Morgunblaðið - 17.12.1967, Síða 17
IÆORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DES. 1967
17
„Er þörf fyrir heyrn-
leysingjaskólana?"
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi grrein frá kennurum við
Heymarleysingjaskólann í
Reykjavík:
VEGNA greinar O. Benzen yfir-
læknis í Arfhus í Danmörku, sem
birtist í Morguriblaðinu hinn
30 nóv. sl., með fyrirsögninni
.,Er þörf fyrir heyrnleysingja-
skólana"? viljum við, .sem kenn-
um við Heyrnleysingjaskólann í
Reykjavík, taka fram- eftirfar-
andi:
Við teljum að Zontaklúlbbur
Reykjavílkur hafi unnið mjög
gott starf með því að eiga frum-
kvæði að stofnun Heyrnanhjálp-
arstöðvarinnar í Reykjavík og
með þeim fjárframlögum, sem
hann hefur veitt til hennar. Við
erum greinarhöfundi sammála
um að óvíst væri hvort Heyrnar-
hjálparstöðin hefði enn verið
tofnuð, hefði frumkvæði Zonta
klúibbsins ekki komdð til.
Margt fleira hefur þessi klúbb
ur gert í þágu hinna heyrn-
skertu. Ber að þakka þann mikla
áhuga og það mikla starf, sem
að baki liggur. Væri vel ef fleiri
félög og einstafclingar vildu
hyggja að málum hinna heyrn-
sfcertu.
En við telj.um miður heppi-
legt að dr. Bentzen sé eini ráð-
gjafi Zontaklúbbsins í uppeld-
is- og kennslumálum, en Zonta-
fclúlbburinn hefur að undanförnu
látið þessi mál mjög til sín taka.
Við álí'tum að uppeldis- og
kennslumál séu fremur viðfangs
eifni kennara en lækna, Álit okk-
ar er að leilta beri þekkingar, hug
mynda og fræðslu sem víðast
að. í þvi samibandi má nefna að
kennarar þessa skóla hafa stund-
að sérnám í Danmörku, Noregi,
Þýzkalandi, Englandi og Banda-
ríkjiunum. Með því álítum við
að skapist aukin víðsýni og
hæfni til að meta nýjar kenn-
íngax og aðferðir.
Dr. Bentzen er fulltrúi nýrra
viðhorfa og nýrra aðferða í
kennslu heyrnskertra. Er kenn-
ing hans í fáum orðum sú, að
leggja beri niður alla sérskóla
f.yrir heyrnskert börn og kenna
þeim í almennum skólum.
Síðastliðinn vetur skrifaði
Heyrnleysingjaskóilinn nokkrum
þekktus'tu sérfræðingum í
kennslu- og uppeld'ismálum
heyrnskertra, í ýmsum löndum,
og ieitaði álits þeirra á þessari
nýju kenningu. Má m.a. nefna
þessa menn: Dr. T. J. Watson
Department of Audiology and
Edueation of Deaf, Mantíhester
University. Dr. Helmer Mykle-
bust prófessor, forstöðumann
The Institute for Language Dis-
order, Niortih-western University,
í Bandariíkjiunum. E. W. Tilling
hast florseta stjórnanda amerískrg
heyrnleysingjaskóla. J. vap
Eijndihofen forstöðumann heyrn-
leysingjaskóla í St. Miöhielges'el,
Hollandi. Dr. S. R. Silverman,
forstöðiumann Central Institute
for the Deaf, St. Louis. í Banda-
ríkjunum. Peter Knudsen, skóla
stjóra í Fredericia og O. Hoim,
skólastjóra í Kaupmannahöfn.
Álit þeirra allra var að sér-
skólar gegndu sínu mjög þýðing
armikla hlutverki og bæri því
ekki að leggja þá niður.
f þessu samibandi má geta
þess, að nú er nýr skóli fyrir
heyrnskerta í byggingu í Kaup-
mannahöfn og hafin er bygging
nýs skóla fyrir heyrnskerta í
Fredericia. Bendir það ekki tiL
að sérfróðir menn í þess’um efn-
um í Danmörku né heldur skóla
yfirvöld þar, séu dr. Bentzen
sammála um, að leggja beri sér
skóla niður.
Eins og Dr. Bentzen bendir á
í grein sinni. er heyrnskertum
börnum á vissum svæðum í
Da.nmörku og Svíþjóð kennt í
almennum skólum. Enn er of
snemmt að dæma um árangur
af þessu fyrirkomulagi og skal
því engu spáð um það, hvernig
þessum málum verður háttað í
framtíðinni. En gera má ráð fyr
ir því, að vegna mikilla fram-
fara í læknavísindum og í smíði
heyrnartækja geti fleiiri heyrn-
skert börn stundað nám í al-
mennum skólum en áður.
