Morgunblaðið - 17.12.1967, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DES. 1967
'mámívr
t+y*rZý*%.t ’
KvennadaIk
" I '0h4*
Jólagóðgæti úr bókinni
Matur og
rykkur
BÓKIN „Matur og drykkur eít-
ir fröken Helgu Sigurðardóttur,
skólastjóra, kom út fyrir u.þ.b.
ári, þ.e.a.s. 4. útgáfa, aukin og
endurbætt. Höfundur, sem er lát
inn fyrir nokkrum árum, var
brautryðjandi í húsmæðra-
fræðslu hér á landi, og hafa
komið út eftir hana margar
matreiðslubækur. Bók þessi,
„Matur og drykkur", er sett
saman úr fyrri bókum Helgu, að
frumkvæði frú Rögnu Sigurðar
dóttur, og hafa tveir húsmæðra
kennarar, þær Anna Gísladótt-
ir og Bryndís Steinþórsdóttir,
annazt endurskoðun efnis bók-
arinnar. Bók þessi er ákaflega
fjölbreytt og skemmtileg og
mjög vel úr garði gerð af hálfu
útgefanda,. sem er ísafoldar-
prentsmiðja h.f. Bókin „Matur
og drykkur" var ófáanleg um
lengri tíma, en nú hefur rætzt
úr því. Trúlegt er, að bók þessi
verði vinsæl jólagjöf handa
yngri húsmæðrum og jafnvel
hinum reyndari líka, því að í
bókinni eru auk mikils fjölda
alls kyns rétta, nýir kaflar um
glóðarsteikingu og frystingu
matvæla. Þar sem jólin eru í
nánd, birtum við að þessu sinni
kökuuppskriftir, nokkrar
skemmtilegar uppskriftir af jóla
sælgætinu, en snúum okkur að
öðru efni í bókinni síðar.
Formkökur.
þúsund ára kaka.
200 gr. smjörlíki
200 gr. sykur
4 egg
250 gr. hveiti
% tsk. hjartarsalt
Vanilla
50 gr. súkkat
30 gr. möndlur
Smjörlíkið er linað og hrært
iétt og ljóst með sykrinum. Egg
in hrærð í, eitt og eitt í einu.
Hveiti og hjartarsalti sáldrað
og hrært út í. VaniUa og smátt
skorna skúkkatið sett út í. Deig
ið látið í vel stnurt, kringlótt
mót, helzt með lausum botni.
Möndlurnar afhýddar og settar
ofan á deigið til skrauts. f stað-
inn fyrir möndlur er fallegt og
gott að hafa valhnetur. Kakan
bökuð um eina klst. við meðal-
hita.
Ávaxtakaka.
250 gr. smjörlíki
250 gr. sykur
2 egg
1 tsk. eggjaduft
3 tsk. lyftiduft
Vi 1. mjólk
% kg. hveiti
100 gr. súkkat
100 gr. gráfíkjur
100 gr. rúsínur
Smjörliki og sykur er hrært,
þangað til það er Ijóst og létt.
Síðan eru rauðurnar lótnaT í, ein
og ein og hrært vel. Súkkat, rús-
ínur og gráfíkjur er skorið smátt
og blahdað í deigið. Hveiti, Ijrfti
dufti og eggjadufti er sáldrað og
blandað saman við ásamt mjólk
inni, og að síðustu er stífþeyttum
hvítunum blandað í. Deiginu er
skipt 1 2 vel smurð tertumót og
bakað við hægan hita, meiri
undirhita, í 3—4 stundanfjórð-
unga.
Sírópskaka með kryddi.
% kg. síróp
Vi kg. sykur
Vt dl. vatn
1 tsk. negull
1*4 tsk. kardimommur
2 tsk. kanill
75—100 gr. súkkat
% kg. hveiti
2 tsk. natrón
2 egg
Smjörkrem:
150 gr. smjör
150 gr. flórsykuT
1 eggjarauða
korn úr V* vanillustöng
Síróp, sykur og vatn soðið
saman og kælt. Kryddinu bland-
að í. Hveiti og natron sáldrað
saman. Vætt í því með síróps-
blöndunni og samanþeyttum
eggjum. Deigið látið í bökunar-
skúffu, sem smurð er og stráð
hveiti. Bakað í eina klst. við
meðalhita. Kakan vafin innan í
deigan smjörpappír og látin bíða
minnst 2 daga. Bezt er að skera
þessa köku þversum og smyrja
hana eins og tertu með smjör-
kremi eða smjöri.
