Morgunblaðið - 10.12.1967, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DES. 1907
Jónas Pétursson, alþm.:
Vísitölur og skyldu þ jónusta
2. grein
í MORGUNBíLAÐINU 5. október
s.l. birti ég í stuttu máli hugleið-
ingar um ofannefnd efni, Ég
setti fram 11 punkta og bað menn
í lok greinarstúfsins að hugleiða
þessi miál í alvöru og hleypi-
dómalaust. Ég held að tími sé nú
kominn að ræða þetta nokkru
nánar. Af ásettu ráði lét ég sem
skemmstan rökstuðning fylgja.
Umræður hafa líka verið miklar
uppi nú um skeið um skyld mál-
efni. Við getum nefnt þau kjara-
mál. Tízkan vill hafa sitt.
Viðleitni ríkisvaldsins er ávalt
sú að reyna að jafna kjörin, firra
hvern einasta borgara því að
lenda á vonarvöl, láta þá, sem
meira hafa umleikis, standa sem
mest undir samfélagsþjónust-
unni. Tekjuskattur byggist á því
og einkum stigahækkun hans og
útsvörin einnig. En r.ú erum við
í tryggingarþjóðfélagi. Við erum
í tryggingarþjóðfélagi, sem við
munum í vaxandi mæli hverfa
inn í og við munum nota trygg-
ingakerfið í vaxandi mæli til
þess að jafna kjörin, að leysa það
hlutverk, sem áður var að
nokkru leyti reynt að leysa gegn-
um skattamálin.
Ég sagði, að viðleitni ríkis-
valdsins væri jafnan sú að reyna
að jafna kjör borgaranna, Keppi-
keflið við skattheimtuna er það
að reyna að valda sem minnstu
óréttlæti. Við getum sagt, að það
væri æskilegast að geta haft
skattana réttláta, en ég held, að
það sé Öhætt að segja, að það sé
hreinn barnaskapur að ætla, að
við náum nokkurn tíma full-
komnu réttlæti í skattheimtu.
Keppikeflið er einmitt það að
valda sem minnustu óréttlæti,
jafnframt að hafa skattkerfið
sem einfaldast og þannig að það
feli í sér sem fæsta möguleika
til undankomu skattanna.
f stuttu máli er sá grundvöll-
ur, sem ég hef byggt þessa
punkta á, að hverfa í vaxandi
mæli inn á þá braut að hafa
tryggingarnar til þess að ná mark
miði jafnréttisins í þjóð'félag-
inu, í afkomu og aðbúð.
Vísitölur og niðurgreiðslur.
Ég skal nú víkja í réttri röð
að þeim punktum, sem ég setti
hér fram. Það er þá fyrst vísital-
an. Ég tel, að við þurfum að
byggja upp tvær vísitölur, fyrst
svipaða vísitölu og við höfum
haft um verðlag innanlands, vísi-
tölu, sem þó byggist á nútíma-
notkun einstaklingsins á vörum
og þjónustu, sem byggir á því,
hvernig hann ver sínum tekjum
eða hvernig útgjöldum hans er
háttað. í öðru lagi þurfum við að
hafa vísitölu yfir útflutnings-
verðið og við þurfum að nota
mieðaltal þessara tveggja vísi-
talna sem grundvöll, sem vísi-
tölubinding miðast við. Og það,
sem sérstaklega vakir fyrir mér
með því að hafa vísitölu yfir út-
flutningsverð er það, að þau
áhrif, sem við ómótmælanlega
ibúum við af okkar útflutnings-
verði, verði látin hafa jafnóðum
sjálfkrafa áhrif, t.d. á vinnulaun
og annað, sem vísitala verður
látin hafa áhrif á í þjóðfélaginu.
í»á tel ég í öðru lagi, að fella
ætti niður niðurgreiðslur vöru-
verðs néma á nýmjólk, Ég held,
að það sé óumdeilanlegt, að nið-
urgreiðslurnar hafi valdið hinni
miestu röskun í öllu okkar fjár-
málakerfi. Það er aðeins ein nið-
urgreiðsla, sem ég get viður-
kennt og það er niðurgreiðsla á
nýmjólk, vegna þess að það er
mjög skynsamleg leið til þess að
greiða fjölskyldubætur. Þannig
förum við að nokkru leyti inn á
leið jöfnunar, því að það eru
fyrst og fremst barnmargar fjöl-
skyldur, sem mundu njóta eða
njóta niðurgreiðslanna á ný-
mjólk.
Hækkaðar fjölskyldubætur og
almannatryggingagjöld.
