Morgunblaðið - 03.01.1968, Side 1
24 SlDIIR
■»
Hr. Ásgeir Ásgeirsson gefur ekki
kost á sér til forsetakjörs
l~orsetakosningar fara tram
30. júní næstkomandi —
FORSETI íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson flutti að venju ávarp
í útvarp á nýársdag. Þar kom
fram að forsetinn hyggst ekki
hjóða sig fram að nýju til for-
setakosninganna, sem fram eiga
að fara á þessu ári, síðasta
sunnudag í júnimánuði. f á-
varpi sínu sagði herra Ásgeir
Ásgeirsson:
„Á þessum fyrsta degi ársins
1968 tiikynni ég, svo ekki verði
um villzt, að ég mun ekki verða
í kjöri við þær forsetakosning-
ar, sem fara í hönd á þessu ný-
byrjaða ári. Fjögur kjörtímabil,
sextán ár í forsetastól, er hæfi-
legur tími hvað mig snertir, og
ég þakka af hrærðum huga það
traust, sem mér hefir þannig
verið sýnt ...“
Síðar í ávarpi sínu sagði for-
setinn:
Herra Ásgeir Ásgeirsson
„Mér er það ljóst, að það mun
fæstum koma á óvart, að ég hefi
nú lýst yfir þeirri ákvörðun,
sem er ekki ný, að vera ekki
oftar í kjöri. Ég verð orðinn
sjötíu og fjögra ára fyrir kjör-
dag, ef ég lifi. Það hefði þótt
hár aldur fyrir hálfri öld. Ekki
skaltu freista drottins Guðs
þín, og þá ekki heldur þjóðar
þinnar af þrásetu. En það kalla
ég þrásetu, að sjá ekki sitt ald-
ursmark. Nýjar kynslóðir vaxa
upp, en vér sem erum á áttæð-
isaldri, vöxum fram af.“
í lögum nr. 36, 12. febrúar
1945, lög um framboð og kjör
forseta íslands, segir, • að for-
setakjör skuli fara fram fjórða
~hvert ár, síðasta sunnudag í júní
(nú 30. júní). Mun forsætisráð-
herra auglýsa kosninguna eigi
síðar en þremur mánuðum fyr-
ir kjördag í útvarpi og lögbirt-
ingarblaði. Framboðum til for-
setakosninga skal skila dóms-
málaráðuneytinu eigi síðar en
fimm vikum fyrir kjördag.
Bandaríkjastjórn gerir ráðstafanir til
þess að tryggja gengi dollarans
Það var kalt á íslandi í gær
og kuldalegt um að litast,
ekki sízt niðri við höfnina.
Klakabrynjur þöktu sum
skipin þar, m.a. þennan tog-
ara, sem var svo ísaður að
ekki var hægt að lesa nafn
hans. (Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.)
- og draga úr óhagsfœðum greiðslu/öfnuði
við erlend ríki. Dragið úr fjártestingum
erlendis og lánum til erlendra ríkja.
Ferðalög takmörkuð o. fl.
San Antonio, 2. jan. AP-NTB.
• Lyndon B. Johnson, forseti
Bandaríkjanna, skýrði í gær,
nýársdag, frá víðtækum ráð-
stöfunum, sem hann hyggst
Muo n uramóta
gildi vorðliðo
Hong Kong, 2. jan, NTB.
• MAO Tze tung, leiðtogi kín-
verskra kommúnista, var við-
staddur fjölmenna hátíð rauðra
varðliða í Peking á gamlárs-
kvöld og virtist hinn hressasti.
Hátíðina sóttu um 20.000 manns,
sem sungu byltingarsöngva og
hylltu hann ákaflega svo og aðra
Framh. á bls. 23
gera í því skyni að draga úr
greiðsluhalla Bandaríkja-
manna við útlönd og styrkja
gengi dollarans. Eru ráðstaf-
anirnar fyrst og fremst í því
fólgnar að draga verulega úr
fjárfestingu Bandaríkja-
manna erlendis, draga úr lán-
veitingum til erlendra ríkja,
draga úr útgjöldum til land-
varna og utanríkisþjónustu
og jafnframt eru Bandaríkja-
menn hvattir til þess að draga
sjálfviljugir úr ferðalögum til
útlanda á næstu tveimur ár-
um.
