Morgunblaðið - 22.06.1967, Síða 27

Morgunblaðið - 22.06.1967, Síða 27
3 10000 PSI Liqua-Blaster Fljótvirk hreinsivél — Allsherjarþingið Framhald af bls. 1. hélt á Allsherjarþinginu, en sagðist ekki vilja einbl'ína á þau atriði, er skildu, hel-dur þau, er gætu skapað sameiginlegan við- ræð ugrundivöll. Brown sagði, að Sameinuðu þjóðirnar hefðu sjaldan fengið til meðferðar alvarlegri mál og væri framtíð þeirra undár því komin, hvemig nú tækist til um meðhöndlun málsins. „Ég verð að jéta, að ég býð með eftir- væntingu eftir úrslituTium sagði B r o w n. Hann lýsti yfir stuðningi við þá til- lögu Bandaríkjastjórnar, að þeg- ar yrði takmarkaður vopnaflutn ingur til landanna fyrir botni Miðjarðarhafsins. „Stórkostlegur sjónleikur" Abba Bban, utanríkisráðherra ísraels, svaraði Brown og sagði, að stjórn sín hefði þegar gert ljó.sa stefnu sína varðandi Jerú- salem. Samkvæmt henni yrði !hin helga borg áfram í ísrael. Hann minnti á, að Jórdaníu- menn hefðu ekki haldið gömlu borginni opinni og ekki leyft Gyðingum að koma þangað. En ísraelsmenn ætlnðu að leyfa öll um mönnum, hverrar þjóðar eða trúar, sem væri, að koma þang- að og þeir mundu leggja alla áherzlu á að varðveita einingu borgarinnar og efla menaita- og menningarlíf hennar. Eban svaraði einnig fulltrúa Egyptalands, Mahmoud Fawsi, er áður hafði talað. Fawsd hafði hafnað þeirri tillög.u Bandaríkja manna, að fsraelsmenn og Ar- abar hæfu samningaviðræður með milligöngu þriðja aðila. Kvað Fawsi óhugsandi, að Ar- abar gengju til samninga við ísrael. Eban sagði, að afstaða Araba í umræðunum væri „stórkostleg ur sjónleikur". Það væri athygl- isvert, að sjá „árásaraðilann gera sig að fórnarlambi árásar", — en Egyptar væru svo sannar- lega engin fómarlömb árásar heldur sá aðilinn, er átt hefði upphafið og alla sök. „í allri mannkynssögunni getur ekki um stríð, þar sem ábyrgðin liggur ljósar fyrir en ábyrgð arabíska sambandslýðveldisins á þessu hörmulega stríði og afleiðing- um þess“, sagði Eban. Hvorki Kosygin né fuiltrúar annarra kommúnistaríkja hlýddu á ræðu Ebans. Meðal annarra sem tóku til máls á fundinum í morgun v.ar forsætisráðherra ítaiáu, Aldo Moro, sem hvatti til þess, að Sam einuðu þjóðimar hefðu milli- göngu um friðarviðræður og yrðu aðilar að friðarsamning- um. Einnig talaði Jens Otto Krag, forsætisráðherra Dan- merkur og hvatti stórveldin til að taka hðndum saman um að leysa deiluna. Hvatti hann og til þess, að sendur yrðf full- trúi frá S. f>. til allra þeirra rikja, er hlut ættu að deilunni ög tók undir þau orð Browns, að vopnaviðskiptin ættu ekki að leiða til landvinninga. Hann lagði á það áherzlu, að þær skýrslur, sem borizt hefðu til flS. Þ. um upphaf styrjaldarinn- ■ar, skæru á engan hátt úr um það hvor aðilinn hefði átt upp- tökin. Krag hefur gengið mjög fram í því að reyna að koma á fundi þeirra Kosygins og Johnsons, forseta. Bandaríkjaforseti hefur boðið Kosygin að koma til Washington og ræða við sig. en Kosygin hafnað á þeirra for- sendu, að hann sé ekki kominn til Bandaríkjanna f heimsókn — heldur aðeins til Sameinuðu þjóðanna, til þess að halda þar ræðu. Kosygin snæddi hádegisverð í boði U Thants í dag — en liklegt er, að hann fari fljótlega heimleiðis. Á hinn bóginn áttl Andrei Gro myko, utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna að snæða kvöldverð í