Morgunblaðið - 10.12.1967, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. DES. 1967
19
lltl!
Þverskurðarmynd af skrokki risaþotu.
Þetta er stærðarmunurinn á risaþotum nútínians og framtíðarinnar. Hvíta vélin, sem sett er ofan í
myndina af hinni er Boeing 707.
Risaþotur verða eins og
fljúgandi hótel
FARÞEGAÞOTUR eru sílfellt að I stærstu. Það er Lockhead L-500.
verða stærri og hraðfleygari, og Hún kemur til með áð geta borið
hér birtum við myndir af einnk eina 500 farþega, og það er langt
sem verður líklega með þeim al- I frá því að þeim verði þjappað
Athugosemd frú formunni Verku-
kvenufélugsins Snótur í Eyjum
VEGNA yfirlýsingar frá þrem
verkakonum í ísfélagi Vest-
mannaeyja, sem birtist í Morgun
blaðinu þann 6. desember, bið
ég blaðið fyrir eftirfarandi at-
liuga.semd:
Konur þessar virðast enn ekki
skilja, að undirskriftir þær sem
um ræðir, höfðu ekkiert gildi.
Lögmætur félagsfundur hafði
þegar tekið ákvarðanir um
vinnustöðvun og samkvæmt lög
um um stéttarfélög og vinnu-
deilur etru félagar slíkra félaga
bundnar af þeim samþykktum
sem þau gera.
Áihugi þessara verkakvenna á
málurn síns stéttarfélags er nokk
uð síðbúin. Engin af þeim 14
félagskonum sem rituðu nöfn
sín undir mótmælin hafa nokkru
sinni ómakað sig á fund í félag
inu, og þó mótmæltu þær á
þeirri forsendu, að þær hafi
ekki verið viðstaddar þegar mál
ið var afgreitt.
Var þetta launagreiðslumál þó
búið að vera til umræðu á þrem
síðustu fundum > verkakvennaíé-
lagsins. Meðal undirskriftanna
voru einnig nöfn nokkurra ófé-
lagsbundinná kvenna, sem flest
ar eru nýliðar á þessum vinnu-
stað. En varla er þó til of mik-
ils mælzt, að þær viti hvort þær
viti hvort þær eru félagsbundv
ar eða ekki. Ég skýrði fyrir hin-
um áðurnefndu þrem konum að
draganda þeirrar deilu sem fé-
lagið á nú í og drógu þær ekk-
erf í efa, að ég færi þar rétt
með, en létu hins vegar í ijós
það álit sitt, að vinnustöð vunin
hefði orðið áhrifameiri hefði
hún komið til framkvæmda á
vertíðinni. Er það að sjálfsögðu
matsatriði. Ég tel það svo ekki
mína sök þótt konur þessar hafi
vakið athygli á félagslegri van-
þekkingu sinni með þessum til-
AUGLÝSINGARl hk
SÍMI SS*4*8Q ■ D
tektum. Með þökk fyrir birt-
inguna.
Guðmunda Gunnarsdóttir.
saman eins og síld í tunnu. Satt
að segja verður miklu rýmra um
fólk í sætunum, og svo þarf það
ekki að sitja kyrrt frekar en
það vill. Flugvélin verður nefni-
lega þrjár hæðir, og það verður
hægt að fá einkaklefa, ef menn
kaéra sig um. Þrjátíu flugfreyjur
ver'ða sífellt á þönum kringum
farþegana, og auk þeirra verður
hópur af barþjónum og matsvein
um. Ef menn kæra sig ekki um
að sitja á barnum, geta þeir
heimsótt lesstofu, kvikmyndasal
eða spilasal. Og þrátt fyrir allt
þetta umstang eiga farmiðarnir
að vera ódýrari en þeir eru í
dag.
Það líður óðum að því að farþegaþotur sem fljúga hraðar en hljóðið
verði teknar í notkun. Þessi mynd er af Concorde, sem Bretar og
Frakkar eru að byggja, en gert er ráð fyrir að hún fari í jómfrú-
ferðina á næsta ári. Hún mun geta farið mili London og New Ýork
á tveim klukkustundum og tólf mínútum.