Til þess að heyrnskert barn
geti stundað nám í almennum
skóla þarf að vinna mikið und-
irbúningsstarf. Barnið þarf að
fá sérstaka þjálfun allt frá fyrsta
ári; og foreldarnir þurfa að fá
leiðibeiningar í meðferð barns-
ins. Síðan þarf 'barnið séraðstöðu
í “skólanum. Kennari þess þarf
að vera sérmenntaður í kennslu
heyrnskertra barna. Barnið þarf
einnig aðstoð sérhæfðra starfs-
manna utan skólatíma. Og öll
nauðsynleg hjálpartæki þurfa að
vera fyrir hendi í skólanum.
Við álí'tum að hér á landi sé
enn sem komið er engin aðstaða
til að veita heyrnskertum börn-
um slíka undirbúningsþjálfun
eða endurhæfinigu. Hér er enn
engin deild á sjúkrahúsi einung
is ætluð sjúklingum með eyrn-
arsj'úkdóma. Er okkur Ijósara
en áður, eftir samtal við Stefán
Skaftason lækni, sem stanfar í
Árósum, og var hér á flerð sl.
sumar, hvílík nauðsyn eir á slíkri
deild. Við teljum það mjög al-
varlegt hál að heyrnskert fólk
hér á landi skuli ekiki eiga kost
allrar þeirrar læknishjálpar, sem
nútíma læknisvísindi geta boð-
ið.
Hér á landi eru nú um 30
óriggja ára börn með skerta
heyrn. í>au hafa ekki fengið end
urhæfingarþjálfun. Barnaskólar
á íslandi hafa litlá kerfisbundna
sérkennslu. Á íslandi eru nú að
eins 5 bennarar í kennslu heyrn
skertra. Starfa þeir allir við
Heyrnleysingjaskólann í Reykja
vík. Aðstaða virðist okkur því
engin til að almennir bamaskól
ar á íslandi geti tekið á móti
þessum börnum. Því finnst okk
ur það óvarlegt að gefa foreldr-
um vonir um að heyrnleysingja
skólar séu óþarfir og heyrnskert
börn geti stundað nám í almenn
um skólum. Þess í stað ætti að
líta raurihæft -á aðstæðurnar.
Heyrnleysingjaskólinn er eina
stofnunin. sem til greina kem-
ur að geti tekið við þessum 30
heyrnskertum börnum, sem nú
eru á fjórða ári. En þó því að-
eins að starfsskilyrði hans verði
bæitt til mikilla muna.
Allir þurfa að standa saman
um byggingu nýs skóla, stofnun
sjúkradeildar fyrir beyrnskerta
og endurhæfmgarstöðvar. Sýn-
isrt okkur þá, að fari að rofa tifl.
í málum heyrnskertra. ,
— Þrettándakvöld
Framlhald af bls. 8.
fang að gera tilbrigði við. Standi
hins vegar allir þræðir upp-
setningarinnar trúverðugum rót-
um í texta Shakespeares og
heppnist að láta þá hlykkjast
svo um fastan ramma leikritsins,
að áhorfandinn skynji hrynj-
andi verksins sem heildarmynd,
þá er af setningi slegið og til
einhvers barizt. Til þess að slíkt
heppnist, þarf leikstjórinn að
hafa skíra stefnu í starfi sínu
og svo aúðvitað að hafa á að
skipa hæfum leikurumi, sem geta
unnið í þeim anda.
Ekki get ég lagt svo frá mér
pennann, að ég hafi ekki minnzt
á Helga Hálfdánarson. Allar þjóð
ir sýna Shakespeare, en afar mis-
jafnlega hefur tekizt að þýða
verk hans. Mörg góð skáld hafa
farið mjög halloka í viðureign-
inni við litríkan texta þessa
gamla snillings og snúna orða-
leiki. íslendingar eiga hins vegar
tvo afburðaþýðendur Shakespea-
res, Matthías Jochumsson, sem
þýddi rismestu kafla frægustu
harmleikjanna af svo skáldleg-
um glæsibrag, að vart gefur
frumtextanum eftir, og Helga
Hálfdánarson, sem er gæddur
slíkum eindæma hæfileikum
frumleika, næmi og hollustu við
verkin, að flestir kunnugir
hneigjast til að fullyrða, þótt
þeim sé þa'ð ekki tamt, — að
ekki verði betur gert.
örnólfur Arnason.
