Morgunblaðið - 10.12.1967, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DES. 1967
9
nokkurs hegnaðar, en fyrst og
fremSt er það sett á stofn til
Jtess að menn geti lagzt á sveif
til umbóta í þjóðíélaginu, þar
sem hugur þeirra sendur sér-
staklega til.
Verðtrygging fjárskuldbindinga
og lægri vextir
Þá er í tíunda lagi, að tekin
verði upp verðtrygging fjár-
skuldbindinga, sparifé verði
tryggt og öll fastalán, sem lán-
uð eru út, verði einnig verð-
tryggð. Ég held, að víxilvextir
eigi að haldast háir, það sé ekki
hægt að hafa verðtryggingu á
þeim, þvi útlánaformi. Hluti
vaxtanna, hinna háu vaxta, er
verðtrygging og ég held, að slíku
formi eigi að halda, en á hinn
bógínn, með spariféð og fasta-
lánin er það að mínu viti heppi-
legri leið í stað háu vaxtanna að
hafa verðtryggingu og ég byggi
það m.a. á því, að ég hef allt
aðrar hugmyndir um það heldur
en mér finnst, að ýmsir hafi, hve
háa vexti fjármagnið eigi að
gefa af sér. Ég teldi svona 2—3%
af fjármagni, sem heldur gildi
sinu ár frá ári, væri hæfilegt.
Ef fjármagn skilar 7—8% vöxt-
um árlega, þýðir það að það
tvöfaldar gildi sitt á svona ca.
10 árum. Ég held, að það sé
miklu meiri fjarstæða heldur en
þurfi í raun og veru að leiða
hugann að, að fjármagn eigi að
tvöfalda gildi sitt á hverjum 10
árum. Hvers konar fjármagn
yrði þá upp safnað í heiminum
segjum á 100 árum? Nei, ég held,
að við þurfum að taka upp verð-
.tryggingu fjárskuldbindinga
m.a. til þess, að menn átti sig á
því, að þeir vextir, sem nú hafa
verið í gildi, eru ekki raunveru-
legur grundvöllur fyrir vexti
fjármagnsins almennt, heldur
hafa þeir verið til þess að
tryggja gildi peninga til móts
við önnur form verðmæta.
Skylduþjónusta
11. punkturinn er um skyldu-
þjónústu ungmenna á aldrinum
16—20 ára. Hér vantar eitthvað
sem tengir þegn og þjóðfélag.
Oft er minnt á herskylduna, sem
gildir í flestum þjóðfélögum, en
við erum svo blessunarlega laus
við En þá á eitthvað að koma í
staðinn, sem minnir á skyldur
fyrir réttindi, en þau tvö hug-
tök eru mjög tengd að lögmál-
um lífsins. Réttindi til náms og
skólavistar eru mikilvæg og
kosta þjóðfélagið stórfé. Ekkert
er eðlilegra en nokkrar skyldur
komi þar á móti. Verkefnin eru
margvísleg sem þjóðfélagið þarf
að vinna að. Ég nefni skógrækt
og landgræðslu, sem er menn-
ingar- og þjóðnytjastarf, ýmis-
leg mannúðarmál, byggingu
skóla og sjúkrahúsa, samgöngu-
mál. En forstaða og stjórn slíkr-
ar vinnuskyldu er vandasöm og
veltur mikið á henni, m.a. til
þess að umbúðirnar og fram-
kvæmdin gleypi ekki arðinnn af
starfi ungmennanna sem eru að
helga sig þjóðfélaginu með því
að færa bjarg í grunninn.
Þegar fjármálaráðherra flutti
hina yfirgripsmikiu ræðu er
hann lagði fjárlagafrumvarpið
fyrir þingið sagði hann, að við
stæðum á tímamótum í skatta-
málum og breytmga mætti
vænta innan tíðar. Þessvegna er
einmitt nú sérstök ástæða að
velta þessum málum fyrir sér.
