Morgunblaðið - 07.09.1967, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. SEPT. 19€7
H
ingi. í>eir, sem til þekktu, vissu
hins vegar, að þessi unga hetja
hafði breytz)t í drykkjusvola og
áflogahund. Þannig segist Josef,
syni Svetlönu Allelujewu,
frænda Wassilijs, en Stern full-
yrðir, að mikið af írásögn sinni
sé byggt á viðtölum við Josef,
að Wassilij hafi sem glaumgosi
átt til hin furðulegustu uppá-
tæki. Þannig tamdi Wassilij
einn hesta sinna sérstaklega fyr
ir það, að birtast sem óbeðinn
ges'tur í samkvæmum. f sumar-
húsi Wassilijs settust gestir hans
að ríkulegu veizluborði í sam-
kvæmi hans, en á sama augna-
bliki bixtist hesturinn og át allt,
sem á borðinu var, en kvenfólkið
æpti upp yfir sig, skelfingu lost
ið.
Sjaldan alsgáður, en klæddur
liðsforingjabúningi, ók Wassilij,
hvort heldur að degi eða nóttu,
í sportbíl sínum að heiman og
notaði sem einkakappaksturs-
brautir stræti þau við Kreml,
sem sérstaklega voru ætluð
æðstu embættismönnum þar. Á
hinum fáu næturklúbbum, sem
til voru, var hann sífelldur og
hávaðasamur gestur, Hjónabönd
hans entust illa, hann varð þrí-
kvænjtur.
Stalín grípur í tanmana
Loks tekur Stalín í taumana.
Sökum ó'hóflegrar áfengisneyzlu
var Wassilij sjálfur fyrir löngu
hættur að geta flogið og lét
flugsveit sína gagnstætt fyrir-
mælum flugyfirstjórnarinnar
fara á lofit i þoku við 1. maí há-
tíðahöldin 1952. Þetta olli glund
roða, svo að til flugvélaárekst.ra
kom. í fyrsta sinn minntust há-
talararnir á Rauða torginu ekki
með ákefð á „flugsveitir undir
stjórn Wassilij Stalíns hers-
höfðingja".
Faðirinn í Kreml taldi ráð-
legt að senda son smn til frek-
ara náms við fiugháskólann,
en Wassilij sótti enga fyrirlesitra.
Hann var þegar orðinn andlega
truflaður áfengissjúklingur, and
lit hans var orðið þrútið og líkam
inn eyðilagður. Hann kaus held-
ur hið ljúfa líf en frekari þjálf-
un í flughernum.
Nikita Krúsjeff varð sjálfur
vitni að hinum áberandi rudda-
skap Wassilijs við dánarbeð
Stalíns. Eins og Svetlana hafði
verið kallað á Wassilij til sum-
arhúss föður þeirra, er Stalín
varð fyrir hjartaslagi. Wassilij
stóð mitt á meðal læknanna og
flokksembættismannanna og
hvolfdi í sig hverju vodkaglas-
inu á eftir öðru. Loks varð að
styðja hann reikandi út úr hús-
iu og hélt hann síðan áfram
drykkju í húsakynnum þjónustu
fólksins.
Við jarðarförina olli hann
einnig hneyksli. Hann var þar
líka drukkinn og ásakaði há-
stöfum lækna þá, er stundað
höfðu föður hans, um, að þeir
hefðu „gefið föður sínum eitur“
og að meðlimir ríkisstjórnarinn
Tvöfalt gler
Útvegum frá V.-Þýzkalandi
sérstaklega vandað tvöfalt
einangrunargler.
10 ára ábyrgð.
^erzlunín^
•w
Laugavegi 29 - Sími 24321
ar hefðu einnig átt þar hlut að
máli.
Stalín lézit 5. marz 1953. Hinn
'28. apríl þar á eftir lenti Wassilij
að nýju í áflogum á veitinga-
stað, eins og greint vair frá hér
að framan, og var handtekinn af
lögreglunni. Herdómsitóll, sem
kallaður var saman í skyndi,
dæmdi þennan mann, sem hlotið
hafði hershöfðingja tign í skjóli
föður síns, í átta ára fangelsi.
