Morgunblaðið - 10.12.1967, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DES. 1967
3
son, Skúli H. Norðdahl. Þov-
valdur S. Þorvaldsson og Jörund
ur Pálsson.
Myndatökurnar voru í fleslum
tilvikum framkvæmdar eftir
fyrirsögn arkitektanna, en Krist
ján Magnússon, ljós.myndari, tók
flestar myndirnar. Hverju húsi
fylgir grunnteikning, sem sér-
staklega hefur verið teiknuð
fyrir bókina. Formáli er bæði á
íslenzkú og ensku og hefur Gísli
Sigurðsson skrifað hann, en Gísii
skipulagði bókina, annaðist út-
litsteikningu og skrifaði alla
texta. í bókinni eru auglýsingar
frá aðilum, sem verzla með hús-
búnað, heimilistæki, bygigingar-
vörur o. fl. Bókin er með lit-
prentaðri kápu og samtals 136
síður.
Urval íslenzkra
einhýlishúsa"
- Bók með 142 Ijósmyndum, unnin
í samvinnu við arkitektafélagið
Bókaútgáfan Hiaðhamar hefur
ráðizt í það að gefa út sýnisbók
um íslenzka húsagerðarlist. —
Fjallar hún einungis um ein-
býlishús og ber nafnið „Úrval
íslenzkra einbýlishúsa“. Er bók-
in unnin í samivinnu við Arki-
téktafélagið og hafa ellefu arki-
tektar orðið til þess að velja
eftir sig hús, sem síðan 'hafa
verið ljósmynduð mjög vand-
l©ga. Ætla má, að mörgum þyki
þessi hús, sem þarna eru kynnt,
allforvitnileg og athyglisvefð.
Bó'kin er prentuð á myndapapp-
ír. Eftirfarandi arkitektar eiga
þarna hlut að máli:
Guðmundur Kr. Kristinsson,
Guðmundur Þór Pálsson, Helgi
Hjálmarsson, Vilhjáimur Hjál'm-
arsson, Högna Sigurðardóttir
Jósef Reynis, IVfánfreð Vilhjálms
Eg mun
lifa
##
írásögn norskrar frelsishetju
KOMIN er út í ísienzkri þýð-
ingu bók norska skíðamannsins
og íþróttafrömuðarins Oscars
Magnussons með frásögnum úr
síðasta stríði og þeim hörmung-
um, sem hann varð að þola í
fangabúðuim nazista. Bókin nefn-
ist: „Ég mun lifa“.
Árið 1941 var Oscar Magnus-
son svikinn í ihendur Gestapo,
sem beitti hann hroðaleguistu
pyntingum, svo að þessi sterki
og þjálfaði íþróttamaður hlaut
örkuml. Aldrei lét hann þó bug-
ast og engar upplýsingar veitti
hann. Hryggurinn var bnotinn
og vöðvar í axlarliðunum ónýtt-
ir. Eftir að hann var sendur til
Þýzkalands til tortímingar þoldi
hann miklar raunir. Meðal ann-
ars dróst hann fótgangandi i
tréklossum frá Póllandi yfir
Tékkóslóvakíu til Austurrík.is og
þaðan aftur til Tékkóslóvakíu,
en sú ganga kostaði flesta félaga
hans lífið. Sjálfur var hann svo
úttaugaður, að hann var talinn
dauður og kastað í líkhaug, en
jafnvel þaðan komst ihann. Síð-
ustu daga stríðsins lenti hann í
helgöngu 20 þús. fanga, sem í
fimim sóladhringa héldu áfram,
svefnlausir og matarlausir, og
komust einir 200 lifandi á leið-
arenda. Oscar M'agnusson var
eini N'orðmaðurinn í þeim hópi.
Baldur Hólmgeirsson hefur
þýtt bókina með leyfi höfundar.
Útgefandi er Grágás.
Rádherra fyrir
rétti í Aþenu
TÍU manns, þeirra á meðal fyrr
verandi ráðherra grísku stjórn-
arinnnar og tveir Sýrlendingar,
verða leiddir fyrir herrétt á
morgun, kærðir fyrir njósmr.
Takis Georgiou, fyrrum blaða-
málaráðherra, er ákærður fyrir
að hafa vingazt við Sýrlend-
ingana og sett þá í samband við
ráðuneytisstarfsmenn, sem höfðu
aðgang að hernaðarleyndarmál-
um.
Sýrlendingarnir, guðfræðí-
stúdent og liðsforingjaefni, eru
ákærðir fyrir að hafa aflað sér
vitneskju um gríska heraflann,
siglingar 6. bandaríska flotans
á Miðjarðarhafi og herstöðvar
NATO í Grikklandi. Þeir eru
ákærðir fyrir að hafa afhent
hermálafulltrúa sýrlenzka sendi
réðsins þessar upplýsingar.
AFP-frétt frá Milano herm-
ir, að gríska tónskáldið Mikis
Theodorakis hafi fyrir nokkru
gert hungurverkfall til að
leggja áherzlu á kröfu sína um,
að verða viðstaddur réttarhöld
er nýlega er lokið í málum 32
félaga stjórnarandstöðuflokks,
sem hann er einnig félagi í. Tón
skáldið sagði þetta í viðtali við
ítartskan blaðamann, sem fékk
að ræða við hann í klefa hans
í Averoff-fangelsi, að viðstödd
um griskum embættismanni.
W/
Japönsku kertin
hundruð teg., hundruð lita — gull, silfur, aðrir
tizkulitir. Hentugt til jólagjafa.
Jólatrésskraut
sérstaklega fjölbreytt og smekklegt úrval, ódýi’t.
Veggskraut
ódýrt — fjölbreytt.
Jólapappír
30 teg., bönd — merkimiðar.
Jólaserviettur
matar- kaffi — ýmsar stærðir — fjöldi lita.
Jólatré
gervi- silfur- græn — brenna ekki.
Jólatrésseríur
10 teg. hver annarri fallegri.
Leikföng
Fjölbreyttara úrval en.sézt hefur áður hér á landi.
Brúður
Viljum sérstaklega benda á hið miklu úrval frá
ýmsum löndum. Brúður sem ganga, brúður sem tala,
brúður sem gráta. Ódýrar brúðir, dýrar brúður.
Konfektkassar i þúsundatali.
PÖKKUM SKREYTUM SENDUM