Ég veit að það er gert af hag-
sýslustofunum og efnahagssér-
fræðingum. En á meðan við höf-
um ekki í einu og öllu selt þeim
sjálfdæmi um hvernig þessum
málum verður skipað, þá á rödd
fólksins líka að heyrast. Tekju-
öflun ríkis og sveitafélaga hlýt-
ur að tengjast meir Qg meir og
sjónarmið sveitarstjórna eru
þessvegna þung á metum.
Ég lagði áherzlu á í fyrri grein
minni að höfuðatriði væri að
ríki og sveitarfélög fengju þær
tekjur, sem nauðsyn krefði tii
samfélagsþjónustunnar. Það er
því rannsóknarefni hagsýslunn-
ar hversu langt þær tekjuöfl-
unarleiðir er ég hefi hér rætt
myndu ná. Svo er að meta áhrif-
in og er mér þá sérstaklega í
huga atvinnureksturinn og þá í
fyrstu röð frumframleiðslan.
Ýmsar ráðstafanir, sem ég hefi
hér ekki rætt og vafalaust ekki
heldur komið auga á myndu
sjálfsagt koma til sem afleiðing.
En tekjuöflunarkerfið í heild á
fremur að verka órvandi á at-
vinnurekstur. Tekjuþörf sam-
félagsþjónustunnar er mikil og
meiri en annara þjóða til hlið-
stæðrar þjónustu þar sem við er-
um fámenn þjóð í stóru landi
og ætlum að byggja það og
nytja. En þá kemur okkur líka
til góða að við höfum ekki her-
kostnað.
í landi, þar sem fólkið hefir
ekki trú á peningum, verður
ávallt erfitt að stjórna.; Þess
vegna þarf að miða skattalög og
fjármálaaðgerðir við það. Nú er
sparifé talið skattfrjálst. Það er
rétt, eftir að það er lagt á bók.
En tekjuskatt og útsvar borgar
einstaklingurinn af aflafé sínu
árlega jafnt hvort hann eyðir því
öllu — verzlar fyrir það, eins og
þó hann leggi meginhluta þess í
sparisjóðsbók. í minum punkt-
um felst það að ef hann eyðir
öllum sínum tekjum, borgar
hann óbeinu skattana ,en spari
hann aflafé sitt, leggi það á bók
hefir hann það skattfrjálst. í
þessu felst mikil örvun til sparn
aðar, réttlát viðurkenning á gildi
sparnaðar, og miklu meiri en nú
er.
Ef til vill finnst sumum það
vera að nefna snöru í hengds
manns húsi að tala um gildi
sparnaðar og örvun til sparnað-
ar, vegna nýafstaðinna atburða,
þegar gengi krónunnar var
lækkað og miðað við þá atburða
rás í gengi krónunnar, sem saga
síðustu áratuga vitnar um. Rétt
er það að þegar gengisskráningu
er breytt til lækkunar, minnkar
gildi krónunnar skyndilega
gagnvart erlendri mynt. Gildi
sparifjárins fer þó ekki fyrst
og fremst eftir því, heldur eft-
ir gildi krónunnar í innanlands
viðskiptum. Allir vita að það hef
ir farið lengst af lækkandi ár
frá ári allt frá um stríð a.m.k.
Og raunar síður en svo mink-
að örar fyrst eftir gengisbreyt-
ingar. Það er því e.t.v. aldrei
tímabærara en einmitt nú að
gera alvarlega gangskör að því
að efla trú á sparnað og gera
þær ráðstafanir sem ætla má
að hafi gildi. — Þar tel ég verð
tryggingu og raunverulegt skatt
ferlsi sparaðra peninga.
Skiptiing samfélagsþjónust-
unnar milli ríkis- og sveitar-
félaga.