Samstaðo ríki
um ný aðildar-
lönd EBE
LÍKURNAR til að ný lönd fái
aðild að Efnahagsbandalaginu
hafa nú minnkað að mun. Utan-
ríkisráðherrar fimm efnahags-
bandalagsríkja af sex hafa sam-
þykkt á fundi í Brussel, að al-
ger samstaða skuli ríkja meðal
landanna sex um ný aðildarlönd
að bandalaginu.
Frakkland hefur lengi lýst
fullkominni andstöðu við þá til-
lögu, að Bretar fái irmgöngu í
bandalagið og stjórnmálafrétta-
ritarar í Brussel telja, að eng-
ar vonir séu til að Bretar, Irar,
Norðmenn og Danir fái að svo
komnu máli aðild að bandalag-
inu.
Lokaumræður, þar sem fjallað
verður um, hvort hefja eigi við-
ræður eður ekki , ver*ða ákveðn-
ar á fundi utanríkisráðherranna
á mánudag og þriðjudag í næstu
viku.
ÞETTA GERÐIST
ALÞINGI
88. löggjafarþing íslendinga sett
(l'l).
Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn semja um áframhaldandi
st jórnarsaimstarf (11).
Forsætisráðherra flytur stefnuyfir-
lýsingu ríikisstjórnarinnar á Aljþingi
(lð).
Fjárlagafrumvarpið fyrir 1968 lagt
fram. Heildarútgjöld ríkissjóðs áætluð
6120 millj. kr. og heildartekjur 6195
millj. kr. (13).
Birgir Finnsson kosinn forseti Sam-
einaðs þings, Sigurður Bjarnason
forseti Neðri deildar og Jónas Rafn-
ar forseti Efri deildar (13).
Lagt fram á alþingi stjórnarfrum-
varp um nýjar efnahagsaðgerðir (14).
Útvarpsumræða um fjárlagafrum-
varpið (20).
Frumvarp um æskulýðsmál endur-
iflutt á Aliþingi (24).
Stjórnarfrumvarp um að giftingar-
aldur karla lækki í 20 ár (25).
Stjórnarfrumvarp um að hlutverk
ríkisframleiðslunnar verði fengið í
hendur sjúkrasamlaga og Tryggingar-
stofnunar rikisins (25).
VEÐUR OG FÆRÐ
Miklar jarðskjálftakippir á Reykja-
nesi (1,2,3).
Fjallavegir teppast á Norðurlandi
vegna snjóa (15) .
Kaldasta októbernótt síðan 1924.
Mesta frost, 19 stig, mældist á Gríms-
stöðuim á Fjöllum (18).
Færð þyngist um norðanvert land-
ið (27).
ÚTGERÐIN
Saltað í flestum bæjum norðan
lands og austan (1).
Heildaraflinn 2. október 242.359 lest-
ir (4).
Lágmarksverð á síld veiddri sunn-
an og vestan lands ákveðið (6).
Meginhluti síldarstofnsins kominn
suður fyrir Jan Mayen (6).
Síldin nálgast hemrMnið (8).
Stöðug söltun síldar norðan og aust-
an (10).
Heildarsíldiaraflinn norðan og aust-
an 256.961 lest 9. okt. (12).
Heildarsíldaraílinn norðan og aust-
an 290.622 lestir 23. okt. (25).
Mikið annríki á flestum söltunar-
stöðvum eystra (26).
Heildarsöltun síldar á landinu 170.192
tunnur 29. okt. (31).
MENN OG MÁLEFNI
Agnar Ingólfsson doktor í fugla-
fræði frá háskólanum í Michigan í
USA (3).
Emil Jónsson , utanríkisráðlhcrra
flytur ræðu á Allsherjarþingi SíÞ (5).
Dr. DilLon Ripley, forstjóri Smith-
sonian, í heimsókn hér (7).
Biskup íslands aðstoðar við vígslu
sjómanna'kirkju í Grimsby (7, 10).
Forsætisráðherrar Norðurlanda á
fundi 1 Reykjavík (8.—10)).
Magnús Kjartansson, ritstjóri. hlýt-
ur verðlaun úr Móðurmálssjóði Björns
Jónssonar (10).
Búendur Stakkaihlíðar í Loðlmund-
arfirði flytja á brott, og er þá að-
eins einn maður eftir í hreppnum
(1»1).
Fulltrúar frá SAS hér til viðræðna
við Flugfélag íslandis (12).
Björn Jónsson, alþrn., segir sig úr
Sósíalistafiokknum (13).
Erling Sörli, námsstjóri í Noregi,
heldur bindindisfræðslunámskeið í
Kennaraskóla íslands (14).
