Morgunblaðið - 30.06.1967, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1967.
Snmþykktir Prestnstefnunnor
.VEGNA fréttatilkynningar frá
■krifstofu biskups, sem send hefir
verið útvarpi og blöðum, viljum
við taka þetta fram:
1. Ályktun sú, sem presta-
•tefnan samþykkti um helgisiði
þjóðkirkjunnar, var eins og fram
kom í umræðum, aðeins ábend-
ing til nefndar þeirrar, sem á að
endurskoða helgisiðabók ísl. þjóð
kirkjunnar.
1 2. Prestastefnan samþykkti að
verða við ósk síðasta Kirkju-
þings um að kjósa tvo menn
1 fimm manna nefnd, sem falið
er að endurskoða núgildandi
helgisiðabók, og liggur 1 hlutar-
ins eðli, að tillögur þeirrar
nefndar verða að ná samþykki
lögmætra aðila á sínum tíma
til þess að verða fullgildar.
Nefnd þessi er nú fullskipuð
og eiga sæti í henni: Biskup ís-
lands, sem er formaður, Björn
Magnússon prófessor og Þórður
Möller yfirlæknir, kosnir af
Kirkjuþingi, og séra Jón Auðuns
dómprófastur og séra Garðar Þor
steinsson prófastur, kosnir af
prestastefnunni.
3. Prestastefnan heimilaði
bis'kupi að tilefna tvo menn til
að starfa með nefndinni.
Rvík 28. júná 1967
séra Bjarni Sigurðsson
séra Garðar Þorsteinsson
séra Gunnar Árnason
séra Jón Auðuns,
séra Jón Thorarensen,
séra Jón Þorvarðsson,
séra Sigurjón Þ. Árnason
“ í öllum
kaupfélagsbúdum
Fleiri
frístundir
Húsmæður þér
fáið fleiri frí-
stundir í sumar-
leyfinu og heima
ef að þér notið
niðursoðin mat-
væli.
GKÆNA*
BÚSÁHÖLD
í
LAUGAVEGI 59 SÍMI 23349
Vf&fffííf&íffíí
m v;
Alexei N. Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjan na, fór tii Kúbu á mánudag, að loknum viðræð-
um við Johnson Bandaríkjaforseta í Glassboro og fundarhöldum hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York. Mynd þessi var tek'in við komu Kosygins til Havana þar sem Fidel Castro forsætis-
ráðherra tók á móti gestinum.
Stjórnin í
Kenya vísar
kínverskum
diplómat úr
landi
Nairobi, 29. júní — NTB —
STJÓRNIN í Kenya kallaði í
dag heim sendiherra sinn í Pek-
ing og vísaði sendifulltrúanum
í Nairobi úr landi á þeirri for-
sendu að Kínverjar hefðu gert
ástæðulausar árásir á stjórnina
í Kenya og vinveittar þjóðir.
Nýlega sagði efnahagsmála-
ráðherra Kenya, Tom Moboya,
á þingfundi að þróunarlöndin
yrðu að varast leynimakk stór-
veldanna, ekki aðeins Banda-
ríkjanna heldur einnig Sovét-
ríkjanna, Bretlands, Kína og
Frakklands. Kínverska sendiráð-
ið kvartaði yfir þessum ummæl-
um í bréfi til blaðsins East Af-
rican Standard og leiddi það til
þess, að varaforseti Kenya, Dan-
iel Moi, sakaði kínverska sendi-
ráðið um afskipti af innanríkis-
málum Kenya.
----♦♦♦------
— Flugsýn
Framhald af bls. 3
Hægt er að útbúa vélarnar full-
komnustu tækjum sem völ er á,
og verðið er um 15 milljónir
króna, með varahlutum. í gær
var Otrinum flogið til Siglufjarð
ar og Blönduóss og sýndur þar,
en þeir hafa farið fram á það
við viðkomandi yfirvöld að Flug
sýn verði veitt leyfi til áætlun-
arflugs til þessara tveggja staða.
Flugtími til Blönduóss frá
Reykjavík er 40 mínútur en 55
til Siglufjarðar.
— A1 Bishop
Framhald af bls. 3
Baldursison, rythma-gítar, Þór-
hallur Sigurðsson, trommiur og
Haraldur Sigurðsson söngvard.
Þeir tveir síðast nefndu eru
bræður.
Fyrirkomutegið á dansleikjum
verður þannig að þeir byrja allir
kl. 9 eða 10. A1 Bishop verður
með %—1 tíma sfcemimtiiskrá, en
annars mun hanin fcoma fram af
og til.
Þeir félagar skemmita fyrst á
Vesturlandi síðan Vesttfjörðum,
Norðurland'i, Auistfjörðum oig lotos
á Suðurlandi.
Frú Luci Johnson Nugent, dóttir Bandaríkjaforseta, og maður
hennar, Patrick Nugent, sjást hér með son sinn, Patrick Lyn-
don, er frúin var að fara heim frá fæðingardeild Seton-
sjúkrahússins í Austin, Texas, á mánudag.
Hussein, konungur Jórdaníu, kom til New York til að taka
þátt í umræðum á þingi SÞ um ástandið fyrir botni Mið-
jarðarhafsins. Þetssi mynd var tekin þegar konungur ávarpaði
Allsherjarþingið á mánudag.