Þá er þriðji punkturinn um
það, að stórhækka ætti fjöl-
skyldubætur, m.a. sem afleið-
ingu af brottnámi niðurgreiðslu
vöruverðs, og hækka einnig aðr-
ar bætuir almannatrygginga. En
jafnframt þessu þyr'fti hið beina
almannatryggingagjald að hækka
mjög. Núna er þetta milli 3-4
þús. kr. á ári fyrir einstakling-
inn og ég hef séð það í fjárlaga-
frumvarpi því, sem nú liggur
fyrir, að öll almannatrygginga-
iðgjöld einstaklinga í landinu,
einstaklinga og hjóna, eru ekki
meira en tæpar 300 millj. enda
þótt heildarútgjöld almanna-
trygginga séu nokkuð mikið á 2.
milljarð og myndu samkv. mín-
um hugmiyndum raunar enn
stórhækka, ef við förum í vax-
andi mæli inn á jöfnunarleiðina
gegnum tryggingarnar. Afleið-
ingin af þessu hlýtur óhj'ákvæmi
lega að verða sú, að hin beinu
almannatryggingagjöld hljóta
líka að stórhækka.
En ég sagði um fjölskyldubæt-
urnar, þær þurfa að hækka
vegna þess í fyrsta lagi, að ég
legg til, að niðurgreiðslurnar
hverfi, allar nema á nýmjólk,
sem verður til þess að hækka
ýmsa neyzluvöru. í öðru lagi
hef ég síðar í þessum punktum
tillögur um það að taka upp að
Jónas Pétursson.
verulegu leyti fasteignaskatta í
stað útsvara. Það miá líká rök-
styðja það, að þeir verði nokkru
erfiðari þeim, sem t.d. hafa barn-
marga fjölskyldu af því að barn-
mörgu fjölskyldurnar munu að
öðru jöfnu þurfa stærra hús-
rými. Á móti þessu eiga einnig
hækkaðar fjölskyldubætur að
vega. í þriðja lagi legg ég svo
til, að önnur höfuðtekjuöflunar-
leiðin fyrir ríki og sveitarfélög
verði með vaxandi sölusköttum.
Þeir fela einnig í sér hækkun á
útgjöldum stórra fjölskyldna og
þarna kemur þriðja ástæðan fyr-
ir, því að ég tel, að fjölskyldu-
bæturnar eigi að hækka veru-
lega.
Afnám tekjuskatts.
Þó er ég með 4. liðinn, sem ">r
áfnám tekjuskattsins. Ég drap
ofurlítið nánar á þann punkt í
minni fyrstu grein og ég hefi þar
ekki miklu við að bæta. Ég játa
það, eins og ég sagði, að það virð
ist að ýmsu leyti vera réttlát leið
að taka þeim mun meira af
þeim, sem meiri hafa tekjuirnar,
en ég held, að reynslan hafi sýnt
það, að þessu fylgja miklu fleiri
ókostir heldur en kostir vegna
þess, að við eigum svo erfitt með
að ná réttlæti í slíkri skatt-
heimtu. Og dæmin eru sífellt
fyrir augum og eyrum. Menn
háfa sífellt á reiðum höndum
ótal dæmi um óréttlátan tekju-
skatt án þess, að það sé hægt að
festa hendur á því, sem fram er
haldið, en afleiðingin er það,
sem ég vildi kalla hrein eitrun
í þjóðarsálina. Og þó að þessi
tekjustofn hafi verið alldrjúgur
fyrir ríkissjóðinn, sem gefur
500-600 millj. á ári, held ég, að
að það sé hægt að ná þessum pen
ingum eftir leiðum, sem a.m.k.
eru ekki óréttlátari í eðli sínu,
en sem ekki fela í sér þessa
hættu, þessa eitrunarhættu í
þjóðarsálina.
Fasteignaskattur að verulegu
leyti í stað útsvara.
