Morgunblaðið - 10.12.1967, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DES. 1967
TÆKNJ
Y
1
//
Innbyggt ónæmi
u
gegn vírusum
Nýtt efni gæti verndað menn gegn
fjölda sjúkdóma
Frakkar ætla að
*
selja Erak vopn
París, 7. des. — NTB
IIEIMILDIR í frönsku stjórninni
hermdu í dag, að Frakkar væru
fúsir að selja íraksstjóm vopn,
enda hafi það aldrei verið ætlun
Frakklandsstjórnar að binda sig
í bandalag við ísraelsmenn eina.
Sendinefnd frá frak undir for-
sæti Hassan Sabri herhöfðingja,
er í heimsókn í Frakklandi um
þesaar mundir.
Ennfremur er sagt af franskri
hálfu, að talið sé æskilegra að
flugher íraks verði búinn frönsk
um Mirage-þotum en sovézkum
MIG-þotum. Bent ar á, að Frakk
ar hafi frá fornu fari haft mik-
illa hagsmuna að gæta fyrir
botni Miðjarðafhafs og mál sé til
komið að þeir endurheimti á'hrif
sín í þessum heimshluta. Hlut-
verk Frakka sé ekki eingöngu
að verja ísrael, enda hafi önn-
ur lönd tekið- við þvi hlutverki
og ekkert sé athugavert við það
að Frakkar selji Aröbum vopn.
Opinberor oitök-
ur í Jemen
Aden, 7. des. — NTB
VFIRVÖLD lýðveldisstjórnar-
innar í Jemen létu taka 6 kon-
ungssinna af lífi á einu af torg-
um höfuðborgarinnar Sana í dag.
Þúsundir manna fylgdust með af
tökunum og æstur múgur dró
líkin eftir götunum og hengdi
þau upp við eitt borgarhliðið.
Útvarpið í Sana skýrði í dag
frá hörðum bardögum er háðir
hefðu verið undanfarnar tvær
vikur milli lýðveldissinna og
konungssinna í Austur-Jemen.
Útvarpið sagði, að evrópskir
málaliðar berðust með konungs-
sinnum og mikið mannfall hefði
orðið í liði andstæðinganna.
Sprengjúflugvélum og stríðs-
vögnum var beitt í bardögunum
að sögn útvarpsins, en egypzkir
hermenn munu hvergi hafa kom
ið nærri.
ÞEGAR vírus ræðst til atlögu
við mannslíkamann setur hann
af stað framleiðslu efnis sem get-
ur eytt innrásaraðilanum. — Ef
hægt væri að fá mannslíkam-
ann til að hefja þessa gagnsókn
áður en sjúkdómurinn gerði vart
við sig, myndi hann hafa nokk-
urskonar innbyggt ónæmi fyrir
mörgum sjúkdómum.
Bandarískir vísindamenn hafa
tekið skref í þá átt. Þeir hafa
örvað framleiðslu þessara ó-
næmisefna í dýrum, og tilraunir
á mönnum munu hefjast áður en
langt um líður. Lykillinn að
lausn þessa máls er „interferon",
sem vi'ð gætum kallað truflara
eða hindrara, þó að það sé sjálf-
sagt ekki þýðing, sem orðasmið-
ir koma til með að húrra yfir.
En „interferon“ eyðir vírusunum
með því að trufla eða hindra
fjölgun þeirra. Því miður fram-
leiðir líkaminn bara of lítið af
þessu ágæta efni, og oft of seint,
til þess að koma í veg fyrir
verulegan skaða.
Interferon og önnur mótefni,
sem líkaminn framlei’ðir sjálfur,
eru aðalvörn hans gegn vírusum.
