Morgunblaðið - 17.12.1967, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. DES. 1967
23
hafragrjónin sett út í, hrært vel
saman og látið bíða, þar til það
fer að kólna. Bökunarplata er
smurð með smjöri, haframjöls-
deigið sett í toppa með tveimur
teskeiðum, sem dýft er ofan í
kalt vatn, eða mótað í kúlur
með deigum höndum. Sé það
gert, má dýfa kúlunum í krem
og skreyta þær síðan með hnet-
um eða súkkati.
Hlaupmolar.
5-6 matrlímbönd
1M> bolli heitt vatn
4 bollar sykur
V* tsk. salt
Rauður og grænn ávaxtalitur
Piparmyntuolía
. 1 tsk. kanill
Vatn, sykur og salt er soðið
saman, þar til það heldur lögun
í köldu vatni. Matarlimið, sem
lagt hefur verið í kalt vatn tekið
upp úr og sett út í sykurlöginn.
Hrært vel saman. Piparmyntu-
olíu og kanil hrært út í. Helm-
ingurinn af sykurleginum litað-
ur rauður og það sem eftir er
grænt. Hellt í mót, sem áður eru
rennd innan með köldu vatni.
Daginn eftir er hlaupið skorið í
ferkantaða bita, sem snúið er upp
úr strásykri, og raðað á fat. í
staðinn fyrir kanil, piparmyntu-
olíu og vatn er gott að hafa saft,
sem þá er soðið með sykrinum.
Kaffikúlur.
125 gr. súkkulaði
1 matsk. kaffiduft (Neskaffi-
duft).
1. ábætisskeið konjak, líkjör
eða romm
1 ábætisskeið rjómi.
Súkkulaðið er brytjað smátt
og sett í skál og brætt yfir gufu.
I»egar súkklulaðið er bráðið, er
kaffidufti, víni og rjóma hræt
vel í, þar til þetta er hér um bil
kalt. Mótað í jafnar kúlur. Þeg-
ar kúlurnar eru vel þurrar, er-u
þær hjúpaðar súkkulaði. Vafðar
í glæran pappír.
Hnetukúlur.
%—% bolli niðursoðin mjólk
1 tsk. vanilla eða annað bragð
efni
4 bollar flórsykur sáldraður
y4—V2 bolli hnetjukjarnar
Mjólk og vanillu blandað sam-
an, þar út í er flórsykur hrærður
smátt og smátt, þar til deigið er
samfellt og auðvelt er að móta
það í litlar kúlur. Snúið upp úr
kókósmjöli, sem í er blandað
rifu súkkulaði. í staðinn fyrir
vanillu má hafa annað bragð-
efni, svo sem romm, pipar-
myntuolíu eða vín. Einnig má
skipta deiginu og lita það. í
miðju hverrar kúlu er stungið
hnetu.
Jólakaramellur.
4 dl. sykur
2Yi matsk. síróp
4 dl. rjórai
4 dl. kakó
60 gr. smjör
75 gr. hnetur
JÓLABJALLAN
Hér sjáum við, hvernig við get-
um búið til jólabjöllu úr litlum
blómapotti, sem snúið er með
botninn upp. Síðan er skreytt
með greni og ýmsu öðru skrauti
og bjallan hengd upþ með silki-
bandi og könglum. Bandið er sett
í gengumgat ið á pottinum og fest
að innan með pinna, sem settur
er þversum.
Allt annað en hneturnar er
sett í góðan þykkan pott og soð-
ið við hægan eld, en viðstöðu-
laust verður að hræra í pottin-
um. Þegar það fer að þykka, er
dropi af því settur í kalt vatn,
og ef dropinn heldur lögun, er
þetta hæfilega soðið. Þá eru
aðrar hnetur settar út í. Hellt
í smurt mót. Skorið í ferkantaða
bita, þegar það er hálfkalt. Bit-
unum vafið í málmpappír næsta
dag.
Hnetukaramellur.
200 gr. hnetukjarnar
Y2 kg. sykur
1 dL vatn
kremortartari á hnífsoddi
1 tsk. sítrónusafi
60 gr. smjör eða smjörlíki
Sykur og vatn er soðið saman,
þar- í sett kremortartari, soðið
þar til hægt er að móta sykur-
löginn í kúlur í köldu vatni.
Tekið af eldinum, smjörið sett
út í smátt og smátt, þá er sítrónu
safinn settur út í og allt soðið,
hrært stöðugt í. Kælt þar til það
verður ógagnsætt, hrært við og
við. Þegar lögurinn er næstum
kaldur, er hægt að móta hann
með teskeið, sem dýft er í olíu.
