Morgunblaðið - 29.12.1967, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. DES. 1967
Rauð jól á Hornafirði
Höfn, Hornafirði, 28. desember.
Á HORNAFIRÐI voru jólin rauð
og- hið fegursta veður og vegir
allir, sem ]>eir verða beztir á
sumardegi. Hafnarkauptún var
að venju mikið skreytt og fara
þær skreytingar í vöxt með
hverju ári.
Við hátíðamessur í Hafnar-
’ kirkju lýsti prófasturinn gjöf-
um, sem kirkjunni höfðu borizt.
Voru það silfurkertastjaki, gef-
endur frú Amia Guðmundsdótt-
ir og Halldór Ásgrímsson, fyrr-
verandi alþingismaður og mjög
smekkleg og f&lleg númeratafla,
sem er gjöf fré gömluim kórfé-
lögum KálfafelLsstaðakirkju og
öðrum Suðursveitungum, nú bú-
settuim á Höfn, en taflan er þeirn
gefin af hinum mikla hagleiks-
manni Þorsteini Manússyni frá
Borgarhöfn, nú búsebtum að
Hjallavegi 40 í Reykjavík.
Á annan jóladag höfðu hótel-
eigendur barnaskemmtun í hótel
inu með miklum myndarbrag
og veittu börnunum ókeypis góð
gerðir.
— Gunnar.
flhrifa kjarnorkusprengju
Kínverju ekki vurt ú íslundi
ÍSLENDINGAR koma vart til
með að finna fyrir áhrifum sjö-
undu kjamorkusprengingar Kín
verja, sem þeir sprengdu á að-
fangadag, að því er Páll Theo-
dórsson eðlisfræðingur tjáði
Mbl. í gærkvöldi.
Sagði Páll, að hér hefði aðeins
lítillega orðið vart áhrifa einn-
ar sprengingar Kínverja, en
þessi nýjasta var ekki það sterk,
að áhrif hennar geti borizt hing
að.
Nokkuð er það tilviljunum
háð, hvar geislavirknin kemur
fyrst fram. Venjulegast skolast
hún fyrst niður með regni, og
þá staðbundið, en að öðru leyti
benst hún með loftstraumum í
gufuhvolfinu.
Geislavirkni er mæld í ein-
ingu, sem gkammstöfuð er pCi/
rúmmetra, en mjög getur það
verið breytilegt, hversu mikið
magn af pCi/rúmmetra hefur
skaðleg áhrif i för með sér.
Hér á íslandi er geislavirkni
mæld daglega. Er ryki safnað í
þar til gerðar síur, sem stað-
settar eru ó Rjúpnaihæð, og er
skipt um síur daglega. Undan-
farin tvö ár hefur geiislavirknin
Leiðrétting
í FRÉTT í Mbl. í gær um styrk-
veitingu úr minningarsjóði Vig-
dísar Ketilsdóttur og Olafs Ás-
björnssonar, var sagt að 100 þús-
und krónur yrðu veittar hverj-
um þeim, er leita þyrfti lækninga
erlendis og gæti það ekki af
eigin rammleik. Þar átti að
standa: . . . einhverjum þeim . ...
Hlutaðeigandi eru beðnir af-
sökunar á þessum mistökum.
hér verið við það minnsta, sem
mælanlegt er, eða um 1/100 úr
pCi/rúmmetra, en var meist vor
ið 1959 10 pCi/rúmmetra.
Bótakröfur varðandi 125
vagna vegna H-umferðar
Fjórir aðilar hafa sent inn kostnaðar-
áætlanir vegna breytinga á gatna-
og vegakerfi
HINN 1. janúar n.k. er runninn
út frestur til að gera skil á skaða
bótakröfum vegna breytingarinn
ar yfir í hægri umferð. Er hér
fyrst og fremst um að ræða
kostnað við breytingar á bifreið
nm, svo og við brejrtingar á
gatna- og vegakerfi.
