Morgunblaðið - 17.12.1967, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DKS. 19«
Skaðabótamál vegna
bifreiðaáreksturs
NÝLEGA var kveðinn upp í
Uæstarétti dómur í máli, sem
reis út af árekstri, er varð á
Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði
þ. 1. desember 1964, en í máli
þessu var deilt um skaðabætur
vegna tjóns þess, sem varð í
árekstrinum.
MáLavextir eru þeir, að rétt
fyrir klukkan 9 um kvöldið þann
1. desember 1964 varð árekstur
á milli bifreiðanna G-1764 og
R-6975 á Reykjavíkurvegi í Hafn
arfirði á móts við húsið nr. 70
við þá götu. Ökumaður bifreið-
arinnar G-1764 skýrði frá að-
draga slyssins á þá leið, að hann
hefði í umrætt skipti verið að
fara úr Hafnarfirði áleiðis til
Reykjavíkur og ekið eftir Reykja
víkurvegi á um 40 km hraða á
klst. Á móti sér hafi ekið lest
bifreiða. Þegar hann hafi komið
á móts við húsið nr. 70 við
Reykj avíkurveg hafi hann séð
bifreið fyrir framan sig í u.þ.b.
25 — 30 metra fjarlægð og hafi
bifreiðin tekið þannig stefnu,
eins og hún hafi ætlað að fara
fram úr næstu bifreið á undan,
en bifreið þessi, sem reyndist
vera R-6975, hafi verið í bifreiða
lestinni, sem á móti honum ók.
Bifreiðastjóri G-1764 kvaðst
hafa verið eins utarlega é sínum
vegarhelmingi og kostur var á.
Hann hafi hemlað, en vegna
hálku hafi helmlamir ekki verk-
að að fullu, hann hafi ekki getað
vikið utar á sinn veganhekning
vegna tálmana, sem þar voru og
því hafi hann ekki getað forðað
árekstri, þar sem R-6975 hafi
komið þvert í veg fyrir bifreið
sína.
Ökumaður bifreiðarinnar
R-6975 skýrði þannig frá aðdrag-
anda slyssins, að hann hefði
verið á leið til Hafnarfjarðar og
þegar hann hafi nálgast Reykja-
nesbrautina í Engidalnum hafi
þurft að stöðva bifreiðina vegna
umferðar. Hann hafi síðan ekið
af stað og verið kominn í annað
ganghraðastig, er bifreiðin hefði
skransað til hægri vegna hálku
á veginum. Hann hafi náð valdi
yfir bifreiðinni aftur og komið
henni á vinstri vegarhetaning, en
þá hafi hann ekið yfir auðan
blett á veginum og við það
komið kast á bifreiðina og hún
farið til hægri og lent í veg fyrir
bifreið, sem á móti hafi komið
og þær rekizt saman í allsnörp-
um árekstri.
Aðalstefnandi málsins var eig-
andi bifreiðarinnar G-1764 og
krafðist hann bóta að fjárhæð
kr. 56.101.75 auk vaxta og máls-
kostnaðar að frádregnum kr.
29.000,00, sem Sjóvátryggingafé-
lag ísland hafi greitt upp í tjón-
ið. Eigandi G-1764 hélt því fram,
Gjöfin sem gleður..
Kodak Instamatic myndavél er jólagjöfin sem vekur gleði og heldur
áfram að gleðja löngu eftir að hún er gefin. Instamatic myndavélar
geta allir farið með — börn sem fullorðnir. Gefið myndavélina sem
er 100% sjálfvirk, með innbyggðum flashlampa og tekur jafnt lit sem
svart/hvítar myndir.
Kodak Instamatic 25 kr. 433.00. Kodak Instamatic 204 kr. 1.150.00
Kodak Instamatic 104 kr. 877.00 Kodak Instamatic 224 kr. 1.500.00
HANS PETERSENf
SÍMI 20313 - BANKASTRÆTI 4
Kodak Instamatic 104 með
innbyggðum flashkubb, sem tekur 4 myndir
án þess að skipta þurfti um peru.
kr. 877.00.
Kodak Super 8
kvikmyndatökuvélar
í miklu úrvali.
Verð frá kr. 4.465.00.
að allar líkur beiitu til þess, að
ökumaður R-6975 hafi verið að
breyta um stefnu tál að fara
fraim úr næstu bifreið á undan
í röð bifreiða, þegar hann missti
stjórn á bifreiðinni. Hvort svo
væri skipti þó ekki öllu máli,
því að óvefengt væri, að hann
hefði misst stjórn á bifreiðinni,
þannig að hún hefði runnið út
á hægri vegarhetaning í veg fyrir
beifreiðina G-1764. Orsök slyss-
ins sé öll hjá ökumanni R-6975
og ökumanni G-1764 ómögulegt
að koma í veg fyrir slysið.