Brúnkaka með ávöxtum.
2 boilar hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 tsk. natron
1 tsk. salt.
1 tsk. kanill
Vz tsk. negull
Vi tsk. kardimommur
bolli smjörlíki
Vt bolli púðursykur (eða strá-
sykur)
Vz bolli sírop
1 bolli rúsínur
% bolli saxaðar hnetur
1 bolli heituT appelsínusafi
ávextir
Hveiti, lyftidufti og kryddi er
sáldrað saman. Smjörlíki og syk-
ur er hrært, unz blandan er létt
og jöfn. Þar saman við er hrært
sírópi, rúsínum, hnetum og app-
elsinusafa. Hveitinu hrært smátt
og smátt út í. Bakað í smnjrðu
hringmóti við vægan til meðal-
hita í 2-3 stundarfjórðuna.
Hnoðuð terta.
300 gr. hveiti
200 gr. smjörlíki
150 gr. sykur
2 tsk. lyftiduft
2 egg
EINU
SINNI
VAR
II. bindi
Endurminningar
SÆMUNDAR DÚASONAR.
f þe&su bindi eru sérstæðir sagna-
þættir af ýmsum körlum og kon-
um, sem öll ó)u aldur sinn í
Verð kr. 275.00
án sölusk.
Fljótum, eða inntu þar af hendi
megiiihluta síns ævistarfs. Þætt-
imir af Sveirti f Dæli og Þorsteini
i Vík eru bæði fróðlegir og
skemmtik'ga skrifaðir og í þætt-
inum „Úreld vinnubrögð“ segir
glögglega frá ýinsum störfunr ti)
sjós og lands, sem algeng voru og
sjálfsögð á uppvaxtarárum Sæ-
mundar, en eru nú orðin svo úr-
eld að þau verða naumast unnin
framar. Mun mörgum þykja
þessi kafli gimilegur til fróðleiks.
ÓVENJULEG OG SÉRSTÆÐ BÓK.
Biöjiö bóksalann yöar aö sýna yöur BÓKAFORLAGSBÆKURNAR
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR . AKUREYRI
Berjamauk
Hveiti og lyftidufti er sáldrað.
Smjörlíki mulið og sykri bland-
að saman við. Vætt í með eggj-
um og hnoðað, unz deigið er
sprungulaust. Skipt í þrjá eða
fjóra jafna hluta. Flatt út í eins-
laga kökur. Bakað ljósbrúnt við
mikinn hita. Kökurnar lagðar
volgar saman með berjamauki.
Aprikósukúlur.
1 Vz bolli aprikósur
2 bollar kókósmjöl (gróft)
%—% bolli niðursoðin mjólk
flórsykur
Mjúkar aprikósur eru skornar
smátt, þar í blandað kókósmjöli,
vætt í með mjólkunni, og deigið
hrært vel. Bíða um stund. Mótað
í kúlur, sem snúið er upp úr
flórsykri og kókósmrjöli. Raðað
á fat og bíði svo þangað til kúl-
urnar eru harðar.
Ávaxbitar.
1 bolli döðlur
Vz bolli steinlausar rúsínur
% bolli kúrennur
1 bolli hnetusmjör
Vt bolli niðursoðin mjólk
Rúsínur, kúrenur og döðlur
eru saxaðar, og blandað í þær
hnetusmjöri og mjólk, hnært vel
saman, sett í smurt mót, sem
flórsykri er stráð innan í, flór-
sykri stráð ofan á. Biði á köldum
stað. Skorið í ferkantaða bita,
snúið gætilega upp úr flór-
sykri.
Döðlubitar.
% bolli niðursoðin mjólk
1 tsk. vanilla
4 bollar flórsykur
1 bolli saxaðar hnetur
lh bolli döðlur, saxaðar.