Látnar á smjörpappír. Hnetu-
kjarni látinn í miðju hverrar
kúlu og þrýst vel ofan á, svo að
hann festist.
Rjómakaramellur.
2V2 dl. rjómi
3 dl. sykur
1 matsk síróp
30 gr. smjör
vanilla eða vaniliusykur
Rjómi og sykur soðið í góðum
potti með þykkum botni, þar til
það fer að þykkna, þá er síróp,
smjör og vanilla sett út í og
soðið aftur við hægan hita, þar
til það fer að þykkna. Prófað á
sama hátt og jólakaramellur.
Helit í smurt mót. Skorið í fer-
kantaða bita, þegar það er hér
um bil kalt. Vafið í málmpappír,
þegar það er orðið alveg kalt.
V anillukaramellur.
1 bolli sykur
1 bolli síróp
1 bolli rjómi
V'i tsk. salt
2 matsk. smjör
6 matsk. mjólk
2 tsk. vanilla
Látið sykur, síróp og rjóma í
pott. Sett við vægan hita, þar til
sykurinn hefur bráðnað. Soðið í
10 mín. Hrært í við og við. Þá
er smjörinu óbræddu og mjólk-
inni bætt í smátt og smátt. Soð-
ið áfram í 15-20 mínútur. Hrært
stöðugt í. Prófið í köldu vatni,
hve þykkt deigið er. Tekið af eld
inum. Vanillan hrærð saman við.
Hellt í smurða kúffu, látið renna
út af sjálfu sér. Skorið í fer-
kantaða bita, þegar það er að-
eins volgt.
Bráðum koma blessuð
jólin
Einu sinni enn eru jólin á
næstu grösum, og allir í mikl-
um önnum við undirbúning há-
tíðarinnar. Húsmæður hafa í ár
átt óvenju marga kosta völ, hvað
viðvíkur kökuuppskriftum, og
er ef til vill að bera í bakka-
fullan lækinn að bæta þar við.
En til að viðhalda gamalli hefð,
birtum við hér dálítið atf smá-
kökum, formkökum, tertu, ábæt
isrébti og jólasælgæti, að ó-
gleymdri jólasíldinni.
Gullmedalíur.
200 gr. hveiti
180 gr. smjörlíki
3 matsk. kalt vatn
Tröffelsmjörkrem:
75 gr. smjör
2 matsk. kakó
75 gr. flórsykur
1 lítið egg
Deigið er hnoðað og flatt út
fremur þykkt, skornar út litlar
kökur. Bakizt í 4—-5 mí.n við
225 C. Rétt fyrir notkun er
smjörkremið, sem á að vera vel
lint, sett á milli tveggja medal-
ía.
Ömmukökur.
V2 kg. hveiti
V2 kg. smjör
1 egg
2 desertsk. eða barnask sykur
1 tsk. hjartasalt
Ofan á kökurnar þeytt egg,
grófur sykur og hakkaðar möndl
ur. Smjör og hveiti hnoðað satn
an, egginu bætt í, deigið rúllað
út eins og % cm. á þykkt og
skorið undan glasi, stærð etftir
smekk. Kökurnar sm.urðar með
þeytta egginu og yfÍT þær stráð
sykri og möndlum. Bakað í 7-8
mín. í fremur heitum ofni.
Rúsínu-smákökur.
1 bolli mjúkt smjörlíki
1 bolli strásykur
1 bolli dökkur púðursykur
2 egg
3 bollar hveiti
1 tsk. natron
2 tisk. múskat
V4 bolli mjólk
rúsínur
Smjöriíki og sykur hrært vel,
eggjum bætt í einu og einu,
hrært vel á eftir. Hveiti með
kryddi og mjólk sett út í til
skiptis. Deigið sett á smurða
plötuna með teskeið.
Nokkrar rúsínur settar ofan á
hverja köku og bakað í meðal-
heiturn ofni í ca. 12 minútur.
Skozkir smábitar.
3 bollar hveiti
V2 tsk. kanili
1 tsk. mace
1 tsk. múskat
1 tsk. allrahanda
1 tsk. natron
2 bollar rúsinur
1 bolli mjúkt smjörlíki
1% bolli ljós púðursykur
3 þeytt egg
1V2 tsk. vanilludropar
1 tsk. rósavatn
2 matsk. kalt, sterkt kaffi
IV2 bolli brytjaðar hnetur
Kryddinu og natróni blandað
út í 2% bolla hveiti, rúsínurn-
ar þaktar með því, sem eftir er
af hveitinu. Smjörlíki og sykur
hrært þar til það er ljóst og
létt, eggjum, vanillu og kaffi
bætt í, síðan rúsínum og hnetf-
um. Þurrefnunum bætt í og öllu
blandað vel saman. Deigið sett
með teskeið á smurða plötu.