Þá kem ég að fasteignaskatt-
inum, sem ég legg til, að verði
tekinn að verulegu leyti upp í
stað útsvara. Ég vil engu slá
föstu um það, að hve miklu leyti
hann getur komið í stað útsvar-
anna. Ég hefi í stuttu máli hugs-
að mér, að hann myndi fyrir
mjög mikinn þorra manna verða
svipaður eins og menn þurfa
núna að greiða í útsvörum, svona
20 þús. kr af meðalíbúð, 15-25
þús. kr. af nýrri meðalíbúð. En
það eru ótal mörg rök, sem
hníga að því að nöta fasteign-
irnar sem grundvöll að tekjuöfl-
un fyrir sveitarfélögin. Hann er
byggður á því, sem við gætum
kallað eitt öruggasta form verð-
mæta, og menn vita af honum
fró ári til árs. Hann er ekki háð-
ur sveiflum, heldur er þetta fast-
ur útgjaldaliður hjá fasteigna-
eigendum gagnstætt því, sem nú
er með útsvör og tekjuskatta,
sem eru háð sífelldum sveiflum
og valda þess vegna miargsvísleg-
um erfiðleikum fyrir greiðend-
urna. Fasteignaskatturinn verð-
ur almennur í raun og veru og
það, sem er einn höfuðkostur
hans, hann mun tvímælalaust
vega á móti óhæfilegri verð-
bólgu, því að ein höfuðorsök
verðbólgunnar undanfarin ár
hefur verið, ef svo mætti segja,
flótti peninganna í fasteignirnar
og kapphlaup um fasteignir. Það
er alveg nauðsynlegt, að menn
átti sig á því, að þessi tekjustofn
á aðeins að vera fyrir sveitar-
félögin. Ég veit, að það mætti
benda á einstök dæmi eins og
menn hafa stundum sett fram
um aldrað fólk, gamalt fólk, sem
þessi skattur mundi koma illa
niður á. Ef slík einstök dæmi
eru íyrir hendi, hafa sveitarfélög
in það á valdi sínu gegnum
skyldu sveitarfélaganna að firra
borga sína eða íbúa, firra þegna
sína örbirgð, að bæta það eftir
öðrum leiðum. Og ég tel þetta
hreina grýlu að hampa því, að
skatturinn kunni að koma illa
niður á öldruðu fólki. Það eru
ekki síður þeir, sem þetta snert-
ir ekki, sem hampa þessari
ástæðu. Þetta er í mínurn huga
stundum eins og menn séu að
taka gisla eða það, sem einu sinni
var gert, að bera fyrir sig börn í
orrustu.
Fasteignaskatturinn er í eðli
sínu beint hagstjórnartæki í
þjóðfélaginu.
Auknir söluskattar til tekjuöfl-
unar bæði fyrir ríki og sveita-
félög.
Þá kem ég að söluskattinum,
sem ég tel, að eigi að verða í
vaxandi mæli tekjuöflunarleið,
bæði fyrir ríki og sveitafélög.
Ég var, þegar söluskattur var
lagður á, honum mjög andvígur,
en við erum komnir inn á sölu-
skattsleiðina og förum aldrei af
henni aftur og það er staðreynd,
að í vaxandi viðskiptaþjóðfélagi
er þetta örugg og meira að segja
má segja allréttlátt leið til þess
að afla tekna. Og að því leyti,
sem hún er óréttlát eins og ég
var að benda á hér áðan, eigum
við að fara eftir leið trygging-
anna til þess að vega upp á móti
óréttlæti söluskattsleiðarinnar.
En hún er réttlát að því leyti, að
hún leggst á þá, sem réðstafa fé
sínu. Það er að vísu mjög æski-
legt, að hægt væri að hafa sölu-
skattinn mismunandi háan, þann
ig að hann væri hærri af því,
sem við köllum lúxus. Ég veit,
að í þessu er mikill vandi fó'lg-
inn hvað innheimtuna, álagn-
ingu og innheimtu snertir, en
þetta væri að sjálfsögðu mikið
æskílegra. Ég hefi nefnt hér svo
kallaðan virðisaukaskatt, sem
sagt er, að Danir hafi nýlega
tekið upp. Þá leið ber mjög að
athuga, en í stuttu máli held ég,
að við eigum að fara inn á sölu-
skattsleiðina í sem mestum
mæli og hverfa í þess stað frá
útsvörum og tekjuskatti.
Það eru fleiri kostir, sem
þessu fylgja. Með þessu verður
skattakerfið miklu einfaldara og
enda þótt það sé mikið á orði,
liggur það í augum uppi, að það
að skattsvik í söluskatti eigi sér
stað, eins og með tekjuskattinn,
er auðveldara að beita skatteftir-
litinu á ðeins annan þennan
þátt, sem sagt á söluskattinn og
ná með því miklu meiri árangri
heldur en ef fleiri skattheimtu-
leiðir eru notaðar, sem þarf að
beita eftirlitinu við.