Flórsykurinn settur í skál og
vætt í með mjólkinni og hrært
saman við. Deigið er sett í smurt
mót, kælt og skorið í ferhyrnda
bita.
Döðlumolar.
%bolli púðursykur
% bolli strásykur
Vi—■Ví bolli mjólk
125—150 gr. döðlur.
75—100 gr. möndlur.
Púðursykri, strásykri og mijólk
blandað saman og soðið við
frekar hægan hita, þar til það
er orðið það þykkt, að móta
megi úr því. Þá eru döðlurnar,
sem eru smátt saxaðar, látnar
saman við og soðnar í 3-4 mán-
útur og hrært í viðstöðulaust.
Deigið sett á blautan bakka eða
bretti. Flatt svolítið út og möndl
unum stráð yfir. Þegar þetta
byrjar að storkna, er það mótað
í sívalaF lengjur með deigum
höndum, lengjunum er svo velt
upp úr kókósmjöli eða söxuðum
möndlum og skorið í ræmur eða
sneiðar.
Haframjölskúlur.
125 gr hafragrjón
100 gr. púðursykur
2 miatsk. kaffi
1-2 matsk. kakó
25 gr. smjör
Smjörið er brætt, kælt, en má
þó ekki storkna. Haframrjölið er
sett á borð, í það er blandað
sykri og kakói. Vætt í með smjór
inu og köldu kaffi. Deigið hnoð-
að fljótt saman. Ef deigið verð-
ur of linnt, má setja í það kakó
eða haframjöl. Rúllað í lengjur,
sem eru lagðar hvor við hliðina
á annarri og skornar í einu í
bita. Rúllað í kúlur. velt upp úr
súkkulaði og grófum sykri.
Haframjölstoppar.
100 gr. hafragrjón
100 gr. púðursykur
2. matsk. síróp
2 matsk smjörlíki
Smjörlíkið sett í þykkan pott
og brætt. Þar í er blandað sírópi
og sykri, hrært vel saman, þar
til allt er byrjað að brúnast.
Potturinn tekinn af eldinum,
Skemmtilegar umbúðir
Hér er ágæt hugmynd um
innpökkun gjafar handa barni.
Gjöfinni er pakkað inn í venju-
legan pappír, síðan er hægt að
klippa út úr blaði haus af ketti
(eða teikna) og líma á annan
endapakkans, og svo er útbúin
rófa úr efnisafgöngum og sett á
hinn endann. Þessar uimbúðir er
hægt að nota utan um bæði
jóla- og afmæli'Sgjafir, og vekja
áreiðanlega ánægju hjá minnstu
börnunum.
Fyrir minnstu börnin
HÉR er mynd af smákökum,
sem á eru festir smápinnar og
minnir þetta talsvert á „sleiki-
pinna“. Kökurnar eru búnar til
úr venjulegu sírópskökudeigi
eða öðru því, sem úr verða harð
ar smákökur. Pinnarnir gætu
verið úr drykkjarrörum eða
tannstönglum og stungið í kök-
urnar áður en þær eru bakaðar.
Glassúr er gerður úr flórsyrki
og vatni og sett í ávaxtahtur
eftir eigin vali. Augu, munnur
og nef er gert úr mjóum lakkrís
ræmum.
Cornflakesboltar.
300 gr. plöntufeiti
2 bollar flórsykur
3 matsk. kakó
1 pakki cornflakes.
Plöntufeitin aðeins brædd í
potti, sykur og kakó sett út í.
Potturinn tékin af og cornflakes
sett út í. Blandað saman, sett
með matskeið á plötu. Sett á
kaldan stað, og látið storkna.
Súkkulaðibitar.
200 gr. súkkulaði
100 gr. plöntufeiti
2 egg
Súkkulaðið rifið, sett í skál í
pott með vatni í. Brætt yfir
gufu. Plöntufeitin brædd við
hægan hita. Kæld, þar til hún
byrjar að storkna. Eggin þeytt.
Þar- í hrært súkkulaðinu og
storknaðri plöntufeitinni. Hrært
þar til deigið er svo þykkt, að
það haldi lögun. Sett í kramar-
hús, sprautað á piötu. Hnetu-
kjarni settur í toppinn.