í ákæruskjalinu var honum gef
ið að sök að hafa átt þátt í því
ásamt öðrum, að nokkrir foringj
ar í hernum misstu lífið og að
hann hefði með rógi komið yfir-
manni sínum, Nowikow mar-
skálki, í fangelsi.
Wassilij, sem nú hafði rankað
við sér úr drykkjuvímu sinni,
trúði því, að eftirmenn föður
h'ans vildu ryðja sér úr vegi.
Engu að síður skrifaði hann úr
Wladimir-fangelsinu auðmjúk
bréf með náðunarbeiðnum ein-
miitt til þessara manna. ■
Krúsjeff reyndi að bjarga
Wassilij
Áður en Wassilij var látinn
laus úr fangelsinu í janúar 1960,
lét Nikita Krúsjeff, sem í milli-
tíðinni var kominn til valda,
málið ti-1 sín taka. Hann boðaði
Svetlönu á sinn fund og bauðst
til þess að láta í té vel yfir-
vegaða hjálp. Bróðir hennar
skyldi fá eftirlaun hershöfðingja,
íbúð og sumarhús við Moskvu, ef
hann hegðaði sér sómasamlega
í framtíðinni, skipti um nafn og
lifði hæglátu lífi. Ennfremur
skyldi hann forðasit Georgíu
Swetlana hét því að reyna að
hafa áhrif á bróður sinn í þessa
átt.
Wassilij tókst aðeins að halda
þessi skilyrði í þrjá mánuði í
Moskvu. Hinn kæni Krúsjeff dró
um þessar mundir enga dul á
þann ótita sinn, að í Georgíu, hin
um upphaflegu heimkynnum
Stalíns, kynni að myndast þjóð-
ernishreyfing með „krónprins-
inn“ Wassilij í fylkingarbrjósti.
Þess vegna ' skyldi erfinginn
halda sór í fjarlægð frá Kákasus
enda þótt hann langaði þangað
vegna fjölmargra drykkjufélags,
sem hann átti þar. Vegna brots á
ferðabanni því, sem Krúsjeff
hafði lagt á hann, var Wassilij
handtekinn að nýju í Kislo-
wodsk í Kaukasus. Hins vegar
varð að láta hann iausan aftur
þegar vorið 19®1 vegna hins lé-
lega heilsufars hans.
Áfengið hafði eyðilagt maga
hans og lifur. Ásamt hjúkrunar
konunni Mascha, sem hafði
stundað hann í fangelsissjúkra-
húsinu og varð ástmey hans,
fluttist Wassilij, sem nú var full
komið rekald til hinnar gömlu
Tartaraborgar, Kasan. Hann for
mælti konum sínum, börnum og
fjölskyldu. Wodka var orðið hans
einasla huggun. Þannig lézt
hann 19. marz 1962, aðeins 41
árs að aldri.
AUGLYSING
Vegna malbikunarframkvæmda á Bæjarhálsi og
Höfðabakka, verða þær götur lokaðar frá og með
fimmtudeginum 7. sept., um óákveðinn tíma.
Á meðan verður Rofabærinn opnaður fyrir gegn-
umakstur frá Vesturlandsvegi á Suðurlandsveg.
Ökumenn eru áminntir um að gæta sérstakrar
varúðar, er þeir aka um Rofabæinn, vegna gangandi
fólks og skólabarna.
GATNAMÁLASTJÓRINN f REYKJAVÍK.
AVALLT A IJIMDAIM
TVÆR IMÝJAR RAFRITVÉLAR
IBM STAIMÐARD MODEL D
IBM EXECUTIVE MODEL D
Helztu nýjungar: Nýtt lyklaborð ^ Sjö síritarar ^ Hálft orðabil Nýtt glæsi-
legt útlit 'fc Auk fleiri nýjunga.
IBM Model D rafritvélin sannar enn einu sinni að IBM er ávallt hestlengd á nndqn
í þróuninni.
Komið og kynnizt þessari nýju og glæsilegu rafritvél
SKRIFSTOFUVÉLAR B
Hverfisgötu 33 — Sírai 20560.