Benedikt Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Framkvæmda-
nefndar hægri umferðar, tjáði
Mbl. í gær, að nefndin væri þeg
ar búin að fá erindi um 125
vagna, og þar af hefði verið sam
ið um skaðabótagreiðslur á 72
vögnum, og unnið væri að samn-
ingum um 24 vagna. Hann sagði
ennfremur, að nokkur hluti þess
ara erinda væri nýkominn, og
því hefði nefndinni ekki gefizt
tími til að kanna þau, en þegar
hefði nefndin hafnað fimm um-
sóknum. Benedikt sagði enn-
Mikið af jólapósti
týndist í eldsvoða
— íslenzkum póstyfirvöldum hefur ekki
borizt tUkynning um magn póstsins, sem
átti að fara til Islands
MIKIÐ magn af jólapósti til
Evrópu fór forgörðuzn aðfara-
nótt 15. desember, þegar eld-
ur kom npp í þeirri deild aðal
pósthússins í New York, sem
sér um erlendan póst. Öll
byggingin, sem var upp á sex
hæðir, varð fljótlega alelda,
en 2000 starfsmönnum tókst
að bjarga í tæka tíð. Tjónið
af völdum brunans er talið
nema nm tveim milljörðum
íslenzkra króna og er brun-
inn talinn einn sá mesti, sem
orðið hefur í New York síð-
ustu 15 árin.
Um þessa deild fór mesti
hluti böggla- og blaðapósts-
ins til og frá Bandaríkjun-
um og varð tjónið einmitt á
þeim tíma, þegar jólaannirnar
voru hvað mestar. Mikið af
pósti þeim, sem týndist í elds
voðanum, beið þess að vera
fluttur á skipsfjöl, en afhend
ingarfrestur fyrir hann var
til 4. desember.
Mbl. hafði samband við
Matthías Guðmundsson, póst-
meistara I Reykjavík, o.g
spurði, hvort eitthvað af ís-
lenzkum pósti hefði týnzt í
þessum eldsvoða. Matthías
sagði, að enn hefði engin til-
kynning borizt frá bandarísk
um póstyfirvöldum og því
gaéti hann ekkert ákveðið
sagt. Hins vegar getur ekki
liðið á löngu, áður en tilkynn
ingin berst, að minnsta kosti
hvað við kemur ábyrgðar-
pósti.
fremur, að lang stærsti hluti
vagna þessara, se<m saimið hefði
verið um, væru frá sitrætisvögn-
um Reykjavíkur, Kópavogis og
Akureyrar. Væri þegar búið að
ganga frá kröfum að upphæð
25 milljónir króna, en í heild-
aráætluninni væri gert ráð fyr-
ir 32 millj. kr. kostnaði. við
þessa breytingu á vögnum.
Varðandi breytinguua á gatna
og vegakerfinu sagði Benediikt,
að nefr.dinni hefði borizt end-
anlegar kostnaðaráætlanir frá
fjórum aðilum. Eru það Höfn
í Hornafirði, Akureyrarkaupstað
ur, Kópavogur og Vegagerðin,
en von er á kostnaðaráætlun frá
Reykj a víkurborg. Vegna sér-
stöðu hennar í þessum efnuim,
hefur henni verið gefinn sjö daga
frestur, og er unnið af fullum
krafti að ganga frá kostnaðar-
áætiuninni.
Benedikt sagði, að ekki væri
hægt að gera sér grein fyrir,
hvort hér yrði um hærri eða
lægri upphæðir að ræða en í
Múlaliðar
fyrir rétt
í Kongó
Kinshasa, 28. des. NTB.
JOSEPH Mobutu Kongófor-
seti sagði í dag, að 120 hvítir
málaliðar, sem dveljast í fanga-
búðum í Rwanda, yrðu fluttir
aftur til Kongó og Ieiddir fyrir
rétt. Mobutu, sem sagði þetta í
viðtali við blaðamenn er hann
kom úr 26 daga ferðalagi um
Austur-Kongó, gat þess ekki
hvenær málaliðarnir yrðu flutt-
ir til Kongó.
Málaliðarnir hafa dvalizt í
fangabúðum • í Rwanda síðan
þeir flúðu frá Bukavu í Austur-
Kongó í síðasta mánuði, en sá
bær var aðalvígi þeirra í upp-
reisninni, sem þeir gerðu í
haust. Talið er, að helmingur
málaliðanna sé frá Belgíu, en
hinir frá Frakklandi, Ítalíu,
Bretlandi, Portúgal, Ródesíu,
ísrael, Grikklandi, Vestur-Þýzka-
landi, Luxemborg og Suður-
Afriku.
upphafi var gert ráð fyrir, þar
sem ekki hefði gefizt tími til að
kanna allar kostnaðaráætlanirn-
ar. Ennfremur væri í þeim marg
ir liðir sem hægri uimferðin
kæmi ekki til með að greiða
nema að hluta, en slíkt væri sam
komulagsatriði, sem enn væri
ekki búið að ganga frá.
Brown rœðir
við Fanfani
Róm, 28. des. NTB.
