Morgunblaðið - 30.06.1967, Page 14

Morgunblaðið - 30.06.1967, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1967. Pétur Þorleifsson: ÖRÆFAJÖKULL gan.ga á Öræfajökul og njóta hins ógleymanlega útsýnis þaðan, á að vera markmiið hvers eiinasta íslendimgs, sem hefur yrwdi af fjallgöngum". Þegar ég lagði upp í fyrstu för mína á Öraefajökul komu mér í hug þessi orð hins mikla ferða- og jöklamanns Ingólfs ísólfssonar. Seinnipart vetrar árið 1965 kom Magnús Hallgrímsson, verk fræðingur, að máli við mig og stakk upp á að við eyddum páska fríi okkar til þess að ganga á hæsta tind landsins, Hvanna- dalshnjúk á Öræfajökli (2/119 m). Til að auka líkur á, að við fengjum hjart á tindinum ákváð um við að hafa meðferðis allan viðleguútbúnað og dvelja næt- urlangt uppi á sjálfu fjallinu. Er svö ekki að orðlengja það, að lagt var af stað með flugvél seinni part skírdags áleiðis að Fagurhól'smýri í Öræfum og vor oim við alls níu saman. Ferðin til Fagurhólsmýrar gekk greið- lega og lentum við þar heilu og höldnu eftir klukkustundar flug. Veðri var þannig háttað að á var norðvestan hvassviðri, víst ein 8—0 vindstig og glórði vart í jökulinn fyrir þoku. Mátti með sanni segja, að útlitið væri ekki óbjörgulegt. Þrátt fyrir það vor- /um við hinir vonbeztu og vel minnugir þess, að á skammri stundu skipast veður í lofti. Öxl uðum við nú pokana og þrömm- uðum aí stað í þá átt, er við hugðum jökulinn vera, en þar Tjöld okkar stóðu í skugga, því sólin var ekki enn komin upp fyrir fjallsbrúnina. Þótti okkur nú heldur vænkast okkar hagur og vorum fijótir að ferðbúast. Leið okka-r lá nú upp fjalis- hryggi nokkra er Sléttubjargir heita og ekki höfðum við lengi gengið, er við o/kkur blasti Hnappur (1.851 m) á suðurbrún Öræfajökuls, en í námunda við hann lá leið okkar seinna í ferð inni. Góðan spöl vestur frá Hnapp gaf að líta Rótarfjalls- hnjúk, aflangan kamb allmikimn um sig. Tindar þessir sýnast ör- skammt undan eins og jafnan er á jökli. Nú var skammt eftir að jökulröndinni, og er þangað kom tókum við fram skíði okkar, strekktum undir. þau selskinns- borða. Þessi útbúnaður /gerir það að verkum, að hægt er að ganga beint upp snarbrattar brekkur og ættu allir er hyggjast ganga á jökla að hafa hann meðferðis. Færi var þannig háttað að þunn skel va.r á snjónum, og væri mað ur án skíða tók snjóinn í hné og þaðan af meira. Slíkt færi nefnist víst brotafæri eða að- eins broti. Héldum við nú á jökulinn í einni lest og gekk vel fram, þó drjúgum sigu baggarnir í, en hver okkar bar rösk 25 kg. Eftir 'því sem við hækkuðum, hvarf ’Sveitin fyrir neðan okkur smátt og smátt undir jökulbungurnar, en hafið í suðri varð víðáttu- meira. Brátt varð á vegi okkar allmikið sprumgusvæði og varð Stuðlaberg við Svartafoss í Öræfum. (Ljósm.: Jörundur Guð- mundsson). griUtum við í timd einn skammt frá jökulrönd og heitir sá Stór- höfði og þangað var ferð okkar heitið þennan daginn. Reistum við tjöld okkar í flýti, bárum grjót á skarir og gengum sera bezt frá öllu. Næsta morgun, föstudaginn langa, vöknuðum við um kl. sjö. Veðrið hafði gengið niður um nóttina og komið svo til logn. þar að beita allri varúð. AUvíða er jökullinn sprunginn, en víast hvar auðvelt að sneiðá hjá þeim. Þannig þrömmuðum við upp 'hverja brekkuma af annarri kl’ukkutímum saman. Loks kl. 6 komum við á hjalla nokkurn undir Hnappnum, og var þar alllöng hvíld. Þar féll einn okk- ar í smá sprungu, en þar sem við vorum bundnir saman, fór Við rætur