• Þá skýrði forsetinn svo frá,
að hann mundi senda fulltrúa
sína til hinna ýmsu landa heims,
til þess að skýra nánar, hvemig
ráðstafanir þessar yrðu fram-
kvæmdar og einnig yrði það
hlutverk þeirra að kanna, hvern-
ig unnt væri að auka útflutn-
ing á bandarískrf framleiðslu.
Héldu þeir af stað þegar í gær,
Nicholas Katzenbach, aðstoðar-
utanríkisráðherra til Evrópu og
aðstoðarráðherrann Eugene V.
Rostow til Asíuríkja.
• Viðbrögð við þessum ráðstöf-
unum Bandaríkjastjórnar voru
ekki öll á einn veg. Margir fjár-
málasérfræðingar telja, að þetta
sé rétt og heillavænleg stefna,
en bæði ríkisstjórnir og einstakl-
ingar víða um heim eru uggandi
um afleiðingarnar, sérstaklega
þeir aðilar, sem hafa fengið stór-
lán frá Bandaríkjunum á undan-
förnum árum og þeir, sem hafa
Framh. á bls. 23
Póii biður
fyrii friði
Páfagari, 1. jan. (AP—NTB).
PÁLL páfi VI. flutti éramóta-
bosk-ap sinn í Péturskirkjunni í
Róm á nýjársdag. Skoraði hann
þar á þjóðir heims að beita sér
fyrir friði í Vietnam, en taldi
bættu á að styrjöldin breiddist
út. Bað páfi fyrir varanlegum
Framh. á bls. 23
A batavegi með nýtt hjarta
• •
Onnur vel heppnuð hjarta-
aðgerð lækna í Höfðaborg
'Höfða'borg, S-Afríku,
2. jan. (AP)
r Læknar við Groote Schuur-
STEFNUBREYTING í HANOI?
Bandaríska utanríkisráðuneytið athugar
yfirlýsingu Hanoistjórnarinnar
Washington, 2. jan. NTB.
BANDARÍSKA utanríkis-
ráðuneytið upplýsti í dag, að
það hafi nú til athugunar
yfirlýsingu frá stjórninni í
Hanoi, þar sem finna megi
víshendingu um, að hún sé
fús til samningaviðræðna, ef
Bandaríkjamenn bindi enda
á loftárásirnar á Norður-Víet-
nam. Segir talsmaður ráðu-
neytisins, að það hafi verið
utanríkisráðherra N-Viet-
nam, Ngyuen Duy Trinh, sem
Framh. á bls. 23
sjúkrahúsið í Höfðahorg skiptu
í dag 'uui hjarta í 58 ára gömlum
tannlækni, dr. Philip Blaiberg.
Græddu þeir í hann hjarta úr 24
ára gömlum iðnverkamanni, sem
lézt í morgun úr heilablæðingu.
Hét hjá Clive Haupt og var jnúl-
atti. Aðgerðin er sögð hafa tek-
izt mjög vctt.
Á30 læknar og hjúkrunarkonur
unnu að uppskurðinum undir
forustu dr. Christians Barnards,
prófessors, sem hinn 3. deseanber
græddi hjarta í annan sjúkling,
Louis WasShkansky. Waslhkansky
lifði í 18 daga með nýja hjartað.
en lézt svo úr lungnabólgu. Var
það í fyrsta skipti, sem tekizt
hafði að græða hjarta í mann.
Framh. á bls. 23
Dr. Blaiberg, myndin var tekin
árið 1932 er hann var fyrirliði
Rugbyliðs tannlæknanema Roy-
al Dental Hospital í London.
%
«
M