Eigiandi bifreiðarinnar R-6975
gagnstefndi í máili þessu krafðist
bóta að fjárhæð kr. 7.124.83 auk
vaxta og málskostnaðar. Var því
haldið fram til stuðnings þeirri
kröfu, að ljóst væri, að öku-
maður G-1764 hefði séð til ferða
R-6975 það löngu fyrir árekstur-
inn, að hefði hraði bifreiðar hans
og viðbrögð verið í lagi, þá hefði
honum átt að vera unnt að
stöðva bifreið sína og forða
árekstri. Akstur bifreiðarinnar
G-1764 hefði ekki verið forsvar-
anlegur miðað við aðstæður né
hel'dur ástand bifreiðarinnar, en
á henni hefðu hvorki verið snjó-
keðjur né snjóhjólbarðar. Væri
hæfilegt að telja sök ökumianns
G-1765 % hluta alls tjónsins.
í forsendum að dómi héraðs-
dóms segir m.a.: . . . ökumaður
bifreiðarinnar G-1764 hafði ekki
möguíleika til að forða árekstri
mieð því að víkja til vinstri,
þegar bifreiðin R-6975 rann að
því er virðist stjórnlaust yfir á
vinstri vegarhelming Reykja-
nesbrautar í veg fyrir G-1764.“
Síðar segir í forsenduim héraðs-
dómsins: „Samkvæmt þvi, sem
ráða má af gögnum málsins, var
fjarliægðin á milli bifreiðanna
svo lítil, þegar R-6975 rann út
að ósannað er gegn andmælum
á vestari helming brautarinnar,
aðalstefnanda, að ökumaður
G-1765 hefði getað forðað
árekstri ,enda þótt snjókeðjur
væru á hjólum bifreiðarinnar.
Ekki er heldur í ljós leitt, að
ökumaður G-1764 hafi ekið ber-
sýnilega of hratt miðað við
hindrunarlausa akbraut fram-
undan. Verður því ekki hjá kom-
ist að leggja alla sök á érekstr-
inum á ökumann R-6975.“
Samkvæmt þessu var eigandi
bifreiðarinnar R-6975 dæmdur
til að greiða samtals kr. 19.401.75
auk vaxta og málskoetnaðar.
Þessi dómur var staðfestur í
Hæstarétti.
Gullæði enn
London, 14. desember. AP.
GULLÆÐI greip aftur um sig
í London í gær, er fregnir bár-
ust um aðgerðir bandarískra og
evrópskra banka til að koma í
veg fyrir gullbrask, og beina at-
hyglinni að París.
Eftirspurn eftir gulli nálgaðist
að vera jafnmikil og í síðast
liðnum mánuði, um það leyti
sem pundið var fellt og dollar-
inn var talinn standa höllum
fæti um skeið.
í París tæmdist gullmarkaður
inn í fyrsta skipti í mörg ár.
Gullkaupmenn sögðu, að þeir
gætu haft gullstengur aftur á
boðstólum, sem væru eitt kíló
að þyngd, eftir tvær vikur, en
þeir sögðu, að þessi bið væri
nauðsynleg til að bræða nýjar
stengur og fullnægja eftirspurn.
Fjármálaráðuneytið banda-
ríska hefur ekkert látið frá sér
heyra um þessar fréttir frá Lon-
don og tilraunimar að halda
nýju gullæði í skefjum.
Opinberir starfsmenn neituðu
að ræða gullmál og var talið, að
þeir óttuðust, að hvað sem þeir
létu eftir sér hafa, yrði það ein-
göngu til að æsa upp gullæðið.
Var álitið, að þeir vildu sýna
fulla gætni vegna þeirra
sveiflna, sem orðið hafa síðan
sterlingspundið var fellt þann
18. fyrra mánaðar.
Fréttir frá London herma, a’ð
sjö meðlimir gjaldeyrissjóðs Lun
dúna hefðu komizt að samkomu
lagi í Bazel í Sviss um að banna
frekari sölu á gulli, banna sölu
á gulli upp á krít og hafna
beiðnum, sem lagðar eru fram
af hálfu annarra aðalbanka.
Þessar aðgerðir valda því, að
bankar verða að leita beint til
bandarískra sjóða til að skipta
dollaranum í gull.
Staða dollarsins þykir hafa
styrkzt verulega síðustu vikur,
eftir nokkurt vafatímabil
skömmu eftir lækkun pundsins.
MirNMMxAK
ÚR GOÐDÖLUM
og misleitir þættir
Endurminningar og sagnaþæltir
rftir
ÞORMÓÐ SVEINSÍON.
Lýsing Þormóðs á uppvaxtarár-
um hans { inndölum Skagafjarð-
ar um síðustu aldamót, mun
vekja furðu ungs fólks í dag, því
breytingin á lífshögum þjóffar-
innar er næsta furðuleg, þótt
ekki sé lengra um liðið.
Þetta er gagnmerk bók, sem gaman er að lesa