Morgunblaðið - 17.12.1967, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DES. 1967
Skemmtilegast að gefa
út barna- og unglingabækui
- segir Gunnar í Leiftri, sem nú gefur
út 35 bœkur fyrir jólin og eina eftir áramót
— Ég hef vanið mig á það,
að taka ekki eina bók fram yfir
aðra, en því er ekki að neita, að
mér finnst skemmtilegast að gefa
út barnabækur, sagði Gunnar
Einarsson í Leiftri, þegar hann
sýndi okkur útgáfubækur sínar.
Gunnar er svo sem ekki neinn
unglingur í faginu, því hann hef-
ur unnið að bókaútgáfu í 38 ár
og nú gefur hann út 35 bækur
fyrir jólin og von er á einni
frá honum snemma á næsta ári.
— Ég hóf prentnámið 1909 og
lauk því fjórum árum seinna.
Ég lærði í ísafoldarprentsmiðju.
Skömmu eftir að námi lauk dreif
ég mig norður á Siglufjörð og
vann þar í síld og við hafnar-
gerð í níu mánúði, en fór síðan
utan, til Danmerkur, í fram-
haldsnám, sem stóð yfir í tæpt
ár. Þegar ég kom heim, byrjaði
ég í Félagsprentsmiðjunni, en
fór síðan í ísafoldarprentsmiðju,
fyrst sem vélsetjari, en svo sem
verkstjóri. Árið 1929 tók ég við
framkvæmdastjórn prentsmiðj-
unnar og rak hana til 1955, að
ég keypti Leiftur og síðan hef
ég helgað Leiftri mína starfs-
krafta. Svo þú sérð, að ég hef
komið nálægt bókaútgáfunni æði
lengi.
— Þú gefur út margar bæk-
ur.
— Já, bókaútgáfa Leifturs hef-
ur farið vaxandi, smátt og smátt,
hægt a'ð vísu, en vaxandi. Tvö
— þrjú undanfarin ár hef ég
gefið út um 30 bækur á ári og
nú koma 35 bækur fyrir jólin og
ein snemma á næsta ári. í ár
er með mesta móti af bókum
fyrir fullorðna í útgáfunni hjá
mér, en barnabækumar finnst
mér skemmtilegast að gefa út.
— Hvernig ferð þú að því að
gefa út svona margar bækur,
Gunnar?
— Leyndarmálið er nú ekki
stórt, svarar Gunnar í Leiftri
og brosir við. Ég gæti þess að
bara, að það skapist hvergi eyð-
ur í reksturinn og ég get sagt
þér sem dæmi, að við erum byrj-
aðir að vinna fyrir næsta ár. Þáð
er um að gera, að láta þetta
dreifast sem jafnast yfir árið.
Þar með er galdurinn leystur.
— Nú, ættum við ekki að líta
á bækurnar þínar, sem koma út
í ár?
— Ágætt. Ég vil þó fyrst minn
ast á annað bindi af sjálfsævi-
sögu Sigurbjamar Þorkelssonar
í Vísi, sem ber nafnið: Ekki svík-
ur Bjössi. Þessi bók átti að koma
út fyrir jólin, en af óviðráðan-
legum orsökum gat ekki orðið
af því, en hún kemur á mark-
aðinn snemma á næsta ári. Fólk,
sem vill kaupa bókina fyrir jól-
in, getur keypt gjafakort í bóka-
búðum og fengið út á það bók-
ina, þegar þar að kemur.
Af bókunum í ár skulum við
byrja á bók Guðrúnar frá Lundi:
Náttmálaskin. Þetta er 22. bók
Guðrúnar, sem nú er komin yfir
áttrætt. Engin ellimörk eru þó
sjáanleg á þessari síðustu bók
hennar, sem ég veit að verður
ekki síður vinsæl, en hinar fyrri.
Hérna er svo Fréttabréf úr
Borgarfirði eftir Kristleif Þor-
steinsson á Stóra-Kroppi. Um
þriðjung aldar ritaði Kristleifur
fréttabréf úr Borgarfirði, sem
birtust í Lögbergi vestan hafs.
Þessi bók er því nokkurs konar
annáll þess tímabils, sem Krist-
leifur ritaði fréttabréf sín.
Að heiman og vestan heitir
þessi bók eftir Finnboga Guð-
mundsson. I bókinni eru rúm-
lega 40 ræður og greinar, samd-
ar á árunum 1951 til 1966, og
er vfða komið við: allt frá Ön-
undi tréfót til Halldórs Laxness.