Ohristian Thomsen, landibúnaðarráð-
herra Dana, í heimsókn hér (19).
Joihni Baptist Hubert Theunisser,
erkibiskup í Malawi, fulltrúi páfa á
íslandi (19).
Nýskipaður sendiherra Brasilíu á ís-
landi í heimsókn (21).
Færeysk stúlka strýkur frá Bjargi
og segir ófagrar sögur um vistina
þar (21).
Fulltrúar Akureyrarbæjar í heim-
sókn í Reykjavík (24.25).
Jógvan á Dul, formaður barna-
verndarnefndar Færeyja. kernur hing-
að í samibandi við Bjarg-málið (26).
19 ára stúlka bjargar fjögurra ára
telpu frá köfnun (27).
Sænskir sérfræðingar komnir hing-
að vegna væntanlegra breytinga yfir
í hægri umtferð (28).
Þorvaldur Ari Arason, hrl., hlýtur
16 ára fangelsisdóm fyrir að hafa
orðið fyrrverandi konu sinni að
bana (31).
FÉI.AGSMÁL
Vigfús Sigurðsson formaður Lands-
saimibands iSnaSarmanna (1).
Landssamiband ísl. útvegsmanna
heldur aukaþing (1,3).
970 nemendur verða í Menntaskól-
anum við Lækjargötu í vetur (3).
Sjómannasamibandið æskir greiðslu-
frests á sköttum fyrir sjómenn. (4).
Pétur , Sigurgeirsson endurkosinn
formaður Æskulýðssamíbands kirkj-
unnar í Hólastifti (4).
Sveinn Jónsson, Egilsstöðum, endur
kosinn formaður Sambands sveitar-
félaga í AusturLandskjördæmi (8).
Axel Einarsson kosinn formaður
Handknattleikssambands íslands (10).
Kristján G. Gíslason endurkjörinn
formaður Verzlunarráðs íslands (14,
21, 22).
Félag dráttarbrauta og skipasmiða
stofnað (15).
Listi fráfarandi stjórnar sigraði við
stjórnarkjör í Stúdentafélagi Háskól-
ans (71).
Stjórn A.S.Í. óskar eftir viðræðum
við ríkisstjórnina um væntanlegar
efn-ahagsaðgerðir rikisstj órnarinnar
(20).
Aðalfundur Skógræktarfélags ís-
lands haldinn að Hlégarði (21).
672 nemendur í Kennara-skólanum í
vetur (21).
Birgir ísl. Gunnarsson, hrl., kosinn
formaður Samibands ungra sjálfstæð-
ismanna (21, 22, 24).
Aukafundur SH heimilar stöðvun
frystihúsanna frá áramótum (24).
Aukaþing B.S.R.B. kemur saman til
fundar (25).
Kjiartan Bergmann endurkjörinn
formaður Glímusambands íslands
(25) .
Tíu nýir sjúkraliðar brautskráðir
(26) .
Samningar nást milli rækjuveiði-
manna og eigenda rækjuverksmiðj-
anna við ísafjarðardjúp (26).
18 hjúikrunarkonur brautðkráðar frá
Hjúlkrunarskóla íslands (28).
364 nýstúdentar hafa innritazt í Há-
skóla íslands (31).
FRAMKVÆMDIR
Verkalýðsfélögin á Norðurlandi reisa
félagsheimili í Fnjóskadal (1).
Borað eftir heitu vatni við Lagar-
fljótsbrú (4).
Mi'klar breytingar á . flugvélaaf-
greiðslunni á Keflavíkurflugvelli (5).
Gefjun-Iðunn opnar verzlun í Aust-
urstræti 10 (6).
Miklar fra-mtkvæmdir við skólabygg-
ingar borgarinnar (6).
Lokað við byggingu vöruskemmu
Kísiliðjunnar h.f. á Húsavíik (7).
Nýtt skólahús vigt á Vopnafirði (8).
283 íbúðum úthlutað í Breiðholts-
hiverfi (8).
* Sjálfvirk símstöð opnuð í Grundar-
firði (8).
/ OKTÓBER 1967
Fyrri áfanga Kísilvegarins senn lok-
ið (10).
4 millj. kr. skíðalyfta tilbúin á Hlíð-
arfjalli við Akureyri (13).
Nýtt gagnfræðaskólahús reist á Sel-
fossi (14).
Strætisvagnar Reykjavíkur breyta
vögnum sínum vegna væntanlegrar
hægri umferðar (20).
Kiwanisklúbburinn Hekla gefur
Fæingardeild Landspítalans tá^i til
að meta ástand fósturs (»).
TrésmiSjan Alkur á Aikranesi reisir
nýtt vertksmiðjuhús (21).