í sambandi við nýjar skatt-
heimttuaðferðir kemur mjög til
greiina hvernig skipta skal tekj-
um og verkefnum milli sveitar-
félaga og ríkis. Samkvæmt upp
lýsingum frá félagsmálaráðu-
neytiinu nam tekjuöflun sveit-
arfélaga á öllu landinu árið 1966
í útsvörum, aðstöðugjöldum og
fasteignasköttum 1.540 millj.
tæpum. Öll tekjuöflun ríkisins,
þar með almannatrygginga er
fullar 6.000 millj. Við fljótleega
athugun á þessum tveimur töl-
um vildi ég segja að hlutur
sveitarfélaga ætti að stækka.
Það á að efla sjálfstjórn héraða.
Frá Almaiiiiatrygginguni
Kópavogi
Útborgun bóta verður í desember 1967 sem hér
segir: Ellilífeyrir og aðrar bætur, þó ekki fjölskyldu
bætur, frá 11. desember. Fjölskyldubætur, þrjú börn
Og fleiri í fjölskyldu frá 12. desember, Fjölskyldu-
bætur 1 og 2 börn í fjölskyldu frá 13. desember.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Til þess þurfa þau meiri verk-
efni og meiri tekjur. Með tekju
aukniingu þarf að fylgja jöfn-
un milli sveitarfélaga til þess að
aðstöðumunnur verði sem
minnstur. Fasteignaskatturinn
mun gefa mjög mismunandi
tekjur hinu-m ýmsu sveitarfé-
lögum og þarf við skiptingu
annarra tekna að jafna aðstöð-
una.
Skreiðariðnaði
IMorðmanna
Nauðun ga ruppboð
Eftir beiðni skiptaráðandans í Reykjavík verða
4 landspildur í Skógarbringum í landi Laxness í
Mosfellshreppi, nefndar FurulUndur 33, 35 og 58
og Skógarlundur 11, þinglesnar eignir Lárusar
Bjarnasonar, seldar á nauðungaruppboði, sem háð
verður á eignunum sjálfum, þriðjudaginn 12. des.
1967, kl. 2.30 e.h.
Uppboð þessi voru auglýst í 59., 60. og 62. tölu-
blaði Lögbirtingablaðsins 1967.
Sýslumaðurinn i Gullhringu- og Kjósarsýslu.
boðinn ríkis-
styrkur
Osló, 7. desember. NTB
Sjávarútvegsmálaráðuneytið
nor.ska hefur boðizt til að veita
skreiðarframleiðendum 30 millj
ón króna (norskra) lán vegna
þeirra erfiðleika sem þeir ættu
við að stríða um þessar mundir.
Orsök erfiðleikanna er lokun
skreiðarmarkaðarins í Nigeriu
vegna borgarastyrjaldarinnar
þar. Undir venjulegum kringum
stæðum kaupa Nígeríumenn
60% að skreiðarútflutnmgi
Norðmanna. 1. nóvember höfðu
safnazt fyrir hjá framleiðendum
og útflytjendum að minnsta
kosti 21.000 lest af skreið, sem
er 9.000 lestum meira en undir
eðlilegum kringumstæðum. Að-
alástæðan er ástandið í Nígeríu.
Útlit er fyrir batnandi horfur
á markaði fyrir síldarmjöl og
síldarlýsi, en þrátt fyrir það
verður verð á vetrarsíld í Noregi
lægra en á síðustu vertíð, sagir
í annari frétt frá NTB. Til 16.
nóvember höfðu selzt 615.000
lestir af síldarmjöli, en lýsis-
magnið nemur 300.000 lestum og
hefur megnið verið selt.
DULARFULLA
LE7NIV0P
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA»SKRIFSTOFA
SÍMI 10»100
ALLIR ÞEKKJA HAUK FLUGKAPPA
Þetta er nýjasta bókin um hann.
Nútíma drengjabók um flug
og tæknilega leyndardóma.
HÖRPUÚTGÁFAN.