GEORGE Brown, utanríkis-
ráðherra Breta, fer til Rómar á
morgun og ræðir við Amintore
Fanfani, utanríkisráðherra ítala,
um umsókn Breta um aðild að
Efnahagsbandalaginu. — Á ráð-
herrafundi EBE í Briissel var
Fanfani einn eindregnasti tals-
maður þess, að Bretum yrði
veitt aðild að bandalaginu.
Harold Wilson, forsætisráð-
herra, sagði í dag, að árið 1968
yrði Bretum ár tækifæra er gæti
fært þá aftur inn á braut vel-
megunar. Hann skoraði á fram-
leiðendur í Bretlandi að færa
sér gengisfellingu pundsins í
nyt og auka útflutning.
\ Sinfóníu-
tónleikum
RÚSSNESKI píanósnillingur-
inn Vladimir Ashkenazy var
einleikari í B-dúr konsert
Mozarts og þriðja píanókon-
sert Beethovens í c-moll á 7.
tónleikum Sinfóníuhljómsveit
arinnar í Háskólabíói í gær-
kvöldi. Þá var einnig fluttur
forleikurinn „Fingalshellir"
eftir Mendeissohn, en stjórn-
andi hljómsveitarinnar var
dr. Róbert A. Ottósson.
Piltur d vél-
hjóli fyrir bíl
FIMMTÁN ára piltur skarst í
andliti og meiddist á fóljum,
þegar hann varð fyrir vörubíl á
mótum Miklubrautar og Háaleit-
isbrautar um sex leytið í gær.
Pilturinn kom á vélhjóli inn
Miklubraut, en vörubílnum var
ekið suður Háaleitisbraut yfir
gatnamótin, en þar er stöðvunar-
skylda. Bílstjórinn segist hafa
stöðvað, en ekki séð neina um-
ferð koma, og því hélt hann á-
fram. í sömu svifum bar piltinn
að á vélhjólinu og lenti hann á
milli hússins og pallsins, en hjól-
ið skall á bensíngeyminn.
Vélhjólið skemmdist mikið, en
pilturinn slapp betur en á horfð-
ist í fjrrstu og má vafalaust þakka
það hjálminum, sem hann var
með. Hann var fluttur í Slysa-
varðstof'una þar sem gert var að
sárum hans.
Athugasemd við
Þjóðviljablaðamennsku
MÉR hefur verið lesin í síma
grein úr Þjóðviljanum, frá 19.
þ. m. Sjálfur sé ég það blað
fyrir tilviljun eina, líkt og aðrir
Flateyringar.
Þar sem ókunnugir kynnu að
halda að grein þessi byggðist á
fréttum frá mér, skal það tekið
fram að þær einu fréttir, sem ég
veitti blaðinu, voru þær, að borg
arafundur, sem blaðið hafði
sagt frá, hefði aldrei verið hald-
inn.
Hafi greinarhöfundur lagt út
af þeim pistli, þá hefur útlegg-
ing hans verið meir í anda
kunnrar persónu úr Njálu en
Ara fróða.
Það er ekkert launungarmál
að örðugleikar eru miklir nú í
atvinnumálum Flateyringa, cn
ekkert einsdæmi er það á voru
landi, hvorki fyrr né síðar að
svo sé um tíma, og þekkist jafn-
vel frá þeim stöðum, sem Þjóð-
viljamenn hafa meiri ítök á en
Flateyri.
Þessa atvinnuörðugleika eru
Flateyringar staðráðnir í að tak-
ast á við, eftir fyllstu getu, og
hafa leitað til þess aðstoðar góð-
viljaðra manna, sem þeir treysta.
Til Þjóðvilj amanna hafa þeir
ekki leitað og munu ekki leita
og telja sér heldur til ávinnings
að enginn Vestfjarðaþingmaður
skuli vera á þeim snærum. Það
er engum til ávinnings þegar
viðkvæm vandamál eru blásin
upp af óheilindum.
Rangfærslum og gönuhlaup-
um fáfræðinnar í nefndri grein
ætla ég ekki að svara, en þó
skal það tekið fram að atvinnu-
kúgun hér er Flateyringum jafn
ókunnugt um og borgarafund-
inn sem spámenn Þjóðviljans
v'ssu um en Flateyringar ekki.
Hitt er svo annað mál, að hér
eftir munu Flateyringar eiga enn
auðveldara en áður að dæma
um hversu traustur og haldgóð-
ur málflutningur Þjóðviljang er,
þegar svo vill til að þeir sjá
þann sannleiksvita.
Flateyri, 2°.. 12. 1967
Hjörtur Hjálmarsson.