Morgunblaðið - 25.08.1967, Page 5
WTCmGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1967
5
STYTTAN Vatnsberinn eftir
Ásmmid Sveinsson hefur
nú váirið steypt í kopar og
sett niður á fallega grágrýt-
isklöpp efst á Liftlu-Hlíð
Fyrir tæpum tuttugu árum
blossaði upp harðvít-
ug ritdeila í reykvískum
blöðum út af þessu verki,
þegar setja átti það upp í
Miðbænum. Einn deiluaðila
lýsti því þá yfir, að ef af
uppsetningunni yrði, skyldi
hann ganga á styttuna m.;ð
sleggju og mölva hana nið-
ur. Var þá hætt við fyrir-
hugaða uppsetningu.
— Ætli það séu ekki ein
tuttugu ár síðan, að Fegr-
unarfélagið sáluga með
Ragnar í Smára í broddi
fylikingar keypti þessa mynd,
sagði Ásmundur, þegar við
fórum að s'koða Vatnsber-
ann einn daginn. Ætlunin
var að setja styttuna upp
við gamlan brunn við
Bankastræti. . Ég var nú
aldrei vel nægður með þann
atað. En svo komu blaðaskrif
in til sögunnar. Ég nennti
nú aldrei að lesa það allt
saman en ýmislegt var víst
látið þar flakka. Nú endir-
inn varð sá, að stytfan var
sett niður 'héina í garð-
horninu hjá mér. Það líkaði
mér stórvel. Hún tekur sig
vel út í horninu.
— En nú er Va'tnsberinn
kominn upp eftir allt saman.
— í>að held ég nú. Einn
góðan veðurdag hringdi
borgarstjórinn í mig og
spurði, hvort ég væri því
nokkuð mótfallinn, að styit
unni yrði komið fyrir ein-
hvers staðar. Ég tók nú
svona og svona í það, því
ég hefði saknað hennar úr
garðinum hjá mér. í>á sagði
borgarstjóri, að þeir ætluðu
að láta steypa hana í kopar.
Ég varð himinlifandi —
mér fannst þetta svo mikill
uppreisn fyrir Vatnsberann.
‘Hérna er Vatnsber-
inn ú réttnm stnð‘
— Og svo er styttan
steypt í kopar.
— Já, það var gert í fínu
stöberíi í Noregi. Ég sendi
þeim myndina í gifsi. Það
vantar annars alveg stað fyr
ir gifsmyndirnar. Það er ó-
fært að láta þær grotna nið
ur en ég hef ekkert pláss
sjálfur.
Svo kemur styttan og þá
þarf að velja henni stað.
Fyrst vildu þeir klína henni
fast við vatnsgeymana á
Öskjuhlíðinni. Það fannst
mér óráð. Eftir nokkra leit
fann ég svo fallega klöpp
austan Reykjanesbrau'tar.
Þann stað leist mér strax
vel á og þar stendur stytt-
an nú.
— Og hvað varð þér að
orði, þegar þú sást Vatnsber
ann fyrst á þessum stað?
— Ég sagði bara við hann
Hafliða, að ég hefði aldrei
séð styttuna eins glæsilega.
Sjáið þið sjálfir.
Meistarinn benti út um
bílgluggann. Við litum út
og sannarlega naut styttan
sín vel þarna á hæstu
klöppkmi með veðrað grá-
grýtið allt í kringum sig.
— Styttan hefur sótt sig
mikið við að komast í kop-
ar í vor, sagði meistarinn.
En hvað haldið þið, Um dag
inn sá ég tvo stráka vera að
rispa styttuna með smástein
um. Hamingjan sanna, hvað
á svonalagað að þýða. Ég
get rétt ýmindað mér, hvað
skeði, ef ég tæki upp á
þessu í París eða þá á Ítalíu.
ítalarnir mundu drepa mig
á- stundinni. Þeir líta á öll
listaverk sem heilaga dýr-
gripi — þeir hafa þetta
svona í sér.
Og Ásmundur spígsporaði
í kringum Vatnsherann —
strauk styttuna hátt og lákt.
Það var ástúð í þeim hand-
tökum.
— Hérna er hún á réttum
stað. Mér þykir mjög vænt
um þetta allt saman. Vatns-
berinn er fyrsta myndin
mín, sem sett er upp út í
óhreyfðri náttúrunni. Ég er
viss um að það fer vel um
hana hérna.
Heyrið þið strákar, sagði
hann við tvo patta, sem
komnir voru til að fylgjast
með. Viljið þið ekki gæta
styttunnar fyrir mi.g — vera
löggur?
— Jú, svöruðu strákarnir
hreyknir.
— Það roá ekki rispa —
ekki krota, sagði meistarinn
og hinir nýskipuðu verðir
kinkuðu alvarlega kolli.
Nú líður mér vel sagði
Ásmundur, þegar við ókum
heim á leið, ég vona bara
að strákarnir passi styttuna
vel.
— Til eru þeir, sem
segja, að styttur þínar hafi
yfir sér tröllslegan blæ.
— Það er gott — það er
rétt. Það er eins með járn-
smiðinn og Vatnstoerann —
ómögulegt að minnast þessa
fólks öðru vísi en gera úr
því tröll. Vissulega var það
tröllaskapur að byggja þetia
land áður fyrr. Þar dugðu
engar veimiltífur.
