Morgunblaðið - 25.11.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. NÓV. 1967
Kýpurdeilan:
Hætta á styrjöld ef engin
lausn finnst nú um helgina
„Neyðumst til að leysa málið í eitt skipti
fyriröll", segir forseti Tyrklands
Aþenu, Ankara, New York,
24. nóv. AP-NTB.
Ófriðlegar horfir í Kýpur-
deilunni með hverjum degi
og er nú svo komið, að menn
eru undir það búnir, að upp
úr sjóði hvað úr hverju. For-
seti Tyrklands, Cevdet Su-
nay, hefur sent orðsendingu
til fjölda þjóðaleiðtoga, þar
sem hann segir, að Tyrkir
neyðist nú til þess að leysa
Kýpurmálið í eitt skipti fyrir
ÖIl. Tveir þriðju hlutar tyrk-
neska flotans eru til staðar
á Miðjarðarhafinu, milli hafn
arborganna Mersin og Iskan-
derun, á suðurströnd Tyrk-
lands og rétt norðan og norð-
austan við austurodda Kýpur.
t f New York hefur fulltrúi
Kýpur hjá Sameinuðu Þjóð-
unum óskað eftir þvi, að Örygg-
isráðið komi saman til fundar
þegar í stað til þess að ræða
ástandið. Og bæði U Thant,
framkvæmdastjóri S.Þ. og Lyn-
don B. Johnson, forseti Banda-
ríkjanna, hafa haft sendimenn
sína i ferðum milli Ankara og
Aþenu til þess að reyna að koma
í veg fyrir vopnaviðskipti. Er
óttast ,að verði málið ekki leyst
nú um helgina, muni sjóða upp
úr og koma til hernaðar milli
Tyrkja og Grikkja. Herir beggja
eru reiðubúnir til átaka en hætt
er við, að Grikkir fái illa stað-
izt Tyrkjum snúning, ef til hern
Björn E. Árnnson,
endurskoðnndi látinn
BJÖRN E. Árnason, löggiltur
endurskoðandi, lézt í Landspít-
alanum sl. fimmtudag 71 árs að
aldri.
Björn var fæddur á Sauðár-
króki 26. febniar 1896, sonur
hjónanna Líneyjar Sigurjónsdótt
ur og Áma Björnssonar síðar pró
fasts að Görðum á Álftanesi.
Hann varð stúdent 1917 og lauk
kandidatsprófi í löguim 1924.
Nam hann samtímis og síðar alls
konar endurskoðun, og varð lög-
giitur endurskoðandi 1929. Á ár-
unum 1925—27 starfaði hann í
fjármálaráðuneytinu, var endur
skoðandi hjá sýslumönnum 1925-
26 og í matsnefnd Landsbanka
íslands 1927—28.
Björn var starfsmaður við úti-
bú'bú Centralanstalten for Revis-
ion og Driftsorganisation hér á
landi 1921—24, en keypti þá úti-
bú þetta með N. Hanscher og rak
endurskoðunarskrifstofu ásamt
honum til 1930. Hefur síðan rek-
ið eigin endurskoðunarskrifstofu
í Reykjavík. Hann var aðalend-
urskoðandi ríkisinis 1943—49.
Tók sæti í kauplagsnefnd, er hún
var stofnuð 1939 og hefur verið
formaður fyrir löggildingu end-
urskoðenda frá upphafi. Björn
átti sæti í stjórn og fram-
kvæmdaráði Rauða kross íslands
um margra ára skeið. Hann hef-
ur verið sæmdur heiðursmerkj
um Rauða krossins, Karlakórsins
Fóstbræðra og Sambands ísl.
karlakóra.
Kvæntur var Björn Margréti
Ásgeirsdóttur, hreppstjóra og
dibrm. á Arngerðareyri Guð-
mundssonar, og lifir hún mann
sinn.
Björn E. Árnason var endur-
sjkoðandi Morgunblaðsins og
hafði verið um áratuga skeið.
Útgáfufélag blaðsins sendir konu
hans, börnum og öðrum ættihgj
um samúðarkveðjur.
Er Mao að
falli kominn ?
Tokio, 24. nóv. AP.
HAFT er eftir brezkum sendl-
manni í Tókíó og byggt á upp-
lýsingum frá Peking, að eins lik
legt sé ,að Mao Tze tung> for-
maður kínverska kommúnista-
flokksins og fylgismenn hans,
verði ekki miklu lengur við völd
í Kina.