boði Dean Rusks, utanríkisráð- herra Bandaríkj anna. Þormóður goði með 442 tonn af Itarfa í GÆR var landað afla úr tog- aranum Þormóði goða hér i Reykjavík. Kom togarinn af Grænlandsmiðum með 442 tonn eftir 13% dags útivist. Var afl- inn mestmegnis karfL í síðustu veiðiferð aflaði Þor- móður goði 413 tonn af þorski. Skipstjóri á togaranum er Magnús Ingólfsson. -----♦♦♦------ - SÍLDIN Framhald af bls. 28. langt undir meðallagi, telst vorið 1967 meðal hinna köldu vora, sem hafa verið einkennandi und- anfarin ár. II. Á landgrunninu vestan- lands varallmikið þörungamagn, en vestan þess fór það minnk- andi. Norðanlands var mikið þörungamagn í maímánuði sem og í júníbyrjun. Þetta seinna há- mark mun líklega stafa af ísreki upp að landinu í byrjun júní. Mikið þörungamagn reyndist einnig vera á svæðinu milli Langaness og Jan Mayen og á hryggnum milli íslands og Fær- eyja. Nokkur rauðáta var á svæðinu vestan íslands, en norðanlands var átusnautt með öllu nema lítilsháttar ljósáta um 30—50 milur norður af Melrakkasléttu. Á svæðinu milli Færeyja og Jan Mayen var víðast allgóð rauðáta, einkum norðan ti! og austan. III. Aðal síldarmagnið fannst í maímánuði frá 65°30'N að 67°30'N milli 00°30'A og 02°00'V. Síldin var óstöðug. Hún var niðri á 100 til 200 föðmum yfir daginn, en kom upp á 10 til 20 faðma yfir lágnættið. Vestan 2° lengdarbaugsins fannst í maí mjög lítið síldarmagn. Þó varð vart við síldartorfur í heitum sjó um 10°00'V og 65°30'N. Því miður hamlaði veður frekari at- húgununum á þessu svæði. I júní fannst allmikið magn síld- ar á svæðinu frá 69°30'N að 70°00'N milli 01°00'V og 05°00'V. Einnig varð vart all- mikils síldarmagns um 68°45'N og 06°00'V fyrstu vikuna í júní, en síldin dreifði sér í smærri torfur og varð óveiðanleg, er leið á mánðinn. Sunnanfil á svæðinu milli 65°15'N og 65°45'N austan 11. lengdarbaugs varð einnig yart við nokkurt torfu- magn, en þarna reyndist vera um kolmunna að ræða. í ár hefur síldin því haldið sig allmiklu austar en venju hefur verið. í fyrra miðuðust vesturtakmörk síldarsvæðisins við 8. lengdarbauginn, en þann 10. árið 1965. Að áliðnum maí og í byrjun júnímánaðar hreyfð- ist síldin nokkuð norðvestur á bóginn, en dreifðist eftir fyrstu viku júnímánaðar í smáa'r torf- ur um svæðið norðan 70. breidd- arbaugs. Ástæðan fyrir hinni austlægu dreifingu síldarinnar er álitin vera hinn óvenjulegi sjávarkuldi, en einnig má vera, að mikið rauðátumagn djúpt í hafi austur af landinu hafi hindrað vesturgöngu hennar. Með tilliti til hins lága sjávar- hita sr talið líklegt, að síldin muni halda sig á svæðinu sunn- an og austan Jan Mayen fyrri hluta sumars og ekki ganga vestur á bóginn fyrr en í ágúst eða september. -----f Ekið á kyrrstæða bifreið FÖSTUDAGINN 15. þ.m. ók Rússajeppi með H-númeri á kyrrstæða Saab-bifreið, R- 4411, hvíta að lit, þar sem hún var við Skipholt 56, og olli á henni nokkrum skemmdum. Ökumaður Rússajeppans er vin- samlega beðinn að gefa sig fram við rannsóknarlögregluna svo og þeir sem urðu vitni að þessu. FYRIR skömmu flutti Steinþór Ásgeirsson nýja vatns- og sand- blástursvél til la-ndsins. Vélin er af gerðinni Liqua-Blaster og eru aðeins um þrjú ár síðan hún kom fyrst á markaðinn. Framleiðend ur eru Patrek Corporation í Texas. Þessi tegund hefur náð mjög skjótri útbreiðslu og er nú í notkun víða