Reyndar er hugmyndin að
Vatns'beranum gömul
bernskuminning um vinnu-
konurnar á Kolstöðum fyr-
ir vestan. Þar er ég fæddur.
Þegar þær óðu út í hríðar-
bylinn — brutu vök á brunn
inn og komu aftur með full-
ar vatnsfötur — auðvitað
klakatorynjaðar. Nú er allt
breytt — tæknin komin
komin manninum til hjálpar
og allur tröllskapur horf-
inn.
Ásmundur horfði hugsi
út um gluggann.
— Að lokum ' Ásmundur.
Um hvaða mynd þykir þér
vænst?
Meistarinn brosti.
— Þetta er eins og að
spyrja tíu barna móðir um
það, hvaða barn hún haldi
mest upp á. Mér þykir vænt
um allar mínar myndir. Ég
hef alltaf reynt að gera mitt
bezta á hverjum tíma. Svo
verður tíminn að skera úr
um það, hvað af þessu dóíi
stenzt og hvað ekki.
Við hringdum í Gunnar
Einarsson í Leift.ri en hann
var einn þeirra, sem hvað
harðast toarðiist gegn upp-
setningu Vatnsberans um ár
ið.
— Já, það er alveg rétt,
sagði Gunnar. Ég var mjög
á móti þessu. Mér hefur
aldrei þótt þetta vera lista-
verk — heldur skrímsli og
með selshaus. Það sem við,
sem gegn uppsetningunni
börðumst, höfðum helzt
móti henni var það, að við
töldum styttuna móðgandi
fyrir það fólk, sem eitt sinn
hafði atvinnu af vatnsburði
hér í Reykjavík. Það er eng-
in mannsmynd á þessum ó-
sköpum.
— En nú er stytfan komin
upp.
— Ójá.
— Hefur þú farið og skoð
að hana?
— Nei, og hef ekki hugs-
að mér að gera það.
— Álit þitt hefur þá ekk-
ert breytzt með árunum?
— Nei, ég er ennþá sama
sinnis. Ég nenni ekki að
vera að berjast gegn þessum
vindmyllum nú — hef allt
annað með tímann að gera.
Reyndar skilst mér, að bær-
inn hafi keypt Ásmund fyr-
ir mörgum árum og er þá
ósköp skiljanlegt að hann
vilji koma þessu drasli út
og drita því einhvers staðar
niður svo að það safniist
ekki í hauga innfrá hjá hon
um sjálfum. En mín sikoð-
un stendur enn óhögguð,
hvað sem hver segir.
§
ALLT MEÐ
i
s
Á næstunni ferma skip vor
til íslands, sem hér segir:
4NTWERPEN:
Marietje Böhmer 26. ágúst
Bakkafoss 5. sept. **
Seeadler 15. sept. **
Bakkafoss 26. sept.
Seeadler 6. okt. **
BAMBURG:
Skógafoss L sept.
Reykjafoss 12 sept.
Goðafoss 16. sept. **
Skógafoss 22. sept.
Reykjafoss 3. okt.
Goðafoss 12 okt. **
Skógafoss 13. okt.
ROTTERDAM:
Skógafoss 30. ágúst
Reykjafoss 8. sept
Goðafoss 11. sept. **
Skógafoss 19. sept.
Reykjafoss 29. sept.
Goðafoss 9. okt. **
Skógafoss 10. okt.
LEITH:
Gullfoss 4. sept.
Gullfoss 22. sept.
Gullfoss 13. okt.
LONDON:
Marie'tje Böhmer 29. ágúst
Bakkafoss 8. sept. **
Seeadler 19. sept. **
Bakkatfoss 29. sept.
Seeadler 10. okt. **
HULL:
Marietje Böhmer 31. ágúst
Bakkafoss 11. sept. **
Seeadler 21. sept. **
Bakkafoss 2. okt.
Seeadler 12. sept. **
NEW YORK:
Selfoss 31. ágúst
Brúartfoss 15. sept.
Fjallfoss 29. sept. *
Seifoss 13. okt.
GAUTABORG:
Tungufoss 29. ágúst **
Mánafoss 12. sept.
Tungufoss 19. sept. **
Dettifoss 2. okt.
K AUPM ANNAHÖFN:
Tungufoss 28. ágúst **
Gulltfoss 2. sept.
Mánafoss 13. sept. **
Gullfoss 20. sept.
Dettifoss 30. sept.
Gullfoss 11. okt.
KRISTIANSAND:
Tungufoss 26. ágúst **
Tungutfoss 15. sept. **
BERGEN:
Tungufoss 31. ágúst **
Tungufoss 21. sept. **
KOTKA:
Rannö 9. sept.
Dettifoss 23 sept. **
VENTSPILS:
Rannö 13. sept. **
GDYNIA:
Mánafoss 29. ágúst
Askja 16. sept.
Dettifoss um 28. sep't.
* Skipið losar á öllum að-
alhöfnum Reykjavík,
ísafirði, Akureyri og
Reyðarfirði.
** Skipið losar á öllum að-
alhöfnum, auk þess i
Vestmannaeyjum, Siglu
firði, Húsavík, Seyðis-
firði og Norðfirði.
Skip sem ekki eru
merkt með stjörnu losa
í Reykjavík.
EIMSKIP