Bakað á meðalheitum otfni í 15
mínútur.
Ymislegt
Dökk ávaxtakaka.
1 bolli dökkur púðursykur
y4 bolli og ein matsk. smjör-
líki
2 bollar konfektrúsínur,
skornar smátt
8 únsur döðlur, smáttskornar
1 bolli kúrennur
1 bolli sterkt kaffi
1 egg
2 bollar hveiti
Yt tsk. natrón
1 tsk. ger
1 tsk. kanill
y4 tsk. negull
1 tsk. salt
7 fyrsttöldu hlutirnir settir í
pott, iátið sjóða í 5 mín. Kælt.
Egginu bætt í, síðan þurrefn-
unum. Bakað við vægan hita í
formi með vaxpappír á borðinu í
klst. Geymist mjög vel.
Konfektkaka.
100 gr. möndlur
150 gr. flórsykur
3 matsk. hveiti
4 eggjahvítur
Kreniið:
4 eggjarauður
3 matsk. sykur
1— 2 tsk. hveiti
1 dl. rjómi
100 gr. smjör
2— 3 tsk. kaffi eða kakó.
Möndlurnar afhýddar og hakk
aðar, blandað saman við flórsyk
ur og hveiti, stífþeyttar hvíturn-
ar settar í. Bakað í 30 cm. löngu
og 20 cm. breiðu og 5 cm. háu
formi, eða aluminiumpappír,
smurt með smjöri og hveiti stráð
á. Bakað í ca. 15 rnín. í ekki
of heitum ofni. Þegar kakan er
köld, er hún skorin í tvenntf, á
milli er sett krem búið til á eft-
irfarandi hátt: 4 eggjarauður
hrærðar með sykri og hveiti,
rjómanum bættf í og aðeins kom
ið upp á þessu suðan, 100 gr. af
smjöri hrærð í og kaffiduft eða
kakó.
Súkkulaðiábætir.
2 egg
4 matsk sykur
75 gr. suðusúkkulaði
2—3 matsk, sterkt kaffi
W2 dl. rjómi
3% bl. matarlím
JÓLASKRAUT
Hér er notaður lítill pottur og
skreyttur með könglum, berjum,
furu og greni. Leir er settur í
botninn og heldur hann greininu
og skrautinu föstu á sínum stað.
Eggjarauðurnar hrærðar með
sykrinum, súkkulaðið brætt yf-
ir gufu, matarlímið lagt í bleyti
í kalt vatn, undið upp úr brætft
yfir gufu og köldu kaffinu hellt
út í. Eggjahvíturnar stífþejrtt-
ar, rjóminn, þá er súkkulaðinu
bætt i eggjarauðurnar, því næst
matarlíminu með kaffinu í og
þá eggj ahvítunum og síðast
rjómanum, öllu blandað varlega
saman. Þegar ábætirinn byrjar
að stífna, er honum hellt í skál
þá, sem bera á fraim í. Skreytt
með þeyttum rjóma.
I
Jólasíld.
4 flakaðar síldar eru lagðar í
bleyti í mjólk í 12 klst. Lögur
búinn til úr:
3 dl tómatsósa úr flösku
V2 dl. olía
3A dl. vínedik
2 matsk. sykuT
1 tsk. pipar, 2 lárberjahlöð
1 meðalstór laukur,
1 soðin gulrót í ten.
Síldin skorin í stykki og lát-
in liggja í leginum í 3 daga fyr-
ir notkun. Hægt að bera þetta
fram með harðsoðnum eggjum
heitum kartöflum eða með rúg-
brauði og smjöri.
Góð og eiguleg bók, sem öllum ljóðelskum
mönnum mun þykja mikill fengur að eignast
FRIÐJÓNSSON
UÓÐ og ÆVIÁCRIP
Nú eru liðin 100 ár frá fæðingu
hins kunna skáldbónda, Sigurjóns
íriðjónssonar, og af því tilefni
er l>ók þessi gefin út. I bókina
hefur Arnór, sonur skáldsins, val-
ið 100 ljóð úr ljóðabókum þess,
og auk þess ritað um uppvöxt og
ævi höfundar atliyglisverðan og
forvitnilcgan þátt.
BiÖjiÖ bóksalann yÖar aÖ sýha yÖur BÓKAFORLAGSBÆKURNAR
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR . AKUREYRI