Morgunblaðið - 30.06.1967, Blaðsíða 32
FYRSTAR
MEÐ
TÍZKU
LITINA
RtTSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIOSLA»SKRIFSTOFA
SÍMI 1Q*100
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1967
34 skip með 6745 1.
Sléttðnes ÍS. hæst með 460 lestir
SÆMILBGT veður var fram eftir
miðvikudeginum, en versnaði
þegar leið á kvöldið og nóttina.
Veiðisvæðið var 60 mílur
A.S.A. frá Jan Mayen.
34 skip tilkynntu um afla, alls
6.745 lestir.
Raufarhöfn lestir
Sigurbjörg Ó!F 290
Gunnar SU 160
Helga n. RE 320
Örfirisey RE 250
Akurey RE 270
Víkingur IH. ÍS 145
Siglfirðingur SI 120
Ásberg RE 260
Ársæll Sigurðsson GK 170
Sigurpáll GK 150
Arnfirðingur RE 170
Krossanes SU 170
Hamravík KE 120
Jón Kjartansson SU 200
Vonin KE 190
Akraborg EA 120
tfrslit prests-
kosningo í
N-Þing.
HINiN 11. júní síðastl. fór fram
prestkosning í Sauðanespresta-
kalli, N-f>ing. og hafa atkvæði
nú verið talin. Einn prestur var
í kjöri, Sr. Marinó Kristinsson,
settur prófastur. Á kjörskrá voru
339 manns og kusu 293 og hlaut
séra Marinó 280 atkvæði. Auðir
seðlar og ógi'ldir voru 13.
OÞá hefur einnig farið fram
talning atkvæða að loknum
prestkosningum í Skinnastaða-
prestakalli og einnig þar var
einm prestur í framiboði, séra
Sigurvin Elíasson sóknarprestur-
inm á Raufarhöfn. Á kjörskrá
voru 347 og kusu 273 og hlaut
séra Sigurvin 202 atkvæði, en
f"iauðí? seðlar voru 71. Báðir
hlutu prestarnir lögmæta kosn-
ingu.
-----m-------
Grótta RE
Dalatangi
Haraldur AK
Bjartur NK
Sæfari II. NK
Guðrún Þorkelsdóttir SU
HraJn Sveinbj. GK
Jón Garðar GK
Sig. Jónsson SU
Dagfari ÞH
Sléttanes ÍS
Guðm. Péturs ÍS
Gullver NNS
Ól. Magnússon EA
Örn RE
Reykjaborg RE
Fylkir RE
Gísli Árni RE
Margrét SI
Myndin er tekin úr Laugarnesi í gær, og má ljóst sjá hallann á Grjótey. Skipið fjær er Sandey,
sem var til staðar ef á aðstoð þess þyrfti að halda. (Sjá einnig frásögn á bls. 3).
Grjótey hœtt komin:
Vantaði fet upp á a5 sjór
kæmist í lestarnar
og þá hefði skipið sokkið
GRJÓTEY, sanddæluskip Björg-
nnar hf. var all hætt komið út
af Kjalamesi i gærmorgun.
Grjótey hefnr að undanförnn
verið að vinna við dýpkunar-
framkvæmdir út á Sundum, og
losar það farminn út af Kjalar-
nesi. Var skipið rétt byrjað að
losa í gær, er leðjufarmurinn í
lestinni rann skyndUega út í
bakborðshliðina, en nokkur vest-
an alda var.
Skipið hallaðist við þetta all-
mikið, eða um 25 gráður, að sögn
skipverja, og flæddi sjór upp á
þilfarið á tíma'bilL Vantaði þá
aðeins fet upp á að sjór næði að
renna í lestina, og hefði skipið
þá að öllum líkindum
sokkið. Fljótlega tókst að
losa akkerið, og rétti skip-
ið sig þá nokkuð við. í ör-
yggisskyni var beðið um aðstoð
írá landi, og kom Sandey, sem
er einnig eign Björgunar hf., og
björgunanskipið Gísli Johnsen á
vettvang. Ekki varð þó þörf fyr-
ir aðstoð þess og fór það brátt til
hafnar aftur.
Til frekari öryggis fór ÖH
áhöfn Grjóteyjar, að undantekin-
teknum skipstjóra og 1. vél-
stjóra, eða 9 menn, yfir í Sand-
Gullfaxi hefur áœfl-
unarflug á morgun
Samningar hafa fekizt við alla aðila
GULLFAXI hin nýja þota Flug-
félags íslands hefur áætlunar-
flug á morgun. Fer flugvélin
fyrst til Lundúna kl. 08.00 og
síðan til Kaupmannahafnar kl.
15.20.
Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugfélagsins skýrði
Mbl. frá því í gær, að samningar
við flugvélstjóra og flugvirkja
hefðu tekizt í fyrrinótt og myndi
þotan fara í æfingaflug með flug
liðana, sem fyrst fóru til æfinga
vestur um haif, síðdegis í dag. Þá
sagði Sveinn, að hér væru nú
tvær áhafnÍT frá Boeingverk-
smiðjunum, sem myndu fljúga
með íslenzku flugliðunum fyrsta
mánuðinn, sem þotan er í áætl-
unarflugi. Þotan mun fara tvær
áætlunarferðir á sunnudag og
eina á mánudag, en þann dag er
gert ráð fyrir að æfðar verði
lendingar á Reykjavíkurflug-
velli.
ey. Grjótey var siðan látin reka
inn í Sundin, og hallaðist skipið
þá um 12-15 gráður. Var því síð-
an siglt á hægri ferð inn Vatna-
garða, þar sem aðsetur Björgun-
ar hf. er.
Samkvæmt upplýsíhgum Krist
ins Guðlaugssoar, framkvæmda-
stjóra Björgunar hf., seinni hiuta
dags í gær, var unnið að því að
mioka til í skipinu, þar sem það
lá inn við bryggju í Vatnagörð-
um, og hafði skipið þá rétt sig
við að mestu. Sjór hafði hvergi
komizt inn í það, og er skipið
algjörlega óskemmt.
Skemmtiferð í
Breiðafjarðar-
eyjar
Sjálfstæðisfélagið Snæfell, Snæ
fellsnesi efnir til skemmtiferðar
í Breiðafjarðareyjar n.k. s>unniu-
dag. 2. júJÍ. Lagt verður af stað
klukikan 10 árdegis frá Rifshöfn.
Farið verður með flóabátnum
Baldri og verða kaffiveitingar um
borð. Fangjald er kr. 300, farar-
stjóri er Björn Emilsson, for-
maður sjáMstæðisfélagsins Snæ-
flell.
Maí með 300 tonn
v/ð Grænland
— Jbrátt fyrir erfiðleika vegna iss
Ævar Hólmgeirsson, sem tók
út af Sigurborgu frá Siglufirði
á síldarmiðunum fyrir Norð-
Austurlandi, eins og skýrt var
frá í blaðinu í gær. Skipsfélagi
Ævars, Þórður Ársælsson, stakk
sér eftir honum, en tókst ekki
að bjarga honum og var sjálfur
að þrotum kominn, er annar
skipsmaður, Sverrir Jónsson,
stakk sér útbyrðis og synti með
bjarghring til Þórðar. Skipið
lónaði í 2—3 klst. á sömn slóð-
nm og leitaði Ævars, en sú leit
bar ekki árangur.
TOGARINN Maí frá Hafnarfirði
er nú að veiðum við Grænland
og gengur bærilega þó að mikill
ís sé á miðunum. Morgunblaðið
hafði í gær samband við Halldór
Halldórsson, skipstjóra, sem
sagði að veiðarnar hefðu gengið
erfiðlega vegna íssins. Nokkur
skip voru fyrir á miðunum þegar
Maí kom þangað, en hrökluð-
ust fljótlega burt vegna íssins.
En þrátt fyrir erfiðleikana var
Maí búinn að fá 300 tonn af
góðum karfa og á sjálfsagt eftir
að bæta vel við sig þvi að tog-
arinn kemur ekki til lands fyrr
en á mánudagsmorgun.
12,2 mtfljónam joinað
niður á Húsvíkinga
ÚTSVARSSKRÁ Húsavíkur var
lögð fram í gær. Jafnað var nið-
ur 11 milljónum 149 þús. á 542
einstaklinga og 1 milljón 62 þús.
á 20 félög.
Við niðurjöfnun var fylgt lög-
boðnum gjaldstiga, en útsvör
Framhald á bls. 2.
Fyrstu kúlurnar ber-
ast til Surtseyjar
EINS og skýrt hefur verið
frá hér í blaðinu,, stóðu for-
ráðamenn Surtseyjarfélags-
ins fyrir því, að gular froðu-
plastkúlur voru settar í sjó-
inn fyrir utan Klauf í Heima
ey í Vestmannaeyjum. Var
ætlunin að rannsaka með
þessu móti strauma við Surts
ey. Nú hefur Morgunblaðið
fregnað, að fyrstu kúlurnar
bárust til Surtseyjar aðfara-
nótt sl. fimmtudagsins.
Sigurður Richter, náttúru-
fræðinemi , sem fylgjast mun
með kúlunum, sem berast til
Surtseyjar, tjáði blaðinu í
gær að fyrstu kúlurnar hefðu
fundizt í fjörunni í norður-
hluta eyjarinnar snemma 1
gærmorgun og höfðu þær
borizt að landi þá um nótt-
ina, þegar norðvestan átt var
og vindáttin því mjög hag-
stæð. Voru kúlurnar mörg
hundruð að tölu, og enn má
búast við að fleiri berist til
eyjarinnar næstu daga eink-
um ef áttin breytist lítið eða
ekkert. Sagði Sigurður að nú
væri fyrsta áfanga þessarar
sérstæðu tilraunar náð.
Er fólk, sem kann að finna
þessar kúlur við suðurströnd
íslands, vinsamlegast
beðið um að láta Surtseyjar-
félagið vita Pósthólf 1238 R.