Morgunblaðið - 03.01.1968, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.01.1968, Blaðsíða 15
MOKGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1968 15 ar á ýmsuim skipurn Lancfhelgis- gæzlunnar, og á ég honum mikið uipp að una fyrir þann lærdóm, sem ég nam af honum í skip- stjórnarstörfum og sjómiennsku. Verð ég að segja að það var varla völ á betri leiðbeinanda en Þór- arni, þar sem hann var afburða sjómaður og vissi ætíð hvað hann miátti bjóða skiipi sínu þá sjóar risu hæst. í miálefnum landlhelg- isbrjóta var hann ákiveðinn og vissi ætíð hvensu langt hann mátti fara við töku þeírra. Ef hann taldi sig finna einihver vafa- atriði við mælingar eða sönmm- argögn hikaði hann ekki við að sleppa þeiim með áminningu. Þór- arinn taldi sig ekki sigla einan á sínu skipi, og lét því æbíð hvern skipverja finna að mikil ábyrgð hvíldi á störf- um þeirra, og notaði hvert tæki- færi sem gafst til að þjálifa menn sína í hinum ýmeu störfuim sem þeim var ætlað að inna aif hendi, enda fékk hann fulla vinnu frá hverjum manni. Þórarinn var happasæll stjóm andi, og honum hlekktist aldrei á. Ýmis stiörf hefur hann innt af hendi á sinni löngu skipstjórnartíð, en aðeins fárra hægt að geta í stuttri minning- argrein. Hann var skipherra á v/s Ægi þegar fiskiveiðitakmörk in voru færð út í 4 sjóm, og tók þá fyrsta útlenda landhelgsbrjót- inn, sem tekinn var innan þeirra marka, og sýndi við það tæki- færi mikla einbeitni þar sem skipstjóri togarans reyndi í lengstu lög að þrjóskast við að stöðva skip sitt. Sam skipherra á flaggskipi Landhelgisgæzlunn- ar v/s Óðni, tók hann í einni 2 vikna ferð sinni, 3 togara í landhelgi og bjargaði áhöfn brezks togara sem strandað hafði í NA-stormi undir Grænu hlíð. Hæst ber þó nafn Þórar- ins, við landhelgisgæzlu í hinu fræga Miilwood máli, en í því máli var þyrlað upp pólitísku moldviðri sem þórarinn lenti ó- afvitamdi í, og þó að Þórarmn sbæði með höfuð og herðar upp úr maldviðrinu, þá tók hann þetta mjög nærri sér, því hann var tilsfinninganæmur maður, vildi vinna störf sín eftir beztu getu og án þess að um þau spinn- ust póli'tískar deilur. Þeir eru orðnir margir sjómenn irnir, bæði innlendir og erlend- ir sem Þórarinn Björnsson hef- ut veitt hjálp, og sýnir það bezt þær björgunarorður og þakkar- skjöl sem hann var heiðraður með sinni skipstjórnartíð. Og ekki eru það ófáir landsmenn sem notið hafa gestrisnis og hjálp ar Þórarims, þá er þeir dvöldust um borð í skipi hans, sem far- þegar eða sjúklingar á millli hafna. Varðskipaforinginn og ljúf- mennið Þórarinn Björnsson er nú fallinn í valinn, en minnig hans mun lifa meða varðskips- manna. Um leið og ég sendi eftirlif- andi konu hans, Rut Trop og öðrum ástvinum hans rnína dýpstu samúð, vil ég taka mér í munn erindi úr Sálmabókinni eftir Va'ldimar Briem, sem sýna skal vinarhug okkar varðskips- manna til Þórarins á þessari skilnaðarstund. Kallið er komið komin er nú stundin vinaskilnaðar viðkvæm stund Vinirnir kveðja vininn sinn látna er sefur hér hinn síðaista blund. Helgi Hallvarðsson. ÞÓRARINN Björnsson, skipherra á varðskipinu