Flest mótefni gefa ævilangt ó-
næmi, en það tekur líkamann
nokkra daga, jafnvel vikur, að
framleiða þau. Og hvert mótefni
um sig gagnar aðeins við einum
sjúkdómi. Líkaminn byrjar að
framleiða Interferon nokkrum
klukkustundum eftir að „líkam-
inn verður fyrir árás“. Það getur
unnið bug á flestum, ef ekki öll-
um vírusum, en nokkrum vik-
um eftir að líkaminn er orðinn
heilbrigður aftur, er framleiðsl-
an hætt, og þá er hætta á nýrri
árás.
Interferon fannst fyrst fyrir 10
árum, við rannsóknir vísinda-
manna hjá „National Institute
for Medical Research in Eng-
land“. Þeir ger'ðu sér strax grein
fyrir mikilvægi þess og hófu
rannsóknir.
Efnið var einangrað í rann-
sóknarstofum og það reyndist
vel í tilraunum á dýrum, en vís-
indamennirnir ráku sig fljótt á
ýmsa erfiðleika. Interferon frá
einni dýrategund kom ekki að
neinu gagni ef það var notað í
einhverja aðra, og þar með var
úti um þann möguleika að nota
það úr dýrum í menn. Þá var
farið áð finna leiðir til þess
að auka Interferon-framleiðslu
líkamans og fjölmargar fundust,
en allar höfðu hættuleg hliðar-
áhrif.
Þa, sem vantaði var upplýsing-
ar um efniskjarna þeirra efna,
sem settu Interferon-framleiðsl-
una af stað.
Hópur vísindamanna í Penn-
sylvaníu í Bandaríkjunum hefur
nú uppgötvað tvo aðaleigin-
leika þeirra efna, sem orsaka In-
terferon-framlei'ðslu. Þeir segja
að hún hefjist m.a. með inngjöf
af „ribonucleic acid“, eða RNA,
en RNA, er eitt af aðaluppistöðu
efnum í lifandi sellum.
Vísindamennirnir byrjuðu nú
áð gera ýmsar tilraunir með það
og svo var því dælt í mýs. Og
RNA verndaði þær gegn tveim
vírusum, sem annars hefðu drep
ið þær. Sellur í tilraunaglösum
voru verndaðar á sama hátt.
Dr. Maurice R. Hillman, sem
hjálpaði til við að finna bólu-
efni við hettusótt og mislingum,
segir að lokatakmarkið sé að
geta framleitt hreint og áhrifa-
mikið RNA, sem hægt sé að
framleiða mikið magn af og með
litlum tilkostnaði.
Það er ekki vitað hvort þetta
er eina efnið sem getur aukið
Interferon-framleiðslu líkamans,
en það er a.m.k. það efni, sem
beztu lofar. Og með því að taka
inn smáskammta af RNA reglu-
lega, gætu menn varið sig gegn
ótölulega grúa sjúkdóma, allt frá
venjulegu kvefi upp í hina
hræðilegu bólusótt.
Carmichael leyft
að vera í París
París, 7. desember. NTB.
FRÖNSK yfirvöld afléttu í dag
banni því sem þau höfffu sett viff
því, aff bandaríski blökkumanna
leifftoginn Stokeley Carmichael
kæmi til Frakklands. Carmichael
kom til Parísar frá Stokkhólmi í
gærkvöld og var þá neitaff um
dvalarleyfi svo að hann gisti í
nótt í flugstöffvarbyggingunni á
Orly-flugvelli.
í kvöld átti Carmichael að tala
á Vietnam-fundi. Samkvæmt á-
reiðanlegum heimildum hefur
hann fengið þriggja mánaða dval
arleyfi, sem má framlengja, ef
þess er óskað.
nu bera T VÆ R
bragðljúfar sigarettur
nafniðCAMEL
ÞVÍ CAMEL — FILTER ER KOMIN Á MARKAÐINN
„. 'c
’UlTf.s
f’1 Khs I J
i
<
m
SlÉHi
M
v
s
\A sjó og landi, sumar og vetur
Ilmandi Camel - og allt gengur betur