Morgunblaðið - 25.08.1967, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.08.1967, Blaðsíða 4
 4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1967 BÍLALEIGAN • FERÐ - Daggjald kr. 350,- og pr. km kr. 3,20. SÍMI 34406 SENDU M MAGIVUSAR SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190 eftir lokun sími 40381 " Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstrætl 11. Hagstætt teigugjald. Bensín tnnifalið í leigugjaidi Sími 14970 BÍLALEIGAN - VAKUR - Sundlaugaveg 12. Simi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. SPARIfl TÍMA FYRIRDOFN f,--—* BflAlf/trAN RAUÐARARSTlG 31 SÍMI 22022 Flest til raílagna: Rafmagnsvörur Heimilstæki (Jtvarps- og sjónvarpstæki Suðurlandsbraut 12. Sími 81670 (næg bílastæði) BíLAKAUR-^m* Vel með farnir bílar til sölu og sýnis íbílageymslu okkar að Laugavegi 105. Tækifæri til að gera góð bílakaup. — Hagstæð greiðslukjör. — Bílaskipti koma til greina. Comet 62 Volkswagen 1500 S 64 Anglia sendibíll 63 Taunus 12 M sendibíll 66 Opel Record 63 Fairlaine 500, 66 Volkswagen, 10 manna, 65 Volkswagen Fastback 66 Tökum góða bíla í umboðssölu Höfum rúmgott sýningarsvæði innanhúss. UMBOÐIÐ SVEINN EGILSS0N H.F. LAUGAVEG 105 SÍMI 22466 Vitavörðurinn kvæmilegri hætti. Akureyringur skrifar: . „Herra Velvakandi: ★ úraumar 1 grein eftir Helga Hallvarðs son um vitavörðinn á Horn- bjargi í Mbl. 13. ágúst sl. er talað um, að dúndrað sé úr haglabyssum á fuglamergðina í bjarginu og „til gamans“ lýst með stórum orðum afrek- um vitavarðar og félaga hans við svartfugladráp þar. í lögum um fuglaveiðar og fuglafriðun segir, að aldrei megi skjóta fugl í fuglabjörg- um. Er hér ekki um vítavert og refsivert athæfi að ræða, ef rétt er hermt? Svo stórfengleg slátrun svartfugls, sem í grein- inni ex lýst, virðist varla gerð nema í ágóðaskyni með mark- að í huga. Sök sér þótt vita- vörður fengi sér fugl og fugl í soðið, ef gex*t væri með viður- Lesandi skrifar: „Kæri Velvakandi: í dálkum þínum þ. 13. ágúst s.l. birtist bréf undir fyrirsögn- inni: „Laser-geislar með níföld um ljóshraða og Nýals-sinnar“. Ég heid að í þessu bréfi sé um svolítinn misskilning að ræða. í fræðigrein þeirri, sem fjallar um rafsegulbylgjur, kemur fyrir stærð, sem á ensku nefn- ist „phase velocity" en sem við gætum á íslenzku nefnt „fasa- hraða“. í sambandi við bylgju- leiðara (,,wave-guide“) í rad- artækjum o. fl., þá er stærð þessi jöfn ljóshraðanum deilt með cosinus af horninu sem geislínn myndar við veggi bylgjuleiðarans. Fasa-hraðinn getur því verið mörgum sinn- Hafnarfjörður Föndurskóli fyrir börn á aldrinum 5 til 6 ára, hefst 15. september. Upplýsingar í síma 52022. Guðrún Júlíusdóttir, fóstra. Vélaumboð, fyrirtæki Get tekið að mér sjálfstætt eftirlit, viðhalds- og við- gerðaþjónustu. Fyllsta vélstjóramenntun og víðtæk reynsla. Sími: 20609. Laxveiði, Hrútaf jarðará 28., 29., 30. og 31. ágúst lausir vegna forfalla. Upplýsingar í síma 30909 og 33430. Til leigu Skrifstofuhúsnæði, 1. hæð um 100 ferm. og ris til leigu í Aðalstræti 7. — Nánari uppl. E. HELGASON & CO., Aðalstræti 7. um meiri en ljóshraðinn. Þetta þýðir þó ekki það, að nein orku- eða efnisögn, þar með talin rafsegulbylgjan í bylgju- leiðara eða annarsstaðar, geti farið hraðar en með ljóshraða. Tökum dæmi þessu til skýring- ar: Steini er varpað á sléttan vatnsflöt. Ölduhringir myndast á yfirborðinu, og eftir vissan tíma hafa öldur borizt að öðr- um ákveðnum stað á yfirborði vatnsins, en með hraða sem er minni en hraði hverrar öldu fyrir sig. Sé vel að gáð, sést, að er ein alda dofnar og hverf- ur, þá rís önnur bak við hana, og á hún því lengra eftir ófar- ið. Þannig gengur þetta koll af kolli. Þótt við látum hugann „reika“ um milljarða ijósára fjarlægðir á broti úr sekúndu, þá fæ ég ekki séð að slík starf- seani í mannsheila brjóti í bága við afstæðiskenningu Einsteins. Það mundi vissulega verða með merkari atburðum í sögu vísindanna, ef hin sérstaka af- stæðiskenning Einsteins yrði afsönnuð. Ég hef ekki trú á því að svo yrði. Bezt er þó að full- yrða sem minnst, en gera sér grein fyTÍr því, að þekking okkar, eða öllu heldur hugsun- arsvið okkar, er svo afar tak- markað. En ég er þeirrar skoð- unar, að fyrir þá, sem leita að orsökum drauma og annarrar heilastarfsemi, þá sé vænlegra til árangurs að rannsaka minni mannsins, þar