Óðni, lézt aðfanga dag jóla og verður jarðsettur 2. nýársdag 1S)68. Þegar hringt var inn mestu hátíð ár.sins og fólk almennt hafði íklæðst sínu bezta skarti slokknaði ljós þess fslendings, sem lengsta landhelgis og björg- unarþjónustu hefur að baki. eða samfleytt í 47 ár. Marga óveðursnóttina hafði hann verið fjarri heimili og jóla- haldi og orðið þess í stað að skima næturlangt í gegnum sjó- rok og sorta í leit að týndum bátum eða landhelgisbrjótum, sem helzt brugðu • sér á leik á grunn-:ævi í slíkum veðrum og anium var í höfn. Pyrir Þórarinn Björnsison er nú stríðinu lokið og friður kom- inn á. Andlát hans varð hægt og friðsælt, þar sem h-ann leið út af í heimahúsum þetta jóla- kvöld. Þannig er gott að deyja að loknu fullu æfistarfi og áður en halla tekur undan fæti, sem ekki verður umflúið hjá þeim sem verða mjög gamlir eða þegar heilsan brestur. Þórarinn hafði verið heilsu- hraustur alla ævi, þar til rétt síðast að hjartað var byrjað að bresta í vandasömu og ábyrgðar miklu starfi. Það var snemma í vetur, í síðustu ferð hans á heim- leið frá aust'urlands miðunum að stýimaðurinn, sem var á vakt heyrði að síminn hringdi hjá skipstjóranum, en þegar hann greip símann til að svara heyrði ha.nn aðeins sárar stunur og hljóp niður. Skipstjórinn hafði þá feng ið mjög slæmt hjarta tilfelli. Eftir að hafa reynt að lina þjáningar hans með tiltækum meðulum sneru stýrimennirnir skipinu til næstu hafnar. Nokkru síðar bráði af skipstjóanum um rsbund og gaf hann þá fyrirmæli um að halda áfram heimferðimi. þvi sér væri batnað. Þannig var urum Þórarinn. öðrum sýndi hann skyldurækni og nærgætni en sjálfum sér hlýfði hann aldrei. Kunningsskapur okkar Þórar- ins er gamall eða síðan við vor- um um fermingu. Þá var sá er þetta ritar tvö sumur (1918— 1919) á Höskuldsst'öðum á Skaga strönd, en þaðan er stutt bæjar- leið að Syðri-Ey þar sem Björn Árnason faðir hans bjó með son- um sínum og seinni konu. Var hún skyld börnunum og kom þeim í móðurstað er þau misstu móður sína á unga aldri. Björn faðir- Þórarins var hreppstjóri Vindhælinga, stórmyndarlegur maður og vel látinn af sveitung- um sínum. Milli prófastsihjónanna á Hösk- uldsstöðum og hreppstjóra heim ilisins á Syðri-Ey var mikil vin- átta og samgangur. Við Þórar- inn hittumst því oft bæði í leik og við störf. Eitt aðalstarf okkar var á vor- in að reka allt stóðið úr heima- högum og upp á heiðarnar, en hrossin skiftu mörgum hundruð- um og leituðu oft aftur niður í byggðina. Við þessar ferðir okkar á björt um vornóttum eru margar minn- ingar bundnar, er við létum gamminn geysa á völdum gæð- ingum en af nógu var að taka. Þá var oft gaman að virða fyrir sér Húnaflóann í miðnætursói- inni og bláar Hornstrandir í fjarska. Þá datt samt hvorugum í hug að við myndum báðir verða orðnir sjómenn áður en fullt ár væri liðið. Þórarinn Björnsson mun fyrst hafa farið í vertíð í Vestmanna- eyjum en hann var ekki nema 17 ára garnall 1920 er hann réðist sem háseti á björgunarskipið* „Þór“ hinn elsta. Vestmannaev- ingar höfðu þá nýlega keypt þetta skip frá Danmörku til að vernda fiskiflota