Morgunblaðið - 22.06.1967, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 22.06.1967, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1967. ^Jjtfornu óLipiÉ EFTIR KRISTMANN GUÐMUNDSSON arinnar, en skýjaþykkni mikið yfir pólsvæðunum. Þegar kom ið var niður úr því, sást að þar voru blómlegar byggðir víðsveg ar. Andrúmsloítið var auðugt af súrefni, og því heilnæmt mönn- um. Hreyfingu og líl var hvar- vetna að sjá, í þeim heimshlut- um, bæði manneskjur og dýr á kreiki. Vélknúin farartæki flugu um loftið, oig flutu á skurðum, sem grafnir (höfðu verið um lönd in og virtust koma í stað vega. Vötn voru fá og fremur lítil um sig. Hávaxnir skógar huldu all- ar lendur, nema hið sólbrunna belti við miðjarðarlínuna. Geimfararnir fóru niður i þús und feta hæð, en urðu að hækka sig fljótlega, því að állsstaðar var skotið á þá með langdræg- um flugskeytum. >arna var auð sýnilega herskátt fólk og hættu- legt. Danó lék við hvern sinn fing- ur: „Þetta líkar mér,“ sagði hann hlæjandi. „Svona skemmtun fæ ég sjáldan! Mannkyn sólnahverf- isins eru flest orðin svo friðsöm, að það er hreinasta leiðinda- plága að eiga við þau! Til hvers er að vera formaður árásasveit- ar, ef maður kemst aldrei í hann krappan?“ En félagar hans voru ekki eins ánægðir yfir þessum viðtökum. >eim var stranglega uppálagt að þeir mættu hvorki meiða né drepa nokkra lifandi veru, en eigi að síður bar þeim skylda til að kanna til hlítar og ná sam- bandi við öll mannkyn sólna- hverfisins, hvort sem þau voru vingjarnleg eða fjandsamleg. Þeir flugu nú yfir allt yrfir- borð hnattarins, í fimmtán þús- und feta hæð, en skutust svo allt í einu niður í miðbik stærstu borgarinnar á norðurhvelinu. Diskurinn lenti á torgi einu, þar sem mikil mannþröng var fyrir, og byggði um sig ósýnileg an varnargarð. Því næst stigu geimfararnir út og tóku að virða fyrir sér fólkið. Það var fjörlegt og myndariegt, ekki allsólíkt Jarðarbúum, og klætt á svipað- an hátt og þeir, í buxur, ilskó, og blússur líkar hinum rússn- esku bændaburum. Koma disksins vakti óskap- lega mikla eftirtekt. Uutan við ósýnilega múrinn flykktist fólk ið saman og starði stjörfum aug um á gestina. Lol'la Hratari kom nú til skjal anna og hóf samræður við Hnatt OINIII SOKKARNIR sem sameina alla góða kosti með langri end- ingu, hóflegu verði, og nýjustu tízkulitum. KOSTAKJÖR Enn á ný hafa hinar miklu sokkaverksmiðjur í Tékkóslóvakíu lækkað verðið á framleiðslu sinni. Hinir viðurkenndu, fallegu og óslítandi 30 DENIER ÍSABELLA-REGINA sokkar kosta nú í smásölu um 34,00 (í stað kr. 42,00 áður) og ÍSABELLA 20 den. um kr. 27,00 (í stað kr. 35,00 áður). — Vöru- gæði ætíð hin sömu. — Fallegir sokkar sem fara vel og endast lengi. Notið þessi kjarakaup, sem eru einstök fyrir fyrsta flokks sokka. Heildsala : ÞÓRÐUR SVEINSSON & CO. HF. búa. Henni gekk venju fremur illa að átta sig á tungu þeirra, og leið nærri klukkustund áður en hún gat talað við þá að nokkru gagni. Kallaði hún þá á Danó, foringja árásarsveitarinn- ar, og sagði honum að þeim væri öl'lum hótað bráðum bana, ef þau hyrfu ekki á brott þegar í stað. Danó brosti og bað hana spyrja, á hvern hátt þeir ætl- uðu að kála geimförunum. „Með sprengjum," var svarað. f sama bili birtust tvö flugför uppi yfir torginu, og var hróp- að úr þeim í hátalara, að disk- urinn skildi hypja sig burtu án tafar, því að öðrum kosti yrði hann molaður mélinu smærra. Dánó lét brúnir síga og gaf stýrimanni sínum merki. Á næsta augnabliki komu flugför- in tvö niður og lentu á torginu, innan við ósýnilega múrinn, og var augljóst að þau höfðu verið þvinguð til þess. Varð nú há- reysti mikil, meðal mannfjöld- ans, og reiðileg org heyrðust hvaðanæva. En Danó bað Lollu að spyrja, hvort þeir héldu enn að þeir mættu sín nokkurs gegn geimförunum. „Þeir hóta að sprengja aila borgina í loft upp, ef við hlýðum ekki skipunum þeirra,“ sagði Lolla og brosti fýlulega, eins og hennar var vandi. „Þeir halda víst að við séum einhver smá- börn!