með talið kyn- slóðaminnið, ef til er, sem e.t.v. má rekja ótal aldir aftur í tímann, og hvernig það blandast atriðum nútímans í undirmeðvitund mannsins. Und irmeðvitundin skilar kannske einhverjum þessara óþekkjan- legu kynjamynda til meðvit- undarinnar í formi drauma eða hugsana. Minnissameindir heil ans, bæði erfðar og áxmnar, tel ég líklegri skýringu, en ein- hver fjar-áhrif, sem virðist miklu ólíklegra að til séu. Ég held að við þurfum ekki að vísa á bug einu af viðurkennd- um lögmálum nátturunnar til þess að útskýra fyrirbærið „draumar". Við ættum einmitt alls ekki að vísa þessu lögmáli á bug því að ýms lögmál, sem standa og falla með því, hafa verið marg-staðfest með til- raunum, en hafa aldrei verið afsönnuð. Þau björguðu reynd- ar vísindunum úr hinum verstu ógöngum um síðustu aldamót. Ennfremur þetta: Mér virð- ist eín bein rökrétt afleiðing af þessum lögmálum vera sú, að tilveran sé tengd öðrum „tilverum“ á svipaðan hátt og einn staður í geimnum er tengdur öðrum, eða fortíðin tengd framtíðinni (á máli af- stæðiskenningarinnar: „Einn atburður tengdur öðrum“). Er e.t.v. í tilverunni aðeins eitt og það sama, séð frá mismun- andi sjónarhóli? Hin stórsnjöllu lögmál Ein- steins eiga trúlega eftir að reynast uppspretta nýrra upp- götvana, bæði í raunvísindum og heimspeki. Áhugasamur." jc Gamla fólkið Hannes Jónsson skrifar: „Vinur minn, Velvakandi. „Hversu lengi á að níðast á þolinmæði vorri“, sagði ein- hverntíma göfugur Rómverji Gamla fólkiíL sem reyndi eymdina, er etm að vinna, það hefir viljað hefja þjóðina upp úr skítnum. Án vinnu verður engin velmegun, það vita allir, en of fáir viðurkenna það. Gamla fólkinu er refsað fyrir að vinna, það eru lagðir á það jafn þungir skattar og þá, sem fullfærir eru. Mig minnir það væri 1887,, sem Þorlákur í Fífuhvammi bar fyrst fram frumvarp um elli- lífeyri, Síðan eru liðin 80 ár, og enn er ellilífeyririnn ekki hærri fyrir hjón en 57 þúsund um árið, greitt í hálfs eyris krónum. Það eru nægjusöm hjón, sem lifa á því. Og svo sér gamla fólkið fullfæra menn koma sér undan vinnu ,eyða og spenna. Það sér líka mennina, sem hreýkja sér hátt, safna milljörðum erlendis, en greiða furðu lága skatta. Þeir beztu gefa jafnvel skattana. Ég hefi verið að skrifa fyrir gamla vini mína, 70—80 ára, skakka og bjagaða, sem enn eru að vinna og eiga að greiða allt að 100 þúsund í skatta. Ég fæ enga áheyrn fyrir þá, dæmið er rétt reiknað. Við skattþjón- ana er ekki að sakast, og ekki heldur framtalsnefndina, þeir vilja gera vel. En af þeim er heimtað, að innheimta mikla peninga, sem fara í eyðslu og sukk. Ég skrifaði fyrir 73 ára gamlan vin minn, óvinnufær- an, sem sér til afþreyingar dundar við gamla iðn sína heima, og vinnur sér inn á ári um 30 þúsund. Þar af á hann að borga söluskatt, aðstöðu- gjald, iðnlánasjóðsgjald, launa skatt og slysatryggingu af sjálí um sér. Þessi gjöld eru ekki heimtuð af þeim, sem dunda við vinnu á elliheimilum, svo mikil er vitleysan ekki. Útsvar vinar míns var fellt niður, eftir beiðni. Að vísu vinnur kona hans nokkuð utan heimilis, annars kæmust þau ekki af. Annar vinur minn, álíka gam- all, varð að borga 76 þúsund 1 tekjuskatt og tekjuútsvar. Hann dregur á eftir sér annan fótinn, eftir bílslys. Ef unglingur frá fátæku heimili vill leita menntunar, verður hann að vinna mikið að sumrinu. Ef hann losnar undan því, að greiða skyldu- sparnað, fær hann ekki skóla- frádrátt frá skatti. Börn efn- aðra foreldra þurfa ekki að vinna, né greiða skyldusparn- að. Þetta er léleg jafnaðar- mennska. Gamla fólkið hefir byggt upp þjóðfélag okkar frá grunni með vinnu sinni. Það hefir verið jafnvægi þjóðfélagsins á umrótstimum. Það á að mestu að vera undanþegið sköttum, vera nokkurskonar heiðurs- borgarar. Millistéttin, smákaupmenn og iðnaðarmenn, þolir ekki sí- aukna skatta, þar er hrun framundan. Nú hefir sumar- kaupíð brugðizt hjá mörgum vegna erfiðs árferðis, og verð- ur svo áfram. Atvinnuleysi blasir við í haust, með örvænt- ingu og umróti, sem því fylgir. Eitthvað verður að reyna, en allra helzt að hætta við að leika stórveldi, og dreifa ekki fjármununum um of. Það gerir ekkert, þó eitthvað af dreifbýlinu fari í eyði. Það verður tiltækt síðar, ef á þarf að halda. Hannes Jónsson, Ásvallagötu 65.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.