Stórt og nítýzkulegt baikarí opnað
við Háaleitisbraut (22).
Björgunarskýli reist á Þrívöruihálsi
(24).
Gos með 100 stiga heitu vatni úr
borhiolu við Hlíðardalsskóla (27, 31).
Blómabúsið. ný blómaverzlun að
Álftamýri 7. (28).
Ný brú á Jökulsá á Sólheimasandi
vlgð (28, 31).
Kísiliðjan við Mývatn formlega af-
hent 28, 31).
Fjöliðjan h.f. opnar nýja verkismiðju
á Hellu (29).
BÓKMENNTIR OG LISTHt
Sveinn Björnsson heldur málverka-
6ýningu (7).
Málverk eftir Jón Stefánsson selt
á 95 þús. kr. á málverkauppboði (13).
Gríma sýnlr leikritið Jaikob eftir
Ionescu (15).
4000 sýningar hafa verið i Þjóðleik-
hiúsinu frá upplhafi (18).
Sýning á verkum Þorvalds Skúla-
sonar I Oasa Nova (21).
Leifcfiélag Reykjavíkur sýnir „Indí-
ánaleik* eftir René de Obaldia (24).
Jussi Jalas stjórnar tónleikum Sin-
fóníuhljómeveitarinnar og Ruben
Varga leikur einleik á fiðlu (26).
Leikfélag Akureyrar sýnir saikamála
leikinn Frú Alvís, eftir Jaclk Popple-
well (26).
NÝJAR BÆKUR
Rautt sortulyng, smásögur, eftir
Guðmund Frímann (14).
Minningar Stefáns Jóhanns Stefáns-
sonar, síðara bindi (10).
Lausavísur, eftir Karl Friðriksson,
brúarsmdð (29).
Nýtt lauf, nýtt myrkur, ljóðabók
eftir Jóhann Hjálmarsson (31).
SLYSFARIR OG SKAÐAR
Ásgeir Jóhannes Sigurgeirsson. yfir-
kennari, 35 ára, bíður bana í bilslysi
(3).
Sprunga kemur í vegg vitans á
Reykjanesi i jarðskjálfta (3).
Ungur flugmaður, Lárus Guðlmunds-
son, ferst með lttilli eins hreyfils
flugvél (4.-7).
12 ára drengur, Rúnar Aðalbjöm
Pétursson, Hólum í Langadal í Húna-
vatnssýslu, biður bana i bil^stgi (11).
Flugmaður í prófflugi lendir með
vél sína í skurði (15).
Ungur sjómaður, Niels Axelsson,
Kletti við Kleppsveg druikknar á
Seyðisfirði (10).
Goðaborg GK, 8 lesta trillubátur,
sekkur í Faxaflóa (20).
Húsið Hamrar við Suðurlandsbraut
sikemimist í eldi (20).
Vélbáturinn Straumnes SH 109 sekfc-
ur eftir að eldur kemur upp i bátn-
iim (24. 25).
Útihús brenna á tveimur bæjum,
Dagverðará í Breiðavíkurhreppi og
Bakfcakot á Rangárvöllum (27).
Gullberg NS 11 og færeyskur fiski-
bátur, Beinir TN 330, rekst harka-
lega á á miðunum (27).
AFMÆLI
KBA á Aufcureyri 80 ára (5).
Úrsmiðafélag íslands 40 ára (27).
Tannlæknafélag íslands 40 ára (31).
ÍÞRÓTTIR
Valur kemst í 2. umferð í Evrópu-
keppni knattspyrnuliða (3).
Erlendur Valdimarsson, ÍR, setur
unglingamet í kúluvarpi, 16,33 m, og
kringlukasti 53,06 m (12).
KR bikarmeistari KSÍ í 7. sinn (24)..
Danska handknattleiksliðið Stadion
keppir hér (31).
ÝMISLEGT
Vöruskiptajölfnuðurinn til ágústlolka
óhagstæður um 1973,9 miilj. kr. (1).
Gufugos og nýir hverir myndast á
Reykjanesi (3.17).
Pólverjar kaupa gærur hér fyyir
um 23 millj. kr. (3).
Taska með 300 þús. kr. hverfur frá
starfsmanni Loftleiða (3,4).
Ágæt laxveiði sunnanlands og vest-
an í sumar (4).
221.903 farþegar fóru um JCeflavík-
urflugvöll fyrstu 9 mánuði ársins (5).
Eldurinn í Borgarskála virðist hafa
komið upp inni í vöruskemmu Eim-
skips (5).
Þyrla flytur kindur til byggða af
afréttum (6).