þeirra. íslenzka ríkið át'ti þá ekkert varðskip og ekkert björgunarskip. Frá þessum tíma hefur Þórar- inn Bjiörnsson aldrei sinnt öðru starfi en landhelgis og björgunar þjónustu, nema á stríðsárunum er hann sigldi nokkrar ferðir til Englands með hið fræga skip Arctic. stórhátíðum þegar mest af flot- „Ægir“ byggður, sem enn er við líði. Alltaf stækkuðu varðskipin og Þórarinn fylgdi að jafnaði yfir á hvert nýtt skip. Fyrst stig hækkandi sem stýrimaður. síðan yfir á björgunarskipin minni þegar hann varð skipherra. Þá lágu leiðir okkar aftur sam an þegar ég réðist til SLsavarna- félags fslands. Hann var þá skip- stjóri á Sæbjögu er félagið átti en landhelgisgæzlan hafði tekið á leigu. Eitt af fyrstu verkum mínum var að vinna að tækk- un og gjörbreytingu á skipir.u, sem síðan var leigt ríkissjóði til 20 ára. Þórarinn tók aftur við skipstjórn á Sæbjörgu eftir breytinguna og síðan á hverju nýju bjö>-gunar- skipi, sem bættist í hópinn. Maríu Júlíu, sem hann sótti nýbyggða til Danmerkur, Albert, fyrsta stálskipið smíðað á íslandi. Síðan tók hann við kipstjórn á ,.Ægi“, nýja Þór. Síðast var hann skipherra á flaggskipinu „Óðni“ og hefði áreiðanlega ver- ið látinn sækja nýja skipið sam nú er í smíðum ef honum hefði enzt aldur og heiisa. Þórarinn var hinn fönguleg- asti maður eins og kunnugt er, mjög vel látinn bæði af yfirboð- og undirmönnum. Hann var fyrirmannlegur prúður og kurteis í framkomu og gerði sér engan mannamun. Hann avann sér traust og virðingu þeirra er hann átti samskifti við. Þá var Þórarinn það sem ekki skifti litlu máli í hans stöðu, hann vsr framúrskarandi sjómaður, gæt- inn og athugull en óhikandi og traustur þegar mest á reyndi. Þau skip skifta hundruðum er Þórarinn hefur veitt aðstoð við vondar aðstæður og þeir sjómenn er þeirrar aðstoðar hafa notið skifta þúsundum. Þegar fyrsti Þór hóf björgun- arstarfsemi má segja að Ljóskast- arinn og loftskeytatækin hafði verið eina vopnið sem skipverjar höfðu til að verja landið með og til að hjálpa skipum í neyð. En hvað er ekki búið að bjarga mörgum mannslífum með þess- um hætti. með vökulum augum og opnum eyrum. Störf eftirlits og björgunarskip anna og allra þeirra er hjálpar- kalli sinna, verða seint að verð- leikum metin. Björn Sýrusson Minningarorð Fæddur 7. 12. 1886. Dáinn 24. 12. 1967. f DAG er til moldar borinn, Björn Sýrusson. Hann var sonur hjónanna Sýrusar Andréssonar og konu hans Guðrúnar Björns- dóttur sem bjuggu á Öndverðar- nesi í Snæfeilssýslu. Var Björn einn af sjö systkinum sem þau hjón átt, fimm stúlkur og tvcnr drengir. Barn'að aldri mun Björn hafa farið úr foreldrahúsum, eða ellefu ára, og fer þá í Laxárdal Vestmannaeyingar voru einir um hjálpar og landhelgisþjón- ustu fram til seint á árinu 1926 að það opinbera fékkst til að kaupa Þór og taka að sér rekstur skipsins en þetta ár hafði skipið tekið 29 skip í landlhelgi og sekt- ir í ríkissjóð námu margföldu verði skipsins. Var þá lrafist handa um smíði á nýja varð skipi. hinum elzta „Óðni“. Þegar hann kom færðust margir af gömlu áhöfn ,,Þórs“ yfir á hið nýja skip, þar á meðal Þórarinn. Óðinn