Morgunblaðið - 07.09.1967, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. SEPT. 1967
Wassilij Stalin, glaumgosi,
flugforingi, drykkjumaður
Krúsjeff vildi bjarga
syni einræðisherrans
AÐ undanfömu hefur vestur
þýzka tímaritið „Stem“ birt
greinaflokk um fjölskyldu
Stalíns, fyrrum einræðis-
herra Sovétríkjanna. Með
greinum þessum hefur tíma-
ritið birt myndir, sem taldar
hafa verið í fórum rússnesku
leynilögreglunnar til þessa
og hafa vakið mikla athygli.
látið yrði liggja í þagnar-
gildi.
Það sem einkum hefur þó
vakið tortryggni gagnvart
frásögn Stems, eru myndir
þær, sem tímaritið birtir
með frásögninni. Því fer þó
fjarri, að efast sé um sann-
leiksigildi myndanna, heldur
hefur það vakið tortryggni
ast hafa gerzt öðm vísi nema
með samþykki sovézkra yf-
irvalda og þá vaknar spum-
inigin: í hvaða tilgangi? Nær
tækasta svarið, sem almennt
er fallizt á, er það, sem getið
var hér að framan: Að gera
Svetlönu Alleujewu og þá
um leið endurminningar
hennar sem í vændum em,
tortryggilegar.
En hvað um það. Mynd-
irnar, sem birtar em í fyrsta
sinn á Vesturlöndum og
Wassilij Stalín var þríkvæntur. Hér sést hann með þriðju
konu sinni, Kapitalínu, sem var frábær sundkona og er nú
sundkennari í Moskvu.
Swetlana Allelujewa ásamt börnum sínum Kötju og Josef í sumarleyfi við Svartahafið.
Þessar myndir eru fyrst og
fremst af fjölskyldumeðlim-
um hins látna einræðisherra
og skýrir Stern í frásögn
sinni frá ýmsu úr persónu-
legu lifi þeirra, sem leynt
hefur farið til þessa.
Ymsir hafa hins vegar orð-
ið til þess að rengja frásögn
tímaritsins, m.a. vegna þess
að það hafði áður keppzt um
að fá einkarétt á birtingu
endurminninga Svetlönu
Alleujewu, dóttur Stalíns en
orðið undir í þeirri sam-
keppni. Frásögn sú, sem
Stern birtir í staðinn, á að
vera komin að austan, efnið
lagt til að meira eða minna
leyti af sovézku yfirvöldun-
um sjálfum, sem hafi viljað
fá tækifæri til þess að verða
á undan Svetlönu, en endur-
minningar hennar eiga að
birtast mjög bráðlega. Það,
sem gefur tilefni til þessar-
ar ályktunar, er, að í frásögn
Sterns eru birt ummæli, þar
sem Svetlana er rægð eða
reynt að kasta rýrð á hana.
Þá er þar enn fremur skýrt
frá ýmsu, sem hún minnist
ekki á í endurminningum
sínum og eigi það að hafa
verið gert að ásettu ráði
hennar.
Þannig sé verið að varpa
rýrð á Svetlönu á ýmsan hátt
og ýta undir tortryggni gagn
vart sannleiksgildi endur-
minninga hennar, en búizt er
við, að þar komi mjög margt
fram, sem sovézk yfirvöld
hefðu urnfram allt kosið, að
fólks, með hvaða hætti Stem
hefur getað komizt yfir þær.
Þetta eru myndir, sem rúss-
neska leynilögreglan hefur
haft í nákvæmri vörzlu sinni
og hljóta því að vera þaðan
komnar. Slíkt getur þó naum
sumt í frásögn Sterns hafa
vakið mikla athygli og þá
9érstaklega þeir þættir frá-
sagnarinnar, sem fjalla um
hinn ógæfusama feril Wass-
ilijs, uppáhaldssonar Stalíns.