Þá herma fregnir frá For-
mósu, að andkommúnískir skæru
liðar hafi gert árás á flugstöð
í Pingtan. um 112 km austur af
Knaton. Segist talsmaður land-
varnarráðuneytisins á Formósu,
Liu Hsun-Wu, hershöfðingi, að
fregnir hafi fyrst borizt um
þetta frá Hong Kong og hafi þá
stjórn Formósu látið kanna mál-
ið. Fregnin hafi fengizt staðfest
í stórum dráttum. en ennþá
liggi ekki fyrir upplýsingar um
nánari atvik.
Fyrrgreind frétt um, að fall
Maos og suðningsmanna hans sé
e.t.v. yfirvofandi, kom fram á ráð
stefnu, sem staðið hefur yfir í
Tokíó sl. þrjá daga> og setið hafa
m.a, James D. Murray, yfirmað-
ur þeirrar deildar brezka utanrík
isráðuneytisins, sem fjallar um
málefni Austurlanda og Hideo
Kitahara, forstöðumaður þeirrar
deildar japanska utanríkisráðu-
neytisins. sem fjallar um utan-
ríkisviðskipti. Var þetta undir-
búningsfundur fyrir sjötta fund
utanríkisráðherra landanna, en
hann verður haldinn í janúar nk.
Er haft eftir góðum heimildum,
að þar hafi fyrst og fremst ver-
ið rætt um, hvað gerast kunni
og hverja stefnu beri að taka.
að Mao Tze tung föllnum.
aðar kemur. Þeir eru, í fyrsta
Iagi, aðeins átta milljónir tals-
ins á móti 31 milljón manna í
Tyrklandi, í öðni lagi telur her
Grikkja, eftir því sem næst
verður komizt, aðeins 158.000
manns á móti 480.000 manna her
Tyrkja. Báðir herirnir eru vel
búnir vopnum og hergögnum og
vel þjálfaðir. Floti Grikkja er
sterkari en Tyrkja, sem aftur
á móti hafa yfirburði í flug-
flota og þann aðstöðumun, að
eiga ekki nema 65 km að fara
til Kýpur en Grikkir um 800
km.
í orðsendingu Sunays forseta,
sem hann sendi m.a. Johnson,
Bandaríkjaforseita, Elizabetu,
Englandsdrottningu, de Gaulle,
forseta Frakklands, Podgorní,
foraeta Sovétríkjanna og öllum
leiðtogum Arabaríkjanna, segir,
að Tyrkir hafi verið neyddir til
þess að krefjast endanlegs upp-
gjörs út af Kýpur. Þeir þvoi hend
ur sínar af allri ábyrgð á því,
hvernig komið sé málum, því að
Tyrkir hafi reynt allt, sem hægt
var, til þess að fá Kýpurdeil-
una leysta með friðsamlegum
hætti. Forsetinn segir, að tyrk-
nesku íbúarnir á Kýpur hafi
búið við óþolandi miisrétti og
þvinganir og stjórnin í Aþenu
hafi stutt hvers kyns andtyrk-
neska starfsemi á eynni.
Stjórnin á Kýpur er við öllu
búin og hefur kallað út þjóð-
varnarliðið, sem telur um tíu
þúsund manns og er að mestu
undir stjóm grískra henforingja.
Fjögur tyrknesk herfylki, þar
af tvö fallhlífarherfylki, hafa
verið flutt til Mersin og flug-
stöðvarinnar Incirlik. Þá herma
fregnir frá Adana, að tymeskaf
orrustuiþotur hafi flogið hvað
eftir annað yfir Kýpur í dag.
Frá Mersin herma fregnir, að
nýtt tyrkneskt flutningaskip
hafi í dag verið hlaðið sex nýj-
um landgönguprömmum og önn-
ur skip, minni, hafi tekið vopn
og hergögn önnur, m.a. vömbif-
reiðar og jeppa. Tyrknesk yfir-
völd hafa bannað skipum að
sigla nærri Kýpur eða Grikk-
landi. Einnig hefur bifreiðaeig-
Framhald á bls. 21.
Fundur Vurð-
bergs og
SVS í dug
PÉTUR Thorsteinsson, ambassa-
dor> ræðir um störf sendiherra
fyrr og nú, á hádegisfundi Varð
bergs og SVS. í dag. Fundurinn
er haldinn í Þjóðleikhúskjallar-
anum og hefst kl. 12,10.
Málverk Ásgeirs Bjarnþórsson ar af séra Bjarna bjargaðist nauð
uglega úr brunanum mikla. Þa að prýðir kápu bókarinnar.
„SÉRA BJARNI
kvöldvökiíijtgAfam
gefur út þrjár endurgrentanir
af íslenzkum málverkum
Á FUNDI með blaðamönnum í
gær kynnti Kristján Jónsson
tvær nýjar bækur Kvöldvöku-
útgáfunnar og þrjár eftirprent-
anir, eftir málverkum íslenzkra
listamanna.