Þá er einkum fjallað um Is-
lendinga vestanhafs, en höfund-
urinn dvaldist vestra, sem kenn-
ari í íslenzkum fræðum við
Manitobaháskólann í Winnipeg.
Hér er skáldsaga úr Reykja-
víkurlífinu eftir Kolbein Eiríks-
son. Hún heitir Paradísarstrætið
— svipmyndir frá liðnum tíma
— og gerist á árunum milli
heimsstyrjaldanna, sem voru á
margan hátt tímamótaár í ís-
lenzku þjóðlífi.
Af sjónarhóli heitir bók, sem
hefur inni að halda minningar-
þætti Kristjáns Jónssonar frá
Garðsstöðum. Kristján kom víða
við og kynntist mörgum mann-
inum á lífsleiðinni. Hann hefur
því frá mörgu að segja og lýsir
kostum manna og ávirðingum,
eftir því sem þeir koma honum
fyrir sjónir.
Þetta er skáldsaga eftir Odd-
nýju Guðmundsdóttur og heitir
Skuld. Oddný hefur áður látið
fara frá sér bækur, sem hafa
hlotíð góða dóma. Þessi bók
er samin vetuma 1953 til 1955
og tekur skáldkonan fram, að
hún styðjist ekki við neina
ákveðna atburði.
Hér kemur svo niðjatal Jóns
Árnasonar, bónda að Fremra-
Hálsi í Kjós 1733—1751. Jóhann
Eiríksson hefur safnað og skráð,
en hann hefur áður látið frá sér
fara fjögur ættfræðirit. Hér er á
ferðinni mikið rit, 514 bls., og
er þetta þó aðeins fyrri hluti
verksins.
Hannes J. Magnússon, skóla-
stjóri, er kunnur og reyndur
skólamaður. Hann hefur þó jafn
framt kennslunni látið fara frá
sér 17 bækur auk þess sem hann
var ritstjóri og útgefandi barna-
blaðsins Vorsins í 30 ár og rit-
stjóri Heimilis og skóla í 25
ár. í þessari bók, sem heitir:
Mannlíf í deiglu, fjallar þessi
reyndi maður um uppeldismálin
og er bókin eiguleg fyrir foreldra
og kennara, sem vilja kynnast
því, sem Hannes hefur til mál-
anna að leggja í þeim efnum.
Flugeðlisfræði heitir þetta
kver eftir Arngrím Sigurðsson og
er fyrsta bókin, sem skrifuð er
á íslenzku um þetta efni. Ætl-
unin er, að kverið verði flug-
nemum ' og öðrum flugáhuga-
mönnum aðstoð í leit þeirra að
frekari skilningi ^ eðli flugs-
ins.
Orri Uggason er dulnefni, en
bókin heitir Geislabrot. í bók-
inni eru sex sögur og eitt leik-
rit, sem höfundur kallar Prests-
kosning. Listamaðurinn Jóhann-
es Kjarval gaf höfundi tvær
teikningar til að skreyta með
bókina, og hefur hann ritáð
fangamark sitt (J.S.K.) á teikn-
ingarnar.
Hugrún er löngu orðin þjóð-
kunn skáldkona, og Hggja eftir
hana mörg verk og fjölþætt.
Þessi nýja bók Hugrúnar, Perlu-
bandið, færir okkur ellefu sögur,
sem sérstaklega eru ætlaðar
börnum og unglingum, en eiga
erindi til allra, sem hafa yndi af
því, sem fagurt er.
Hér er Guðmundur Jónsson
enn á ferðinni með nýja bók,
sem hann kallar: Sonur kot-
bóndans. Guðmundur er glettinn
og fundvís á gamansöm nöfn á
bækur sínar, því að flestir erum
við af kotbændum komnir og
má heimfæra nafnið upp á flesta
íslendinga, hvað það snertir.
Þessi stóra bók er myndabók
um ísland og ber nafnið: Island
— nýtt land. Allar myndirnar
eru litprentaðar og þeim fylgja
skýringar á fimm tungumálum:
íslenzku, ensku og dönsku, og
þýzku og frönsku. Formál-
ann skrifar Kristján Eldjárn
nu beraTVÆR
bragðljúfar sigarettur
na,niðCAMEL
ÞVÍ CAMEL — FILTER ER KOMIN Á MARKAÐINN
y
§i
m
§
FRESH
Lu&aJ
\A sjö og laiiríi, sumar og vetur
Ilmandi Cumel - og allt gengur betur