Hér eru birtar nokkrar þess-
ara mynda og greint frá
nokkrum þáttum þessarar
frásagnar, og þá fyrst og
fremst frá ferli Wassilijs
Stalíns.
Wassilij Stalin, bróðir Svetl-
önu, komst a& raun um það vor-
ið 1953, aðeins fáeinum vikum
eftir dauða föður síns, er eftir-
menn einvaldsins voru önnum
kafnir í valdabaráttunni sín á
milli, að nýtt tímabil var runn-
ið upp í sögu Sovétríkjanna.
Hinn drambsami lijðsforingi í
flughernum, sem þá var 33 ára
gamall, komst að raun um þetta
á yfirfullum vei'tingastað Hotel
Moskvu, sem er í aðeins nokkur
hundruð metra fjarlægð frá
Kreml. Wassilij óð inn i mat-
sal veitingastaðarins með nokkr
um svallfélögum sínum og benti
með sama hætti og áð'ur fyrr-
um með valdmannssvip næsta
þjóni að ryðja borð það, þar sem
hann var vanur að sitja við og
að reka burtu friðsamlegan hóp
sovézkra borgara, sem sátu þar
og snæddu.
Þjónninn gerði ekkert í þessa
átt, heldur svaraði snarráður og
stuttorður: „Völdin hafa
brey>tzt“.
Wassilij skildi heiminn ekki
lengur. Hann æpti og sló í kring
um sig. Þessir ræflar, þeir
skyldu fá að beygja sig fyrir
nafninu Stalín.
Þeir vildu það ekki lengur.
Nokkrir hugrakkir gestir gripu
hinn drukkna yfirliðsforingja og
héldu honum föstum, unz lög-
reglan kom og flutti hann burt.
Þessi atburður var upphaf
fjölda svipaðra ávirðinga, sem
ollu því, að eftir dauða Stalíns
hrapaði Wassilij ört stig af stigi
niður mannfélagsstigann.
Mesti glaumgosi Moskvu
Wassilij Stalín var alinn upp
algjörlega í skjóli föður síns.
Tíu ára gamall lék hann sér
bak við stýri bifreiða í eigu rík-
isins. 115 ára gamall átti hann
sín fyrstu ástarævintýri með
þjónustustúlkum, sem störfuðu
við heimilishald föður hans. Haft
er ef'tir þeim, sem höfðu það
hlutverk að ala Wassilij upp, að
Stalín hafi brugðizt rólegur við
þessu með þeim orðum, að
„kraftmikill strákur yrði að fá
að hlaupa af sér hornin“.
Hinn lélegi vitnisburðuir son-
arins gerði samt einvaldsherr-
ann órólegan, svo að hann léf
senda son sinn 1938 á sérstak-
an skóla fyrir fótgönguliða í
hernum og síðan í forskóla fyr-
ir flugherinn. Eins og hver reglu
samur heimilisfaðir, skrifaði
Stalin fram að stríðsbyrjun í
vitnisburðabækur barna sinna,
að sér hefðu verið sýndar þær.
Árið 1941, er Hitler gagnstætt
því sem Stalín hafði gert ráð
fyrir, lét þýzka herinn ráðast
inn í Sovétríkin, var Wassilij
undirforingi í orrustuflugsveit í
Moskvu. Það, sem þá gerðist,
hinn ótrúlegi og skyndilegi her
frami hans, svipti hinn unga
mann öllu sambandi við raun-
veruleikann.. Stalín var glaður
yfir því, að sonur hans hafði val
ið flugherinn, sem var í mestu
samræmi við hæfileika hans og
áhugamál. Allir starfsmenn
Stalíns vissu þetta og vildu auð-
vitað gera si'tt til þess að þókn-
ast föðurnum. „Það var hlaðið
lofi á piltinn“, er haf't eftir Krú-
sjeff.
Wassilij voru þakkaðir 34 sigr
a«- í loftorrustum og heiðurs-
merkjum var hlaðið á hann. í
lok stríðsins, er hann var 24 ára,
var hann skipaður yfirliðsfor-