“ „Segðu þeim að framkvæma hótanir sínar, og að við munum bíða hinir rólegustu á meðan,“ anzaði Danó. Leið nú drykklöng stund svo að ekkert gerðist. Loks kom skraut'búinn maður vaðandi ut- an úr mannþyrpingunni og gekk beint á hinn ósýnilega vegg. Honura var bersýnilega mikið niðri fyrir, og það voru ekki nein blessunarorð er hann taut- aði fyrir munni sér, þegar hann rakst á vegginn. Lolla hló og mælti: „Þeir bölva ljómandi skemmtilega!" En Danó gekk til móts við manninn og heilsaði honum virðulega. Kveðja hans var aftur á móti köld og snögg, og kvað Lolla mesta óþarfa að þýða hana. Danó brosti þá ósköp elskulega og mælti: „Herra minn, ég er yðar auðmjúkur þjónn. Mætti mér veitast sú ánægja að tala við yður í bróð- erni og vinskap?" Hinn skrautklæddi maður, sem var búinn gullbróderaðri skikkju, er náði honum á hæla niður, og gylltum hjálmi, var hreint ekki á því að sýna að- komumönnunum neina hæ- versku. Hann steytti hnefann, í átt til disksins, og hótaði öllu illu, ef þessir djöflar, sem hann ákvað, hyrfu ekki á brott þá þegar. „Við höfuð fengið heim- sóknir slíkra meinkvikinda ut- an úr geimnum,“ sagði hann fyrirlitlega. „Og við munum ekki láta þá skipa okkur fyrir á neinn hátt!“ Danó lét þá færa sér stól, sett ist makindalega á hann, og sagði við Lollu: „Spurðu durt hvort hann kunni ekki aimenna kurt- eisi, og hvort hann óski eftir því að við sýnum honum í tvo heim ana, eða beint fram sagt, tökum alvarlega í lurginn á honum?“ Lo'lla litla túlkaði orð foringj- ans, með meifýsnu glotti. En skikkjumaður lét sér ekki segj- ast, heldur jós úr sér mikilli dembu að ókvæðisorðum. Kvaðst hann myndu drepa geimfarana alla, ef þeir hyrfu ekki úr aug- sýn hans áður en hann fengi andað fimm sinnum. „Viltu spyrja hans heilagleika, hvort hann ha'ldi ekki að það muni reynast tafsamt að stúta okkur, og hvort að það sé ekki nokkur leið að fá að skeggræða dálítið við hann fyrst?“ En í sama bili brá fyrir und- arlegum ljósglampa, sem nálega blindaði geimfarana, og þeir sem komnir voru út úr diskin- um fleygðust til jarðar, eins og hvirfiivindur hefði dunið yfir. Danó varð fyrstur á fætur. Hann þreif í brjóst skikkju- mannsins og hristi hann. „Bet- ur má ef duga skal, kunningi,'" — Pabbi leyfir aldrei að ég giftist þér, hann skilur ekki brandara. skal ég sýna þér svolítið." Hann lyfti hendi sinni, og samstundis þrumuðu lömunarfallbyssur disksins, allar í einu. Hver ein- asta mannvera, sem þar var stödd, utan ósýnilega múrsins, lyppaðist niður, eins og hún hefði verið skotin, og algjör dauðaþögn ríkti um stund á torg inu. En Danó fór út fyrir varn- ar vegginn og kippti skikkju- manninum inn fyrir hann. Röskar tíu mínútur liðu, áð- ur en fólkið tók að rakna við, og rúmlega fjórðungur stundar, áður en foringi Hnattbúa varð samtalshæfur. Danó spurði hann þá, hvort hann vildi heldur, að þeir tækju hann með sér út í myrkur geimsins, en þaðan ætti hann áldrei afturkomu von, eða leysa frá skjóðunni og segja geimförunum allt, er þeir ósk- uðu að vita, án undandráttar. Maðurinn reis á fætur og leit i kringum sig. Hann var dökkur á brún og brá, gulleitur á hör- und, en hávaxinn og hnarreist- ur. „Ekki veit ég hverjir þið er- uð,“ sagði hann og var nú sýnu hæglátari en áður. „Satt að segja hélt ég að þessir fjandar á ytri plánetunum væru búnir að drepa hver annan fyrir löngu, það hefur ekki gengið svo lítið á þar. Og við höfum getað varist þeim hingað til. Reyndar er orð- ið langt síðan þeir komu hing- að seinast, og við vorum að vona að myrkurgyðjan hefði sótt þá '■a 1 1 ra rr ’a,,g ^ e. ag" -a e. a g. ji HREIIMAR I léreffstuskur (stórar) kaupir ftlnrgiiEM^iíb prentsmiðjan <§> MELAVÖLLUR REYKJAVÍKURMÓT í kvöld kl, 20.30 leika: FRAM : KR MÓTANEFND. I Kjörgarði Dragtarefni úr ull og terylene

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.