reyndist stórvirkur við landhelgisgæzlunar og tók á einu ári 36 landhelgisbrjóta. Svo var hið trausta skip Þeir möfgu sjófarendur er að- stoðar hafa notið og allir þeir sem að slysavörnum vinna munu minnast Þórarins Björnssonar og björgunarstarfsemi hans n eð alveg sérstöku þakklæti og senda aðstandendum hans hlýjar sam- úðarkveðjur. Henrý Hálfdánsson. í Dalasýslu, og er þar á ýmsum bæjum. eða þar til hann flysi að Hjarðarholti og er þar í skóla og vinnumennsku, hjá séra Ólafi Ólafssyni um nokkra ára skeið. 1912 giftist Björn, Kristína Margréti Jónsasdóttir, dóttir hjón anna Guðfinnu Benediktsdóttir frá Þorbergsstöðum, og Jónasar Jónssonar frá Ketilsstöðum í Hörðudal. Og byrja þá búskap að Hömrum í Laxárdal, þar búa þau í tíu ár, og flytja þá að Gröf í sömu sveit. Björn býr þar til ársins 1927. Þá hætta þau búskap og flytja norður að Möðrufelli í Eyjafirði. til Guð- brandar fsberg, síðar sýslumanns í Húnavatnssýslu, og eru þar í tvö ár, flytja þá aftur í Laxár- dalinn. Og starfaði Björn þá við bú Theódórs Johnssonar í Hjarð- arholti um eins árs bil. Eftir það flytja þau til Reykjavikur, að Meistaravöllum við Kapla- skjólsveg. Þar setur hann upp hænsna og kúabú, og rekur það til ársins 1941, þá eerist liann starfsmaður Reykjavíkurborgar, eða þar til hann varð óvinnufær 1952. Árið 1947 missir Björn konu sína, enn þau hjón eign- uðust ekki börn. Hinsvegar ólu þau upp þrjú fósturbörn, Guð- rúnu Þórðardóbtir ’ysturdóttir Björns. Ingólf Guðbrandsson Jóns sonar frá Sólheimum og Unu Eyjólfsdóttir Jónassonar Sól- heimum. Hjá Unu dvelur Björn eftir lát konu sinnar, eða til ársins 1949. Þá flyst hana til vinafólks síns, Guðmundar Ingi- mundarsonar og Helgu konu konu hans að Hverfisgötu 104 A. Enn þau hjón og börn þeirra sýndu Birni ætíð mi'kla tryggð. 1952 verður Björn að dveljast í sjúkraíhúsi í marga manuði. Eftir það dvelur hann hjá Guð- rúnu fósturdóttir sinni, nema yfir sumarmánuðina, en þá var hann norður í Hrútafirði hjá Unu og Eiríki Sigfússyni manni hennar. Enn þau búa stórbúi að Litlu-Hvalsó. Og er mér óhætt að segja að þar hafi Björn notið sín því hann var mjög mikið fyrir allt sem við kom sveitastörfum og hjálpaði oft, eins og tildæmis við sauðburð, þar var Björn mjög svo laginn við. Ég get ekki minst svo á veru Björns í sveitinni að ég rifji ekki upp, sem Ingólfur fóstursonur hans sagði mér. Þegar þeir komu að norðan og niður í Gilsfjörð- inn, þá var Björn eins og opið landabréf, þekkti alla staði og mörg örnefni, hafði þetta verið mótað í minni Björns frá æsku árum. En þegar þessi ferð var farin, var hann nær á.træður. Björn ferðaðist mikið á sínum yngri árum, við erfið skilyrði, en hann mun hafa haft mikla ti.l- trú manna til ferðalaga. Og þegar hann var í Hjarðarholti voru það rnargar ferðir sem hann fór til Borgarness með hesta til að sækja fólk, sem kom með s'kipi frá Reykjavík. Þá mun Björn hafa farið marg- ar ferðir með markaðshross til Reykjavíkur, enda hafði hann mikla ánægju af ferðalögum u:n landið. Og af minni kynningu tel ég Björn hafa. verið emlæg- ur unnandi alls þess er iifði og