Önnur bókanna nefnist „Séra
Bjarni“ og er þar að finna ýmis-
legt, sem ella hefði glatazt í
brunanum mikla í Lækjargötu,
bæði úr bréfum, dagbókum og
ræðum, að því er Andrés Björns-
son lektor tjáði Mbl. þar um og
endurminningar frú Áslaugar
Ágústsdóttur.
Bókin „Séra Bjarni“ er minn-
ingarbók og komst Kristján Jóns
son m.a. svo að orði um hana:
Við vitum það öll, að ótalmarg-
ir bera hlýjar tilfinningar til
séra Bjarna og að enginn einn
maður hafði jafnmikil samskipti
við borgara þessa bæjar. Við,
sem stöndum að útgáfu þessarar
minningarbókar, vonumst til
þess, að hún verði þessu fólki
nökkur fengur, þótt hún geti
aldrei orðið nema daufur skuggi
af séra Bjarna, svo mikill per-
sónuleiki sem hann var.
Bókin „Séra Bjarni“ skiptist
í eftirgreinda kafla: Andrés
Björnsson ritar formála. Matthí-
as Johannessen á þar samtals-
þátt, er nefnist: Með séra Bjarna
á æskuslóðum. Frú Áslaug
Ágústsdóttir segir endurminn-
ingar sínar: Hver dagur var há-
tíð, en þær skrásetti Andrés
Björnsson. Þar eru og nokkrar
ræður og hugvekjur séra Bjarna;
ræða Magnúsar Jónssonar á sex-
tugsafmæli séra Bjarna og ræða
biskupsins yfir íslandi, herra
Sigurbjarnar Einarssonar, við út
för hans.
Andrés Björnsson sá um út-
gáfu bókarinnar, sem er prýdd
fjölda mynda, en Atli Már teikn-
aði bókina.
Þá gefur Kvöldvökuútgáfan
út þriðja og síðasta bindið af
endurminningum séra Sveins
Víkings, Myndir daganna, Prests
árin. Þar segir frá fyrstu messu
hans í Garðskirkju, aðstoðar-
prestsárunum í Þingeyjarsýslu,
ýmsum dulrænum fyrirbærum
o. fl. Sagði Kristján Jónsson, að
þessi bók væri óvenjuleg sem
ævisaga, að því leyti, að hún
væri byggð upp í köflum, þar
sem dregnnar væru upp svip-
myndir.
Loks gat Kristján Jónsson
þess, að nú væri Kvöldvökuút-
gáfan 10 ára. Á þessu tímabili
hefur hún gefið út 27 bækur, þ.
á m. safnritin Skáldkonur fyrri
alda, íslenzkar ljósmæður og Því
gleymi ég aldrei. Þá hefur út-
gófan gefið út allmargar ævisög-
ur, svo sem ævisögu Eiríks
Kristóferssonar, Bernharðs Stef-
ánssonar og Myndir daganna,
endurminningar séra Sveins Vík-
ings, þrjú bindi.
í tilefni af 10 ára afmæli út-
gáfunnar hefur hún endurprent-
að þrjú málverk, Seglbát eftir
Finn Jónsson, Mótorbát eftir
Gunnlaug Scheving og Gamalt
hlóðaeldhús á Gautlöndum eftir
Gunnlaug Blöndal. Litbré hf.,
Reykjavík, hefur endurprentað
myndirnar og munu það vera
stærstu endurprentanir, sem
gerðar hafa verið hér á landi.
Handbækur hf. hafa með sölu og
dreifingu myndanna að gera.
Allt frá byrjun hefur Stefán
Stefánsson, bóksali, Laugavegi 8,
verið aðalumboðsmaður og fram-
kvæmdastjóri útgáfunnar hér í
Reykjavík.
Nýr útibússtjóri
við Útvegsbank-
onn í Eyjum
BALDUR Ólafsson, bankastjóri
Útvegsbankans í Vestmannaeyj-
um, hefur sagt starfi sínu lausu.
Baldur Ólafsson hefur starfað
við Útvegsbanka rai í Vestmanna
eyjum frá 1. maí 1930, hinn var
skipaður bankastjóri 1. nóv. 1953
og hefur gegnt því starfi síð-
an Áður hafði Baldur gegnt öll-
um almennum bankástörfum við
bankann.
Á fundi bankaráðs í gær var
Ólafur Helgason ráðinn í starf
útibússtjóra Útvegsbankans í
Vestmannaeyjum. Olafur Helga-
son er sonur Helga Guðmundsson
ar fyrrverandi bankastjóra og
hefur hann verið deildarstjóri í
ábyrgðardeild Útvegsbanka fs-
lands í Reykjavík.