um heim en aðal- kostir hennar eru lítil vabnsnotk YFIRNEFNÐ Verðlagsráðs sjáv anútvegsins ákvað á fundi 20. þ. m., að lágmarksverð á síld í bræðsiu veiddri við Suður- og Vesturland, þ. e. frá Hornafirði vestur um að Rit, tímabilið 16. júní til 31. júM 1967, skuli vera hvert kg. kr. 0,82. Verðið er miðað við síldina komna á flubningatæki við hldð veiðisikips. Selijandi skal skila síldinni í verksmiðjuþró og greiði kaupandi kr. 0,05 pr. kg. í flutningsgjald frá skipshlið. Heimilt er að greiða kr. 0,22 lægra pr. kg. á síld, sem tekin er úr veiði9kipi í flutningaskip. Verðákvörðun þessi var gerð Brandt í Stokkhólmi Stokldhólmi, 21. júní — NTB-AP UTANRÍKISRÁÐHERRA Vest- ur-Þýzkalands, Willy Brandt, kom til Stokkhólms í kvöld. Torsten Nilsson, utanríkisráð- herra og fleiri fulltrúar stjórn- arinnar tóku á móti honum á flugvellinum. Brandt kom frá Helsinki, þar sem hann hefur m.a. rætt við Kekkonen forseta, Paasio, for- sætisráðherra og Karjalainen, utanríkisráðherra. í opinberri yfirlýsingu sem gefin var út að loknum viðræðunum sagði, að þær hefðu fjallað um ástandið i alþjóðamálum almennt, ástand og horfur í Evrópu, Þýzkalands- málið og fleiri mál. Ennfremur sérstök mál, er vörðuðu sam- skipti Finnlands og Þýzkalands. -----♦♦♦------ Ljósmynda- vélum stolið UM síðustu helgi var brotizt inn í Stúdíó í Garðarstræti 8 og stol ið þaðan fjórum myndavélum. Ein þeirra var af Hasselblad- gerð, kasettu og Mnsulaus, önn- ur var Linhoff 4x5, þriðja Pola- roid 180 og sú fjórða Kodak metalic 6x9. Þeir sem gætu gefið upplýs- mgar um myndavélar þessar geri svo vel að láta rannsóknar- lögregiuna vila. un og hár mögulegur þrýsting- ur. Þá er vélin mjög auðveld í meðförum. Þessi vél er einkar hentug til allra hreinsistarfa, svo sem á tönkum, fiskilestum, þróm og fleiru en einnig má auðveldlega hreinsa t.d. gamla málningu af húsveggjum með henni. Umboðsmaður fyrir Liqua Blaster vélar er Steinþór Ás- geirsson, Vesturgötu 3. með atkvæðum oddamanns og fulltrúa síMarkaupenda giegn atkvæðum fuliitrúa síLdarselj- enda. í yfirnefndinni áttu sæti: Bjanni Bragi Jónsson, deildar- stjóri í Efnahaglsstofnuninni, som var oddaimaður, Guðmund- ur Kr. Jónsson, framkvstj. og Ólafur Jónsson, fracmfcvsbj. af hálfu síldarkaupenda og Jón Sigurðsson, formaður Sjómanna sambandsins og Kristján Ragn- arsson, fuiltrúi, af hálfu síldar- seLjenda. (Fréttatilkynning frá Verð- lagsráði sjávarúbvegsins). Handfökur í Grikklandi Gefn, 21. júní NTB ALÞJÓÐA lögfræðiinganefndin í Genf skýrði frá því í dag, að herstjórnin í Grikklandi hefði handtekið fyrrverandi ntanrík- isráðherra landsins, Evangelos Averoff, einn af helztu forystu- mönnum ráttækra. Ennfremur hafi stjárnin síðustu vikur hand tekið marga aðra kunna stjórn- málamemn (rríska, m.a. Jean Zig dis fyrrum iðnaðarmálaráðherra, Konsfiantín Sefanakis, fyrrum dómsmálaráðherra og Christos Lambrakis, ritstjóra dagblaðsins „VIMA“. Að sögn nefndarinar hafa rínilii 300 og 500 lögfræðingar verið settir í varðhald eða stofu fangeLsi og tekið fyrir símasam- band á heimilum fjölmargra ann arra. Evanffelos Averoff var utan- ríkisráðherra á árunum 1956 til 1963. - ÍÞRÓTTIR Framhald af bis. 26. uldsson UMSE 4:40.6. Árangur Halidórs í hástökk- inu er jöfnun Akureyrarmets og hefur hann náð þessum á- rangri nokkrum sinnum. Mjög hörð keppni var í 100 m