hræðist í sveitinni. Færi betur að við ættum fleiri slíka. Megi minningin um góðan dreng, vera leiðarljós okkir. Vil ég þakka Birni fyrir liðnar samverustundir og tryggð hans í minn garð. Fósturbörnum og öðrum að- standendum votta ég samúð mína. Blessuð sé minning B. S. Vörur samkvæml farm- skírteini fundust ekki Skipafélag dœmt til greiðslu bóta NYLEGA var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í máli, sem Sigurður Ármann Magnússon, heildverzlun, höfðaði gegn Eim- skipafélagi fslands h.f., en í máli þessu gerði heildverzlun- in þær kröfur, að Eimskipafé- lagið yrði dæmt til greiðslu á kr. 64.095.95, en það var and- virði vörusendingar, sem stefn- andi hafði fengið með v.s. Lag- arfossi, en taldi sig ekki hafa fengið afhenta, þótt hann hefði í höndum frumrit farmskírtein- is. Málavextir eru þeir, að með skipi Eimskipafélagsins, v.s. Lag arfossi, sem kom til lanidsins 15. febrúar 1962 fékk heildverzlun- in vörur fró FinnLandi sam- kvæmt fjórum farmskírteinum. Voru vörurnar fluttar úr skipi í vörugeymsliu skipaféLagsins. í farmskírteíni nr. 63 er vörum samkvæmit því farmskírteini lýst þannig: Merki „S.A.M./1043, fjöl'di stykkja 5, lýsing vöru „cases cotton", rúmmál 1,1 rúm- m. og þyngd 885 kg. Heildverzl- unin greiddi verð þessara vara og síðan boll aif þeim. 23. febrú- ar 1962 og vitjaði vara þessara í vörugeymsl'U skipafélagsins 24. febrúar 1962. Þar veitti hann vörum móbtöku og gaf kvittun fyrir, þar sem segir: „S. Ár- mann Magnússon, Lagarfoss 15/12 ”62. Mántyl. S.A.M. 10433 5 ks. Vefnaðarv." í júnímánuði 1962 greiddi heiidverzlunin innkaupsverð vara samkvæmt farmskírteini nr. 62, en vörum þessum er svo lýst í farmskírteinimu: Merki: „S.A.M./104441“, fjöldi stykkja 1, Lýsing vöru „caises cotton“ rúmmál 0.8 rúmm. og þyngd 275 kg. Heildverzlurin greiddi toll af vörum þessum 22. iúní 1962 og að því er virðist flutn- ingsgjald og geymsluleigu til skipafélagsins sama dag. Næsta dag kom stefnamdi til að sækja vörur þessar í vörugeymslu Ei'mskips. Er til átti að taka, fundust vörur þessar ekki. Hins vegar fannst þar í vörugeymsl- unni lítiLl pakki með vefnað- arvöru, mektur: S.A.M./10433/5, en stefnandi neitaði að veita þeim pakka viðtöku gegn af- hendingu farmskírteinisins, enda ljóst, að eigi var þar um að ræða vörur þær, sem farmskírteini nr. 62 fjal'laði um. Leit í vöru- geymslunni að vöruim samkvæmit farmskírteini nr. 63 hefði heild- verzlunin fengið afhent 4 stykki af þeirri vörusendingu, merktri S.A.M. 10433 og jafnframt vör- ur samkvæmt farmskírteini nr. 62, merktri S.A.M. 104441, eða alLs 5 kassa, enda hefði hann kvittað fyrir móttöku 5 kassa. Hins vegar hefði orðið eftir eitt stykki úr vörusendingu sam- kvæmt farmskírteini nr. 63, lít- ill pakki og bauðst skipafélagið til að afhenda hann gegn afhend ingu farmskírteinis nr. 62. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu, að þar sem heild- verzlunin hefði kvibtað fyrir móbtöku 5 kassa, er hann mót- tók vörur samkvæmt farmskír- teini nr. 63, virtist sem einn um- Framhald á bls. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.