Hvannadalshnjúks. allt vel. Er við liturn niður um gatið sást að sprungan víkkaði til beggja hliða og var þar í svart myrkur að sjá. Við hröðuðum nú för okkar upp síðustu brekkuna og stóðum vonbráðar á brún Öræfajökuls. Brún jökulsins við Hnapp er í um 1800 metra hæð yfir sjó, og þar. sem við stóðum nú, blasti Hvannadalshnjúkur við í norðri, í nálega 4 km. fjarlægð. Á milli tindanna er jökulslétta all mikil er þekur hinn geisistóra gíg jök- ulsins. Dagur var nú að kvöldi kom- inn, enda við vel að hvíldinni komnir, því ganga frá Fagur- hólmsmýri hafði tekið 11 klukku stundir, og eiga baggarnir að sjálfsögðu mestan þátt í því. (Ljósm.: P.Þ.) Tjöldin reistum við svo í nánd við Hnapp og fengum okkur því næst vel í svanginn. Að snæð- ingi loknum lagðist mannskapur inn til hvíldar, því snemma skyldi risið næsta dag, enda lof- aði veðurútlitið góðu. En á skamm-ri stund skipast veður í lofti. Það spakmæli átti eftir að sannast oft í þessari ferð. Ég vaknaði kl. 3 um nóttina, þá var skollið á hið versta veð- ur, blind stórhríð af norðvestri með 20 stiga frosti. Þetta veður hélzt samfleitt í ein og hálfan sólarhring, eða fram á páskadags morgun, en þó birti snögglega 'upp og sól skein í heiði. Var þá ekki beðið boðanna, en búizt af stað hið bráðasta. Létum við eft- ir tjöld og annan farangur, tók- um aðeins með okkur ísaxir, mannbrodda og talstöðina. Síðan var haldið yfir sléttuna í átt að Hvannadalshnjúk. Við rætur hnjúksins að sunnan voru skíði og tálstöð skilin eftir, en menn spenntu á sig brodda og tóku sér ísexi í hönd, því mikið harð- fenni igetur verið í hlíðum hnjúksins. Var nú iagt í brekk- una, þrír og þrír saman með línu á milli sín. Hnjúkurinn var talsvert sprunginn, eri allar voru þær nú auðveldar yfirferðar, því þær voru því sem næst fullar af snjó. Ævintýralegt var að horfa nið ur yfir upptök Falljökulsins, þar sem hann steypist út af sléttu Öræfajökuls við rætur Hvanna- dalshnjúks. Allt var sundur sprungið og gengu heljarmiklar bogadregnar sprungur góðan spöl inn á sléttuna. Við hröðuð- um nú för okkar upp síðustu brekkuna og stóðum von bráðar á hæsta tindi landsins. Sú dýrðarsýn, sem nú blasti við, mun enginn okkar nokkru sinni gleyma. Fyrir fótum okkar la landið, fjöll og jöklar svo langt sem augað eygir. í vestri hið næsta okkur, gaf að líta Skaftafelisfjöll og að baki þeim Skeiðarárjökul, þar sem hann þrengir sér fram á milli Súlu- tinda að vestan og Færinestinda að austan ,en breiðir svo úr sér sunnan við þrengslin fram á Skeiðarársand. Skemmtiiegt var að virða fyrir sér strandlengj- una austan frá Ingólfshöfða og allt vestur að Hjörleifshöfða. f norðri og norðaustri breiðir Vatnajökull úr sér, þessi ógnar hjarn’skjöldur, og sem snöggvast sjáum við Svínahnjúkum við Grímsvötn bregða fyrir, en því miður lá þoka á norðanverðum jöklinum og virtist færast í auk- ana meðan við stóðum við uppi. í bezta skyggni mun sjást til Heirðubreiðar, Kverkfjalla og fjalla norðan jökuls, svo sem Snæfells. Norðaustur af Hvanna dalshnjúk sést Þuríðartindur í Öræfajökli dökkur og algerlega snjólaus. Tindur þessi mun heita eftir Þuríði Guðmundsd. er eitt sinn bjó í Skaftafelli í Öræfum. í stefnu á Þuríðartind, en fjær nokkru, sést hamrabrún ein all mikil er Mávabyggðir heita o.g þar austur af koma svo Esju- fjöll.fjórir hamranúpar rísa í röð og spyrna við jöklinum. Fram af fjönum þessum breiðist Framhald á bls. 19 sloifl um cröataaqsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.