir Hanoi. Alls voru farnar Ii24 ár- ásarferðir yfir Norður-Vietnam í dag. Suður-vietnamiskir fótgöngulið ar felldu 62 hermenn kommún- ista í bardögum á sléttunum í norðanverðu Suður-Vietnam í dag. Mannfall var sagt lítið í liði Suður-Vietnammanna. Vietcongmenn hafa að undan- fiörnu aukið mjög árásir sínar á almenna borgara og myrtu 178 í síðuistu vifcu, þrisvar sinnum fileiri en í vikunni á undan. Hryðjuverkum hefur fjölgað sam tímis því sem tiltöluíega kyrrt hefur verið á vígstöðvunum. Eins og venjulega varð mannfallið mest meðal þeirra, sem vinna að friðunarstörfium í landsbyggð- ínm. Fluigvélaskipið „Intrepid", síð- aista risaskipið sem sigldi um Suezsteurð áður en honum var lokað, er komið til Tonikinflóa. DE GAULLE: „Vietnam orsök stríðs /r Araba og Israelsmanna' Segir að Israelsmenn hafi byrjað stríðið París, 21. júní NTB-AP. De Gaulle forseti sakaði ísra- elsmenn í dag um að hafa hafið styrjöldina fyrir botni Miðjarð- arhafs 5. júní, en sagði að „íhlut- un“ Bandaríkjamanna í Vietnam hefði leitt til styrjaldarinnar. Forsetinn sagði á stjórnar- fundi, að Vietnamstyrjöldin hefði haft sálfræðilegar og p>óli- tískar keðjuverkanir, er leitt hefðu til ófriðarins í Austurlönd- um nær. Hann sagði, að heimin- um stafaði mikil hætta af því að styrjaldir breiddust út. Hann sagði, að friður yrði því aðeins tryggður í heiminum, að Banda- ríkjamenn héldu á brott frá Vietnam, en undirrót styrjald- arinnar þa-r væri bandarísk íhlut- un. í yfirlýsingu, sem lesin var fyrir blaðamönnumí eftir stjórn- arfundinn sagði, að Frakkar hefðu lagzt gegn styrjöldinni fyrir Miðjarðarhafsbotni og við- urkenndu tilverurétt allra ríkja í þessum heimshluta. Frakkar hafi fordæmt hótanir Araba- ríkjanna um að afmá ísrael og afstaða þeirra til siglinga um Akábaflóa sé óbreytt, en þeir fordæmi það að ísraelsmenn skuli hafa hafið styrjöld. í yfirlýsingunni segir, að þar sem styrjöld hafi skollið á í Austurlöndum nær, telji Frakk- ar að engar horfur séu á því að friði verði komið á í heiminum nema því aðeins að nýtt afl í heimsmálunum komi til sögunn- ar, en slíkt afl verði og geti bundið enda á styrjöldina í Viet- nam. En skilyrði þess sé, að er- lend afskipti verði bönnuð. De Gaulle minnti á, að hann hefði lagt til að leiðtogar fjór- veldanna héldu fund með sér til þess að koma í veg fyrir styrjöld í Austurlöndum nær og að Frakkar mundu fordæma þann aðila sem hæfi styrjöldina. Frakkar telji nú, að breytingar, sem komið hafi verið til leiðar með hervaldi, séu ekki óhaggan- legar. Bent er á, að de Gaulle gef- ur þessa yfirlýsingu sína skömmu eftir viðræður sínar við for- sætisráðherrana Kosygin og Wil- son. Bornar hafa verið til baka fréttir um, að Frakkar hafi af- létt banni sínu við vopnasend- ingum til Austurlanda nær. í Washington neitaði blaða- fulltrúi Johnsons forseta að ræða yfirlýsingu de Gaulles, en hann bar til baka þá staðhæfingu de Gaulles, að Vietnamstyrjöldin hefði leitt til ófriðarins fyrir Miðj arðarhafsbotni. Hins vegar sagði opinber heimild, að hin einkennilega röksemdafærsla de Gaulles væri uggvænleg, og átti hann þar við þá staðhæfingu for- setans, að samband væri á milli styrjaldanna tveggja. De Gaulle hélt því enn fremur fram, að Vietnamstyrjöldin væri orsök þess, að Kínverjar hafa smíðað vetnissprengju. Fréttaritari Reuters í París, Harold King, segir, að de Gaulle leggi nú mikla áherzlu á að afla sér stuðnings meðal Arabaríkja, þar sem hann hafi nú í fyrsta skipti sakað ísraelsmenn um að hafa byrjað styrjöldina. Frétta- ritarar í París telja yfirlýsing- de Gaulles enn eina staðfestingu á bölsýni hans með tilliti til þess að varðveita megi heimsfriðinn. De Gaulle telur, að ekki verði unnt að koma í veg fyrir þriðju heimsstyrjöldina, nema því að- eins að stórveldin komist að sam komulagi um lausn brýnustu vandamála heimsins. Því er haldið fram, að de Gaulle hafi birt yfirlýsingu sína nú, þar sem líkur eru á því, að Framhald á bls. 27.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.