hlaup- inu og var það ekki fyrr en á síðustu metrum að Reynir komst aðeins fram fyrir Höskuld. Stangarstökkskeppnin var og mjög tvísýn en þar bar sigur úr býtum (vegna færri tll- rauna) Kári landsliðsmaður I knattspyrnu. Mótið gekk sem fyrr segir mjög vei og var skemmtilega skomist hjá öllum óþarfa eyð- um og tímatöfum. - ÞINGHÚSIÐ Framhald af bls. L Bretum og reka þá burt frá Ad» en, Bretar hafa tilkynnt, að þeir muni veita Suður-Arabíusam« bandinu sjálfstæði 9. janúar næstkomandi. Að sögn NBT-fréttastofunnar hóÆust átökin í fyrradag vegna misskilnings og fylgir fregninni að ofurstarnir hafi hafið störf á ný. Útgöngubann var sett á í Ad- en í kvöld og brezkum borg- urum skipað að fara ekki út úr húsum sínum. Slaólum var lokað ■og mörgum verzlunum. í dag flugu brezkar þotur lágt yfir borginni og nágrenni, að talið Var til þess að leita uppi heirnd ■arverkamenn, sem leyndust í klettum og gömlum rústum. f. --------------- - DE GAULLE Framhald af bls. 12. Kosygin forsætisráðherra og Johnson forseti haldi fund með sér. De Gaulle vilji vekja at- hygli heimsins á þeirri skoðun sinni, að spennan í sambúð Bandaríkjanna og Sovétríkjanna muni aukast og stofna friðinum í Evrópu í hættu. í aðalstöðvum SÞ hafa ýmsir viljað setja stýrj- öld Araba og ísraelsmanna í sam band við Vietnamstyrjöldina, og mun yfirlýsing de Gaulles hafa mikil áhrif bæði meðal stuðn- ingsmanna Araba og ísraels- manna. I Kairó er fordæming de Gaul- les á ísraelsmönnum talin sanna, að hann hafi talað í einlægni, þegar hann fordæmdi árásarað- gerðir skömmu eftir að styrjöld- in skall á. Mikla ánægju vekur, að Frakkar skuli lýsa því yfir, að þeir muni ekki viðurkenna landamærabreytingar, sem knúð ar séu fram með hervaldi, og Egyptar eru de Gaulle innilega sammála um, að samband sé á milli styrjaldanna í Austurlönd- um nær og Austurlöndum fjær. Egyptar halda því fram, að Bandaríkjamenn séu leiðtogar gagnbyltingarstjórna, sem hafi notað ísrael sem verkfæri til að steypa „framfarasinnuðum" stjófnuim í nálægari Austurlönd- um af stóli. - INNRÁS Framhald af bls. 1. árás og innrás. Egypzku her- sveitirnar voru viðbúnar þvl frá og með 26. maí að ráðast inn í ísrael. Vantaði ekkert annað en lokafyrirmæli frá Kairó, og áttu fyrirmælin að taka gildi þegar herforingj- arnir egypzku fengju sím- skeyti frá Kaíró með lykil- orðinu „assad“, sem þýðir ljón. I fyrirmælunum frá Kaíró er því lýst hvernig egypzki flugherinn á að eyðileggja mikilvægar stöðvar og flug- velli í ísrael. 16. flugsveitin átti að ráðast á Aquir-fíug- stöðina og eyðileggja flugvél- ar þar. 31. flugsveitin átti að ráðast á loftvarnarkerfi við Tel Aviv. 24. flugsveitin hafði það hlutverk að eyðileggja ratsjárkerfi við Hatzerim Beer Menuha og á Ari'ha- fjalii. 20. flugsveitin átti að ráðast á Qastina-flugvöll. Aðr ar flugsveitir áttu að varpa sprengjum á flugvöll og hafn armannvirki i Eliat við botn Akabaflóa meðan hersveitir umkringdu borgina og aðal- herinn réðist inn á Negev- eyðimörkina. Fyrirmælin eru öll hin ítar legustu og hver árás tímasett miðað við upphaf stríðsað- gerða. Þannig er t.d. ákveðið að aðal loftárásin á flugvöll- inn við Tel Aviv skuli gerð nákvæmlega þremur klukku stundum eftir að aðgerðir hefjast. Verð á bræðslusíld við S- og Vesturland ákveðið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.