Aukinn skyldusparnaður
Þá er ég með sjöunda punkt-
inn að hækka skyldusparnaðinn,
og gengi þessi hækkun t.d. til
framkvæmdasjóðs. Þetta kann
að stinga ýmsa illa, en það ber
að athuga, að með því að fella
niður leið útsvara og tekjuskatts
og fasteignaskattarnir leggjast í
fæstum tilfellum á yngsta fólkið,
tel ég rök fyrir því að ná ein-
hverju af þessu fé til þess að hafa
til útlána ráðstafna í þjóðfélag-
inu. En þar er þörfin mjög brýn.
Það má að vísu segja, að við ætt-
um kannski að treysta á það, að
einstaklingarnir sjálfir legðu
þetta fé fyrri, þannig að eftir
hinni frjálslu leið mundi nást
sami árangur. Ég skal ekki full-
yrða, að þetta gæti ekki skeð, en
við höfum nú þegar í gildi skyldu
sparnað og mér finnst það vera
rökrétt afleiðing af þessum
punktum, sem ég er hér að ræða,
að við ykjum skyldusparnaðinn.
Minni launamismunur
Þá er það afleiðing í áttunda
lagi af afnámi tfekjuskatts og
því, sem ég einnig sting upp á,
að við gætum fellt einnig niður
útsvörin, að endurskoða á launa
kerfi opinberra starfsmanna, þar
sem launamismunur yrði minnk-
aður. Launamismunurinn nú
byggist tvímælalaust m.a. á því,
að skattar eru miklu hærri á
þeim, sem hafa hærri launin.
Þess vegna er það rökrétt af-
leiðing, ef skattar og útsvör eru
felld niður, þá sé þessi launa-
mismunur minnkaður.
Happdrætti á fleiri sviðum
samfélagsframkvæmda
Þá sting ég upp á því, að happ-
drætti verði komið á fót til fjár-
öflunar til samfélagsfram-
kvæmda og ég nefni þá fyrst og
fremst vegasjóðinn, og ég teldi
æskilegast, að það væri í hvert
skipti um takmarkaða ákveðna
framkvæmd að ræða, sem verið
er að afla fjár til eftir happ-
drættisleiðinni. Ég nefndi vega-
og brúargerð um Skeiðarársand,
sem ég vænti ,að sé að verða
eitt viðurkenndasta þjóðnytja-
mál í samgöngumálum, sem við
þurfum að leysa. Og ég trúi því,
að þegar þessar nýju tekjuöflun-
arleiðir væru komnar til fram-
kvæmda, að það verði horfið frá
tekjuskatti og útsvörum, en tek-
ið á hinn bóginn upp kerfi
óbeinu skattana í miklu stærri
mæli, mundi fjöldi manna verða
fúsir til að verja nokkru af tekj-
um sínum til þess að styðja ýms-
ar samfélagsframkvæmdir í þjóð
félaginu, sem horfa allri þjóð-
inni til heilla, Og það hefur
mikla kosti að geta einmitt lagt
í vald þegnanna sjálfra að meta
hverjar þjóðfélagsumbætur þeir
vildu helzt styðja. Ég hef að vísu
heyrt það, að reynslan af happ-
drættum sé því miður sú, að það
vilji verða minnstur hluti, sem
komi út sem nettó-tekjur til
þeirra verkefna, sem verið er að
afla fjár til. Ég held, að þetta
sé hægt að hafa talsvert í valdi
sínu og auðvitað er happdrættis-
leiðin tilgangslítil, ef hún geng-
ur að miklu leyti í sjálfa sig,
þannig að tilkostnaður við vinn-
inga og alla framkvæmd er svo
mikill, að kannske 80—S0% af
tekjum happdrættisins hverfa
þannig. Ég hefði haldið, að það
væri hægt að framkvæma slíkt
happdrætti, sem auðvitað er sett
á stofn; ekki til þess að blekkja
menn þannig, að þeir raunveru-
lega fái fé sitt aftur, heldur til
þess að vísu að gefa þeim kost
á, ef heppnin er með, að njóta
Árbæjarhverfi - Árbæjarhverfi
Tekið á móti fatnaði til hraðhreinsunar að
Hraunbæ 43. Hreinsun 4 kíló af fatnaði fyrir 150 kr. -
HRAÐHREINSUNIN, Starmýri 2
(horni Álftamýrar og Starmýrar).
Skyndisala á sútuðum lambskinnum
Skyndisalan er á Laugavegi 178. Skrautskinn í mörgum litum.
Verðið er ótrúlega hagstætt. Jólagjöfin sem hentar öllum með-
limum fjölskyldunnar.
Dov/ð Sigurðsson hf. Fiat-umboðið
Laugavegi 178 — Símar 38888 og 38845.